Morgunblaðið - 17.11.2000, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2000 41
FJÖLMIÐLUN
Shaw
hættir
hjá CNN
BANDARISKA sjdnvarpsstöðin
CNN hefur skýrt frá því að frétta-
þulurinn Bernard Shaw, sem hef-
ur starfað hjá stöðinni frá upphafi
hennar fyrir um tveim áratugum,
muni hætta á næsta ári.
Shaw er sextugur og segist nú
vilja fá meiri tíma til að verja
með fjölskyldu sinni og rita bæk-
ur. Hefur hann m.a. í hyggju að
skrifa sjálfsævisögu, skáldsögur
og handbók fyrir fréttamenn.
Hann hættir störfum 28. febrúar
en mun áfram taka að sér einstök
verkefni á skjánum. Ted Turner,
stofnandi CNN, sagði að Shaw
myndi „ávallt eiga sér samastað
hjá CNN“.
Shaw varð heimsþekktur er
Shaw í fyrstu útsendingunni og
svo við starfslok.
hann var fréttamaður í Bagdad í
ársbyrjun 1991, við upphaf Persa-
flóastríðsins, og flutti áhorfendum
sallarólegur fréttir sínar um leið
og sprengjurnar féllu í grennd við
hótelið þar sem hann hafði bæki-
stöð. Hann starfaði hjá sjónvarps-
stöðvunum CBS og ABC áður en
hann fór til CNN og segir að
margir af fyrrverandi vinnufélög-
um hans hafi talið að um gönu-
hlaup væri að ræða. En hann hafi
sjálfur talið að ný víglína í sjón-
varpsfréttum væri að verða til hjá
stöðinni.
Mál málanna í dag
í blaðaheiminum
ÞESSA dagana er í tísku hjá
flestum að stilla upp eins konar
„topp tíu“ lista yfir ögrandi við-
fangsefni sem hinar ýmsu grein-
ar þurfa að takast á við með til-
liti til framgangs í hinni nýju
fögru veröld. Slíkur listi er rétt-
lættur með því að hann geti ver-
ið notadrjúgt tæki til að draga
fram hin stóru mál sem við
blasa og ýta undir umræður um
þau.
Á fundi Alþjóðasamtaka dag-
blaða í Ríó í sumar kynnti ráð-
gjafahópurinn The Innovation
International Media Consulting
Group skýrslu sína þar sem ein-
mitt er dreginn upp slíkur listi
málefna sem forsvarsmenn dag-
blaðaiðnaðarins telja standa upp
úr samkvæmt könnun ráðgjafa-
hópsins. Samkvæmt fréttabréfí
samtakanna eru höfuðmálin
þessi:
Staðbundið efni: Dagblöð
mega aldrei missa sjónar af
þeirri staðreynd að þau eru
„límið“ sem heldur hverju sam-
félagi saman.
Hæfileikar: Dagblöð verða að
leita leiða til að hafa uppi á,
ráða og halda í starfsmenn sem
geta myndað ritstjórn í hæsta
gæðaflokki, með hæfum stjórn-
endum, samhliða því að allri
skriffinnsku er rutt úr vegi.
Áreiðanleiki: Smáblöð, staðar-
og svæðisblöð ættu að keppa að
áreiðanleika í fréttaflutningi og
stefna að því að skapa sér sjálf-
stæða rödd í líkingu við það sem
stærri blöðin gera.
Samhæfing: Fyrirtækin þurfa
að taka á samskipta- og tengsla-
leysi milli ritstjórnar og yfir-
stjórnar.
Blaðleysingjar: Ritstjórar og
blaðamenn ættu að vera í betra
sambandi við konur og ungt
fólk. Tímaritum og ljósvaka-
miðlum hefur tekist að höfða til
þessa hóps; dagblöðin þurfa að
tileinka sér það einnig.
Rannsóknir og þróun: Of litlu
fjármagni er varið til þessara
sviða.
Margmiðlun: í hinum nýja
fjölmiðlaheimi er nauðsynlegt
að samþætta netblaðamennsku
og hefðbundna blaðamennsku.
Andstaða við þessa hugsun leið-
ir til tvíverknaðar og ofmann-
aðra ritstjórna, og getur hindr-
að hæfileikaríka blaðamenn í að
ná tökum á stafrænni miðlun
sem byggist jöfnum höndum á
texta, mynd og hljóði.
