Morgunblaðið - 17.11.2000, Síða 32

Morgunblaðið - 17.11.2000, Síða 32
32 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2000 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Nýjar bækur • ÚT er komin ljóðabókin Hnattflug eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur. JPV forlag hefur sent frá sér ljóðabókina Hnattflug eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur. I fréttatilkynn- ingu segir: „Sá sem opnar þessa bók þiggur boð um heimsreisu. Hvert ljóð er Sigurbjörg áfangastaður á Þrastarddttir ferð sem hefst á íslandi en heldur áfram í austur all- an hringinn. Stiklað er á lengdar- baugum frá einu kennileiti til annars og úrinu flýtt eftir atvikum. Sigurbjörg Þrastardóttir er fædd árið 1973 á Akranesi. Hún hefur vak- ið athygli fyrir frumlega texta, bæði skáldskap og pistla, en hún starfar sem blaðamaður á Morgunblaðinu. Ljóðabókin Blálogaland kom út árið 1999. Sigurbjörg hefur hlotið ýmiss konar viðurkenningar fyrir ljóð sín og sögur. Hnattflug hlaut viðurkenningu dómnefndar í samkeppni um Bók- menntaverðlaun Tómasar Guð- mundssonar árið 2000.“ Útgefandi er JPV forlag. Bókin er 116 bls., prentuð í Danmörku. Hun- ang hannaði bók og kápu. Leiðbein- andi verð: 2.680 krónur. --------------------- • ÚT er komin bókin Allir með strætó eftir Guðberg Bergsson með myndskreytingum Halldórs Bald- urssonar. í fréttatilkynn- ingu segir: „Bók- in er tileinkuð Strætisvögnum Reykjavíkur. Aður fyrr ók strætó um borg- ina fullur af fólki. í vagninum ríkti sátt og samlyndi -ríkir ogfátækir, ungir og gamlir, kunnugir og ókunn- ugir sátu saman. í strætó lærðu menn að sýna hver öðrum tillitssemi og háttvísi. En farþegum fækkaði því allir eignuðust eigin bíla nema gamlir karlar og kerlingar, rónar og krakkar. Borgarstjórinn ákveður þá að strætó megi aðeins aka um fimm götur. Lítið kraftaverk gerist þegar barn og tré koma til sögunnar. Strætisvagninn og tréð er spenn- andi og gáskafullt nútímaævintýri fyrir börn á öllum aldri. Dæmafá hugmyndaauðgi og óvænt sjónarhorn Guðbergs njóta sín einkar vel í þessari barnasögu. Guðbergur hefur áður skrifað barnabókina Tóta og táin á pabba (1982). Halldór Baldursson teiknari er menntaður frá grafíkdeild Mynd- lista- og handíðaskóla íslands. Hann hefur myndskreytt fjölda bóka und- anfarin ár.“ Útgefandi er JPV forlag. Leið- beinandi verð: 1.980 krónur. --------------------- • ÚT er komin unglingabókin Fing- urkossar frá Iðunni eftir Hallfríði Ingimundardóttur. í fréttatilkynn- ingu segir: „Ið- unn hefur nýlega misst mömmu sína og vinirnir virðast upptekn- ari en nokkru sinni fyrr. Svo ekki sé minnst á pabba hennar sem dvelur öllum stundum hjá pæj- unni Dúfu - tannþræði með brjóst! En það er óþarfi að láta sér leiðast og með hjálp „frekjunnar í húsinu á móti“ og fleiri góðra vina tekur Ið- unn málin í sínar hendur. Fjörug saga um ljósar og dökkar hliðar mannlífsins eins og það horfir við fimmtán ára stelpu. Enginn vafi leik- ur á niðurstöðunni: lífið er bara þokkalega fínt!