Morgunblaðið - 26.09.2000, Qupperneq 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Vala Flosadóttir, eftir að hafa tryggt sér bronsverðlaunin á ÓL í Sydney
Aðeins þakklæti,
vellíðan og heiður
„í RAUN og veru áttaði ég mig
ekki alveg á því hvað mér hafði
tekist fyrr en ég stóð á verð-
launapallínum," sagði Vala
Flosadóttir, bronsverðlauna-
hafi í stangarstökki kvenna, er
Morgunblaðið hitti hana að
máli eftir að hún hafði tekið við
verðlaunum sínum. „Þegar
keppninni lauk og ég var stödd
úti á vellinum gerði ég mér
ekki alveg grein fyrir því hvað
hafði gerst. Ég þurfti að líta
hvað eftir annað á töfiuna með
úrslitunum til þess að trúa því
sem hafði gerst. Einnig spurði
ég Danann, Marie Bagger
Ramsussen, hvort það væri
rétt eða hvort ég væri að sjá
ofsjónir. Þetta var hreinlega
yndislegt og kvöldið í heild var
stórkostlegt. Ég naut þess svo
innilega að vera úti á vellinum,
innan um þennan gríðarlega
fjölda áhorfenda, sjá ólympíu-
eldinn loga fyrir ofan okkur, og
vera í þeim tilgangi að keppa
og skemmta mér um leið. Eg á
aldrei eftir að gleyma þessari
stund á vellinum, þetta er það
stórkostlegasta sem ég hef
upplifað til þessa á ævinni,“
sagði Vala.
'Wfala segist aldrei hafa velt því fyr-
W ir sér að með þessu eða hinu
stökkinu væri hún hugsanlega að
tryggja sér verð-
Eftir laun, eða þá þegar
Ivar hún fór yfir 4,50
Benediktsson sagði hún við sig
íSydney gjálfa;
nú er það
komið. „Eg reyndi frekar að einbeita
mér að keppninni, vera jákvæð og
ekki að fara að velta mér upp úr ein-
Vala Flosadóttir bronsverðlaunahafi, Stacy Dragila Bandarikjunum, sem fékk gullið, og ástralska stúlkan Tatiana Grigorieva silfur-
verðiaunahafi, bita i verðlaunapeninga sína.
Vala, þú getur þetta!
ORÐIN að ofan eru þau sem Vala Flosadóttir bronsverðlaunahafi
hvíslaði að sjálfri sér fyrir hvert stökkið á eftir öðru allt þar til hún
hafði tryggt sér bronsverðlaunin í stangarstökki á Ólympíuleik-
unum í Sydney í gær. Þessi orð blésu henni þann kraft, þann
styrk sem þurfti til að vinna stórkostlegt afrek, eitt hið mesta í
sögu landsins á sviði íþrótta að minnsta kosti. Vala stökk 4,50
metra og bætti eigið íslands- og Norðurlandamet um 14 sentí-
metra. Aðeins heimsmethafinn og heimsmeistarinn Stacy Drag-
ila frá Bandaríkjunum og heimamaðurinn Tatiana Grigorieva
stukku hærra, 4.60 og 4,55. Það var svo sannarlega hátíðarstund
fyrir hina fáu Islendinga sem voru meðal rúmlega 112.000 áhorf-
enda á Ólympíuleikvanginum og hjá fáum var meiri gleði og stolt.
jgkki einatt var þama keppt í úr-
Ivar
Benediktsson
skrifar
frá Sydney
slitum kvenna í fyrsta sinn og
íslendingurinn á meðal keppenda
heldur vann Vala
hug og hjörtu áhorf-
enda strax með
geislandi framkomu
og frábærri frammi-
stöðu á Ólympíuleikvanginum.
Fyrst íslenskra kvenna í úrslitum
á Ólympíuleikum gekk Vala örugg-
um skrefum fram á sviðið, sýndi fum-
lausa frammistöðu og uppskar sam-
kvæmt því, bronsverðlaun, mesta
íþróttaafrek sem íslendingur hefur
unnið frá því Bjarni Friðriksson
vann bronsverðlaun í júdó á leikun-
um 1984. Og það sem meira er, á ný
varð Ástralía staðurinn; þar vann
Vilhjálmur Einarsson íslendingsins
mesta afrek er hann vann silfurverð-
launin í þrístökkskeppni á Ólympíu-
leikunum í Melbourne fyrir 44 árum,
afrek sem lengi hefur staðið upp úr í
íslenskri íþróttasögu. Hér eftir verð-
ur nafn Völu Flosadóttur skráð
gullnu letri í íslandssöguna. Stundin
sem hún steig upp á verðlaunapallinn
og tók við verðlaunum sínum og ís-
lenski fáninn blakti við hún líður
þeim löndum hennar sem viðstaddir
voru aldrei úr minni. Island var sýni-
legt milljónum manna um allan heim,
þökk sé Völu Flosadóttur, ásýnd eyj-
unnar í norðri gat ekki verið glæsi-
legri. Gleði 280.000 manna eyþjóðar
endurspeglaðist í hetjunni.
