Morgunblaðið - 17.11.2000, Side 30
30 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
„Trú og
saga“
MYJVDLIST
Víðistaðakirkja
HÖGGMYNDIR
ERLINGURJÓNSSON
Opið virka daga frá 16-18.30, um
helgar 14-17. Til 22. nóvember.
Aðgangur ókeypis.
í VÍÐISTAÐAKIRKJU stendur
yfir sýning á nokkrum verkum
myndhöggvarans Erlings Jónsson-
ar, sem lengi hefur verið búsettur í
Noregi, nánar tiltekið Ósló. Hún er
sett upp í tilefni 1.000 ára afmæli
kristni á Islandi og stendur einungis
yfir til miðvikudags í næstu viku.
Erlingur Jónsson er ekki þekkt
stærð á íslenzkum listavettvangi og
sýningar hefur hann fáar haldið, þá
viðamestu í Keflavík fyrir nokkrum
árum. Fyrir tveim áratugum eða svo
barðist hann árangurslausri baráttu
fyrir meiri og skilvirkari kennslu í
mynd- og handmennt í fjölbrauta-
skóla nokkrum sem hann kenndi við.
Þreyttur og vonsvikinn yfirgaf hann
þá landið til að hvíla sig og safna
kröftum í Noregi í eitt ár. En eftir
framhaldsnám í ríkiskennaraháskól-
anum í Notodden og kennaraháskól-
anum í Þelamörk, bauðst honum
kennarastaða við framhaldsskóla í
Notodden og síðar lektorsstaða við
Kennaraháskólann í Ósló, hvar hann
var viðloðandi fram á þetta ár er
hann lét af störfum fyrir aldurs sak-
ir. Mál þróuðust einfaldlega þannig
að Norðmenn vildu ekki sleppa
manninum aftur út til Islands, ekki
síst starfsbræður hans í mynd-
höggvarastétt, en hann vingaðist við
þá þekktustu í landinu og varð fljót-
lega meðlimur í samtökum norskra
myndhöggvara. Þetta er lærdóms-
rík en ekki stök saga, því annað eins
hefur gerst og má vera að sagan sé
að endurtaka sig þar sem hér uppi á
útskerinu hafa menn lítið skánað í
þessum efnum, nema kannski við að
leggja glansandi parketgólf eða
eðalmarmara á gólf listasafna, úða
marsipan- og glassúrpatínu á högg-
myndir ásamt því að listaháskólinn
efnir til 20-30 klukkutíma nám-
skeiða í fögum sem tekur 4 ár að
læra til fullnustu erlendis.
Samfara kennslunni, sem var
snöggtum annars eðlis en hér gerist
með vinnuaðstöðu og stórum meiri
frítíma, vann Erlingur alla tíð að list
sinni og hefur útfært ýmis verkefni
stór og smá fyrir opinbera aðila í
Noregi.
Erlingur er ekki allra eins og það
heitir og nokkur ótemja til verka,
grípur hugmyndir á lofti úr íslenzkri
sagnahefð og menningu, samfara því
að ljóð eru honum hugleikin og leik-
ur aragrúi þeirra honum á tungu á
góðri stund. Þá er hann flókin sam-
setning alvöru og gamansemi og
gengur til vinnu sinnar með íúlltingi
hvors tveggja eftir því hvernig vind-
ur blæs og verða vill, en ýmsir melta
illa slíkan framgangsmáta á vett-
vangi listarinnar.
Satt má vera að mikill stígandi
geðhrifa sé í myndverkum lista-
mannsins og með nokkrum ólíkind-
um að þau skuli öll vera eftir sama
manninn. Á stundum veit maður síð-
Morgunblaðið/Bragi Ásgeirsson
Gollý, marmari, serpentín.
Lágmynd af Halldóri Laxness.
ur hvert hann er að fara en í annan
stað eru önnur svo meitluð að aðdá-
un vekur. Þetta kemur ekki einungis
fram í sjálfum höggmyndunum held-
ur einnig stöllunum undir þeim, en
þar ber hvikult hugarflugið oftar en
ekki sigurorð af yfirveguninni. Þetta
allt kemur afar vel fram á sýning-
unni í Víðistaðakirkju, raunar fullvel
þar sem rýmið er afar takmarkað og
illa fallið fyrir jafn viðamikinn gjöm-
ing á myndlistarvettvangi. Verkin
eru einfaldlega alltof mörg í afar
óhentugu rými og njóta sín því fæst
sem skyldi. Þannig nær verkið,
Huginn og Muninn, sem prýðir ann-
ars skrifstofu skáldsins á blaðinu
engan veginn viðlíka flugi í þessu
kraðaki. Hins vegar standa nokkur
verkanna í þeim mæli fyrir sínu að
þau hefðu ein sér náð að móta ris-
mikla heild og skilja jafnframt eftir
réttari og eftirminnilegri mynd af
listamanninum í heilabúi skoða-
ndans. Gott dæmi sjáum við i englin-
um við kór kirkjunnar sem er þama
einn og sér, en nær að magna upp
kyrrláta stemmningu í annars
ágengu umhverfi.
