Morgunblaðið - 17.11.2000, Síða 24
24 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
✓
Verzlunarmannafélagið lætur rannsaka framleiðniþróun á Islandi
Jöfn og stöðug
aukning' í fram-
leiðni vinnuafls
130 Vísitala
Framleiðníþróun á ári árin 1993 tif 1996/7
Atvinnugrein Fjölþátta- framleiðni Framleiðni vinnuafls Framleiðni fjármagns
Starfsemi fyrirtækja alls 2,1% 1,8% 2,5% ;
Verslun o.fl. 1,8% 1,5% 2,3%
Fiskveiðar 0,6% 0,5% 0,9%
Fiskiðnaður -1,3% -1,0% -2,4%
Iðnaður 2,4% 2,1% 3,1%
Veitur 1,7% -2,2% 3,1%
Byggingarstarfsemi 1,3% 1,6% 0,7%
Landbúnaður 2,6% 4,6% 2,2%
Meðalvöxtur framleiðni hjá íslenskum fyrirtækjum
1981-1989 1989-1997 1993-1997
Fjölþáttaframleiðni 0,85 1,17 2,12
Framleiðni vinnuafls 1,67 1,63 1,79
Framleiðni fjármagns -0,23 0,64 2,49
FRAMLEIÐNI vinnuafls á íslandi á
árunum 1973 til 1997 jókst mikið eða
um 54%. Sé litið nær í tíma má nefna
að meðalvöxtur í framleiðni vinnuafls
var 1,8% á tímabilinu 1993 til 1997.
Framleiðni fjármagns var hins vegar
neikvæð á tímabilinu þannig að fram-
leiðniaukning vinnuafls hefur haldið
uppi fjölþáttaframleiðninni á þessu
tímabili en hún mældist vera 23% frá
árinu 1973 til 1997. Framleiðni vinnu-
afls jókst mest á áttunda áratugnum
en hefur haldist nokkuð stöðug síðan
eða á bilinu 1,60% til 1,80% á ári.
Þetta kemur fram í skýrslu Hag-
fræðistofnunar um framleiðni innan
atvinnugreina á íslandi á árunum
1993 til 1997 sem unnin var fyrir
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
og er þar um ræða framhald á
skýrslu sem unnin var árið 1997.
Umskipti í framleiðni
fjármagns
Athygli vekur að á árunum 1973 til
1997 dróst framleiðni fjármagns að
meðaltali saman um 0,3% á ári og var
hún tæplega 8% minni í lok tímabils-
ins en árið 1973. Þess ber þó að geta
að framleiðni fjármagns hefur vaxið
verulega á síðustu árum; árið 1992
var hún liðlega 17% minni en árið
1973 en frá árinu 1993 til 1997 hefur
framleiðni fjármagns aftur á móti
aukist um 10,3%.
í skýrslu Hagfræðistofnunar segir
að þróun framleiðni á árunum 1993 til
1997 hafi verið mun hagstæðari en
áratugina tvo á undan. Af þróun efna-
hagsmála á íslandi á árunum 1998 og
1999 megi ætla að þessi jákvæða þró-
un hafi haldið áfram, þótt ekki séu
enn fyrir hendi gögn til þess að sann-
reyna það.
Sveinn Agnarsson, hagfræðingur
hjá Hagfræðistofnun Háskóla Is-
lands, segir í grein í nýjasta hefti VR-
blaðsins að hin mikla aukning í fram-
leiðni fjármagns á síðustu árum sé af-
ar jákvæð en vitaskuld vakni sú
spuming hvað hafi valdið þessum
umskiptum. Að mati Sveins má eink-
um nefna tvo þætti. I fyrsta lagi leiki
grunur á að neikvæðir raunvextir á
fyrri hluta tímabilsins hafi ýtt undir
of miklar fjárfestingar. Hin skýringin
sé sú að hlutabréfavæðing síðari ára
og bætt ytri skilyrði hafi aukið fjár-
hagslegan aga og að meiri kröfur séu
nú gerðar til arðsemi fjárfestinga en
áður. Sveinn segir ljóst að bætt fram-
leiðni sé forsenda hækkana launa
umfram verðlag og styrki stöðu fyrir-
tækja í samkeppni hvert við við ann-
að og um leið samkeppnisstöðu ís-
lenski'a fyrirtækja gagnvart er-
lendum íýrirtækjum. Framleiðni-
aukning hljóti því að vera keppikefli
launþega jafnt sem eigenda og
stjórnenda iyrirtækja. Þá sé ekki síð-
ur brýnt að ríkisvaldið skapi fyrir-
tælgum það rekstrarumhverfi sem
geri þeim kleift að auka framleiðni
sína sem mest.
