Morgunblaðið - 17.11.2000, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Oddviti sjálfstæðismanna
Slæm fjárhags-
staða er heima-
tilbúinn vandi
V erkfalls verðir
í fullum rétti
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
dóm Héraðsdóms Reykjavíkiir og
sýknað Verkalýðsfélagið Baldur á
Isaíirði og einn félagsmann þess af
kröfum Samtaka atvinnulífsins. Sam-
tökin höfðu krafist skaðabóta vegna
tjóns, sem þau töldu verkalýðsfélagið
og félagsmanninn hafa valdið með
ólögmætum hætti við verkfallsvörslu,
þegar komið var í veg fyrir löndun úr
ísfirskum togara í Reykjavík. Hæsti-
réttur segir að áform um löndun í
Reykjavík hafi verið ætluð til að
sneiða hjá áhrifum verkfallsins.
Hópur félagsmanna úr Verkalýðs-
félaginu Baldri, undir forustu Aðal-
heiðar Steinsdóttur, kom að kvöldi 20.
maí 1997 og næsta dag í veg fyrir að
landað væri fiskafla í Reykjavík úr
togaranum Stefni, í eigu Ishúsfélags
ísfirðinga hf. Togarinn var að koma
úr veiðiferð fyrir sunnan land og
héldu Samtök atvinnulífsins því fram
að útgerð hans hafi verið óháð verk-
fallinu, sem ekki hafi náð til sjó-
manna. Fyrirtækið Löndun hf. átti að
annast löndunina, en flestir starfs-
menn þess voru félagsmenn í Verka-
mannafélaginu Dagsbrún. Við komu
togarans höfðu verkfallsverðir tekið
sér stöðu á bryggjunni og lagt bifreið-
um sínum við skipshlið.
Hæstiréttur segir að útgerð togar-
ans og rekstur vinnslustöðvar eig-
andans á ísafirði hafi verið samþætt-
ur atvinnurekstur, og fyrirhuguð
áform atvinnurekandans um löndun í
Reykjavík verið ætluð til að sneiða
hjá áhrifum verkfallsins og falið í sér
brot gegn lögum um stéttarfélög og
vinnudeilur og gegn réttmætum
hagsmunum verkalýðsfélagsins og fé-
lagsmanns þess. Þá segir Hæstirétt-
ur það tilheyra verkfallsrétti að lands-
lögum að fólki og félögum í lögmætu
verkfalli væri rétt að verjast því með
friðsamlegum aðgerðum, að reynt
væri að draga úr áhrifum verkfallsins
af hálfu þeirra, sem það beindist
gegn, með því að fá aðra til að leysa af
hendi vinnu að þeim störfum, sem
lögð hefðu verið niður.
Hæstiréttur bendir á að engin átök
hafi orðið við togarann og beinar hót-
anir um valdbeitingu ekki verið hafð-
ar uppi, að því er séð yrði. Uppskipun-
armenn úr Dagsbrún virtust hafa
látið athafnir aðkomufólksins af-
skiptalausar og ekki hafi verið leitt í
ljós hvort stjórnendur togarans hafi
leitað eftir atbeina þeirra um löndun.
Taldi Hæstiréttur ósannað að ákvörð-
un stjómenda skipsins um að sigla því
til annarrar hafnar, í Vestmannaeyj-
um, hafi ráðist af beinum hindrunum
írá hendi verkfallsvarða. Hefðu verk-
fallsverðir ekki kallað yfir sig og stétt-
arfélag sitt ábyrgð á þeim aukna
kostnaði, sem af því hlytist að ráð-
stafa afla skipsins í annarri höfn.
