Morgunblaðið - 17.11.2000, Side 67
MORGUNB LAÐIÐ
FRETTIR
FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2000 67
Gönguferð
Gigtar-
félagsins
GIGTARFÉLAG íslands stendur
fyi’ir gönguferð um Laugardalinn
laugardaginn 18. nóvember kl. 11
og verður gengið frá húsakynnum
félagsins í Armúla 5.
Gert er ráð fyrir fremur þægi-
legri klukkutíma göngu sem ætti
að henta flestum. Einn af kennur-
um hópþjálfunar gengur með
hópnum og sér um létta upphitun í
byrjun og teygjur í lokin, segir í
tilkynningu frá Gigtarfélagi ís-
lands.
Öllum er frjáls þátttaka, bæði
félagsmönnum GÍ og öðrum. Ekk-
ert gjald er fyrir þátttöku. Nánari
upplýsingar um gönguferðina og
um hópþjálfunina eru á skrifstofu
félagsins.
irUfc'
Basar
félagsstarfs
aldraðra í
Mosfellsbæ
FÉLAGSSTARF aldraðra í Mos-
fellsbæ verður með basar og kaffi-
sölu laugardaginn 18. nóvember kl.
13.30-16.30 í Dvalarheimili aldr-
aðra, Hlaðhömrum.
Ymiss konar prjóna- og jólavörur
o.fl. verða á boðstólum. Þá verður
einnig kynning á félagsstarfínu,
m.a. bókbandi og tréskurði og kór
aldraðra, Vorboðamir, syngja
nokkur lög frá kl. 13.30.
Margt eigulegra muna verður á jólabasar MS-félagsins.
Jólabasar MS-félagsins
BASAR verður lijá dagvist og end-
urhæfingastöð MS-félagsins laug-
ardaginn 18. nóvember kl. 13 til 16.
Mikið er um fallega og eigidega
muni, segir í tilkynningu. Boðið
verður upp á heitt kakó, kaffí og
vöfflur með tjóma gegn vægu
veðri.
50 ára afmælis-
hátíð Jökla- >
rannsókna-
félag-s fslands
JÖKLARANNSÓKNAFÉLAG ís-
lands var stofnað 22. nóvember 1950
og á félagið því 50 ára afmæli um
þessar mundir. I tilefni afmælisins
stendur félagið fyrir afmælishátíð í
Norræna húsinu laugardaginn 18.
nóvember næstkomandi. Hátíðin
hefst kl. 13 en á henni verða haldin
þrjú erindi auk þess sem boðið verð-
ur upp á kaffi í tilefni dagsins.
Dagskráin er sem hér segir: Jök-
larannsóknir fyrr og nú - ferðatækni
og framfarir frá sænsk-íslenska leið-
angrinum fram á jeppaöld: Magnús
Tumi Guðmundsson, Jöklabreyting-
ar og veðurfar. Sporðamælingar
Jöklarannsóknafélagsins og sam-
band veðurfars og afkomu jökla:
Tómas Jóhannesson og Oddur Sig-
urðsson og Svipmyndir úr starfi Jök-
larannsóknafélagsins í 50 ár: Magn-
ús Hallgrímsson.
Hátíðarkaffi verður veitt og sýnd
veggspjöld og myndir. Fundarstjóri
verður Sveinbjörn Björnsson. Allir
eru velkomnir á hátíðina meðan hús-
rúm leyfir.
Lýst eftir
vitnum
Akranes
Brekku-
bæjarskóli
50 ára
FYRIR 52 árum hófst bygging nýs
skólahúss á Akranesi, Brekkubæjar-
skóla. Þessi bygging var formlega
opnuð hinn 19. nóvember 1950.
Haldið verður upp á 50 ára afmælið
laugardaginn 18. nóvember nk.
Undirbúningur afmælishátíðar-
innar hófst mánudaginn 13. nóvem-
ber. Fengnir voru allmargir lista-
menn, víðsvegar að, til að stýra
vinnu nemenda auk kennara skól-
ans. Unnið hefur verið við ritun,
myndlist, tónlist, leiklist, matarlist,
myndbandagerð og ýmiss konar
handverk. Fréttir hafa verið unnar,
viðtöl tekin og sögusýning sett upp.