Minnkandi bil milli íslands
og Bandaríkjanna
í skýrslu Hagfræðistofnunar frá
árinu 1997 reyndist framleiðni vinnu-
afls á íslandi árið 1993 vera 65% af
framleiðni vinnuafls í Bandaríkjun-
um og framleiðni fjármagns var ein-
ungis tæplega 50% af framleiðni fjár-
magns í Bandaríkjunum. Framleiðni
vinnuafls og fjármagns á Islandi hef-
ur hins vegar vaxið verulega hin síð-
ari ár og ætla má að framleiðni vinnu-
afls hafi verið orðin nálægt 70% af
framleiðni vinnuafls í Bandaríkjun-
um árið 1997.1 aðeins einni af megin-
atvinnugreinum á Islandi, það er í
fiskveiðum, reyndist framleiðni vera
svipuð og hún er að meðaltali í
Bandaríkjunum.
í skýrslu Hagfræðistofnunar er á
það bent að ef til vill væri skynsam-
legt fyrir samtök í atvinnulífi og
stjórnvöld á íslandi að gera átak,
svipað og Bretar vinna nú að, til þess
að auka framleiðni á Islandi: „Ef unnt
er að auka framleiðni á íslandi um
20%, úr því að vera u.þ.b. 70% af
framleiðni í Bandaríkjunum í 84%
myndi landsframleiðsla á íslandi
aukast um eitthvað á annað hundrað
milljarða króna. Sú upphæð er hærri
en öll fjárveiting íslenska ríkisins til
menntamála, félagsmála, heilbrigðis-
mála og tryggingamála."
Gunnai- Páll Pálsson, forstöðumað-
ur fjármála- og hagdeildar Verzlun-
armannafélags Reykjavíkur, segir að
helsti vandinn við að byggja ákvarð-
anir á rannsóknum sem þessari sé
hversu hagtölur á íslandi séu gamlar.
Menn hafi verið að fá tölur frá árinu
1997 í vetur en breytingar og hraðinn
séu hins vega orðnar svo miklar að
erfitt sé að draga víðtækar ályktanir.
Aðspurður segir Gunnar Páll að fyrir
utan framleiðniþróun í einstökum
geirum finnist sér standa upp úr
hversu mikið framleiðni vinnuafls
hafi aukist frá árinu 1973. En vegna
minnkandi framleiðni fjármagns hafi
fjölþáttaframleiðnin verið mun minni
en hún ella hefði verið; þetta skipti
miklu máli því fjölþáttaframleiðnin
segi svo aftur nokkurn veginn til um
það hversu mikið kaupmáttui’ launa
geti hækkað. Það sé því ljóst að þróun
í framleiðni bæði vinnuafls og fjár-
magns sé hreint kjaramál fyrir laun-
þega. „Hin mikla kaupmáttaraukning
sem orðið hefur frá árinu 1994 og
1995 skýrist fyrst og fremst af gríðar-
legri aukningu í framleiðni fjármagns
sem lagðist ofan á samfellda og jafna
aukningu í framleiðni vinnuafls.
Þessir tveir þættir ráða úrslitum um
það hvort við erum að horfa upp á
vaxandi kaupmátt eða hvort við
stöndum hreinlega í stað.“
Aðspurður segir Gunnar Páll að
verkalýðsfélögin og launþegar al-
mennt hafi ekki gert sér fulla grein
fyrir því hversu miklu máli þróun
framleiðni fjármagns skipti þegar lit-
ið sé til mögulegrar hækkunar raun-
launa. Það sé raunar einn megintil-
gangur Verzlunaimannafélagsins
með þessari vinnu að sýna mönnum
fram á þessi sannindi.
Gengisþróun skiptir
verulegu máli
Gunnar segir að eins megi benda á
það að gengisþróun íslensku krón-
unnar skipti miklu máli: „Verzlunar-
mannafélagið hefur tvisvar sinnum
gert samanburð á lífskjörum í Dan-
mörku og á íslandi. Bilið var á sínum
tíma allt að 30% en síðan hefur okkur
tekist að jafna og jafnvel fara fram úr
Dönum. Þegar ég fór að rannsaka
þetta nánar kom á daginn að launa-
hækkun hér á landi skýrir aðeins
hluta af þessari þróun. Það sem gerst
hefur á uppgangstímunum hin síðari
ár er að gengi íslensku krónunnar
reyndist vera 8% hærra í seinni
könnunni en þeir fyrri miðað við Dan-
mörku. Launþegar hafa því fengið
verulegan kaupmáttarbónus einung-
is vegna hækkandi gengis íslensku
krónunnar. “
Aðspurður segir Gunnar Páll að
þróun í framleiðni vinnuafls undan-
farna tvo áratugi sé mjög viðunandi,
hún hafi verið nokkuð jöfn og stöðugt
og hann hafi ekki trú á að miklar
breytingar verði á þeirri þróun.
Stærstu tækifærin felist þess vegna í
því að bæta afköst fjárfestinga í at-
vinnulífinu. Til þess að stuðla að auk-
inni hagkvæmni í nýtingu fjármagns
megi í fyrsta lagi nefna að skynsam-
legt sé að virkja markaðsöflin sem
mest. Nokkuð hafi þegar unnist á því
sviði með virkari fjármálamarkaði.
