Morgunblaðið - 17.09.2000, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 17.09.2000, Blaðsíða 19
MÖRÖCJNBIASIÐ SUNNUDAGURT7L SEPTBMBEíR 2000 B 19 MANNLIFSSTRAUMAR MATARLIST/LáfózV kampavín lundina? Freyðandi sól á flöskum ÉG er ekki mikil áhugamanneskja um Formúlu-kappaksturinn og þá „Skósmið“ og félaga. Hitt verð ég þó að játa að mér finnst alltaf dálítið skemmtilegt að sjá þegar þeir sprauta kampavíninu yfir mann- fjöldann og sjálfa sig í lok keppninn- ar. Mér finnst almennt eitthvað svo skemmtilegt og glaðlegt við það þegar kampavínstappi skýst úr flösku, enda er yfir- leitt skálað í kampa- víni til að fagna ólík- ustu hlutum. Maður fer einfaldlega í gott skap af tilhugsun- inni einni saman (þó svo að manni sé al- veg sama hver vinn- ur í Formúlunni). Þegar kampa- eða freyðivínsflaska er opnuð skal varast að beina tappan- um að fólki eða brothættum munum, því þá gæti gleðin á einni svipstundu breyst í harmleik, því það er sko ekk- ert grín að fá stærðarinnar korktappa nánast á ljóshraða beint í augað. Kjöraðstæður fyrir kampavínstappa- flug eru út um glugga eða svaladyr á íbúð á Montpamasse, en nánast hvaða gluggi sem er dugar og íslenskt birkiþykkni er tiivalinn lendingar- staður. Einnig er hægt að opna kampavínsflösku á hljóðlátari hátt. Virinn utan um tappann er þá tek- inn af og tappanum lyft varlega upp með fingurgómum og síðan tekinn upp að lokum, t.d. með hjálp tauserv- íettu. Eftir Álfheiíi Hönnu Friðriksdóttur Ef þessara varúðarráðstafana er gætt er afar upplífgandi fyrir sálina á dimmum haustdögum að skála í góðra vina hópi í kampavíni, eða bara einn með elskunni sinni við kertaljós og kavíar (t.d. silungs). Brillat-Savar- in, franski matarheimspekingurinn sem ég hef oft vitnað í, segir um áhrif kampavíns: „Fyrstu áhrif þess vekja kátínu, hin næstu furðu...“ Hver get- ur túlkað þetta fyrir sig og allir verða að þekkja sín takmörk. Það eru nú fá- ir miklir gleðigjafar á 6. eða 7. glasi, þótt það sé af kampavíni, en eftir eitt til tvö eru flestir enn á kátínustiginu. í bók sinni, Drekktu vín. Lifðu betur. Lifðu lengur, bendir höfundurinn Er- ÞJÓÐLÍFSMNKAR // endar þetta eiginlega? Þjóðráð að leiía til þjóðarinnar? ALLT er breytingum undirorpið, það er hverjum manni ljóst. Hins vegar leiða margar breytingar í dag til þess að nöfn á stofnunum lengjast og lengjast. Og þar sem alltaf er verið að sameina fleiri og fleiri stofnanir og fyrirtæld er vandséð hvemig þetta eiginlega endar. n Eftir Guörúnu Guðlaugsdóttur Fyrir hvem þann sem setur saman texta þar sem sameinaðra stofn- ana er getið er þetta fremur hvimleið þróun. Nöfn em orðin svo löng að til vandræða horfir á stundum. Maður spyr sig af þessu til- efni: Hvemig er samkomulagi þeirra eiginlega háttað sem era að sameina starfsemi sína en geta ekki, væntanlega þrátt fyrir viðleitni, komið sér saman um stutt og þjált nafn á starfsemina? Ég ætla í þessum pistli aðeins að geta tveggja dæma úr „opinbera geiran- um“. í Fossvogi stendur mikil bygging sem einu sinn hét Borgarspítalinn. Síðan fékk byggingin nafnið Sjúkra- hús Reykjavíkui' og eftir sameiningu við Landspítalann heitir hún nú Landspítalinn - háskólasjúkrahús í Fossvogi - fremur vond skipti fyrir Ég er farinn að nudda í Fínum línum Skúlagötu 10, sími 562 9717. Allirgamlir og nýir viðskiptavinir velkomnir í MFR losun „unwinding", Slökunamudd, Bandvefsnudd, Djúpvefjanudd, Sjúkranudd, Triggerpunkta meðferð, íþróttanudd Eiríkur Sverrisson C.M.T. ^BoulderSchool^of^massage^herapyCoUSA^^jittg^wwWjSirnnetis^irikure/ ik Olaf-Hansen á áhrifamátt kampa- víns gegn