Morgunblaðið - 17.09.2000, Síða 24
.^4 B SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2000
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Bifröst og Manitoba-háskóli
Samningur um
nemendaskipti
TVEIR þriðja árs nemar Viðskipta-
háskólans á Bifröst stunda nú nám
sitt við viðskiptadeild Manitoba-há-
skóla í Winnipeg í Kanada. Sam-
kvæmt nýlegum samningi milli há-
skólanna gefst þriðja árs nemum
Viðskiptaháskólans nú tækifæri til að
stunda hluta af námi sínu við Mani-
tobaháskóla, segir í fréttatilkynningu.
Samningurinn gerir ráð fyrir að
tveir nemar Viðskiptaháskólans á
Bifröst geti árlega farið til Kanada og
sömuleiðis verði tekið á móti tveimur
kanadískum nemum. Alls tekur Mani-
tobaháskóli við fjórum íslenskum
nemendum ár hvert, tveimur frá Við-
skiptaháskólanum á Bifröst og tveim-
ur frá Háskóla íslands.
Áður hefur skólinn á Bifröst gert
svipaðan samning um nemendaskipti
við nokkra háskóla í Evrópu og stund-
uðu 5 nemendur háskólans nám í
Þýskalandi á síðasta ári auk þess sem
6 erlendir stúdentar, frá Þýskalandi
og Hollandi, stunduðu hluta af sínu
námi við Viðskiptaháskólann í vor.
Ueiðileikur
fyrir börn
o£ unölinöa
Frestur til að senda inn mynd í veiðileik Veiðimálastofn-
unar, Veiðimannsins ehf. og Olíufélagsins hf. hefur verið
framlengdur til 30. september 2000. Börn og unglingar
eru hvött til að senda Veiðimálastofnun mynd (teiknaða
eða Ijósmynd) sem tengist veiðiferð sumarsins 2000.
Merkið myndina „Veiðileikur”, ásamt nafni og heimilis-
fangi sendanda. Veitt verða verðlaun fyrir 10 skemmtileg-
ustu veiðimyndirnar.
1. verðlaun:
Barnapoki frá Red Wolf með
veiðistöng, veiðihjóli, línu,
önglum og segulnöglum.
2. -10. verðlaun:
Stangasett frá Red Wolf.
VEIÐIMALASTOFNUN
Vagnhöföa 7,110 Reykjavík,
stmi 567 6400, www.veidimal.is
ÞYSKUNAMSKEIB
í GOETHE-ZENTRUM
Vönduð þýskunámskeið sem leiða til hinna
stöðluðu prófa Goethe-stofnunar er njóta
viðurkenningar um heim allan.
Ef næg þátttaka næst verður boðið upp á próf sem
jafngildir inntökuprófi í þýsku við þýska háskóla.
Upplýsingar í síma 551 6061 frá kl. 15-18 frá
þriðjudegi til laugardags eða sendið beiðni um
frekari upplýsingar á netfangið
goethe@simnet.is. Námskeiðin hefjast 25.9.
Námskeið haustið 2
ilili
Byrjendanámskeið
Grundstufenkurse
fyrir fólk meö grunnkunnáttu í þýsku
Mittelstufenkurse
Fúr Teilnehmer mit guten bis sehr guten Vorkenntnissen
Oberstufenkurs
Fur Teilnehmer mit sehr guten Vorkenntnissen
Konversationskurs/ Talnámskeið
Kindersprachkurse / Barnanámskeið
Literaturkurse / Bókmenntanámskeið
Lektúrekurse zu Gúnter Grass, Heinrich Böll,
Marcel Reich-Ranicki
Islandisch fiir Anfanger
Unterrichtssprache Deutsch
GOETHE-
INSTITUT
Nú bjóðum við fjórar
ferðir til hinnar fom-
frægu og fallegu borgar
Prag 4., 11., 17. og 24.
október. Flogið verður
til Frankfurt í Þýskalandi
þaðan sem ekið verður
samdægurs til Prag. Þar
verður svo gist næstu 6
nætur (5 nætur í ferðinni
11/10) en á næst síðasta
degi verður ekið áleiðis
til Frankfurt með við-
komu í Karlovy Vary og
gist síðustu nóttina í
Þýskalandi.
Verð á mann er 59.900 kr. (56.500 kr. þann 11/10) og er þá innifalið flug, akstur milli Frank-
furt og Prag, gisting í tveggja manna herbergi, morgunverður, flugvallaskattur, skoðunarferð
um borgina og íslensk fararstjóm.
Leitið nánari upplýsinga hjá utnalandsdeild okkar.
48* Einnig á heimasíðu okkar: www.gjtravel.is
Ferðaskrifstofa
GUÐMUNDAR JÓNASSONAR BHF.
Borgartúni 34, sími 511 1515
Fréttgetraun á Netinu
,»> mbl.is
ALLTAf= ŒITTH\SAT> AÍYT7