Morgunblaðið - 26.09.2000, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
'^QÞo OQp
ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 2000 C 11
Jonatha
Edward
- besti
þrístökkvi
allra
HEIMSMETHAFINN Jonathan
Edwards frá Bretlandi full-
komnaði fernuna er hann
sigraði í þrístökki með því að
stökkva 17,71 metra, 24
sentimetrum lengra en Yoel
Garcia frá Kúbu.
Þar með kemst hann í sögubæk-
umar sem mesti þrístökkvari
allra tíma því í gærmorgun haði hann
orðið heims-, Evrópu- og Samveldis-
meistari og í gær bættist Ólympíu-
meistaratitillinn í safnið.
Edwards, sem skaust fyrst fyrir al-
vöru upp á stjömuhimininn þegar
hann setti glæsilegt heimsmet á
heimsmeistaramótinu 1995 en þá
sveif hann 18,29 metra. Hann varð
annar á Ólympíuleikunum í Atlanta
og hefur ekki gengið sem best síðan.
Hann náði þó næstbesta stökki ársins
er hann stökk 17,62 metra í ágúst og
sigur í gær var hinum 34 ára gamla
Breta mjög mikils virði enda hefur
ferill hans verið þymum stráður und-
anfarin ár. „Eg er mjög þakklátur
fyrir sigurinn og em þakkir efstar í
huga, þakkir til mjög margra sem
hafa gert miklu meira fyrir mig en ég
hef gert fyrir þá. Eg hugsa til Alison
konu minnar og krakka," sagði
Edwards og þakkaði Guði fyrir, enda
mjög trúaður. Hann segh- almættið
hafa reynst sér vel á erfiðum tímum
eins og í Sydney en þá lést tengda-
móðir hans í Bretlandi. Kona
1792
ÞRISTOKK KARLA
Edwards sagði að hann hefði verið
ákveðinn í að sigra til að fjölskyldan
gæti glaðst yfir einhverju eftir erfiða
tíma.
Sigur hans er Bretum einnig mikil-
vægur því þetta vora sjöttu gullverð-
laun þeirra á leikunum og besti ár-
angur íþróttamanna þeirra í áraraðir,
eða frá því leikamir vora síðast
haldnir í Astralíu, í Melboume 1956.
. &
Jonathan Edwards
Bretlandi
Ólympíumeistari í þrístökki karla.
Fæddur: 10. maí 1966 í London, Englandi.
Helstu afrek: Heimsmethafi með 18,29 metra og á
fjögur lengstu löglegu stökk sögunnar. Heims-
meistari 1995. Silfur á ÓL í Atlanta 1996. Evrópu-
meistari 1998, brons á HM 1993 og 1999.
■ Stökk 18,43 metra í meðvindi áður en hann setti
fyrsta heimsmet sitt, 17,98 metra, árið 1995.
■ Keppti ekki á HM 1991 af trúarlegum ástæðum,
þar sem þrístökkskeppnin var á sunnudegi. Gerði
undantekningu tveimur árum síðar og fékk brons
á HM.
■ Vann 22 mót í röð 1995 til 1996 en sú sigurganga
var rofín á ÓL í Atlanta þar sem hann varð annar.
■ Meiðsli í hné, hæl og ökkla hafa háð honum síð-
an 1996 og Edwards segist alltaf þjáður af sárs-
auka í keppni.
Reuters
Jonathan Edwards stekkur sigurstökk sitt.
Mutola fékk
loksins gull
MARIA Mutola frá Mósambík
sigraði með glæsilegum hætti í
800 metra hlaupi í gær. Hún
hafði beðið lengi eftir gullinu á
Ólympíuleikum því hún keppti
fyrst í Seoul 1988 þá 15 ára og
hefur síðan verið í allra
fremstu röð en sjaldan á stór-
mótum og aldrei á Ólympíu-
leikum.
Mutola hljóp mjög vel, hélt sér í
miðjum hópi en Helena
Fuchsova fór fyrir hópnum. Þegar
um 200 metrar vora eftir tók hin
breska Kelly Holmes við forystunni
og virkaði mjög afslöppuð og yfir-
veguð. Þegar stúlkurnar komu á
beina kaflann skaust Mutola framúr
og gerði það á ytri brautunum til að
forðast að lenda í árekstri þegar hóp-
urinn tók á rás. Hún kom íyrst í
mark á 1.56,15 og verður öragglega
gaman fyrir hana að koma heim með
fyrsta gullpeninginn sem þjóð henn-
ar fær á Ólympíuleikum.
Kelly Holmes gaf eftir á enda-
sprettinum og Astralska stúlkan
Maria Mutola
Mósambík
Ólympíumeistari í 800 metra hlaupi
kvenna.
Fædd: 27. október 1972 í Maputo í Mós-
ambík.