Morgunblaðið/Sigga
Glóbryst-
ingur í
fæði og
húsnæði
GLÓBRYSTINGUR nokkur hefur
gert sig heimakominn í bílskúr á
Grundartanga í Mosfellsbæ. Þetta
er smáfugl af þrastaætt sem er
fremur óalgengur hér við land og
verpir í Evrópu, Asíu og N-Afr-
íku. Silvía Ingibergsdóttir sagði
að fuglinn hefði flogið inn í opinn
bflskúrinn og virst kaldur og
hrakinn. Hann var töðraður á
fuglafræi og baðaði sig í vatni
sem sett var í bala fyrir hann.
Silvía segir að fuglinn sé afar
spakur og skemmtilegur. Líklega
fær hann frítt fæði og húsnæði í
bflskúrnum í vetur því hann er
orðinn of seinn í farflugið suður á
bóginn. Gluggi verður hafður op-
inn á bflskúrnum svo að fuglinn
geti viðrað sig líka. Miðað við
glóandi litinn á brjósti fuglsins
má telja vfst að hann sé fullorð-
inn. Á heimilinu eru tveir dreng-
ir, 8 og 14 ára, sem eru mjög
hrifnir af fuglinum. Einnig er
köttur á heimilinu og mýs í búri í
þvottahúsinu. Helsta vandamálið
yrði ef Keli heimilisköttur sækti í
fuglinn en Silvía segir að hann sé
latur og ekki mikið fyrir veiðar
gefinn.
INGA Jóna Þórðardóttir, oddviti
sjálfstæðismanna í borgarstjórn,
gagnrýndi fjárhagsáætlun Reykja-
víkurlistans á fundi borgarstjórnar í
gærkvöldi og sagði hana bera með
sér að fjármál borgarinnar væru
komin í óefni. Á tímum góðæris væri
sjálfsagt að lækka skuldir. Hún
sagði slæma fjárhagsstöðu vera
heimatilbúinn vanda og hún bæri
ekki vott um trausta fjármálastjórn.
„Ég leyfi mér að fullyrða að á síð-
ustu árum hefur tekist að ná fram
meiri breytingum, bæði í stjómsýslu
og þjónustu borgarinnar, en flestir
væntu. Þetta endurspeglast í því
frumvarpi að fjárhagsáætlun sem ég
mæli fyrir í dag,“ voru lokaorð Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur, borg-
arstjóra, er hún mælti fyrir frum-
varpi um fjárhagsáætlun borgar-
innar fyrir næsta ár.
Borgarstjóri sagði að markvisst
hefði verið unnið að því að aðlaga
stjórnun borgarinnar og þá þjónustu
sem hún veitir breyttu samfélagi.
Ingibjörg Sólrún gerði samskipti
ríkis og sveitarfélaga að umtalsefni,
meðal annars í samgöngumálum,
vegna tekjustofna sveitarfélaga og
málefna fatlaðra. Sagði hún oft hafa
skorist í odda milli borgaryfirvalda
og ríkisvalds, sérstaklega þegar póli-
tískur litur á landstjórninni væri
annar en á borgarstjórn. Um vega-
mál sagði borgarstjóri að framlög
ríkisins til þeirra á þessu ári hefðu
líklega ekki verið lægri frá árinu
1992 og eina ferðina enn væri boðað-
ur niðurskurður á næsta ári.
Fjármálin komin í óefni
Inga Jóna Þórðardóttir gagnrýndi
meirihlutann meðal annars fyrir að
nýta að fullu leyfilega hækkun út-
svarsálagningar sem gæfi borginni
2,2 milljarða kr. tekjuauka en nota
aðeins 500 milljónir kr. til að greiða
niður skuldir. Sjálfstæðismenn lögðu
til að útsvarshlutfallið skuli hækkað
úr 11,99% í 12,32% í stað 12,7% eins
og Reykjavíkurlistinn leggur til. Það
myndi þýða um 500 milljóna króna
tekjulækkun en á móti mætti, að
þeirra mati, lækka fjárfestingar á
næsta ári.
Sjálfstæðismenn lögðu einnig til
að fella niður holræsagjald í áföng-
um næstu tvö árin. Það myndi þýða
500 milljóna króna tekjulækkun á
næsta ári sem mætti einnig mæta
með lækkun fjárfestingarútgjalda.
