Morgunblaðið - 17.11.2000, Síða 20
20 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Hluti af göngufólkinu sem tók þátt í göngudegi fjölskyldunnar.
Vestmannaeyjum - Menningarmála-
nefnd í Vestmannaeyjum stendur
reglulega fyrir göngudegi fjölskyld-
unnar og var einn slíkur í boði laug-
ardaginn 11. nóvember sl.
Þrátt fyrir norðankalda mætti
töluverður hópur við Stafkirkjuna á
Skansinum í Vestmannaeyjum kl. 14
og var áberandi kvað konur voru
duglegar að mæta. Sigurður Sfmon-
arson fulltrúi bauð göngugesti vel-
komna og kynnti leiðsögumann
hópsins sem var Ólafur Týr Guð-
jónsson sem hefur ritað bók um örn-
efni í Vestmannaeyjum. Ólafur rakti
í upphafi sögu Skanssvæðisins fyrir
göngufólki og leiddi það síðan inn í
bæinn og gangan endaði í kaffiveit-
ingum og fróðleik á Byggða- og
skjalasafni Vestmannaeyja.
Hugmyndir um nýstár-
legt hótel á Seyðisfirði
Morgunblaðið/Pétur Kristján.sfton
Af fjölda gesta sem mættu á fundinn má ráða að
heimamenn hafa mikinn áhuga á málinu.
Seyðisfirði - Hugmyndir
um hótelbyggingu á
Seyðisfirði hafa nú
fengið byr undir báða
vængi að nýju. Undir-
búningsnefnd hefur
unnið að málinu í tæpt
ár og skoðað ýmsa
kosti, meðal annars
nýbyggingar af ýmsum
stærðum og mismun-
andi staðsettar.
Einnig hefur verið í
skoðun hugmynd sem
kölluð er „Aldamóta-
bærinn Seyðisfjörður"
sem Aðalheiður Borg-
þórsdóttir ferða- og
menningarmálafulltrúi
hefur talað fyrir. Hug-
myndin gengur út á það
að endurbyggja eldri
hús með sóma þannig
að gestir geti valið um
þægilegt gistirými af
ýmsum stærðum.
Boðið var til fundar
um málið nýlega og af
fjölda gesta á fundinum
mátti ráða að mikill
áhugi heimamanna er til
staðar. Jónas A.Þ. Jóns-
son kynnti mönnum
málið og niðurstöður
undirbúningshópsins.
Þar kom fram skýr vilji
til þess að feta ótroðnar
slóðir í gistimálum
kaupstaðarins og nýta
gömul hús til gistingar.
Einnig yrði stefnt á
betri nýtingu gistirýmis
á ársgrundvelli og
nefndi þar meðal annars
ráðstefnuhald. Jónas
fjallaði síðan um fjár-
mögnun hótels.
Hann setti fram hug-
mynd um að leggja Fé-
lagsheimilið Herðubreið
inn í slíkt fyrirtæki sem
hlutafé. Með endurbót-
um gæti það húsnæði
orðið kjörið til ráð-
stefnuhalds og fleira.
Jónas sagðist jafnframt
telja slíka hugmynd
léttari í fjármögnun
heldur en nýbygging.
Fyrirliggjandi er 100
miljóna króna lánsloforð
frá Byggðastofnun.
Starfsmaður Nýsis ehf.,
Valtýr Sigurbjarnarson,
sem hefur haft umsjón
með áætlunargerð fyrir
væntanlegt hótel taldi
einnig svokallað „húsa-
hótel“ vænlegasta kost-
inn. Þar nefndi hann
sérstaklega hve verð-
mætt það gæti orðið í
markaðssetningu að
gisting væri „skemmti-
leg“.
