Morgunblaðið - 17.11.2000, Side 60
60 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
OPIO TILWB*
HRKl 24.00
ÖLL KVÖLO«
orgarAPOTEK
Álftamýri 1 Reykjavík, sími:5857700
vítamín
50 tegundir í kynningarviku
Dagkynnin
Kynningarvika
rir alla
KAUPAUKI
-Sólhattur Echinarea 400 mg - 50 stk.
- Acidophilus 2 billj. - 60 stk.
-Q10, 30 mg 30 stk.
-C-300 100 stk.
Supct j
1 1300 «>9
t„nWJf’r*nWOM
*™> Acorota
^rtníng
twPalmeti
Extract
Oocto^Stret^
t60 m
öOSottíjrt*
E-600
100S, Naturai
d-alphn TocopharYf
syllima
k Powd
100
Puii
Bulk
1Í ot 0*0»
!. .fica
iff'? ' v
mOMEMAU
Niacin Bound
fatenled Chromi
Tilttoö altíarjnnar-
Gias W* 9'as
veLeaf
Extract
500 mg
zect 6% Oleit/apát
X00Sott9«*
S3 Grain
1200 mg
100 SoftHek
Sérstök
kvöld-
kynning
kl. 20-24
Panax-Ginseng 520 mg 100
stk. eða aðrir kaupaukar
fylgja með hverju glasi af
NOW vítamíni.
opiðtium*
■MBKL 24.00
ÖLLKVÖLD*
oryaiAPOTEK
Álftamýri 1 Reykjavík, sími:5857700
UMRÆÐAN
Förum varlega
í laxeldi af
norskum stofni
RÁÐUNEYTI um-
hverfismála staðfesti
20. október sl. úrskurð
Skipulagsstofnunar um
að íýrirhugað laxeldi af
norskum stofni á Aust-
fjörðum skyldi ekki fara
í mat á umhverfisáhrif-
um. Þessi staðfesting er
byggð á lögum þar sem
segir að mat á umhverf-
isáhrifum laxeldis sé
ekki matsskylt heldur
aðeins tilkynningar-
skylt. Þetta er áhyggju-
efni, meðal annars
vegna þess að Náttúru-
vemd ríkisins mælti
með umhverfismati.
Menn telja að ásókn manna í laxeldi
af norskum stofni muni stóraukast
vegna þessa. En, kapp er best með
forsjá. Norðmenn hafa til dæmis í
ijósi reynslunnar af laxeldi og hætt-
um því samfara ákveðið að rannsaka
mengun frá laxeldisstöðvum og þann-
ig tryggja sig betur gegn tjóni á nátt-
úrunni vegna þessa. Getum við virki-
lega réttlætt að gera það ekki einnig?
Við emm að tala um mikla hagsmuni
til langrar framtíðar.
Náttúrulegi
laxastofninn í hættu
Laxveiðimenn hafa sjaldan verið
eins stúmir eftir sumarið og núna,
miklu færri laxar komu á land en
veiðimenn áttu von á. Margir urðu
tæpast varir þrátt fyrir að hafa rennt
fyrir laxinn vítt og breitt um landið.
Siiungsveiðin var hinsvegar fín og
veiðimenn fengu mjög góða veiði og
væna físka. Silungurinn virðist ekki
„klikka" sumar eftir sumar, þótt lax-
inn geri það.
Það er ekki aðeins að löxunum
fækki heldur hefur stórlöxunum
fækkað mikið síðustu 10-15 árin. í
sumum laxveiðiánum hefur vænn
fiskur hreinlega horfið. í sunnlensk-
um laxveiðiám telst það orðið saga til
næsta bæjar ef veiðist lax yfír 17
pund. Áður fyrr, eða aðeins fyrir fá-
um ámm, þótti ekkert merkiiegt að
veiða 20 punda lax í mörgum ám. Það
era breyttir tímar nú.
Um norðlenskar ár sem
hafa verið frægar fyrir
stórlaxa gildir það
sama. Þar hefur stór-
löxum yfír 20 pund
fækkað reglulega á
hverju ári. Það má því
nánast telja á fingrum
annarrar handar stór-
laxana sem hafa veiðst í
laxveiðiánum í sumar
og það þarf að fara
mörg ár aftur til að
finna svona slakar stór-
laxagöngur. Á hverju
sumri gengur jafnan
eitthvað af stórlöxum,
en núna em til laxveiði-
ár sem enginn stórlax hefur komið í.