Inga Jóna sagði að yrði breytingar-
tillaga sjálfstæðismanna um lægri
útsvarshlutfall samþykkt væru sjálf-
stæðismenn reiðubúnir að draga til
baka tillögu um lækkun holræsa-
gjalds. Tillaga sjálfstæðismanna var
hins vegar felld með 8 atkvæðum
Reykjavíkurlistans gegn sjö atkvæð-
um sjálfstæðismanna.
Síðari umræða um fjárhagsáætl-
unina fer fram á borgarstjórnar-
fundi 7. desember.
Þrjár umsóknir
um Dómkirkjuna
ÞRJÁR umsóknir bárust um emb-
ætti prests við Dómkirkjuna í
Reykjavík samkvæmt upplýsingum
frá Biskupsstofu en umsóknarfrest-
ur rann út að kveldi 15. nóvember sl.
Þeir sem sóttu um embættið eru:
Séra Hjálmar Jónsson, þingmaður
Sjálfstæðisílokksins á Norðurlandi
vestra, séra Jón Aðalsteinn Bald-
vinsson, sendiráðsprestur í Lundún-
um, og séra Sigurður Árni Þórðar-
son, verkefnisstjóri á Biskupsstofu.
Núverandi Dómkirkjuprestur,
séra Hjalti Guðmundsson, lætur af
störfum hinn 1. febrúar á næsta ári
fyrir aldurs sakir.
Fimm manna valnefnd presta-
kallsins ífjallar um umsóknirnar og
leggur fram tillögur fyi-ir biskup í
samráði við viðkomandi prófast og
vígslubiskup. Að sögn séra Sigurðar
Sigurðssonar, vígslubiskups í Skál-
holti, má búast við að þessir aðilar
komist að niðurstöðu fyrir næstu
mánaðamót. Dómsmálaráðherra
skipar síðan í stöðuna, að fenginni
tillögu biskups, frá og með 1. febrúar
árið 2001.
Rannsóknarnefnd umferðarslysa skilar skýrslu um rútuslysið á Kjalarnesi
Sýnt að ökumaður
sofnaði undir stýri
RANNSÓKNARNEFND umferð-
arslysa telur sýnt að meginorsök
þess að jeppabifreið og langferðabif-
reið skullu saman á Vesturlandsvegi
við Grundarhverfi á Kjalamesi 25.
febrúar sl. megi rekja til þess að öku-
maður jeppabifreiðarinnar hafi sofn-
að undir stýri með þeim afleiðingum
að bifreiðin sveigði yfir á rangan veg-
arhelming og í veg fyrir langferðabif-
reiðina. Þrír létust í slysinu og marg-
ir slösuðust. Nefndin kemst að þeirri
niðurstöðu að frágangur á festingum
sæta í langferðabifreiðinni hafi ekki
verið nægjanlega traustur til að þola
umferðaróhappið. Rannsóknai'-
nefndin leggur til að sett verði á lagg-
imar nefnd sérfræðinga er geri út-
tekt á öllum langferðabifreiðum í
notkun.
Rannsóknamefndin hefur að und-
anlornu unnið að rannsókn þriggja
rútuslysa frá þessu ári. Auk bana-
slyssins við Gmndarhverfi hefur
nefndin rannsakað slys sem varð
þegar langferðabifreið á leið um
Hvalfjörð hafnaði utan vegar og valt
á hliðina við Múlafjall 14. maí sl. og
þegar langferðabifreið var ekið á
brúarhandrið og hún féll ofan í á við
Hólsselskíl 16. júlí sl. Farþegi í bif-
reiðinni lést og nokkrir aðrir slösuð-
ust.
