Morgunblaðið - 17.11.2000, Page 22
22 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Níu mánaða milliuppg;iör Frjálsa fjárfestingarbankans
Hagnaður 66 milljónir
HAGNAÐUR Frjálsa fjárfestíng-
arbankans hf. fyrstu níu mánuði
ársins nam samkvæmt óendur-
skoðuðu árshlutauppgjöri 111
milljónum króna en að teknu tilliti
til reiknaðra skatta nam hagnaður
bankans 66 milljónum króna. Arð-
semi eigin fjár var 6,48% fyrir
skatta á tímabilinu en 3,87% eftir
skatta. Er þetta lakari arðsemi en
stjórnendur bankans gerðu ráð
fyrir í áætlunum sínum, að því er
fram kemur í tilkynningu frá bank-
anum. Þar segir að meginástæða
lakari arðsemi sé óhagstæð skil-
yrði á tímabilinu á hlutabréfa- og
skuldabréfamarkaði. Arðsemi af
markaðsverðbréfum hafi verið slök
en aðrir þættir rekstrar, útlána-
starfsemi og þóknunartekjur hafí
staðið undir væntingum.
Bankinn færir öll hlutabréf og
skuldabréf sem eru skráð á mark-
aði á markaðsvirði og er miðað við
markaðsgengi þeirra í lok upp-
gjörstímabils. Vaxtatekjur námu
855 milljónum króna og vaxtagjöld
námu 692 milljónum króna. Hrein-
ar vaxtatekjur, þ.e. vaxtatekjur að
frádregnum vaxtagjöldum, námu
163 milljónum króna. Vaxtamunur
er 2,99%. Aðrar rekstrartekjur
bankans námu 343 milljónum
króna, þar af þóknunartekjur 246
milljónum. Gengishagnaður af
annarri fjármálastarfsemi og arðs-
tekjur af hlutabréfum námu 82
milljónum króna og aðrar tekjur
námu 15 milljónum. Önnur rekstr-
argjöld námu 320 milljónum króna,
launakostnaður nam 191 milljón og
annar rekstrarkostnaður 113 millj-
ónum króna. Afskriftir rekstrar-
fjármuna námu 16 milljónum
króna Umtalsverður kostnaður
hefur fallið til við sameiningarmál
hjá bankanum og er hann allur
gjaldfærður yfír rekstur. Útlán í
lok tímabilsins námu 9.199 milljón-
um króna og hækkuðu um 14% frá
áramótum. Hlutabréfaeign nam
2.426 milljónum króna og hækkaði
um 835 milljónir frá áramótum.
Vanskil útlána lækkuðu um 15%
frá áramótum og námu vanskil í
lok tímabilsins 181 milljón króna.
Vanskil sem hlutfall á heildarútlán-
um héldu einnig áfram að lækka og
námu 1,97% af heildarútlánum.
Eigið fé Frjálsa fjárfestingar-
bankans hf. í lok tímabilsins nam
2.286 milljónum króna. Eiginfjár-
hlutfall samkvæmt CAD-reglum
var 18,65%. Heildarhlutafé bank-
ans er 1.218 milljónir króna og
hluthafar eru 486 talsins.
Sænskur fjárfestir
kaupir 3,5% í SH
Íslandsbanki-FBA
kaupir í TIVI
Eignarhlutur
orðinn 20%
MIKIL viðskipti áttu sér stað í gær
með hlutabréf í Tryggingamiðstöð-
inni (TM). 364 milljónir króna
skiptu um hendur í 35 viðskiptum
og hækkaði gengi bréfanna um 7%
og lokaði í 53,50.
Islandsbanki-FBA jók hlut sinn í
Tryggingamiðstöðinni um 10,94%
úr 8,64% í 19,58%. Gilding jók hlut
sinn um 2,44% úr 4,96% í 7,40%.
Fjárfestingarsjóður Búnaðar-
banka íslands, ÍS-15, seldi allt sem
hann átti í TM, eða 9,87%.