27,5 punda laxinn í Sandá er nánast í
sérflokki.
Lax
Náttúrulegi laxinn,
segir Þorsteinn Ólafs, á
undir högg að sækja.
Að þessu sögðu má sjá að náttúm-
legi laxinn á undir högg að sækja, lax-
amir verða færri og smærri með ár-
unum. Þetta geta allir séð sem hafa
rýnt í veiðitölur síðustu ára. Laxveið-
in minnkaði um 6.000 laxa í ár frá ár-
inu 1999 og það munar um minna. Um
1900 býli hafa miklar tekjur af veiði-
skap víða um land og ekkert má út af
bera til að þær minnki verulega. Eitt
slys í laxeldinu gæti reynst dýrkeypt.
Hættur samfara laxeldi
Okkar náttúralegu laxastofnar em
og eiga að vera okkur íslendingum
mikils virði þótt sumir séu tilbúnir að
taka mikla áhættu með laxeldinu af
norskum stofni og fóma þeim. Það
veldur mörgum vonbrigðum að veiði-
málastjóri skuli ekki hafa mælt með
umhverfismati fyrirhugaðs laxeldis af
norskum stofni á Austfjörðum.
Margir hafa spurt, einkum þar sem
Þorsteinn
Ólafs
náttúmlegi laxinn á undir högg að
sækja, hvemig hægt sé að réttlæta að
leyfa laxeldi af norskum stofni án
rannsóknar á mengunaráhrifum þess
og mögulegs tjóns á náttúranni?
Fjöldi býla víða um land á lífsviður-
væri sitt undir hreinleika strandsjáv-
arins og álit umheimsins er einnig í
veði. Óhöpp í laxeldi í kringum okkur,
til dæmis í Færeyjum, Noregi og
Skotlandi, sýna að skynsamlegt er að
fara varlega í laxeldið. Mikið magn
laxa hefur sloppið úr laxeldiskvíum og
leitar síðan upp í árnar, hrygnir þar
og afræktar villta laxastofna, svo ekki
sé talað um mögulegar veirasýking-
ar. Eigendur laxveiðiáa um allt land
eiga sinn rétt og ekki aðeins þeir
heldur er um hagsmuni fjölda ann-
arra að ræða.
Rétt að fara varlega
Það er eðlilegt að menn leiti nýrra
leiða til að byggja upp atvinnustarf-
semi úti á landi, ekki síst þegar horft
er til árangurs Norðmanna í þessu
efni. Norðmenn hafa haft gríðarlegar
telgur af laxeldi.
Gmndvallarmunur er hins vegar á
þeim og okkur. Norðmenn nota sinn
eigin stofn í laxeldinu en við ætlum að
blanda þeirra stofni við okkar.
Varað er því við þessari stofnerfða-
mengun sem gæti hlotist af. Nýjasta
dæmið er ótti manna í Maine-fylki í
Bandaríkjunum um yfirvofandi út-
rýmingu náttúrulegra laxastofna. Að
öllu samanlögðu er því rétt að fara
varlega.
Bíða skal með að gefa út rekstrar-
leyfí fyrir laxeldi af norskum stofni á
Austfjörðum án undangenginna
rannsókna á hættum og hvaða þætti
þurfi að varast. Umhverfismat er ein
þeirra aðgerða sem ættu að fara
íram. Sé horft til framtíðar er annað
ekki veijandi. Það hlýtur að koma að
því að ítarleg lög og reglur um fisk-
eldi á íslandi verði sett.
Stangveiðimenn hafa margir rætt
við mig um þetta stóra mál og hafa
áhyggjur af því og telja það grafalvar-
legt. Náttúmlegu laxastofnai-nir em
ekki kraftmiklir og þola ekki mikið
rask. Margir eiga hagsmuna að gæta
af veiðiskap og veiðiieyfamarkaður-
inn veltir allt að tveimur milljörðum á
ári. Þá eiga fleiri og fleiri veiðimenn á
öllum aldri sínar bestu stundir við
veiðiámar. Er það þess virði að fórna
þessum auðæfiim sem við eigum í
dag, fyrir stundargróða sem enginn
veit hvort sldlai- einhverju nema slys-
um? Ég tel svo ekki vera.