Jeppinn yfir hámarkshraða
þegar áreksturinn varð
I bréfi rannsóknamefndarinnar til
dóms- og kirkjumálaráðherra segir
að framburðir vitna og aksturslag
jeppabifreiðarinnar í slysinu við
Grundarhverfi styðji þá niðurstöðu
nefndarinnar að ökumaður jeppans
hafi sofnað undir stýri. Af ökurita
langferðabifreiðarinnar megi telja að
ökuhraði hennar hafi verið um 50-55
km á klst þegar áreksturinn varð.
Miðað við það tjón sem á bifreiðunum
varð og framburð vitna megi telja
víst að jeppanum hafi verið ekið yfir
hámarkshraða á vegi. Áætlaðan
áreksturshraða í slysinu megi af
þessu telja hafa verið um 140-150 km
hraða á klst. Fjórar af sex sætaröð-
um langferðabifreiðarinnar losnuðu
frá festingum við það að farþegar
köstuðust á þær. Upphafsaðgerðir
nærstaddra á slysstað fólust í því að
losa sætin, sem komin vom í eina kös,
frá farþegum sem lágu fremst í bif-
reiðinni. I bréfinu segir að áreksturs-
hraði í slysinu og sú staðreynd að
sætaraðir losnuðu í heild sinni veki
spurningar um frágang sæta. Á það
er bent að ákvæði í reglugerð um
gerð og búnað ökutækja skilgreini
ekki nákvæmlega hvernig frágangi
slíks búnaðar skuli hagað. Fram
kemur í bréfinu að farþegi sem lést í
slysinu notaði ekki öryggisbelti og
hafnaði undir bifreiðinni þegar hún
valt á hliðina. Annar farþegi stóð
fremst í bifreiðinni og við áreksturinn
kastaðist hann út úr henni um fram-
rúðuna. Mátti minnstu muna að hann
hafnaði undir bifreiðinni þegar hún
valt á hliðna. Bifreiðin var ekki búin
öryggisbeltum nema í fremstu sæt-
um og í þeim sætum sem ekki hafa
sætisbak fyrir framan. Slíkur búnað-
ur er í samræmi við gildandi ákvæði
um gerð og búnað þessara ökutækja.
Allar rútur verði
með öryggisbeltum
í bréfi nefndarinnar segir að slys
þetta og slysin 14. maí og 16. júlí veki
upp hugleiðingar um öryggisbelti í
langferðabifreiðum. Telja megi fúll-
víst að mun verr hefði farið í Hvalfirði
14. maí ef farþegar hefðu ekki að
meirihluta verið í öryggisbeltum en
sú rúta var með slíkum búnaði í öllum
sætum. Fram kemur að í slysinu við
Hólsselskíl 16. júlí hafi sá er lést
fengið tvo farþega ofan á sig úr tölu-
verðri fallhæð þegar rútan féll til
hægri á hliðina út af bi-únni. í bréfinu
segir að það sé skoðun nefndarinnar
að fyiir því séu komin fullgild rök að
svo verði um búið að allar langferða-
bifreiðar í notkun verði búnar þess-
um mikilvæga öryggisbúnaði.
Rannsóknarnefnd umferðarslysa
leggur það til að sett verði á laggimar
nefnd sérfræðinga er geri úttekt á
öllum langferðabifreiðum í notkun.
Hugað verði að öllum öryggisbúnaði,
sérstaklega öryggisbeltum, með það í
huga hvort ekki sé unnt að koma fyrir
slíkum búnaði í öllum langferðabif-
reiðum. Nefndin hugi einnig að öðr-
um öryggisþáttum, s.s. sætafesting-
um og móti tillögur um hvaða
lágmarksöryggiskröfur sé rétt að
gera í þeim efnum.
Bjöm Friðfinnsson, ráðuneytis-
stjóri í dómsmálaráðuneytinu, segir
að ráðuneytið fallist á tillögur rann-
sóknarnefndar umferðarslysa. Hann
segir að vænta megi þess að nefnd
sérfræðinga verði skipuð á næstu
dögum.