Valur Valsson, forstjóri íslands-
banka-FBA, sagði að bankinn
hyggist ekki eiga þessi bréf til
langs tíma heldur verði þau seld
aftur. Hann sagði að það væri ekki
stefna bankans að tengjast trygg-
ingafélagi í gegnum stóran eignar-
hluta í því.
Árni Oddur Þórðarson hjá Gild-
ingu sagði þegar hann var spurður
um ástæður kaupanna að sam-
kvæmt stefnu félagsins vildi hann
ekki tjá sig um einstakar fjárfest-
ingar þess.
M
www.microtouch.com
SNERTISKJÁIR
IÐNAÐARTÆKNI ehf.
Þverholti 15A, siml 562 7127
FYRIRTÆKIÐ Hólshyrna ehf.
gerði í fyrradag samning við Muir-
field Invest AB í Svíþjóð, sem er í
eigu sænska fjárfestisins Claes
Kinell, um hlutabréfaskipti. Hóls-
hyrna, sem átti um 7% hlut í Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna hf. (SH),
lét frá sér helming þess hlutar í
skiptum fyrir um 17% hlut í
Scandsea AB. I samtali við Morg-
unblaðið sagðist Róbert Guðfínns-
son, stjórnarformaður SH, telja það
viðurkenningu fyrir SH að fá fjár-
festi á borð við Kinell inn í félagið
og að það yrði félaginu mikill styrk-
ur.
í gær keypti svo Þormóður
VAKI DNG gerir ráð fyrir að tap
verði á reglulegri starfsemi félagsins
en áætlanir ársins höfðu gert ráð fyrir
hagnaði.
I tilkynningu til Verðbréfaþings
kemur fram að helsta ástæða tap-
rekstrar sé að ákveðið, mjög kostnað-
arsamt vöruþróunarverkefni í mek-
anískum búnaði til línuveiða gekk
ekki upp og skilaði þar af leiðandi
ekki þeim tekjum sem áætlaðar höfðu
verið.
Einnig hafi samkeppni í fram-
leiðslu á vélrænum búnaði til línu-
rammi - Sæberg hf. 43% hlut í
Hólshyrnu, sem er eignarhaldsfélag
sem á nú um 3,5% í SH og um 17% í
Scandsea International AB.
Aðrir eigendur Hólshyrnu eru
Róbert Guðfinnsson, stjórnarfor-
maður, Gunnar Sigvaldason, fram-
kvæmdastjóri, og fyrirtækið Mar-
teinn Haraldsson ehf., sem Ólafur
Helgi Marteinsson, framkvæmda-
stjóri, á hlut í.
SH á 20% í Seandsea Inter-
national AB, sem er sænskt fyrir-
tæki sem sérhæfir sig í fjármögnun,
stjómun og sölu frá skipum sem
stunda veiðar víða um heim, eink-
um í rússneskri efnahagslögsögu.
veiða harðnað til muna með tilkomu
nýrra aðila á markaði. Þá kemur fram
að sala á veiðarfærabúnaði sé undir
áætlunum en sala á búnaði til fiskeldis
hafi gengið samkvæmt áætlunum. I
tilkynningunni segir að gripið hafi
verið til aðgerða til að draga verulega
úr kostnaði, m.a. hafi umræddu
þróunarverkefni verið hætt, fram-
leiðsludeild félagsins í Garðabæ lögð
niður, starfsemi flutt í framleiðslu-
deild á Akureyri og starfsmönnum
fækkað. Áhrif þessa muni ekki koma
fram að fullu fyrr en á næsta ári.
Nýr fram-
kvæmdastjóri
Járnblendi-
félagsins
NORÐMAÐURINN Frank Björk-
lund hefur verið ráðinn framkvæmda-
stjóri íslenska jámblendifélagsins hf.
Hann mun taka við starfinu um næstu
áramót en fram tíl þess tíma mun nú-
verandi framkvæmdastjóri, Bjami
Bjamason, gegna starfinu.