„Það er þó viss hætta á að menn hafi
gerst fullglannalegir í fjárfestingum
á þessum uppgangstímum enda
framboð á lánsfé verið nóg . Þær töl-
ur sem ég hef skoðað virðast styðja
þetta og því er eðli málsins sam-
kvæmt hætta á að framleiðni fjár-
magns hafi dregist saman. Hitt at-
riðið varðandi betri nýtingu fjár-
magns snýr að hinu opinbera og
fjárfestingum þess. Að mörgu leyti
liggur beinna við að taka þar á málum
enda getum við takmörkuð áhrif haft
á fjárfestingar fyrirtækjanna því það
ei-u eigendur og stjórnendur þeirra
sem taka ákvarðanir um slíkt.“
Skipulagsbreyt
ingar hjá Baugi
NÝTT skipurit hefur tekið gildi hjá Baugi,
sem miðar að því að styrkja innviöi fyrir-
tækisins til framtíðar.
Þá eru breytingar á yfirstjóm Hagkaups
framundan með það leiðarljósi að styrkja
sérvöruvæng.
• Jón Björnsson hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri sérvörusviðs Baugs.
Undir sérvömsvið Baugs heyra félögin
Hagkaup, Baugur
AB (Debenhams,
Arcadia sem rekur
m.a. Top Shop) Útilíf
og önnur sérvörufyr-
irtæki.
Jón hefur starfað
sem framkvæmda-
stjóri Hagkaups síð-
an 1998, en hann
starfaöi áður sem
innkaupastjóri Hag-
kaups(1997-
1998) og sem framkvæmdastjóri Ferskra
kjötvara (1995-1996). Jón stundaði einn-
ig kennslu við Verslunarskóla íslands og
Endurmenntunarstofnun HÍ1994-1998.
Jón er fæddur árið 1968. Hann útskrif-
aöist með BS í stjórnun frá Rider Univers-
ity, New Jersey í Bandaríkjunum 1991.
Eiginkona hans er Lovísa Stefánsdóttir
og eiga þau tvo syni.
Eitt af aðalmarkmiðum Baugs til fram-
tíðar er að stækka og eflast á sérvöru-
sviði og þá aðallega á erlendum mörkuð-
um með opnun Arcadia- og
Debenhams-verslana og mun Jón leiða
þá útrás og uppbyggingu fyrir hönd
Baugs.
Jón tekur formlega við nýju starfi 1.
júní 2001.
• Finnur Árnason hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri Hagkaups.
Finnur hefur starfað sem framkvæmda-
stjóri Nýkaups frá
1998 en hann starf-
aði áður sem
markaðsstjóri Slát-
urfélags Suðurlands
frá 1989-1998.
Finnurerfæddur
árió 1961. Hann út-
skrifaðist sem við-
skiptafræðingur frá
Háskóla íslands
1985 og lauk MBA-
prófi í rekstrar-
hagfræði frá University of Hartford Conn-
ecticut I Bandaríkjunuml987.
Eiginkona hans er Anna María Urb-
ancic og eiga þau fjögur börn.
Finnur mun taka við starfi fram-
kvæmdastjóra Hagkaups 1. júní 2001 en
starfa við hlið Jóns Bjömssonar fram til
þess tíma.
Jón Björnsson
Skipurit
Almannatengsl
Sara L. Þorsteinsdóttir"
Stjórnarformaður
Hreinn Loftsson
I
Forstjóri
Jón Asgeir Jóhannesson
BAUGUR
Aðstoðarforstjóri
Tryggvi Jónsson
I----------
Dótturfyrirtæki
Stoðir, Bónus Dollar,
- SMS, Ávaxtahúsið, GK
Fjármálasvið
Linda Jóhannsdóttir
- Sjóðsstjórn
Bókhald
Hagdeild
Upplýsingasvið
Kristinn Eiríksson
tUpplýsingatækni H
Þróun - rekstur Uii
Starfsmannaþjónusta
Steinþór Þórðarson
Baugsskólinn
Verkefnastjórnun
Ráðgjöf
Matvörusvið
Jón Asgeir Jóhannesson
_ Bónus/Bónus birgðir
Guðm. Marteinsson
Nýkaup
Árni Ingvarsson
10-11
Þórður Þórisson
Aðföng vöruhús
Lárus Oskarsson
Apótekið
Árni Pétur Jónsson
Sérvörusvið
Jón Bjömsson
Hagkaup
Finnur Ámason
Útilíf
Halldór Hreinsson
Baugur Sverige AB
Debenhams
Bryndis Hrafnkelsdóttir
Arcadia ísland
Sigrún Andersen
, Arcadia Norðurlönd
Kristjón Grétarsson
Aðrar sérvöruversl.
Þróunarsvið
Jón S. Thorsteinsson
Ný verkefni
Þróun innanlands
Þróun erlendis
Internet sjóður Baugs
Eftirlitssvió
Innra eftirlit
Auðbjórg Friðgeirsdóttir
Öryggisdeild ■
G uðmundur Gunnarsson