Morgunblaðið - 17.11.2000, Page 66
36 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Tvöfaldur
sumartími?
NÚ liggur fyrir Al-
þingi, einu sinni enn,
frumvarp um breyttan
tímareikning á ís-
landi. Þetta frumvarp
hefur átt nokkuð erfitt
uppdráttar í þinginu,
vegna þess að það
býður á ný upp á
hringl fram og til
baka með klukkuna,
eins og ríkti frá byrj-
un seinna stríðs fram
til 1968, en mikið hafði
verið deilt um þessar
breytingar og var þvf
sumartíminn
(Greenwich-meðaltím-
inn) fastsettur allt árið frá 1968,
sem lausn til sátta og hefur sæmi-
legur friður ríkt um málið síðan.
Nú er hins vegar einu sinni enn
blásið í herlúðrana á Alþingi og
gæti svo farið að við sætum uppi
með tvöfaldan sumartíma í fram-
tíðinni, sem sumir hafa nefnt sum-
arsumartíma. Þetta bitnar verst á
fólki, sem býr hér á höfuðborgar-
r svæðinu og þeim sem búa fyrir
vestan tuttugustu og aðra lengdar-
gráðuna. Það kann að hljóma und-
arlega að þegar fólk á höfuðborg-
arsvæðinu er að borða
hádegismatinn kl. 12.00 er sól-
klukkan eða líkamsklukkan, eins
og sumir kalla hana, aðeins um
10.30 að morgni. Þegar fólk er að
mæta í vinnuna klukkan 8.00 f.h.
er sólklukkan aðeins 6.30 f.h. Það
þarf varla að minna á tengsl nátt-
úrunnar, dýra, mannsins og sólar-
innar, eins augljós og þau eru. Is-
' Iand telst til tímabeltisins sem
miðað er við 15° vestlægrar lengd-
ar og nær sjö og hálfa gráðu til
vesturs og austur. Reykjavík er
því á vesturmörkunum. Fjórir
bæir á Vestfjörðum tilheyra
tæknilega næsta belti fyrir vestan
okkur, það eru: Isafjörður, Flat-
eyri, Patreksfjörður og Bíldudalur.
Sumartími var ekki notaður á
tímabilinu 1918 til 1939, en hins
vegar íslenzkur með-
altími (vetrar tími),
sem var einni klukku-
stund á eftir meðal-
tíma Greenwich.
Mjög góðar upplýs-
ingar er að finna um
þessi mál í Almanaki
Háskóla íslands í rit-
stjórn Þorsteins Sæ-
mundssonar stjarn-
fræðings.
Verði tvöfaldur
sumartími tekinn upp
hér á Islandi merkir
það að fólk er að
borða hádegismatinn
sinn klukkan 9.30 að
morgni eftir sólklukkunni. Skóla-
börnin, sem eiga að mæta í skól-
ann klukkan 8.00 að morgni, eru
Klukkur
Skólabörnin, sem eiga
að mæta í skólann
klukkan 8 að morgni,
segir Skúli Skúiason,
eru samkvæmt
sólklukkunni að mæta
klukkan 5.30.
samkvæmt sólklukkunni að mæta
klukkan 5.30 í allt of miklu myrkri,
með tilheyrandi hættu á slysum í
umferðinni. Þessi tímaskekkja set-
ur greinilega mikið álag á fjöl-
skyldurnar.
Lítið er um vísindaleg rök í
frumvarpinu, en það litla sem þar
er virðist aðalflutningsmaður mis-
skilja. Helstu rökin fyrir hugsan-
legum ábata af því að vera nær
Evrópu í tíma eru betri verslunar-
tengsl við Mið-Evrópu-tímabeltið,
þá aðallega Þýzkaland. Þetta yrði
þá væntanlega á kostnað sam-
Skúli
Skúlason
skipta okkar við Vesturheim, en
þar höfum við löngum átt marga
góða hauka í horni, verslunarlega,
varnarlega og fjölskyldulega séð,
því þar er mikill frændgarður Is-
lendinga. Það væri slæmt mál að
halla á þessi tengsl.
Lítið er gert úr þeirri gagnrýni
sem frumvarpið hefur hlotið úti í
þjóðfélaginu og frá geðdeild Land-
spítala - háskólasjúkrahúss, aðeins
er rekinn einsleitur áróður fyrir
þessari breytingu. Ekki er minnst
á fyrri atburðarás í tímareikningi
á tuttugustu öldinni og er engu
líkara en reynsla líðandi aldar sé
aðalflutningsmanni að fullu
óþekkt.