“ Útgefandi er Mál og menning. Bókin er 191bls., prentuð í Svíþjóð. Kápu gerði Áslaug Jónsdóttir. Leið- beinandi verð er 2.290 krónur. Hallfríður Ingimundardðttir Dómkórinn. Sálumessa Faurés í Dómkirkjunni DÓMKÓRINN flytur sálumessu Gabriels Faurés í Dómkirkjunni á morgun, laugardag, kl. 17. Tónleikarnir eru liður í Tónlist- ardögum Dómkirkjunnar sem stað- ið hafa undanfarnar þrjár vikur. Einsöngvarar með kórnum eru Margrét Bóasdóttir og Bergþór Pálsson og Anna Guðný Guðmun- dsdóttir leikur undir á píanó. Á tón- ieikunum syngur kórinn einnig lög eftir Grieg, Bruckner og Saint Saéns. Stjórnandi Dómkórsins er Marteinn H. Friðriksson. „Svona sé ég dauðann: sem gleði- lega lausn, þrána eftir hamingju handan grafar og dauða fremur en einhverja kvalafulla reynslu." Þannig komst Fauré sjálfur að orði um verk sitt. Margir te|ja Requiem Faurés fallegustu sálumessu sem samin hefur verið. Hún er blíð, hún er melódísk og undursnotur síðróm- antískur hljómagangurinn gerir huggunarmátt hennar mikinn. Hún er voldug en einlæg tilbeiðsla þar sem segja má að tvær hendingar úr messutextanum fái sérstaka vigt: „Drottin veit þeim hina eih'fu hvfld" og „Megi kór englanna bjóða þig velkominn" og það er augþóst af þessari bón Faurés t.il almættisins að hann sækir til þess vissuna fyrir áðurnefndri skoðun sinni að dauð- inn sé lausn; þráin eftir hamingju handan grafar og dauða. Draugar í glaðasólskini BÆKUR H r o 11 v e k j a NÁGRANNA- DRAUGURINN eftir R.L. Stine.Salka. 2000.108 bls. Karl Emil Gunnarsson þýddi. NÁGRANNADRAUGURINN er spennandi bók. „Eg fann Harry Potter-tilfinninguna," sagði sonur minn 11 ára eftir lesturinn og átti við að hann hefði ekki getað hætt lestr- inum fyrr en sagan var búin. Textinn var nógu spennandi. Ná- grannadraugurinn er fyrsta bókin í ameríska bókaflokknum „Goose- bumps“ eða Gæsahúð sem eru hroll- vekjusögur sem eiga að kalla hressi- lega gæsahúð fram hjá ungum lesendum. Þessi er eftir R.L. Stine og er í þýðingu Karls Emils Gunn- arssonar. (Hér verður ekki kjaftað frá.) Sag- an er um Hönnu, 12 ára stúlku, sem er heima hjá sér í sumarfríinu á með- an vinir hennar eru í sumarbúðum. Það undarlega er að einn góðan veð- urdag uppgötvar hún að í mannlausa húsinu hinumegin býr Danni, dreng- ur á sama aldri og hún, og er bókin um samskipti þeirra. Danni veldur henni miklum heilabrotum. „„Þekkir þú Alla Miller?“ spurði Danni og sneri sér að henni um leið og hann skyggði hönd fyrir augu til að skýla þeim fyrir síðdegissólinni. Hanna hristi höfuðið. „Nei.“ En Frissa Drake?“ spurði hann. „Nei,“ svaraði hún. „í hvaða bekk ertu?“ „Ég fer í áttunda bekk,“ sagði hann og sneri aftur að húsveggnum. ... „Eg hka!“ hrópaði Hanna.“ (bls. 28) Hún spyr svo hvort hann þekki vini hennar Jönu og Jonna. En það gerir hann ekki og hún spyr án þess að fá svar: „Hvernig getum við verið í sama bekk og ekki þekkt neina sömu krakkana?“ (28). Þetta er stórfurðulegt. Böm í sama árgangi í sama skóla en hafa aldrei sést áður og þekkja ekki vini hvort annars. Það er ekki nema von að gmnur um draugagang læðist að söguhetjunni. Hanna er einmana barn, árang- urslaust sendir hún vinkonu sinni bréf og sambandið við foreldrana ristir ekki djúpt. Hún reynir því, þetta bjarta sumar, að ná sambandi við nýja nágrannann, Danna Ander- son. I íslenskri hefð hefst draugasagan í skammdeginu; sólin dregur sig í hlé og endalaus nóttin gengur í garð. Þjóðsagan nærist í myrkrinu. At- burðir í þessari draugasögu verða aftur á móti í glaðasólskini og hita- bylgju hásumarsins. „Ilmurinn af hlýju loftinu var sæt- ur og hressandi. Hún horfði á tvö gul og rauð fiðrildi flögra hlið við hlið yf- ir blómagarðinn.