Eitthvað segir mér að hið einfald-
asta og hrifmesta úr smiðju lista-
mannsins eigi mikið erindi inn í rými
listasafna okkar, jafnframt að tími
sé kominn til að þau kynni verk
þessa hlédræga en hugumstóra
listamanns í húsakynnum sínum...
Bragi Ásgeirsson
Straumur verður draumur
Morgunblaðið/Halldór B. Runólfsson
Frá sýningu Libiu Pérez de Siles de Castro og Ólafs Áma Ólafssonar,
The Last Minute Show, í Listamiðstöðinni Straumi við Hafnaríjörð.
MYJVDLIST
L i s t a m i ft s t ii ð i n
S t r a ii iii ii r
BLÖNDUÐ TÆKNI
LIBIA PÉREZ DE SILES
DE CASTRO & ÓLAFUR
ÁRNIÓLAFSSON
Til 19. nóvember.
Opið daglega frá kl. 14-19.
MARGIR muna sjálfsagt eftir
stómm glerkút ofan á haugi af frauð-
svampi í bogaglugga Kirkjuhússins
við Laugaveg 31, sem geymdi
mennskar leifar í formalíni. Verkið
hét Tikk-takk og var hluti af listsýn-
ingunni Flögð og fögur skinn, á
Listahátíð 1998. Höfundamir voru
listparið Libia Pérez de Siles de
Castro, ættuð frá Madríd á Spáni og
Reykvíkingurinn Ólafur Ámi Ólafs-
son, en þau hafa unnið saman undan-
farin ár, írá því þau stunduðu nám í
Groningen í Hollandi.
Libia Pérez á sér margbreytilegan
feril. Meðal annars er hún lærður
flamenco-dansari og má ætla að sá
bakgrunnur eigi sinn þátt í leikrænni
tjáningu parsins, en sýning þeirra í
Straumi við Hafnarfjörð ber einmitt
yfirskriftina The Last Minute Show.
Þetta er tætt sýning og margræð,
byggð kringum malarstíg sem
hlykkjast eftir gólfinu. Á einum
veggnum er orðið Imagine ritað öf-
ugt en andspænis því má sjá öfugt
ritaða setningu á ensku sem varar við
skynseminni sem sadískum harð-
stjóra. Samt sem áður er draum-
kennt yfirbragð sýningar Libiu Pér-
ez og Olafs Áma engan veginn laus
við einkenni martraðar. Að því leyt-
inu verður gestum sjálfsagt hugsað
til Goya og hinnar frægu ætingar
hans úr Kenjunum; Svefn skynsem-
innar hleypir forynjunum lausum.
Hvað varðar skipanina sjálfa í
rýminu þá minnir hún þó fremur á
tættan og mótsagnakenndan draum-
heim bandaríska listamannsins Jon-
athans Borofskys þar sem órökræn-
ar samsetningar úr ólíkum áttum og
ólíkar að gerð og eðli skarast og
flækjast með tilheyrandi, margvís-
andi áreiti. Munurinn er ef til vill sá
að í samsetningum Libiu Pérez og Ól-
afs Ama er um greinilegt ferðalag að
ræða frá einum hlutanum til annars.
Akveðnir hlutar em stúkaðir af.
Þeirra verður einungis notið að inn-
anverðu svo sem klefans með mál-
verkum af hvers konar tagi. Yfir
þessu afhýsi er stigi upp á pall þar
sem myndbandsskjár, innpakkaður í
svampdýnu, varpar frásögn gamallar
konu. Varirnar em hið eina sem sést
á skjánum. Þar við er hægt að hlýða á
fuglasöng í heymartækjum.
Á gólfinu fyrir neðan bíður hið
sérkennilega harðneskjulega spegil-
hús - kvalalostans? - og seytlandi
kliðurinn í Straumnum úr snældu í
útvarpstæki. Mannshöfuð vegur salt
á lítLUi tunnu og utar spriklar skugga-
mynd í snöm. Milli þessara sérkenni-
legu mannvera er hársáta, að því er
virðist úr hampi.
Vissulega em einingar misjafnar
að áhrifamætti og gæðum. Sem heild
gengur skipanin þó prýðilega upp og
veitir dágóða innsýn í hvatvis vinnu-
brögð þeirra Libiu Pérez og Ólafs
Áma. Kosturinn við vinnubrögð
þeirra felst í dirfskunni sem íylgir
hverri samsetningu Gjaman er
tvenns konar efniviði steypt saman í
eina heild, oft með krafti sem er fúll-
ur af óþoli og eldmóði. Þetta eftir-
tektarverða listpar sparar ekki til-
fmningamar. I því felst ef til vill
sérstaða þessara tveggja óvenjulegu
samstarfsmanna.