Það þykir þó viturra manna ráð
að reyna að læra af sögunni. Vil ég
benda þeim sem eru nettengdir og
áhuga hafa á að frumvarpið og
ágæta gagnrýni á því er að finna á
heimasíðu: http://julkb.vortex.is/
timamal.htm.
í þessu samhengi öllu er athygl-
isverð þróunin á afgreiðslutíma
verslana síðustu áratugina, sem
virðist hafa aðlagast smám saman
tímaskekkjunni, miðað við hnatt-
stöðu og sólklukku Reykjavíkur.
Fjöldinn allur af verslunum er
ekki opnaður fyrr en klukkan
10.00 f.h. (sóltími 8.30 f.h.) og sum-
ar ekki fyrr en á hádegi (sóltími:
10.30 f.h.). Eðlilega er lítill ábati af
því að halda verslun opinni á þeim
tíma sem fólk kemur ekki í búðirn-
ar. Auðvelt er að sjá fyrir sér
áframhaldandi þróun til seinkunar
afgreiðslutíma verslana ef farið
verður út í tvöfaldan sumartíma.
Einnig má reikna með að verka-
lýðsfélögin fari að leggja meiri
áherslu á sveigjanlegan vinnutíma,
þannig að starfsfólk hafi eitthvert
svigrúm með vinnutíma, þar sem
því verður við komið, og jafnvel
aukin frí og sólarlandaferðir um
háveturinn.
Eg vona að sem flestir hafi sam-
band við þingmenn sína, skriflega
eða munnlega, og mótmæli frum-
varpinu, annars gæti þjóðin setið
uppi með þessa afurð Alþingis
næstu 30 árin. Þeir sem eru net-
tengdir geta auðveldlega tengt sig
inn á Alþingi og alþingismennina á
http://www.althingi.is. Sendið þeim
linu.
Höfundur er verslunarmaður.
Er stétt fram-
haldsskólakenn-
ara að deyja út?
SKORTUR á kenn-
urum með tilskilda
menntun og kennslu-
réttindi hefur1 lengi
verið vandamál í
grunnskólum. Þessi
vandi er ekki lengur
aðeins bundinn grunn-
skólastiginu. Hann er
að verða jafnmikill
vandi í framhaldsskól-
um. I haust gekk verr
að fá kennara til starfa
við framhaldsskólana
en dæmi eru um áður.
Ungt fólk er hætt að
sækja sér menntun í
þeim tilgangi að nýta
hana til kennslu. Það
neitar að vinna á þeim kjörum sem
bjóðast í skólunum. Afleiðingin er sú
að skólarnir geta illa eða ekki rækt
Kennarar
40 prósent framhalds-
skólakennara eru fímm-
tugir og eldri, segir
Helgi E. Helgason,
og 77 prósent eru
fertugir og eldri.
það hlutverk sitt að mennta æsku-
fólk í samræmi við þær kröfur sem
gerðar eru í byrjun 21. aldarinnar.
Iskyggilegt
Það eru ekki aðeins krónur og aur-
ar í vasa kennara sem eru að veði í
yfírstandandi kjaradeilu. Framtíð
menntunar í landinu er að veði.
Finnist ekki viðunandi lausn á þeirri
kröfu framhaldsskólakennara að
leiðréttur verði sá munur sem orðinn
er á launakjörum þeirra og annarra
starfsmanna ríkisins með svipaða
menntun og ábyrgð er
ljóst að fjöldi kennara á
besta starfsaldri gefst
upp og ræður sig til
annarra betur launaðra
starfa. Stétt fram-
haldsskólakennara er
að blæða út. Eins og nú
horfir verður þar engin
nýliðun. Fleira fólk
hverfur úr stéttinni á
ári hverju en kemur
nýtt inn í hana. Ald-
ursdreifingin er væg-
ast sagt ískyggileg.
Aðeins 40 undir
þrítugu
Af 1.237 framhalds-
skólakennurum, námsráðgjöfum og
stjórnendum í framhaldsskólum öðr-
um en skólameisturum eru aðeins 40
einstaklingar (3,23%) yngri en þrí-
tugir. 243 einstaklingar (19,6%) eru
á aldrinum 30-39 ára. Fjölmennasti
hópurinn, 455 einstaklingar (36,8%),
er á aldrinum 40-49 ára. 348 einstakl-
ingar (28,13%) eru á aldrinum 50-59
ára. 151 einstaklingur (12,2%) er
sextugur eða eldri.
77% yfir fertugu
Með öðrum orðum: 40% fram-
haldsskólakennara eru fimmtugir og
eldri og 77% eru fertugir og eldri. I
þessu sambandi þarf að hafa í huga
að þeir sem eru í aldurshópnum
fimmtugir og eldri hætta störfum og
fara á eftirlaun á næstu um það bil
fimmtán árum. Er nema von að
spurt sé: Er stétt framhaldsskóla-
kennara að deyja út?
