Morgunblaðið - 17.11.2000, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2000 25
ÚRVERINU
Fleiri á loðnu
BRÆLA var á loðnumiðunum út af
Halanum á þriðjudag og miðvikudag
en í gær var komið gott veður og
rúmlega 10 bátar komnir á miðin.
Hins vegar var enga loðnu að sjá um
miðjan dag.
Víkingur AK var suðvestan við
Halann í gær en hafði ekki fundið
neina loðnu frekar en aðrir, þegar
Morgunblaðið sló á þráðinn. „Pað
hefur enginn séð neitt ennþá,“ sagði
Sveinn ísaksson skipstjóri. „Eg ætla
að reyna þessa gömlu slóð og sjá
hvort ég sé eitthvað til að hanga á, en
það verður bara að koma í Ijós hvern-
ig gengur. Það er komið gott veður
en ef ekki gengur héma dólum við
áfram austur með norðurlandinu."
Um 10 bátar voru norðaustur af
Halanum en þegar Morgunblaðið
hafði samband við Sævar Þórarins-
son, skipstjóra á Erninum KE, voru
bátamir nýkomnir á miðin og ekkert
fundist. „Við ætium að leita eitthvað
norðaustar," sagði Sævar.
Tæplega 6.000 tonnum af loðnu
hefur verið landað á haustvertíðinni
og hefur nær allur aflinn farið í
bræðslu. Víkingur hefur landað
tvisvar á Akranesi, samtals rúmlega
2.500 tonnum. Grindvíkingur AK
hefur landað þrisvar í Bolungarvík,
samtals tæplega 800 tonnum, Örn
KE hefur komið með um 920 tonn í
tveimur túrum til Bolungarvíkur, en
Kap VE og Birtingur NK rúmlega
100 tonn hvor. Birtingur hefur auk
þess landað um 550 tonnum í Sand-
gerði og Oddeyrin EA um 700 tonn-
um í Grindavík, en Júpíter ÞH um
1.250 tonnum á Þórshöfn. Þar af fóm
um 200 tonn í frystingu.
Krefst lögbanns
á Kvótaþing
GUÐBJÖRN Jónsson, formaður
Landssambands íslenskra fiskiskipa-
eigenda, hefur krafist lögbanns á
Kvótaþing vegna þess að það hafi ver-
ið ófáanlegt til að láta af því að selja
veiðiheimildir án þess að fyrir liggi
lögmæt eignrréttindi söluaðilans.
Sambandið hefur einnig óskað eftir
aðstoð umboðsmanns Alþingis til að
ganga eftir svöram frá sjávarútvegs-
ráðherra við þremur spurningum
varðandi þætti í framkvæmd fiskveið-
istjómunar, en spumingamar sendi
hann ráðherra 9. júní sl.
Formaðurinn hefur jafnframt lagt
greinargerð um fjölþætta ágalla á
lögum nr. 57/1996 um umgengni um
nytjastofna sjávar fyrir umboðs-
mann. I fréttatilkynningu frá Guðjóni
kemur fram að fyrr í haust hafi verið
lögð beiðni fyrir Héraðsdóm Reykja-
víkur um að fá að reka ógildingarmál
á hendur þessum lögum en beiðninni
hafi verið hafnað.
Guðbjörn segist einnig hafa sent
ríkisskattstjóra erindi þar sem hann
hafi spurt hvers vegna kvótaleiga sé
undanþegin virðisaukaskatti. Ríkis-
skattstjóri hafi ekki bent á lagaheim-
ildir til þeirrar ákvörðunar og því sé
málið í stjómsýslukæru hjá fjármála-
ráðherra.
Sjóminja- og smiðjumunasafn Jósafats Hinrikssonar
Morgunblaðið/Golli
Guðmundur R. Gíslason, bæjarfulltrúi og formaður nefndar um safn Jósafats Hinrikssonar í Fjarðabyggð, tek-
ur við gjafabréfinu frá ættingjum Jósafats Hinrikssonar en Birgir Þ. Jósafatsson og Ólöf Þ. Hannesdóttir, ekkja
Jósafats, afhentu það. Til hægri eru Magnús Kristjánsson bæjarfulltrúi og Guðmundur Bjarnason bæjarstjóri.
Neskaupstað 2002
Opnað í
ERFINGJAR Jósafats heitins Hin-
rikssonar hafa formlega afhent
Fjarðabyggð Sjóminja- og smiðju-
munasafn Jósafats Hinrikssonar en
samkvæmt gjafabréfinu mun það
að stofni til varðveitast í Neskaup-
stað, þar sem það verður opnað árið
2002.
f lok liðins árs keypti Hampiðjan
véiaverkstæði J. Hinrikssonar og
var þá Ijóst að safnið í Súðarvogi 4 í
Reykjavík yrði að víkja. í ársbyrjun
buðust Ólöf Þ. Hannesdóttir, ekkja
Jósafats, og börn þeirra til þess að
gefa safnið til Neskaupstaðar, en
þaðan eru hjónin. í kjölfarið sam-
þykkti bæjarstjórn Fjarðarbyggðar
tillögu Magna Kristjánssonar um að
kjósa þriggja manna nefnd til að
vinna að málinu.
Guðmundur R. Gíslason, bæjar-
fulltrúi og formaður nefndar um
safn Jósafats Hinrikssonar í Fjarða-
byggð, Magnús Kristjánsson, bæj-
arfulltrúi í nefndinni, og Guðmund-
ur Bjarnason bæjarstjóri tóku á
móti gjafabréfi erfingja Jósafats í
safninu í Reykjavík sl. þriðjudag,
en Birgir Þ. Jósafatsson og Ólöf af-
hentu þar með safnið tii flutnings
austur. „Það sem eftir lifir vetrar
munum við nota til að pakka safn-
inu saman en stefnt er að flutningi
austur til Neskaupstaðar í vor og
safnið verður opnað árið 2002,“
segir Guðmundur.
LUQPP6R
UÆIPPeR
THiitr rrr
þú kaupir einar
uieiPPeR galtabuxur
2.495 kr.
og færð aðrar eins
í kaupbæti eða 1.248 kr. stk.
Jsijíiskyrtur 2,,i^
2.995 kr.
eða 1.498 kr. stk.
HAGKAUP
Meira úrval - betri kaup