Snögglesning: Dagblöð ættu
að íhuga að leita einföldunar í
framsetningu og formi til að
koma upplýsingum skilmerki-
legar til lesenda.
Plönun: Iðulega eru smærri
og meðalstór blöð byggð upp
með það fyrir augum fyrst og
fremst að standast skilafresti
(deadline); þau missa þannig af
tækifærum til að greina og
túlka atburði líðandi stundar.
Sál: Utrýma þarf hálfvolgri
og bragðlausri blaðamennsku
sem megnar ekki að hreyfa við
lesandanum, skemmta honum
og koma honum til að hugsa.
INNKÖLLUN VEGNA RAFRÆNNAR
SKRÁNINGAR HLUTABRÉFA í
Guomundur Rundlfssdn hf GUÐMUNDI RUNÓLFSSYNI HF.
Mánudaginn 19. febrúar árið 2001 verða öll hlutabréf í Guðmundi Runólfssyni hf. tekin til rafrænnar skrán-
ingar hjá Verðbréfaskráningu íslands hf. í samræmi við ákvörðun stjómar Guðmundar Runólfssonar hf. þar að
lútandi. Þar af leiðandi verða engin viðskipti með hlutabréf félagsins þann dag. Frá þeim tíma ógildast hin
áþreifanlegu hlutabréf í fyrirtækinu í samræmi við ákvæði laga og reglugerðar um raffæna eignarskráningu
verðbréfa.
Hér með er skorað á alla eigendur ofangreindra hlutabréfa sem telja nokkurn vafa leika á að eignarhald þeirra
sé réttilega fært í hlutaskrá Guðmundar Runólfssonar hf. að staðreyna skráninguna með fyrirspurn til hluta-
skrár Guðmundar Runólfssonar hf., Sólvöllum 2, 350 Grundarfirði, eða í síma 430-3500. Komi í ljós við slíka
könnun að eigendaskipti hafi ekki verið skráð ber eigendum að færa sönnur á þau gagnvart félaginu fyrir
nefndan dag.
Ennfremur er skorað á alla þá, sem eiga takmörkuð réttindi til ofangreindra hlutabréfa, s.s. veðréttindi, að
koma þeim á framfæri við fullgilda reiknistofnun, þ.e. banka, verðbréfafyritæki eða sparisjóð sem gert hefur
aðildarsamning við Verðbréfaskráningu íslands hfi, fyrir skráningardag.
Athygli hluthafa er vakin á að hin áþreifanlegu hlutabréf félagsins verða ógild sjálfkrafa og því er ekki þörf á
að skila þeim til félagsins. Jafnframt er vakin athygli á að ferli rafrænnar skráningar hefúr engin áhrif á mögu-
leika hluthafa til að eiga viðskipti með hluti sína í félaginu að undanskildum sjálfum skráningardeginum.
Að lokinni rafrænni skráningu þurfa hluthafar að fela reiknistofriun umsjón með eignarhlut sinum í félaginu
með stofnun VS-reiknings til að geta framselt hluti sína, svo sem vegna sölu eða skipta. Hluthöfum félagsins
verður nánar kynnt þetta bréfleiðis.
Stjórn
Guðmundar Runólfssonar hf.
HORIMSÓFAR
HS._________, ________320__________ .__________275________. ________2M
DAB0 ISLAND
Pottþétt dekkl
W
-
ÍÍCKO
Wéef
K> j* m m
11 C
K m-\ V k,.... gn.,i
ÞAÐ ER ALLT ORÐIÐ HVITT!
DABO ISLAND
Pottþétt dekkl
Nú er vetur gengin í garð og tími til komin að setja
vetrardekkin undir bílinn. Hjá Bílkó færðu úrvals
vetrardekk af öllum stærðum og gerðum. Spólaðu
ekki í sama farinu! Pantaðu tíma í síma 557 9110
eða komdu við á smiðjuvegi 34-36 og þú færð
toppþjónustu á hreint ótrúlegu verði.
BÍLKÓ EHF.- Bifreiðaþjónusta - Dekkjaverkstæði - Bílaþvottur Smiðjuvegur 34-36 ■ Kópavogi ■ Simi SS7 9110 ■ Rouð gata OPIÐ 08-18 MÁN-FÖS. OPIÐ 10-16 LAU. NEYÐARPJÓNUSTAN ALLTAF OPIN SÍMI800 4949.