“ (10). „Hanna horfði upp í heiðbláan himininn. Sól- in vermdi andlit hennar." (10) Sög- una alla er glampandi sólskin þótt eitthvað beri á öðrum blæ og and- vara, og stöku skugga sem fylgir söguhetjunni. „Skuggamir flöktu og dönsuðu þegar hún hljóp meðfram trjánum. Skuggar á skugga ofan, mnnu saman í eina bendu, gráir, svartir og bláir.“ (23). Ef til vill er kostur að bókin kemur nú út í ís- lensku skammdegi, árstíð drauga, afturgangna og annarra skufsa. Bókin er hnitmiðuð draugasaga. Höfundurinn er augljóslega vanur að skrifa sögur sem halda athygli lesenda. Hann vísar lesandanum rangar leiðir í völundarhúsinu og birtir svo útgönguleiðina óvænt. Ég held að foreldrar hefðu gaman af því að lesa þessa sögu upphátt fyrir næt- ursvefn bama sinna. Ég býst við að það sé alveg óhætt því sagan er fyrst og fremst spunnin vegna fléttunnar - en snýst ekki um óhugnað og óg- leði. Flestir aðrir lesendur verða sennilega á aldursbilinu 10-14 ára. Virðing fyrir íslensku máli opin- berast í þýðingunni. „Það var erfitt að henda reiður á þessum sunnudög- um.“ (6). „Hanna rýndi inn í iðandi síðdegisskuggana. Hún renndi aug- unum yfir rannana og gerðin við göt- una.“ (24). „Dökkur vomurinn sveif við hlið hennar með útrétta arma.“ (40). „Gullið sólskinið streymdi í gegnum hann. Hann hvarf og birtist á víxl eins og í tíbrá.“ (48). Orðin eiga ekki að vefjast fyrir ungmennum. Niðurstaðan er að sagan nær mai-kmiði sínu að vera góð drauga- saga (í sólskini). Fléttan er ágæt og söguhetjan hugrökk. Jafnvel er hægt að greina boðskap um að heillavænlegt sé að hjálpa náunga sínum og að bregðast ekki vinum á ögurstund. Gunnar Hersveinn Nýjar bækur • ÚT er komin bamabókin Hunda- eyjan - Lítið ævintýri um undrun, frelsi og fyrirgefningu eftir Sindra Freysson. Halla Sólveig Þorgeirs- dóttir myndskreytti söguna. í fréttatilkynningu segir: „Hund- amir á Krítey hafa stofnað leynifé- lag. Þeir vilja komast í burtu til Hundaeyjunnar, þar sem allir hvutt- ar eru frjálsir. Én Níðingur, erki- óvinur frjálsra seppa, hefur illt í hyggju og ætlar að koma í veg fyrir að draumar þeirra rætist. Hundarn- ir deyja ekki ráðalausir því frelsisþráin er sterkari en ótt- inn. Ævintýrið um Hundaeyjuna fjallar um mikil- vægi þess að eiga sér drauma og láta þá rætast. Sagan er óður til frelsisins, fegurðarinnar og fyrir- gefningarinnar. Falleg og spennandi saga fyrir 5-9 ára fjörkálfa. Sindri Freysson hefur áður sent frá sér skáldsöguna Ljósin í bænum og ljóðabókina Harði kjaminn sem var tilnefnd til íslensku bókmennta- verðlaunanna árið 2000. Hundaeyjan er fyrsta bamabók hans. Halla Sólveig Þorgeirsdóttir lauk nýverið námi í bókaskreytingum í Bandaríkjunum og fékk The Charles Salisbury verðlaunin fyrir fram- úrskarandi námsárangur. Hunda- eyjan