Morgunblaðið - 17.11.2000, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2000 6i«r
UMRÆÐAN
Menntun, fram-
leiðni o g blóm-
legur efnahagur
Nettoú^
ELDHÚS - BAÐ - FATASKÁPAR
FATASKAPAR
á fínu verbi
ALLT AÐ 30% AFSLÁTTUR
Friform
| HÁTÚNI 6A (í húsn. Fönix) SlMI: 552 4420
Dagiega gjæsilegar nýjar vörur
Handavinna er góð jólagjöf
Heitt á könnunni alla morgna
Hannyrðabúðin
við klukkuturninn í Garðabæ,
SÍmi 5551314 alvara.is/jens
Framhaldsskóla-
kennarar eiga nú í
harðvítugu verkfalli.
Þeir kerfjast hærri
grunnlauna og eru afar
ósáttir við sinn hlut og
þess skólastigs sem
þeir starfa við. Það er
ekki ný saga. Hún er
hins vegar alvarlegri
nú en áður. Aldrei hef-
ur verið mikilvægara
að setja aukið fé í
menntun á íslandi en í
dag. En á sama tíma og
mikilvægi menntunar
vex, minnkar það hlut-
fall af landsframleiðslu
sem varið _ er til
menntamála. í flóknu markaðssam-
félagi tekur framleiðslan í æ ríkari
mæli mið af upplýsingabyltingunni,
af þekkingu og menntun. Farsæld
einstaklinga jafnt sem samfélaga
byggist þess vegna og mun byggjast
á menntunarstiginu. Og það má full-
yrða að við gjöldum þess nú þegar að
hafa ekki hlúð betur að framhalds-
skólanum og því sérnámi sem innan
hans á að þrífast, þar sem ástæða
minni framleiðni í atvinnulífinu virð-
ist vera sú að menntun á framhalds-
skólastigi hafi hrakað á undanförn-
um árum. Fjársvelti framhalds-
skólanna er því orðinn hluti þess
efnahagsvanda sem takast þarf á við
á næstunni.
Menntunarstig
og landsframleiðsla
Hinn 19. október síðastliðinn birt-
ist pistill á heimasíðu Samtaka at-
vinnulífsins, frá hagdeild samtak-
anna, þar sem fjallað er um þann
vanda sem að efnahagslífinu snýr
þar sem heildarframleiðni er talin
minnka árin 1999 og 2000. Ætla má
að beint samband sé milli minni
framleiðni atvinnulífsins og verð-
bólgu sem sannarlega er ástæða til
að hafa áhyggjur af nú um stundir.
Stöðugleikanum ógnar nú aukin
verðbólga og full ástæða til að taka
alvarlega þá stöðu sem upp er kom-
in. í framangreindum pistli hag-
deildar Samtaka atvinnulífsins kem-
ur fram að eftir 1995 fækkar þeim
sem sótt hafa sérskóla og framhalds-
skóla en hlutur fólks sem aðeins hef-
ur lokið gi-unnmenntun eða stuttu
starfsnámi eykst. I ljós hefur komið
að „menntunarstig" starfandi fólks
hækkaði um nálægt tveimur prós-
entum frá 1991 til 1995 og að aukin
menntun lagði um eitt prósent til
aukningar landsframleiðslunnar á
þeim tíma. Frá 1996 til 1999 lækkar
hins vegar „menntunarstig“ starf-
andi fólks um rúmt
prósent og dró það
landsframleiðsluna nið-
ur um 0,7 prósent.
Sóun að spara í
menntamálum
Hér á Islandi hefur
hagvöxtur undanfar-
inna ára verið borinn
uppi af miklum fjár-
festingum og mikilli
vinnu. Hagvaxtarskeið-
ið á ekki rætur í rneiri
menntun. Það eru hin
alvarlegu tíðindi. I um-
fjöllun um nýja hag-
kerfíð hefur verið lögð
áhersla á mikilvægi
menntunar sem lykils að nýtingu
hinnar nýju tækni. Betri nýting
framleiðsluþáttanna vegna mennt-
Menntun
Ástæða minni fram-
leiðni í atvinnulífínu
virðist vera sú, segir
Svanfríður Jónasdóttir,
að menntun á fram-
haldsskólastigi hafí
hrakað á undan-
förnum árum.
unar og nýrrar tækni, og þar með
aukin framleiðni í atvinnulífinu, hef-
ur verið fylgifiskur hins nýja hag-
kerfis svo sem í Bandaríkjunum. Þar
hefur verið stöðugur hagvöxtur und-
anfarin ár, með aukinni framleiðni í
atvinnulífinu, án þess að verðbólga
ykist. Þar hefur ríkisstjórn Clintons
lagt fé og metnað í menntamálin og
atvinnuh'fið uppsker. Þessar stað-
reyndir ættu þeir, sem nú véla um
framtíð framhaldsskólans á íslandi,
að hafa í huga. Það er ekki sparnað-
ur, miklu frekar sóun, að spara til
menntamála þegar það liggur fyrii-
að minni menntun þýðir minni fram-
leiðni í atvinnulífinu og minni lands-
framleiðslu. Þegar minni menntun
er orðin hluti þess efnahagsvanda
sem augljóslega þarf að glíma við á
næstu misserum er sannarlega kom-
in ástæða til að hugsa hlutina upp að
nýju, bæði fyrir vinnumarkaðinn og
stjórnmálamenn.
Höfundur er þingmaður
Samfylkingar.
Svanfríður
Jónasdóttir
Mikið af fallegum drögtum
í stórum stærðum.
Stærðir 36—60.
Nýbýlavegi 12,
Kóp., s. 554 4433.
Mikið urval af tískuefnum!
Burberry’s efni, prjónaefni, gervi snáka- og
krókódílaskinn og margt margt fleira.
VBRKA
Mörkin 3 - Sími 568 7477
www.virka.is
Opið
Mánud.-föstud. kl. 10-18.
Lau. kl. 10-16.