Dagskráin hefst klukkan 14 hjá
gamla skólanum við Skólabraut.
Faiið verður í skrúðgöngu að
Brekkubæjarskóla eins og gert var
við vígslu hans. Síðan verða hátíða-
höld í skólanum þar sem verða sýn-
ingar á fyrrgreindum verkum nem-
enda. Á sal verða leiksýningar, dans,
tónlist, söngur o.fl. Veglegar veiting-
ar verða í boði gegn vægu gjaldi.
Vænst er þátttöku nemenda fyrr
og nú bæði í skrúðgöngunni og í há-
tíðahöldum í skólanum.
Málþing um
sjúkraþjálfun
á21. öld
FÉLAG íslenskra sjúkraþjálfara var
stofnað 26. apríl 1940. í tHefni 60 ára
afmælisins hefur félagið efnt til ým-
issa atburða allt árið, bæði meðal al-
mennings og sjúkraþjálfara.
Málþingið er síðasti viðburður af-
mælisársins. Það verður haldið laug-
ardaginn 18. nóvember nk. í Korn-
hlöðunni (bak við Lækjarbrekku) frá
kl. 10 til 14 og ber yfirskriftina
Sjúkraþjálfun á 21. öld - Horft til
framtíðar.
Sjúkraþjálfarar munu hafa fram-
sögu um eftirfarandi efni: Framtíð
sjúkraþjálfunar - hvert stefnum við?
Starfsumhverfi sjúkraþjálfara á
nýrri öld. Aðgengi sjúklinga að
sjúkraþjálfurum. Nýjungar - ný-
sköpun í sjúkraþjálfun.
Málþinginu lýkur með erindi
Kjartans Arnar Sigurbjörnssonar
sjúkrahúsprests sem ber heitið Tak
sæng þína og gakk. Málþingið er
styrkt af Össuri hf. og er öllum opið.
Basar á Dvalar-
heimilinu Ási
HEIMILISMENN á DvalarheimH-
inu Ási í Hveragerði halda haustbasar
sinn laugardaginn 18. nóvember. Bas-
arinn stendur frá kl. 13-18 í Föndur-
húsinu, Frumskógum 6b, Hveragerði.
Rjúkandi heitt kaffi og heitar vöffl-
ur verða seldar á staðnum.
Heilsa o g
hamingja á
efri árum
FÉLAG eldri borgara í Reykjavík
og nágrenni heldur áfram
fyrirlestraröð sinni um „heilsu og
hamingju á efri árum“ næstkom-
andi laugardag, 18. nóvember.
Nú er röðin komin að hjartasjúk-
dómum, en það eru sjúkdómar sem
flestir aldraðir verða að berjast við.
Læknamir Bjai’ni Torfason og
Davíð Arnar flytja fyrirlestra. Þeir
eru sérfræðingar í greiningu og
meðferð hjartasjúkdóma og starfa
við hjartadeildir Landspítalans.
I fréttatilkynningu segir:
„Kransæðaaðgerðir hófust hér í
kringum 1986. Nokkur spenna
myndaðist um þær spurningar
hvort hægt væri að ná viðunandi
árangri hjá svo lítilli þjóð og ýmsir
frammámenn í stjórnmálum sögðu
þá að þeir myndu frekar fara til
London ef þeir þyrftu á slíkum
hjartaaðgerðum að halda. En það
fældi ekki fólk og hjartaskurð-
lækningar hafa síðan verið að
þróast og eflast hér á landi undir
forystu íslenskra skurðlækna. Þær
eru nú meðal algengustu skurðað-
gerðum hérlendis og árangur með
því besta sem gerist.
Lyfjameðferð hefur líka þróast
mikið, enda ný lyf stöðugt að
koma fram og hafa íslenskir
hjartalæknar verið fljótir að koma
þeim í notkunn hérlendis eins og
við á.