Nokkuð almennar
umræður urðu síðan um
málið, en lyktir fundar-
ins urðu þær að kosið
var í stjórn undirbún-
ingsfélags til þess að
skipuleggja væntanlegt
fyrirtæki og koma því á
stofn. í stjórn voru
kosnir Jóhanna Gísla-
dóttir frá Markaðsstofu
Austurlands, Egill Jóns-
son á Seljavöllum og
Jónas A.Þ. Jónsson, for-
seti bæjai’stjórnar
Seyðisfjarðar.
, Morgunblaðið/Valdimar Guðjónsson
Ytt fyrir nýju íbiiðarhúsi í Brandshúsahverfí. Félagsheimilið Félagslundur í baksýn.
Nýtt íbúðarhverfí að rísa
Gaulverjabæ - Skipulagt hefur verið
svæði með sjö íbúðarhúsum í nágrenni við
Gaulverjaskóla, félagsheimilið Félagslund
og Gaulveijabæjarkirkju.
Fyrir nokkru var byggt íbúðarhús á
vegum sveitarfélagsins en þar býr nú
skólastjóri Gaulverjaskóla. Svæði þetta er
nefnt Brandshúsahverfl.
Nú eru hafnar framkvæmdir við annað
íbúðarhús og eru það einstaklingar sem
byggja það, einbýlishús með bflskúr.
Verkfræðistofa Suðurlands skipulagði
lóðirnar sjö.
Á vegaáætlun er nú að halda áfram með
klæðningu og varanlega vegagerð frá Sel-
fossi að Félagslundi næsta vor. Mun þá vega-
samband í þéttbýlið skána til muna en marg-
ir hafa kvartað yfir slæmu ástandi vega.
Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
Ný vínbúð
á Hvolsvelli
Hvolsvelli - Ný verslun
ÁTVR hefur verið opnuð
á Hlíðarenda á Hvols-
velli. Það var Höskuldur
Jónsson, forstjóri ÁTVR,
sem afhenti Ástu Höllu
Ólafsdóttur lyklavöldin
að hinni nýju áfengisút-
sölu í hófi sem haldið var
í tilefni opnunarinnar.
Það er Kaupfélag Árnes-
inga, KÁ, sem sjá mun
um rekstur verslunarinn-
ar í þjónustumiðstöðinni
á Hlíðarenda en Ásta
Halla verður verslunar-
stjóri. Ásta Halla, sem
einnig átti afmæli þenn-
an dag, fékk afhenta for-
láta lyklakyppu og blóm-
vönd frá forstjóranum í
tilefni dagsins.
Bíiafloti Alla Geira hf. er ávallt
Þrír nýir bílar
í reksturinn
Húsavík - Fyrir skömmu fékk flutn-
ingafyrirtækið Alli Geira hf. afhenta
tvo nýja flutningabfla. Þeir eru af
gerðinni Scania P 164 og eru
tveggja drifa bílar með 480 hestafla
vélum. Að sögn Sigurgeirs Aðal-
geirssonar, framkvæmdastjóra fyr-
irtækisins, er nýtt form á þessum
viðskiptum því bflarnir eru teknir á
rekstrarleigu hjá Heklu hf.
Bflaflotinn stöðugt
í endurnýjun
Sigurgeir segir að bflafloti fyrir-
tækisins sé stöðugt í endurnýjun og
fyrirtækið eigi von á einum bfl til
viðbótar innan skamms. Sá bfll er af
gerðinni Benz Atego 1528 og er 15
tonna bfll með 280 hestafla vél.
Mjög vel útbúnir
kassar
Scania-bílamir eru með kæliköss-
um sem eru keyptir hjá Aflrás hf.
Þetta eru kassar af gerðinni Norfrik
og eru með Thermoking KD II-
frystivélum. Kassamir em mjög vel
útbúnir, þeir era m.a. með milliþilj-
um, hillum og niðurfallstönkum.
Þessir tveir bflar verða nær ein-
göngu notaðir til áætlunarferða
milli Húsavíkur og Reykjavíkur.
endurnýjun
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Hörður Axel Harðarson og Bjarni Sveinsson, bflstjúrar hjá Alla Geira hf., eru ánægðir með nýju bflana.