Þetta er ekki vandamál kennara
einna. Þetta er samfélagslegt vanda-
mál sem hægt er að leysa. En til þess
þarf eitt: Pólitískan vilja þeirra sem
bera ábyrgð á stjórn landsins.
Höfundur er upplýsinga- og
kynningarfulltrúi Kennara-
sambands íslands.
Helgi E.
Helgason
Sumartími á íslandi?
ir FYRIR Alþingi liggur nú frum-
varp til laga um að taka upp sumar-
tíma á íslandi fi'á apríl til október. Við
nánari skoðun á frumvarpinu kemur í
Ijós að fjöldamörg rök mæla gegn
þessari hugmynd.
Fyrstu mótrökin eru þau augljós-
ustu: Tímareikningur á Islandi er nú
miðaður við miðtíma Greenwich
,GMT), þegar strangt til tekið miðað
við legu landsins ætti mið- og austur-
hluti þess að vera á GMT-1 og vestur-
hluti þess á GMT-2. Þetta misræmi
hefur það í fór með sér að nú er há-
degi (sól hæst á lofti) um kl. 13:30 í
Reykjavík. Gangi ofangreint frum-
varp í gegn mun ísland færast yfir á
GMT+1 yfir sumarið og hádegi í
. Reykjavík því verða um kl. 14:30.
Morgnar að vori og hausti yrðu því
æði dimmir.
Island er nú á sumartíma allt árið
og ef taka ætti upp breytilegan tíma
sumar og vetur væri eðlilegast að
breyta yfii- í vetraitíma og færa þá
klukkuna aftur um 1 klst. yfir vetur-
inn frá því sem nú er en ekki fram um
ROSNER
Kvensíðbuxur
þrjár skálmalengdir
mikið úrval
Suðurlandsbraut 50, sími 553 0100,
(bláu húsin við Fákafen).
Opið virka daga 10-18, laugard. 10-16.
1 klst. yfir sumarið eins og frumvarp-
ið gerir ráð fyrir.
Greinargerð frumvarpsins vísar til
skýrslu ESB þar sem fjallað er um
áhrif sumartíma. Ein af niðurstöðum
skýrslunnar er að með sumartíma er
orkunotkun minni. Þetta á við í Mið-
Evrópu þar sem algengt er að á kynd-
ingum séu sjálfvirkir tímastillar. Fólk
kyndir ekki nema þegar það er á fót-
um og alls ékki þegar húsnæðið
stendur autt. Eins og íslendingar
kynda mætti ekki búast við miklum
spamaði. Ástæðan er einfaldlega sú
að meðalútihiti á íslandi er ekki næg-
ur til að viðhalda hita húsnæðis yfir
nótt eða meðan fólk er í vinnu og því
er kynt stöðugt.
Skýrslan vísar til þess að betri birt-
uskilyrði hafi áhrif á möguleika fólks
til að stunda útivist og einnig leiddi
rannsókn á umferðaröryggi, sem
gerð var í Bretlandi, í ljós að á sumar-
tíma er slysatíðni almennt lægri en á
vetrartíma og er það fyrst og fremst
rakið til aukinnar birtu á kvöldin. Þá
kom og í jjós að aukin birta síðdegis
hefur jákvæð áhrif á ferðamanna-
þjónustu.
Hvemig ofangreind atriði eiga við
ísland að sumarlagi er illskiljanlegt,
öll þau birturök sem færð em fyrir
þessum breytingum em miðuð við
meginland Evrópu og falla dauð og
ómerk í íslenskri miðnætursól. Það
dimmir hraðar í Mið-Evrópu auk
þess sem munur dags og nætur er
rneiri. Birtutími á Islandi er mun
lengri yfir sumartímann en í Mið-
Evrópu og því myndi sumartími litlu
breyta til batnaðar á Islandi í þessu
tilliti.
Það má öllu fremur færa rök fyrir
Tími
Obreytt fyrirkomulag,
fastur tími árið um
kring (GMT), er að
mati Erlendar S.
Þorsteinssonar, besta
málamiðlunin.
því að sumartími hefði slæm áhrif, t.d.
að slysum að morgni myndi fjölga vor
og haust. Birtutími á Bretlandi og Is-
landi er svipaður á þeim tíma árs, en
Bretland er þá einungis 1 klst. frá
réttum staðartíma meðan Reykjavík
yrði 2,5 klst frá réttum tíma, svo
myi’kur að morgni yrði meira hér en
þar.
