Morgunblaðið - 17.11.2000, Qupperneq 72
72 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2000
DAGBOK
MORGUNBLAÐIÐ
í dag er föstudagur 17. nóvember,
322. dagur ársins 2000. Orð dagsins:
$ Honum bera allir spámennirnir
vitni, að sérhver, sem á hann trúir,
fái fyrir hans nafn fyrirgefningu
syndanna.
(Post. 10,43.)
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Ottó
N. Þoriáksson kemur í
dag. Bakafoss fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Venus fór á veiðar í
gær.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 8.45
leikfimi, kl. 9 vinnustofa,
kl. 13 bókband, kl. 14
bingó. Sameiginleg kór-
æfing Melaskóla, Afla-
granda og Litla kórsins
úr Neskirkju, undirbún-
ingur fyrir kynslóðirnar
mætast 25. nóv. vegna
Reykjavíkur - menning-
arborgar 2000.
Árskógar 4. Kl. 9 perlu
og kortasaumur, kl.
11.15 tai-chi leikfimi, kl.
f 13 opin smíðastofan, kl.
9 hár- og fótsnyrtistofur
opnar.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30 böð-
un, kl. 9-12 bókband, kl.
9-16 handavinna og
fótaaðgerð, kl. 13 vefn-
aður og spilað í sal.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18-20. KI. 9
hárgreiðslustofan opin,
kl. 9.45 leikfimi.
Fólag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Opið hús verður laugar-
daginn 18. nóvember í
Gjábakka frá ki. 14-17.
Arnaldur Indriðason les
úr verkum sínum og
svarar spurningum
gesta. Kaffi í boði
FEBK. Gísli S. Einars-
son alþm. og Ingvar
Hólmgeirsson skipstjóri
mæta með nikkuna og
spila fyrir söng og dansi.
Fjölmennum.
■ i, Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 10 hársnyrting,
ki. 10.30 guðþjónusta sr.
Helga Soffia Konráðs-
dóttir, kl. 13 „opið hús“,
spilað á spil.
Félagsstarf aldraðra í
Garðabæ. Ferð í Þjóð-
leikhúsið að sjá Kirsu-
berjagarðinn 18. nóv-
ember, pantið miða í
Kirkjulundi í sima 565-
6622. Spilakvöld verður
16. nóvember kl. 19.30 í
boði UMF Stjömunnar í
Stjömuheimilinu. Rútu-
ferðir samkvæmt áætl-
un.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.30 rammavefnaður
og málm- og silfursmíði,
kl. 13 gler- og postulíns-
málun, kl. 17 slökun,
þátttakendur hafi með
sér kodda og teppi.
Gullsmári, Gullsmára
13. Opið kl. 9-17. Matar-
þjónusta er á þriðju- og
föstudögum, panta þarf
fyrir kl. 10 sömu daga.
Fótaaðgerðastofan er
'W opin kl. 10-16, miðviku-,
fimmtu- og fóstudaga,
ki. 10 boceia.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Tréútskurður í Flens-
borg kl. 13. Myndmennt
kl. 13. Bridge kl. 13:30.
Á morgun verður ganga
frá Hraunseli kl. 10.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Félagi eldri
borgara í Reykjavík,
Ásgarði Glæsibæ. Síð-
asti fræðslufundurinn á
haustönn undir yfir-
skriftinni "Heilsa og
hamnjngjaá efri árum"
verður laugardaginn 18.
nóvember kl. 13.30.
Verður þá fjallað um
nýjar leiðir í meðferð
hjartasjúkdóma: Davíð
Arnar sérfræðingur um
lyfjameðferð og Bjami
Torfason yfirlæknir um
skurðaðgerðir á hjarta.
Fræðslufundirnir verða
haldnir í Ásgarði Glæsi-
bæ, félagsheimili Félags
eldri borgara. Allir
velkomnir. Ath. Opnun-
artíma skrifstofu FEB
er frá kl. 10-16. Upp-
lýsingar í síma 588-2111.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9-16.30 vinnustofur
opnar, m.a. fóndur og
bútasaumur, umsjón
Jóna Guðjónsdóttir, kl.
10 „Kynslóðirnar mæt-
ast 2000“ börn úr Öldu-
selskóla í heimsókn. Frá
hádegi spilasalur opinn,
ki. 13. bókband
Gott fólk gott rölt,
Gengið frá Gullsmára 13
kl. 10.30 á laugardögum.