Höfundur er viðskiptafræðingur
og í kjöri til stjórnar SVFR.
Arangursrík meðferð
við sogæðabjúg
í Morgunblaðinu 4.
nóvember sl. var fyrir-
spurn um sogæðabólgu
sem Magnús Jóhanns-
son læknir svaraði.
Þar sem ég hef sér-
hæft mig í að með-
höndla fólk með sog-
æðabólgu, sem ég vil
frekar kalla sogæða-
bjúg, vil ég koma eftir-
farandi upplýsingum á
framfæri:
Það sem aðgreinir
sogæðabjúg frá öðram
bjúg er uppsöfnun
eggjahvítuefnis í milli-
fmmuvökva. Þetta leið-
ir til þess að mikill um-
framvökvi safnast fyrir í millivef.
Það er hlutverk sogæðakerfisins að
skila eggjahvítuefni inn í blóðrásina
aftur.
Þegar eitlar eru fjarlægðir, allir
eða að hluta til við skurðaðgerð
vegna krabbameins, skerðist starfs-
geta sogæðakerfsins verulega. Vessi
þarf að komast aðrar leiðir til baka
en þær leiðir verða alltaf afkasta-
minni en í heilbrigðu sogæðakerfi.
Samt sem áður eru þær mjög oft
nægjanlega afkastamiklar til þess að
viðkomandi fái ekki bjúg. Ef síðar
skapast aðstæður sem valda auknu
álagi á sogæðakerfið, t.d. flugferðir,
heitt umhverfi eða
miklar eða erfiðar æf-
ingar, getur allt í einu
myndast tímabundinn
eða varanlegur bjúgui-.
Þetta getur jafnvel
gerst nokkram áram
eftir krabbameinsmeð-
ferð.
Þýski prófessorinn
Miehael Földi þróaði á
9. áratugnum meðferð
við sogæðabjúg sem er
blanda mismunandi að-
ferða. í dag er þessi
meðferð notuð um allan
heim og heitir á ensku
„Complex Decongest-
ive Therapy*.
Þessi meðferð er byggð upp af
fjómm aðalþáttum:
1. Sogæðanudd (manual lymph
drainage): Örvar virkni sogæðanna
með mjög léttum nuddhandtökum.
Með sogæðanuddi er einnig hægt að
stýra vessaflæði fram hjá lokuðu
svæði eins og þegar eitlar hafa verið
fjarlægðir eða geislameðferð hefur
verið beitt.
2. Þrýstiumbúðir: Em notaðar á
milli meðferða á meðan bjúgurinn
minnkar til að koma í veg fyrir að
vessi safnist fyrir aftur. í framhaldi
af því er pöntuð teygjuermi eða
sokkur sem er yfirleitt sérsaumaður
Heilsa
Það er hlutverk sogæða-
kerfsins, segir Marjol-
ein Roodbergen, að
skila eggjahvítuefni inn
í blóðrásina aftur.
fyrir viðkomandi.
3. Æfingar: Dr. Casley - Smith
hefur þróað sérstakt æfingakerfi
fyrir fólk með sogæðabjúg. Þessar
æfingar örva virkni sogæðakerfsins,
auka blóðflæði á jákvæðan hátt og
era styrkjandi fyrir vöðva.
4. Húðumönnun og fræðsla.
Hversu mikill árangur meðferðar-
innar verður fer m.a. eftir því hversu
langvarandi sogæðabjúgur hefur
verið og hvort vefjabreytingar á
bjúgsvæðinu hafa átt sér stað.
Þó nokkrir sjúkraþjálfarar á ís-
landi hafa lært þessa meðferð sem er
sársaukalaus og árangursrík.
Fyrir þá sem vilja kynna sér þetta
efni nánar vil ég benda á vefsíðu
http://www.lympnet.org og http://
www.lymphoedema.org.au.
Höfundur er sjúkraþjálfari.
Marjolein
Roodbergen