Frank Björklund er 43 ára gamall
vélaverkfræðingur með meistara-
gráðu í fi'amleiðslutækni. Síðastliðin
þrjú ár hefur hann verið fram-
kvæmdastjóri kísilmálmverksmiðja í
eigu Elkem í Noregi.
I nýja stöðu aðstoðarframkvæmda-
stjóra hefur verið ráðinn Helgi Þór-
hallsson, sem hefur meistaragráðu í
efnaverkfræði frá Noregi og hefur
starfað hjá Islenska járablendifélag-
inu í 15 ár, nú síðast sem markaðs-
stjóri.
; ICELANDAIR HOTELS
l H 6 T E L_F L Ú Ð I R
j Hlaðin jólastemmning
Á Hótel Flúðum er boðið upp á kræsilegt jólahlaðborð
alla laugardaga til 16. desember. Komdu íjólaskapið á Flúðum.
Afkomuviðvörun
frá Vaka DNG
Viðræður um kaup íslendinga
á Vífilfelli að hefjast
Ljósmynd/Theódór
Niðurstöður
fyrir áramót
CARLSBERG-fyrirtækið í Dan-
mörku og Coca-Cola Company gera
ráð fyrir að ná samkomulagi um
framleiðslu og dreifingu á Coca-Cola-
gosdrykkjum á Norðurlöndum fyrir
áramót. Fyrirtækin eiga saman Coca-
Cola Nordic Beverages sem keypti
Vífilfell á árinu 1998. í fréttatilkynn-
ingu frá Carlsberg segir að fyrirtæk-
in tvö, Carlsberg og Coca-Cola
Company, hafi átt í samningaviðræð-
um um samvinnu þeirra um fram-
leiðslu og dreifingu á Coca-Cola-
framleiðsluvörum í Danmörku; Nor-
egi, Svíþjóð, Finnlandi og á Islandi
frá því í júní á þessu ári. Þau hafi nú
tekið fyrstu tvö skrefin í áttina að því
að loka samkomulagi þar um. Þá segir
í tílkynningunni að viðræður fyrir-
tækjanna hafi hafist í framhaldi af
ákvörðun Carlsberg og norska bjór-
fyrirtækisins Orkla í maí síðastliðnum
að stofna nýtt fyrirtæki, Carlsberg
Breweries, sem Cai'lsberg mun eiga
60% í og Orkla 40%. Orkla er í sam-
starfi við Pepsi-Cola-fyrirtækið í N or-
egi og Svíþjóð, helsta keppinaut
Coca-Cola Company.
Fagna ákvörðun um vióræöur um
sölu til íslendinga
í tilkynningu Carlsberg segir að
samningaviðræður hafi hafist við ís-
lenska fjárfesta um kaup þeirra á Víf-
ilfelli. Morgunblaðið fékk staðfest hjá
Coca-Cola Company í gær að Þor-
steinn M. Jónsson, forstjóri Vífilfells,
væri í forsvari íslensku fjárfestanna.
Heimildarmaður blaðsins hjá Coca-
Cola Company sagði að ekki yrði rætt
við aðra hugsanlega kaupendur Vífil-
fells á meðan viðræður við Þorstein
M. Jónsson og félaga hans færa fram,
en vonir stæðu til að niðurstöður við-
ræðnanna yrðu jákvæðar og að þeim
yrði lokið fyrir áramót, en þær hefjast
fyrir lok þessa mánaðar.