Helstu afrek: Heimsmeistari í 800 m
hlaupi 1993, fékk brons á HM 1997 og silf-
ur 1999. Fékk brons á ÓL í Atlanta 1996.
Vann 50 hlaup í röð á árunum 1992-1996.
■ Fékk Ólympíustyrk til að stunda nám í
Bandaríkjunum og valdi þar frjálsíþróttir
í stað knattspyrnu.
■ Býr í Eugene, Oregon, í Bandaríkjun-
um en er eftir sem áður þjóðhetja í Mós-
ambík.
■ Keppti fyrst á Ólympíuleikum 15 ára
gömul árið 1988 í Seoul.
■ Varð fyrsti heimsmeistari frá Mós-
ambík árið 1993 og fyrsti samveldismeist-
ari landsins árið 1998.
■ Mutola á öll landsmet í Mósambík frá
200 metram upp í 3.000 metra hlaup.
Maria Mutola fagnar sigri í 800 m hlaupi.
Reuters
Stephanie Graf náði öðra
sætinu við mikinn fögnuð
heimamanna.
„Ég vissi að ég yrði að
útfæra hlaupið mjög vel
ætlaði ég mér sigur og
sem bestur fer tókst það fullkom-
lega. Ég hitti nákvæmlega á rétta
augnablikið til að hefja endasprett-
inn og það var mjög tilfinningarík
stund þegar ég fór yfir endamarkið,"
sagði þjóðhetja Mósambík.
Fjölskyldu-
vænir ÓL
Ingibjörg
Hinriksdóttir
skrifarfrá
Sydney
Það hefur verið sérlega til þess
tekið hvað Ólympíuleikarnir í
Sydney eru fjölskylduvænir. Miða-
verði á marga við-
burði hefur verið
stillt í hóf og foreldr-
ar hafa boðið börn-
um sínum að taka
þátt í þessum sérstæða viðburði sem
Ólympíuleikar era. „Ég var þar“ er
viðkvæðið sem flestir vilja láta eftir
sér hafa.
Ein fjölskylda keypti sér ódýra
miða á Netinu, á handbolta, sem er
ekki vel þekkt íþrótt hér í Ástralíu.
„Krakkarnir skemmtu sér konung-
lega, og finnst handbolti skemmti-
legri íþrótt heldur en körfuknattleik-
ur,“ sagði fjölskyldufaðirinn John
Talbot. Við byrjuðum daginn á því að
fara í Ólympíugarðinn og soga að
okkur andrúmsloftið sem þar ríkir.
Fyrir framan okkur í handboltahöll-
inni var reglulega stór hópur af
Egyptum, sem stuttu sitt land. Við
voram ákveðin í að eyða nokkrum
dögum hér, en aðeins fara á hand-
boltann, en núna eram við að leita að
miðum á hvað sem er, þetta er stór-
kostlegt og það væri skömm að því
að missa af þessu,“ sagði John.
Basl með
fánann
ILLA gekk að taka niður fána
Rússlands eftir verðlaunaafhend-
ingu fyrir spjótkast karla, en
keppandi Rússa varð þriðji. Um
tíma leit út fyrir að fáni Rússlands
myndi hanga uppi það sem eftir
væri kvölds og það yrði að fresta
verðlaunaafhendingu i öðrum
greinum um óákveðinn tima. Um
síðir tókst að draga fánann niður
og næsta verðlaunaafhending gat
hafist, nokkuð of seint að vísu.
Vel borgað
SJÁLFBOÐALIÐAR, sem starfa
við ÓL, hafa verið beðnii- um að bæta
við tveimur til þremur dögum eftir
leikana til að ganga frá og þrífa.
Flestir hafa aðeins ráðið sig til loka-
dags leikanna, en forsvarsmenn hafa
biðlað til þeirra um að framlengja
vinnu sína og aðstoða við frágang.
Sjálfboðaliðunum hafa verið boðnir
45 ástralskir dollarar á tímann, sem
samsvarar um 2.200 ísl. kr. Þetta
þykir vel boðið hér í landi.
Farsímar
valda vand-
ræðum
ÁHORFENDUR á ÓL hafa verið
hvattir til að slökkva á farsímum
sínum. Nokkur atvik hafa komið
upp þar sem farsímar hafa truflað
keppendur. Keppni var t.d. stöðvuð
á meðan Monica Seles var í keppni
í tennis og áhorfendur beðnir um
að slökkva á sfmum. Þá hcfur því
verið haldið fram að í keppni í lyft-
ingum hafl liðsmenn andstæðinga
stundað það að hringja hver í ann-
an á meðan á keppni hefur staðið,
með það eitt að markmiði að trufla
einbeitingu þess keppanda sem var
við stöngina á hveijum tfma.