Halldór Björn Runólfsson
Norræn höf-
undaréttarlög
verði fyrir-
mynd en ekki
fórnarlamb
NORRÆNA rithöfunda- og þýð-
endaráðið hefur sent frá sér eftirfar-
andi menningarmálayfirlýsingu:
„Tungumálið er sá gmnnur sem
byggja verður á í samskiptum manna,
tækið sem er notað til að miðla þekk-
ingu, söguvitund, framtíðarsýn og
túlkun bókmennta á lífi okkar.
Nú á dögum einkennist framboð á
menningar- og afþreyingarefni um
allan heim af því sem á að seljast í
stómm stíl og það verður sífellt
ágengari viðmiðun hjá hundmðum
milljóna manna meðal ólíkra þjóða á
hinum ýmsu mál- og menningarsvæð-
um. I hraðfara hag- og tækniþróun
færist eignarhald á útgáfufyrirtækj-
um, kvikmyndaframleiðslu, sjón-
varpsstöðvum, kvikmyndahúsum og
netfyrirtækjum til sífellt færri fjöl-
þjóðlegra stórfyrirtækja. Þess gætir
einnig á norræna bókamarkaðinum
og í framboði á menningarefni yfir-
leitt.
Norræn tungumál tala hlutfalls-
lega fáir og þau verða fyrir sífellt
sterkari ytri áhrifum. Því er nú á dög-
um afar mikilvægt að varðveita og
þróa tungumál okkar, gera þau sem
hæfasta burðarása menningarinnar
og að tryggja fjölbreytni bæði í sköp-
un bókmenntanna og útgáfu þeirra;
fjölbreytt lesefni þarf að vera í boði.
Það er eitt helsta skilyrði þess að
þjóðimar búi áfram yfir þeim sameig-
inlega skilningi sem lýðræði byggist
á.
Félög norrænna höfunda fagur-
bókmennta og fræðirita og þýðenda
leggja með þessari yfirlýsingu
áherslu á gildi þess að menningar-
stefna á Norðurlöndum sé virk og
framsækin.
Við gerum kröfú um eftirfarandi:
Aðgangur að upplýsingum og tján-
ingarfrelsi í öllum miðlum verði
tryggt. Gildi bókmenntanna sé virt í
hvers konar miðlun.
Staða bókmennta verði styrkt og
ýtt undir lestur með ríkulegum inn-
kaupum menningar- og mennta-
stofnana. Bókasöfn geti sem víðast
boðið gott efnisval.
Stuðningur við góðar og gefandi
bókmenntir, bæði fiumsamdar og
þýddar, verði aukinn til þess að mark-
aðurinn mótist af fleira en sölulíkum.
Þýðingastyrkir til norrænna bók-
mennta fyrir böm, unglinga og full-
orðna verði auknir. Engar hömlur
verði lagðar á styrkveitingu til menn-
ingarmála innan einstakra ríkja og
unnið þannig gegn áhrifum fjölda-
framleiðslu fjölþjóðlegra stórfyrir-
tækja.
Norræn höfundaréttarlög verði
fyrirmynd en ekki fómarlamb í
evrópsku samræmingarstarfi.
Bókamarkaðurinn verði efldur
með föstu bókaverði og lækkun virð-
isaukaskatts á bækur þar sem slíkur
skattur er lagður á.
Hlutverk námsefnis sem undir-
stöðu í uppeldi og menningu verði
tryggt með útgáfu og notkun á vönd-
uðu innlendu fræðsluefni.
Útvarp og sjónvarp í almannaeigu,
sem gegnir lögbundinni skyldu að
sinna menningarlegum markmiðum
og almannahag, fái sterka stöðu
þannig að unnt sé að miðla efni sem
varðar miklu fyrir einstök svæði,
þjóðir og norræna menningu."
Þórarinn B. Þorláksson
LISTMUNAUPPBOÐ
sunnudagskvöld kl. 20.00 á Hótel Sögu
VERIÐ VELKOMIN AÐ SKOÐA VERKIN í GALLERÍI FOLD, RAUÐARÁRSTÍG 14-16,
í DAG KL. 10.00-18.00, Á MORGUN KL. 10.00-17.00 EÐA Á SUNNUDAGINN KL. 12.00-17.00.
SELD VERÐA UM 100 VERK, ÞAR Á MEÐAL FJÖLMÖRG VERK GÖMLU MEISTARANNA.
HÆGT ER AÐ NÁLGAST UPPBOÐSSKRÁNA Á NETINU: www.myndlist.is
Rauðarárstíg 14-16
Sími 551 0400