Þorsteinn M. Jónsson sagðist í gær
fagna því að Carlsberg og Coca-Cola
Company hefðu tekið þá ákvörðun að
hefja viðræður við íslenska fjárfesta
um kaup á Vífilfelli. Hann sagðist þó
vilja minna á að um væri að ræða
samningaviðræður, en bjartsýni ríkti
um að jákvæðar niðurstöður fengjust
úr þeim. Þoi'steinn staðfesti að auk
hans mynduðu Sigfús Sigfússon í
Heklu og Kaupþing þann hóp fjár-
festa sem Carlsberg og Coca-Cola
Company ætluðu að ræða við. Þor-
steinn sagði að hann hefði fallið frá
kröfu um að áreiðanleikakönnun færi
fram áður en til kaupa á Vífilfelli gæti
komið. Slík könnun tæki alla jafna
nokkm'n tíma og tefði því oft fyrir við-
skiptum. Miki] endurskipulagning
virðist vera að eiga sér stað á gos-
drykkjamarkaði hér á landi um þess-
ar mundir. Íslandsbanki-FBA er að
kaupa Ölgerð Egils Skallagrímsson-
ar, Kaupþing hefur keypt meirihluta í
Sól-Víkingi og auk þess er Kaupþing
meðal hugsanlegra kaupenda Vífil-
fells. Þá má geta þess að Þorsteinn M.
Jónsson er stjómarformaður Sólar-
Víkings.
Landsbankmn tjáir sig
ekki um viðskiptavini
FYRIR viðskiptavini Landsbanka ís-
lands er mikilvægt að geta treyst því
að bankinn tjái sig ekki um málefni
einstakra viðskiptavina, að sögn Hall-
dórs J. Kristjánssonar, bankastjóra
Landsbankans. Að hans mati er það
allra mikilvægasta í bankastarfsemi
að af hálfu banka sé gætt fullkominn-
ar viðskiptaleyndar um öll málefni
milli hans og einstakra viðskiptavina.
„Með hliðsjón af þessu mun ég ekki
Krónan
aldrei veikari
GENGISVÍSITALA krónunnar
náði i gær hæsta gildi sem hún hefur
hingað til náð, eða 119,74 stigum inn-
an dagsins. Lokagildi var 119,51 stig,
sem jafnframt er hæsta lokagildi
sem skráð hefur verið. Gengisvísi-
tala er í raun verð erlendra gjald-
miðla. Þegar hún er há er krónan til-
tölulega lág miðað við þá. Þetta þýðir
að gengi krónunnar var í gær lægra
en það hefur áður verið.
Viðskipti á millibankamarkaði
vora um 5 milljarðar króna, sem era
um tvöföld meðalviðskipti. Á þriðju-
dag og miðvikudag vora hins vegar
engin viðskipti á millibankamarkaði.
tjá mig um viðskiptí einstakra við-
skiptavina," segir Halldór, aðspurður
um frétt Morgunblaðsins þess efnis í
gær að Tal hf. hefði ákveðið að flytja
viðskiptí sín frá Landsbankanum til
Íslandsbanka-FBA.
„I tilefni af því sem fram kom í
fréttinni að öðra leytí, þ.e. að það geti
hugsanlega virkað traflandi á við-
skipti að bankinn fjárfesti í fleiri en
einu fyrirtæki í sömu grein, sem
Landsbankinn gjaman gerir, þá er
ekki svo að okkar mati. Við virðum
hins vegar algjörlega ákvarðanii- ein-
stakra fyrirtækja um hvar þau teija
sér best þjónað í viðskiptum. Ef það
er eitthvað í viðskiptum Landsbank-
ans sem stjómendur tíltekins fyrir-
tækis telja að skapi erfiðleika í sam-
skiptum við bankann þá er það
algjörlega þeirra mat. Við höíúm hins
vegar ekki fundið fyi-ir því þegar
þannig staða kemur upp,“ segir Hall-
dór.
Fjárfesting Landsbankans í ís-
landssíma er að sögn Halldórs ekkert
frábragðin fjölmörgum öðram fjár-
festingum bankans í upplýsinga- og
tæknifyrirtækjum. Sú fjárfesting
kalli því ekki á sérstaka athugun
Fjármálaeftirlitsins. Fjármálaeftirlit-
ið hafi hins vegar verið upplýst um
þessi mál af hálfu Landsbankans.