Morgunblaðið - 26.09.2000, Síða 10
10 C ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 2000
^ QQO
MORGUNB LAÐIÐ
Szabo
settií
auka-
gír...
GABRIELA Szabo og Sonia
O’Sullivan settu á svið æsilegan
endasprett í 5.000 m hlaupi
kvenna á Ólympiuleikunum i
gær. Hin 42 kilógramma Szabo
sýndi styrk sinn sem besta al-
hliða hlaupakona heims með þvi
að halda forystunni til loka og
vinna gullið. O’Sullivan átti æv-
intýralegan endasprett og útlit
var fyrir að hún næði Szabo á
siðustu 100 metrunum en Szabo
gaf bara í líka og lét forystuna
ekki af hendi og kom í mark á
14.40,79 minútum.
Gete Wami frá Eþiópiu náði
bronsinu en hún var með for-
ystu í hlaupinu er um 200 metr-
ar voru eftir. Hún var þó ánægð
með bronsið og fagnaði líkt og
um gull hefði verið að ræða.
O’Sullivan setti írskt met er hún
náði silfurverðlaunum á tíman-
um 14.41,02.
„Mér líður frábærlega. Þetta
var rosalega erfitt en ég hafði
hraðann," sagði Szabo en hún
vann silfur i 1.500 m hlaupi á
leikunum í Atlanta. Hún var val-
in frjálsíþróttakona ársins í
fyrra eftir sigur á heimsmeist-
aramótinu.
Szabo eyddi mestum tíma
hlaupsins i að skiptast á um þrjú
efstu sætin við Wami og Ayelech
Worku frá Eþíópíu á meðan
O’SulIivan var um miðjan hóp
og beið færis. O’Sullivan leit út
fyrir að vera sigurstranglegri
undir lokin en Szabo setti i
aukagír og hljóp af fullum krafti
yfir endalínuna.
Skot-
mennimir
famir heim
ALFREÐ Karl Alfreðsson
skotmaður, Peter Pákk þjálf-
ari hans og Halldór Axelsson
flokksstjóri kvöddu ólympíu-
þorpið í Sydney á sunnudag-
inn og héldu heim á leið, dag-
inn eftir að Alfreð lauk
keppni. Eru þeir félagar þeir
fyrstu úr íslenska hópnum
sem yfirgefa búðirnar. Næst-
ur til að fara er Rúnar Al-
exandersson en hann heldur
til Svíþjóðar á miðvikudaginn
til móts við kærustu sína sem
á von á fyrsta barni þeirra á
næstu dögum. Aðrir keppend-
ur íslands, þjálfarar og flokk-
stjórar ásamt fararstjórum
verða í Sydney fram til 4.
október. Ólympíuleikunum
lýkur 1. október.
Anier Garcia
Kúbu
Ólympíumeistari í 110 metra
grindahlaupi karla.
Fæddur: 9. mars 1976 í Sant-
iago á Kúbu.
Helstu afrek: Silfur á HM 1999
og Ameríkumeistari sama ár.
Heimsmeistari í 60 m grinda-
hlaupi innanhúss 1997.
■ Náði besta heimstímanum í
ár, 13,07 sekúndum, og hélt
honum í þrjár vikur.
■ Sigurtíminn í gær, 13,00 sek-
úndur, er hans besti árangur og
kúbverskt met.
Reuters
írska stúlkan Sonia O’Sullívan varð að horfa á eftir Gabriela Szabo (2832) á undan sér í markið.
Gete Wami (1676) frá Eþíópíu fékk brons.
Kúbumaðurinn Anier Garcia kemur í mark sem sigurvegari f 110 m grindahlaupi. Bandaríkjamað-
urinn Terrence Trammel, til hægri, fékk silfur, en Dudley Dorival frá Haiti varð sjöundi.
Gabriela
Szabo
Rúmeníu
Ólympíumeistari í 5.000
metra hlaupi kvenna.
Fædd: 14. nóvember 1975 í
Bistrita í Rúmeníu.
Helstu afrek: Silfurverðlaun í
1.500 m hlaupi á ÓL í Atlanta
1996. Heimsmeistari í 5.000 m
hlaupi 1997 og 1999, heims-
meistari innanhúss og Evr-
ópumeistari í 3.000 m hlaupi.
Vann gullmótin í 3.000 og
5.000 m hlaupum 1999. Frjáls-
íþróttakona ársins í heiminum
1999.
■ Eftir sigurinn í Atlanta 1996
sneri hún sér að lengri hlaup-
unum með mögnuðum árangri.
■ Lítil og létt, vegur aðeins 42
kíló, en er með ótrúlegt þrek
og úthald.
■ Eiginmaður hennar, Zsolt
Gyongyossy, er rúmenskur
meistari í grindahlaupi.
■ Szabo leggur mikla áherslu
á hvíld í undirbúningi sínum
og sefur í allt að 16 tíma á sól-
arhring.
Ovæntur sigur Garcia
EIN óvæntustu úrslit frjálsíþróttakeppni Ólympíuleikanna í Sydn-
ey urðu á mánudagsmorguninn þegar Kúbumaðurinn Anier
Garcia sigraði í 110 metra grindahlaupi á 13 sekúndum sléttum.
Hinn 24 ára gamli Kúbumaður átti brúðkaupsafmæli i gær og
sagði að þetta væri fín gjöf til Barböru Salcedo
konu sinnar, en þau giftu sig fyrir ári.
Flestir höfðu búist við að ólymp-
íumeistarinn frá 1996, Allen
Johnson frá Bandaríkjunum og
heimsmethafinn Colin Jackson frá
Bretlandi myndu berjast um sigur-
inn og allra augu beindust að þeim.
Kúbumaðurinn virtist ekki hafa
neinar áhyggjur af því hvað menn
héldu fyrir hlaupið og tók forystu
strax og hélt henni til loka. Banda-
ríkjamaðurinn Terrance Tammell
varð annar á 13,16 sekúndum,
Mark Crear landi hans þriðji á
13,22 sekúndum 1/100 á undan Al-
len Johnson og í 5. sæti kom
heimsmethafinn Jackson.
Garcia hefur verið framarlega í
greininni að undanförnu og því
hefðu sérfræðingar átt að muna
eftir honum þegar spáð var í spil-
in, en hann var til dæmis annar á
síðasta heimsmeistaramóti.
„Ég vissi að ég yrði að ná góðu
starti og ég held að þetta sé besta
start sem ég hef náð um ævina,“
sagði kappinn mjög ánægður enda
setti hann persónulegt met og
landsmet eins og Bandaríkjamað-
urinn Tammell sem varð annar.
Garcia sagðist hafa hugsað um
þennan ákveðna dag í heilt ár. „Ég
hef hugsað um þennan dag á
hverjum degi í heilt ár og þá aðal-
lega um Allen Johnson enda var
hann með besta tímann í greininni.
Um leið og skotið reið af var ég
sannfærður um að ég gæti sigrað,“
sagði Garcia.