Morgunblaðið - 17.11.2000, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2000 27
ERLENT
156. líkið
fundið?
LEITARMENN í toglestar-
göngunum í austurrísku Ölpun-
um, þar sem að minnsta kosti
155 manns fórust í lestarbruna
sl. laugardag, hafa fundið fleiri
líkhluta í brunarústunum. Eftir
að leitarmenn töldu sig hafa
fjarlægt allar jarðneskar leifar
fómarlamba brunans fundu
þeir einn mannsbúk til viðbótar
í fyrrakvöld. Talsmaður yfir-
valda sagði að hér gæti verið
um 156. fómarlambið að ræða,
en einnig gæti verið að þetta
væri hluti Uks sem þegar hefði
verið talið; þörf væri á frekari
rannsókn til að fá úr því skorið.
Hershöfðingi
ESB-herliðs
ÞÝZKUR hershöfðingi, Klaus
Schuwirth að nafni, hefur verið
valinn til að stýra uppbyggingu
hins væntanlega viðbragðsher-
afla Evrópusambandsins, sem
ákveðið hefur verið að allt að
80.000 hermenn muni tilheyra.
Mun það meðal annars verða
hlutverk Schuwirths að verða
fyrsti yfirmaður varanlegra
höfuðstöðva hins sameiginlega
ESB-herafla.
Kohl gefur út
dagbækur
HELMUT Kohl - sem lýsti því
eitt sinn yfir að hann myndi
aldrei skrifa bók um kanzlara-
tíð sína - er í
þann mund
að gefa út
tvær slíkar
bækur. Áð-
ur lét hann
hafa eftir
sér, að ef
hann skrif-
aði endur-
minningar
sínar kæm-
ist hann ekki hjá því að ljúga
eða hætta á að fá alla upp á móti
sér sem hann skrifaði um. Nú
hefur hann hins vegar ákveðið
að birta á prenti sína hlið á
„leynireikningshneykslinu"
svokallaða, sem skekið hefur
flokk hans, Kristilega demó-
krata, og rúið kanzlarann fyrr-
verandi virðingu og orðstír.
Valdir útdrættir úr fyrstu bók-
inni, sem ber hinn einfalda titil
„Helmut Kohl. Dagbókin mín
1998-2000,“ munu byrja að
birtast í vikublaðinu Welt am
Sonntag um helgina, en bókin
sjálf kemur á markað 27. nóv-
ember. Líklegt er talið að hún
muni rífa upp bæði gömul og ný
sár í tengslum við hneykslis-
málin. Næsta bindi dagbóka
Kohls er síðan væntanleg eftir
um það bil eitt ár.
Enskum skól-
um lokað?
YFIR eitt hundrað framhalds-
skólar í Englandi eiga á hættu
að vera lokað eftir að skipulagt
mat á frammistöðu skóla í land-
inu leiddi í ljós að þeir stæðust
ekki lágmarkskröfur þær sem
kveðið er á um í nýjum reglum
sem ríkisstjórn Verkamanna-
flokksins hefur sett. Innan við
15% nemenda í 101 skóla náðu
viðmiðunarárangri í „A-gráðu“-
prófum, hliðstæðu stúdents-
prófs. Þar með falla viðkomandi
skólar í flokk skólastofnana
sem stjórnvöld gætu tekið til al-
gerrar uppstokkunar eftir tvö
ár ef árangur þeirra batnar
ekki. 3.400 framhaldsskólar eru
starfandi í Englandi.
Helmut Kohl
ráðherra segir af sér
Þýzkur
Berlín. AFP, AP.
REINHARD KJimmt, sam-
göngui'áðherra Þýzkalands,
sagði af sér embætti í gær, í
kjölfar þess að hann var sak-
felldur fyrir aðild að fjár-
svikamáli fyrr í vikunni. I yf-
irlýsingu frá Gerhard
Schröder kanzlara segir, að
Klimmt hafi með afsögn sinni
viijað firra ríkisstjórnina
vandræðum vegna þessa
máls.
Talsmenn stjórnarandstöðunnar og áhrifa-
menn í Jafnaðairnannaflokki þeirra Schröders
og Klimmts höfðu gagnrýnt Klimmt harkalega
frá því hann var dæmdur til að greiða 13.800
Hlaut dóm fyrir aðild
að fjársvikamáli
evrur, andvirði rúmlega einnar milljónar króna,
á mánudag fyrir aðild að fjársvikamáli sem
tengist knattspyrnufélagi í Saarlandi sem hann
var áður í forsvari fyrir.
Við samgönguráðherraembættinu tekur Kurt
Bodewig, sem hefur verið ráðuneytisstjóri í
samgönguráðuneytinu frá því í marz sl.
Forysta SPD vill fyrir alla
muni forðast hneykslismál
Klimmt sagði á miðvikudag, að hann myndi
áfrýja dómi réttarins í Trier, sem felldi sektar-
dóminn yfir honum. Forystumenn SPD óttuðust
að þessi slagur ráðherrans við réttarkerfið
myndi valda almenningsálitinu á ríkisstjórninni
og flokknum skaða og töldu honum því ekki
stætt á öðru en að víkja úr embætti.
Klimmt hefur lagt mikla áherzlu á að hann
hafi aldrei fengið neitt fé í eigin vasa í tengslum
við umrætt fjársvikamál, en það er röksemd
sem Helmut Kohl hefur einnig ríkulega notað í
vörn sinni fyrir gerðum sínum í „leynireikn-
ingahneykslinu“ svokallaða. Forysta SPD vill
fyrir alla muni forðast að flokkurinn flækist í
fjármálahneykslis- og sakamál svipað og Kristi-
legir demókratar, flokkur Kohls, eiga nú í og
hefur svipt þá sóknarfærum í stjórnmálabarátt-
unni.
Reinhard
Klimmt
Varðan er víðtæk fjármálaþjónusta sem veitir þér persónulega og sveigjanlega þjónustu á öllum sviðum. 1 Vörðunni færð þú greiðsluþjónustu sem losar þig við óþarfa biðraöir og gluggapóst á meðan þú nýtur þess öryggis að hafa öll fjármálin á einum staö. Vöröufélagar eru traustir viöskiptavinir og eiga því kost á fjölbreyttum lánamöguleikum. Auk fjölbreyttra tilboða og friöinda færð þú gullkreditkort og gulldebetkort sem tryggja þér þjónustu um allan heim og veita m.a. punkta hjá Vildarklúbbi Flugleiöa. Nýttu þér einstaka þjónustu Vörðunnar og láttu bankann sjá um fjármálin.
Varöan er alvöru þjónusta fyrir alvöru fólk
iJXMinw'jrm'iM.irB oji.a i,í s m is \MmJm Landsbankinn Betri banki