Undankeppni stangarstökks
kvenna á laugardagskvöldið gaf viss
fyrirheit.
Greinilegt var að Vala var vel upp
lögð og staðráðin í að gera sitt besta.
Með sama hugarfari mætti þessi 22
ára gamla kona til leiks í úrslitunum í
gær.
Utgeislun hennar var sterk og
greinilegt var að hún naut þess að
vera kynnt fyrir þeim rúmlega
100.000 áhorfendum sem mættir
voru til að fylgjast með keppni í fjöl-
mörgum greinum dagsins. Víst er að
Vala var komin til að gera sitt besta
og það varð svo sannarlega raunin.
Vala var tólfta í röð þrettán
stökkvara sem allir áttu það sameig-
inlegt að vera mættir til leiks til þess
að kljást um verðlaun á mestu
íþróttahátíð heims. Öryggið uppmál-
að stökk Vala yfir 4 metra og síðan
4,15 metra. Sýnilegt var á þeim
stökkum að Vala átti mikið inni. Svo
var einnig um fleiri keppendur.
Heimsmethafinn, Dragila, byrjaði
ekki að stökkva fyrr en við 4,25
metra markið og sömu sögu var að
segja af öðrum sigurstranglegum
keppanda, Anzhelu Balakhonovu frá
Úlö'aínu, Evrópumeistara og met-
hafa og silfurhafa frá HM í fyrra.
Hún náði sér ekki á strik og heltist úr
lestinni eftir þrjár misheppnaðar til-
raunir. Aðrir skæðir keppinautar
Völu voru enn með, Dragila, Daniela
Bartova frá Tékklandi, heimamaður-
inn Grigorieva og Þjóðverjarnir
Nicola Humbert og Yvonne Bush-
baum, sem varð heimsmeistari inn-
anhúss í fyrra eftir æsilega keppni
við Völu.
Hvert stökkið á fætur öðru var
hins vegar svo öruggt hjá Völu á
meðan keppinautarnir voru í basli
með einhverjar hæðir. Fyrst 4,25 þá
4,35 og síðan íslands- og Norður-
landamet, 4,40. Gat Vala endalaust
haldið áfram? Síðan öruggt stökk yf-
ir 4,45 og síðan hárfint stökk yífir
4,50.
Verðlaunasæti var innan seilingar.
Var ævintýrið að eiga sér stað? Var
Vala enn einu sinni að standa í báða
fætur þegar mest á reyndi? Já, svo
var raunin.
Bartova, Dragila og Grigorieva
fóru einnig yfir 4,50, en Vala stóð
þeim öllum fremri vegna þess að hún
hafði aldrei fellt. Þegar Vala stökk
yfir 4,50 í fyrstu tilraun, breikkaði
brosið til muna þegar hún veifaði til
áhorfenda, hún vissi að verðlaun
væru innan seilingar.
Þegar ráin var komin í 4,55 var
komið að múmum sem Völu var of-
viða. Þjár misheppnaðar tilraunir en
í síðustu tilraun var ljóst að Vala var
komin með bronsið, hvernig sem
færi, þar sem Bartova og Humbert
voru úr leik og Bushbaum hafði
nokkuru áður þurft að játa sig sigr-
aða. Grigorieva stökk yfir í fyrstu til-
raun og komst ekki hærra, Dragila
bætti 5 sentímetrum við.
Ljóst var að íslendingurinn var
kominn á verðlaunapall á Ólympíu-
leikum, sagan var ævintýri líkust.
Eftir að hafa orðið fyrsti Evrópu-
meistari sögunnar í stangarstökki
kvenna á EM innanhúss 1996 hefur
Vala haldið sínu striki þótt ekki hafi
lífið alltaf verið dans á rósum frekar
en hjá öðrum afburða íþróttamönn-
um. En elja, þolinmæði og einstakt
keppnisskap hefur sýnt að hún er
best þegar mest á reynir. Brons á
EM innanhúss 1998 og tvö heimsmet
á sama ári, silfur á HM innanhúss í
Japan 1999, gull á EM unglinga í
fyrra og silfur tveimur árum áður
svo fátt eitt sé upptalið. Það er ekki
hægt að biðja um glæsilegri afreka-
skrá hjá 22 ára gamalli stúlku sem
sagði heimsbyggðinni að keppni lok-
inni að hún væri þjóð sinni þakklát
fyrir að hafa veitt sér tækifæri til
þess að keppa fyrir hennar hönd á
Ólympíuleikum. Sú hin sama þjóð og
sendi hana á að vera stolt og þakklát
fyrir að eiga hetjuna, Völu Flosadótt-
ur, fyrir dóttur. Vala, þú gast það!