Einnig gæti þetta haft slæm áhrif á
ferðamennsku á íslandi. Með tilkomu
sumartíma myndi t.d. lágnætti (sól
lægst á lofti) færast aftur um 1 klst.
svo ferðamenn yrðu því að vera leng-
ur á fótum til að sjá íslensku miðnæt-
ursólina.
Greinargerðin segir að fyrirtæki
lendi í „vandræðum" á sumrin við að
eiga samskipti við Evrópu og segir að
„mjög erfitt getur verið íyrir fólk að
ná saman í síma“. Þessi fullyrðing er
engum rökum studd en satt að segja
erfitt að trúa því að tímamunur upp á
2 klst. geti verið til mikilla vandræða,
til þess er skörun vinnudaga á Islandi
(GMT) og í Mið-Evrópu yfír sumarið
(GMT+2) nægjanleg. Þessu til stuðn-
ings má benda á að tímamismunur á
milli vestur- og aust-
urstrandar Bandaríkj-
anna [BNA] er 3 klst.
en það virðist ekki
hafa háð bandarískum
efnahag mikið á und-
anfömum árum.
Það er athyglisvert
að greinargerðin
hunsar algjörlega þau
íslensku fyrirtæki sem
eiga samskipti við
BNA. Einn af kostun-
um við legu íslands er
að við emm mitt á
milli N-Ameríku og
Evrópu. Með þessum
breytingum verður
5-8 tíma munur á ís-
landi og BNA yfir sumarið í stað 4-7
tíma. Það þýðir að öll samskipti við
austurströnd BNA verða erfiðari yfir
sumarið og við vesturströndina nær
ómöguleg. Sér í lagi verða síma-
samskipti til vandræða en jafnvel
tölvupóstur sendur að morgni vinnu-
dags á vesturströnd BNA berst eftir
lok vinnudags á íslandi ef sumartími
yrði tekinn upp.
I greinargerðinni er einnig fjallað
um flugsamgöngur milli íslands og
Evrópu. Vísað er til þess að sumar-
tími myndi leiða til þess að morgun-
flug til Evrópu frá Keflavík yrði 1
klst. síðar eins og á vetmm. Þessi full-
yrðing stenst ekki nánari skoðun og
líkt og áður era samskipti íslands og
BNAhunsuð.
Mikill hluti viðskipta Flugleiða
felst í því að flytja fólk milli BNA og
Evrópu. Farið er frá BNA á kvöldin,
flogið yfir nóttina og lent á megin-
landi Évrópu eins snemma dags og
hægt er, til að tími þeirra sem eru að
koma frá BNA nýtist sem best. Þó er
reynt að koma til móts við íslendinga
með því að koma ekki inn til Keflavík-
ur um miðja nótt heldur snemma
morguns. Auðvelt er að
sannreyna að allar vélar
sem eru að koma frá
BNA lenda í Keflavík
milli kl. 6:30-45 hvort
sem er sumar eða vetur
og halda síðan áfram til
meginlands Evrópu eins
fljótt og kostur er. Þótt
að surnartími yrði tekinn
upp á íslandi myndi það
engu breyta þar um.
Ekki er vikið að því í
greinargerðinni hvaða
kostnaður yrði af því að
taka upp sumartíma á
Islandi. Ljóst má þó vera
að hann verður töluverð-
ur, t.d. þarf að athuga og
hugsanlega breyta tölvukerfum fyrir-
tækja. Oll sérsmíðuð tölvukerfi á Is-
landi hafa hingað til ekki þurft að
taka tillit til sumartíma og ekki víst að
þau ráði við þessa breytingu án lag-
færinga.
Greinargerðinni lýkur með því að
segja að upptaka sumartíma sé mikið
hagsmunamál almennings í landinu.
Staðreyndirnar tala hinsvegar öðra
máli. Upptaka sumartíma er almenn-
ingi eingöngu til hinnar mestu óþurft-
ar og fyrirtækjum sem eiga samskipti
við BNA til mikilla vandræða; betra
væri fyrir þau fyrh-tæki að klukkan
yrði færð aftur en ekki fram. Gagn-
semi fyrir fyrirtæki sem eiga sam-
skipti við Evrópu er í besta falli mjög
óljós en að horfa einungis til Ewópu í
þessu sambandi er mikil skammsýni.
Ljóst má vera að óbreytt fyrir-
komulag, fastur tími árið um kring
(GMT), er besta málamiðlunin. ís-
lendingar lenda þá ekki í þeim hópi
minnihluta jarðarbúa sem „hringlar
með klukkuna".
Höfundur er tölvunar- og
slærðfræðingur.
Erlendur S.
Þorsteinsson