Hraunbær 105. Kl. 9-12
baðþjónusta og út-
skurður, kl. 9-17 hár-
greiðsla, kl. 9-12.30
bútasaumur, kl. 11 leik-
fimi og spurt og spjall-
að. Bingó í kl. 14, góðir
vinningar. Kaffiveiting-
ar.
Hvassaleiti 56-58. Kl. 9
baðþjónusta og hár-
greiðsla, kl. 9-12.30
bútasaumur, kl. 11 leik-
fimi.
Hæðargarður 31. Kl. 9
hárgreiðsla, kl. 9.30
gönguhópur, kl. 14
brids.
Norðurbrún 1. Kl. 9
hárgreiðsla, kl. 9-12.30
útskurður, kl. 10 boccia,
Vesturgata 7. Kl. 9 fóta-
aðgerðir og hárgreiðsla,
kl. 9.15 handavinna, kl.
13 sungið við flygilinn,
kl. 14.30 dansað í kaffi-
tímanum til kl. 16.
Föstudaginn 17. nóvem-
ber kl. 14.30-16 spilar
Ragnar Páll Einarsson
fyrir dansi. Pönnukökur
með rjóma í kaffitíman-
um. Allir velkomnir.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan
og hárgreiðsla, kl. 9.30
bókband og morgun-
stund, kl. 10 leikfimi og
fótaaðgerð, kl. 13.30
bingó.
Bridsdeild FEBK Gjá-
bakka. Spilað kl. 13.15.
Allir eldri borgarar vel-
komnir.
Hrafnista Hafnarfirði.
Basar verður landinn
laugardaginn 18. nóv-
ember kl. 13-17.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan
verður á morgun. Lagt
af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára 13
kl. 10 á laugardögum.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra leik-
fimi í Bláa salnum í
Laugardalshöll, kl. 10.
Félag fráskilinna og
einstæðra. Fundur
verður á morgun kl. 21 í
Konnakoti, Hverfisgötu
105, Nýir félagar vel-
komnir. Muni gönguna
mánudag og fimmtudag.
Kiwanisklúbburinn
Geysir í Mosfellsbæ
heldur spiiavist í kvöld
kl. 20.30 i félagsheimil-
inu Leirvogstungu.
Kaffi og meðlæti.
Breiðfirðingafélagið -
hagyrðingakvöld. I
kvöld mæta hagyrðing-
ar til leiks í Breiðfirð-
ingabúð kl. 20.30. Kaffi-
veitingar.
SÁÁ. Dansleikur í
Hreyfilshúsinu við
Grensásveg á þriðju
hæð í kvöld kl 22.30.
Hljómsveit Hjördísar
Geirs leikur. Dansleik-
urinn er opinn öllum
þeim sem vilja skemmta
sér án áfengis.
Gigtarfélag íslands.
Gönguferð um Laugar-
dalinn laugardaginn 18.
nóvember kl. 11 frá
húsakynnum félagsins í
Ármúla 5. Klukkutíma
ganga sem ætti að henta
flestum. Einn af kenn-
urum hópþjálfunar
gengur með og sér um
upphitun og teygjur.
Állir velkomnir. Ekkert
gjald. Nánari upp-
lýsingar í síma 530-3600.
Seyðfirðingafélagið.
Vinafagnaður verður
valdinn laugardaginn
18. nóvember á Hótel
íslandi. Mætum stund-
víslega.
Borgfirðingafélagið.
Spiluð félagsvist á
morgun laugardag kl. 14
á Hallveigarstöðum. All-
ir velkomnir.
Minningarkort
MS-félags íslands.
Minningarkort MS-
félagsins eru afgreidd á
Sléttuvegi 5, Rvk, og í
síma 568-8620 og
myndrita s. 568-8688.
FAAS, Félag aðstand-
enda alzheimersjúkl-
inga. Minningarkort eru
afgreidd alla daga í s.
533-1088 eða í bréfs.
533-1086.
Heilavernd. Minningar-
kort fást á eftirtöldum
stöðum: í síma 588-9220
(gíró) Holtsapóteki,
Vesturbæjarapóteki,
Hafnarfjarðarapóteki,
Keflavíkurapóteki og
hjá Gunnhildi Elíasdótt-
ur, ísafírði.
Parkinsonsamtökin.