er önnur bókin sem hún mynd- skreytir." Útgefandi er JPV forlag. Bókin er 31 bls., prentuð í Danmörku. Leiðbeinandi verð: 1.980 krónur. Sindri Freysson Nýjar bækur • ÚT er komin bókin Blómið sem þú gafst mér eftir Nínu Björk Arna- dóttur. Hún hefur að geyma úi-val ljóða Nínu en um- sjón með útgáf- unni hafði Jón Proppé. í fréttatilkynn- ingu segir: „Nína Björk Árnadóttir (1941-2000) var án efa ein mikil- vægasta röddin í skáldskap síðustu áratuga. Einlæg og nærgöngul ljóð hennar tjá sterkar tilfinningar og áhrifamikla sýn á ástina og ótt- ann, söguna, samfélagið og hlutskipti kvenna. Enginn sem lesið hefur ljóð hennar er ósnortinn af heitum til- finningunum og hreinskilninni sem var eitt helsta höfundareinkenni Nínu Bjarkar. Blómið sem þú gafst mér hefur að geyma meira en helming ljóðanna sem Nína birti á ferli sínum en að auki ljóð og nokkrar kvenlýsingar úr handriti sem ólokið var þegar hún lést. Jón Proppé valdi ljóðin og ritaði eftirmála en hann aðstoðaði Nínu við frágang nokkurra síðustu bóka hennar. Hér gefst lesendum tækifæri til að rifja upp kynni sín af ljóðum Nínu, rekja þá sterku þræði sem liggja gegnum alla ljóðagerð hennar og lesa ljóðin sem hún skildi eftir sig óbirt. Fyrir þá sem ekki þekkja til Nínu Bjarkar er bókin inngangur að dul- mögnuðum Ijóðaheimi þessarar ein- stöku skáldkonu.“ Útgefandi er JPV forlag. Bókin er 195 bls., unnin í Prentsmiðjunni Odda hf. Soffía frænka hannaði kápu. Leiðbeinandi verð: 2.980 krónur. -------♦-♦-♦-------- • ÚT er komin skáldsagan Spegil- sónata eftir Þóreyju Friðbjörnsdótt- ur. í fréttatilkynn- ingu segir: „Speg- ilsónata er áleitin og erótísk saga um það sem alltaf er en aldrei verð- ur: Ævaforn lög- mál sem hefðin horfir fram hjá, ástina sem neitar að deyja, syndina sem byltist í fylgsnum, fómina sem skiptir sköp- um. Þetta er sagan um það sem býr á bak við spegilmyndina. Með einstæðum tökum á frásagn- arhætti og stíl fjallar höfundur um miskunnarlausar en um leið ómót- stæðilegar mótsagnir í lífi aðalpers- ónanna og glímu þeirra við gömul ör- lög. Hann segir sögu karls og konu sem leiðast um lífið á laun eins og tré sem flétta rætur djúpt í mold, sög- una sem allir þekkja en enginn sér. Þetta er fjórða skáldsaga höfund- ar og sú fyrsta fyrir fullorðna en Þórey hlaut Islensku barnabóka- verðlaunin fyrir Eplasnepla árið 1995.“ Útgefandi JPV forlag. Bókin er 162 bls., prentuð í Danmörku. Leið- beinandi verð: 3.680 krónur. -------♦-♦-♦-------- • ÚT er komin ljóða- og vísnabókin Út við ysta sæ eftir Rúnar Kristjáns- son á Skagaströnd. í fréttatilkynningu segir: „Þetta er fjórða bók höf- undar og era yrk- isefni hans fjöl- breytt að vanda. Ljóð eftir Rúnar hafa undanfarin ár birst í Lesbók Morgunblaðsins, ýmsum héraðsrit- um og víðar. Höfundur held- ur sig alfarið við n'm og stuðlasetningu, hina þjóðlegu kveðskaparíþrótt, og kýs ekki að leita á mið rímleysunnar. Fyrir þá sem kunna slíkt að meta er hér á ferðinni ákjósanleg bók með lifandi innihaldi." Útgefandi er Rúnar Kristjánsson. Bókin er prentuð í prentsmiðju Hafnarfjarðar. Nína Björk Arnadóttir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.