skammdegisþreytu og þunglyndi. Ef til viB hefur það einnig mikið að segja auk „áhrifanna" að við tengjum kampavín yfirleitt við gleði- stundir í lífinu. Þurrt kampavín eða freyðivín er frábær fordrykkur og nýtur sín einn- ig einstaklega vel í félagsskap hum- ars og/eða krabba. Það á einnig ágæt- lega við með salati með fiski, rækjum, ostram, kræklingum og soðnum og steiktum fiski. Sætu freyðivínin eiga best við með eftirréttunum, eins og t.d. ávaxtaeftirréttum og smákökum ýmiss konar. Einn uppáhaldskampa- vínsdrykkurinn minn er „Bucks Fizz“, sem er ferskur ávaxtasafi og þurrt kampa- eða freyðivín blandað til helminga. Þessi drykkur er tilval- inn í hátíðar-„brunch“ og sem drykk- ur með dekurmorgunverði í rúmið svona endrum og eins. Þessar rækjur era tilvalið partí- snakk eða sem léttur forréttur og þar sem maður heldur á þeim með tré- pinna er við hæfi að skála fyrir kokk- inum í kampavmi með hendinni sem er laus. Úthafsrækjur i hunangs- og basilíegi Afskeljið rækjumar en skiljið hal- ann eftir. Skerið með beittum hnífi eftir endilöngum rækjuhryggjunum og fjarlægið æðamar. Blandið hinum hráefnunum saman í skál. Veltið rælqunum því næst upp úr leginuBj, setjið plastfilmu yfir skálina og seqið í kæli í 30 mín. Þræðið hverja rækju upp á sinn trégrillpinna. Vefjið ál- pappír upp á trépinnaendana til að þeir brenni ekki. Raðið rækjunum á léttolíusmurða bökuriárplötu og bakið 2-3 mínútur á hvorri hlið við 200°. Berið fram undir eins. Þessi kampavínseftirréttur er frá- bær. Kampavins- graníta Uppskrift lyrir 6-8 200 g hrásykur Uppskrift fyrir 6 12 ópillaðar úthafsrækjur 2 msk. ferskt fínsaxað basil 1 msk. sojasósa 1 tsk. hrísgrjónavínedik börkur og safi úr einni lífrænt ræktaðri sítrónu 1 flaska af bleiku kampavíni Setjið sykurinn í pott ásamt 430 ml af vatni, sjóðið við vægan hita í 10 mín. og hrærið vel í á meðan. Bætið sítrónuberkinum út í og sjóðið í nokkrar sek. við mikinn hita. Bætið sítrónusafanum út í og kælið. Þegar blandan er orðin köld er kampavín- inu bætt út í, hellt í mót og fryst. ^ - Hrærið í blöndunni á klukkú- stundarfresti í 3-4 tíma og berið fram í háum glösum. Skreytið e.tv. með myntulaufi. Léttu þér Nýjar tölvutöskur «■ þá sem þurfa að nefna eða skrifa um viðkomandi byggingu. Kópavogshælið heitir nú endur- hæfingar- og hæfingardeild Land- spítalans í Kópavogi. Líka óþjált í skriftum sem í munni. Sjálft Landsbókasafnið heitir nú Landsbókasafn íslands - Háskóla- bókasafn. Þar era t.d. stundum sýn- ingar í „forsal þjóðdeildar Lands- bókasafn íslands - Háskólabóka- safns“. Ekki lipur nafngift úr herbúðum þar sem kannski mætti vænta meira hugmyndaflugs í með- ferð hinnar íslensku tungu. Og hvað ef þetta ágæta safn sam- einast einhvemtíma Borgarbókasafni Reykjavíkur? Úr því að Landsspít- alinn og Borgarspítalinn (Sjúkrahús Reykjavíkur) gátu sameinast, þá gæti alveg eins komið til frekari sam- einingar bókasafna - eða hvað? Ef að stjómendur, og aðrir sem að sameiningu stofnana og fyrirtækja koma, geta með engu móti látið sér detta í hug stutt og þjál nöfn á hina sameinuð starfsemi, væri líklega þjóðráð að leggja málið fyrir almenn- ing. Mér finnst jafnvel að valdamenn ættu að huga að því, ef svo heldur fram sem horfir, að banna með lögum lengri nöfn á, allténd opinberar stofn- anir, en sem svarar einni venjulegri bókarlínu. % s § ísá Ui es § % o «6 % Ci • % ferðalagið! % « % 55 « as S w Verð: 5000,- Saxoline ♦ 3. Stærðir Verð: 3900,- 5500,- 6500,- ****** !> YDRK Stærsta töskuverslun landsins Skólavörðustíg 7, RVÍK, Sími 551-5814

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.