Allt þetta hefur orðið til þess að
skapa hjartasjúklingum lengra og
sérstaklega betra líf. Það er því
fróðlegt að heyra okkar færu sér-
fræðinga fræða okkur um gang
mála nú í dag.“
Fyrirlestramir fara fram í Ás-
garði Glæsibæ, félagsheimili Félags
eldri borgara í Reykjavík, næst-
komandi laugardag 18. nóvember
og hefjast kl. 13.30. Allir eru vel-
komnir.
EKIÐ var á bifreiðina BN-520 15.
nóvember sl. á tímabilinu 8.45 tU 16.50
þar sem henni var lagt við eystri kant
Bjarkargötu við Hringbraut.
Tjónvaldur fór af staðnum án þess
að tUkynna tjónið. Vitni að árekstrin-
um eru beðin að hafa samband við
lögregluna í Reykjavik.
KitchenAid ksm 90
KitchenAid KSM 90 Ultra Power hrærivél (hvít), hakkavél
og smákökumót á hreint frábæru tilboðsverði.
9 litir fáanlegir
Léttu þér baksturinn
og sparaðu kr. 5.190,■
35.365,
KÍtchenAíd - Kóróna eldhússins!
• 60 blaðsíðna leiðbeininga- og uppskriftabók á íslensku fylgir.
• Fjöldi aukahluta fáanlegir, svo sem: Pastagerðar-
tæki, grænmetiskvarnir, hveitibrautir, dósaopnarar, kornmyllur,
ávaxtapressur og fl.
• Aðrar gerðir KitchenAid kosta frá kr. 30.875, “stgr.
í RCYUAVtK 0G NAGftENNb Heandisuetu. S«túnL Hagkai^i. KnnglLmi. Skedunni og Smiranun.Ptatt Grensásvegi 13. Húsasmiðian. Rey4)avÍL Ratiúðn. ÁSaskeA 31, Hafnarfíöi
| VESTURLANO; Ralþjónusta S^urdór^ AbanesL Skagav^ Akranesi. Kl Borgfrttiga. Borgamesi. GStnn Borgamcá- BJómstuvefli. Helcundi. VíersL Hamar, GníidarfrdL VersL Sk^avit. Styí±i*ófcm.
! Vetsl. E. Sieiánaona, Bútordal. VESTHRÐWfc tt Króksfjarðar, Króksfciðamest. Skandi hí Táknafifr. Pokahomið. Tiknafiði SW. Gtnnan Squrtaonat, Þmgeyn. laiM Bolungarvl. Hú&gagnaloftið.
| kafiði. Slrauroi ht bafirði. tt Slengrimsfjarðar, Hólmavi. NORÐUILAND: Kf Hrutfrðnga, Borðeyti. tt V-Húnvetninga. Hvammstanga. tt Huwtnmga. BlönduósL Skagftrðcgabtó. SauðitaúkL
Húsasmiöjan. Lónsbakka, Akureyrí og útfcú Húsavt Ijósgjafinn, Akiíeyn. AUSTURLAND: tt Vopnfirönga, SópnafrÖL tt Héraðsbúa. Síyðisfiði. tt Héraðsbua, tgSsslöðum, Ralalda, Neskaupsöð tt
Héraðsbúa, Reyðarfiði. tt Fáskrúðsfjarðar. tt A-SkaftMinga, Djúpavogi. Kl A-Skaftfeftnga, Hofn. SUDUIIANO: KÁ verslam um altt SuðuriamHfrsl. MosH, Heflu. bmnes, Vestmanaeyyjm.
Húsasmið|an, SeRossL Arvrtm, Sefcssi SUDURNES: Rafborg,Grindavk. Húsasmiðjan, Keflavi.Samkam Keflavi. Stapafd, Keliavi. Frliðfnir\ Keflaviurl!ug«IL.
KitchenAid einkaumboð á íslandi
Einar Farestveit &Co.hf.
Borgartúni 28 • S: 562 2901 & 562 2900 • www.ef.is