Minningarkort Parkin-
sonsamtakanna á Is-
landi eru afgreidd i síma
552-4440 og hjá Áslaugu
í síma 552-7417 og hjá
Nínu í síma 564-5304.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 669 1100. Auglýsingar:
669 1111. Áakriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir569 1181, íþróttir 669 1156,
'liérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1116. NETFANG:
JiITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjaid 1.900 kr. á mánuði innanlands. í lausasöiu 150 kr. eintakið.
vi:ii\k\\m
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá tnánudegi til föstudags
Frumskógar-
lögmál um-
ferðarinnar
ÉG var að kaupa mér bíl
og eftir dálítið hlé á akstri
hélt ég út í umferðina. Til-
litsleysið og frekjan sem
lengi hefur þekkst hér
hefur stóraukist. Ég er
ein af þeim fáu sem keyra
á löglegum hraða og ég er
fyrir. Það er flautað og
blikkað á mig ljósum og
þannig reynt að neyða
mig til þess að keyra of
hratt. Hvern einasta dag
er réttur minn tekinn af
mér og svínað miskunnar-
laust fyrir mig og það er
ekki bara unga fólkið sem
keyrir of hratt. Einn dag-
inn kom bíll á móti mér á
öfugum vegarelmingi. Ég
stoppaði og konan sem
með mér var æpti: „Ég vil
ekki deyja!“. Ég sat frosin
og hugsaði, á líf mitt að
enda svona. Ég var heldur
ekki tilbúin til þess að
fara á besta aldri. Því bíll-
inn sem kom æðandi á
móti okkur sveigði rétt
áður en hann skall framan
á okkur. Hann rásaði til
og hélt svo áfram á ofsa
hraða. Það virðist ekki
skila árangri þó að lög-
reglan sé að mæla og
sekta. Kannski ætti ekki
að vera svona auðvelt að
fá bílpróf. Finnst mér líka
að það ætti að kenna öku-
nemum kurteisi og tillits-
semi og svo er það líka
spurning hvort ekki ætti
að endurþjálfa suma öku-
menn og láta þá taka bíl-
prófið aftur.
Það verður að taka á
þessum málum föstum
tökum strax, annars verða
götur og vegir sem blóð-
ugir vígvellir.
Gætinn ökumaður.
Spilafíkn og
spilakassarnir
VITAÐ er að margur
maðurinn og konan hefur
ánetjast spilakössum sem
eru víða. Til eru margir
vitnisburðir um það, að
fólk eyði öllu sínu í þessa
kassa og eiga svo ekki fyr-
ir mat fyrir sjálft sig. Eitt
dæmi er hægt að taka.
Kona bað manninn sinn að
kaupa mjólk fyrir börnin
og rétti honum 1.000 kr. I
staðinn fyrir að kaupa
mjólk fóru þessir pening-
ar í spilakassa og börnin
fengu enga mjólk þann
daginn.
Við erum að tala um
fíkn og fíkn verður fíkn
þegar hún verður stjórn-
laus hjá viðkomandi
manneskju. Eftir því sem
mér skilst eru það nokkur
samtök sem fá ágóðann af
þessum kössum; Rauði
kross íslands og Háskóli
íslands eru tveir af þess-
um aðilum og ef tii vill
fleiri. Spurningin er því
þessi, hvort til dæmis
Rauða krossi íslands, sem
kennir sig við hjálpar-
starf, sé stætt á því, að fá
fjármagn til sín eftir þess-
ari leið þegar vitað er að
menn hafi ánetjast þess-
um kössum. Ég tel vera
kominn tími til að skoða
þessi mál af fullri alvöru.
Hvort ekki þurfi að grípa
þarna í taumana og kanna
hvernig staðan er hjá því
fólki sem hefur ánetjast
spilakössunum.
Konráð Rúnar
Friðfinnsson.
Tapað/fundið
Þrettán geisladiskar
töpuðust
ÞRETTÁN geisladiskar í
tösku töpuðust í Reykja-
vík föstudagskvöldið 3.
nóvember sl. Skilvís finn-
andi er vinsamlegast beð-
inn að hafa samband í
síma 861-6423.
Kortaveski tapaðist
LÍTIÐ Eurocard-korta-
veski tapaðist einhvers
staðar á milli Lokastígs
og Lækjargötu aðfaranótt
síðasta sunnudags. I vesk-
inu var ökuskírteini,
Atlaskort, stúdentaskír-
teini o.fl. Skilvís fmnandi
er vinsamlegast beðinn að
hafa samband í síma 567-
3455 eða 897-8874...
Filma týndist
KODAK-filma glataðist á
leiðinni frá Bergþórugötu
niður í Bónus í Kjörgarði
og niður Laugaveginn á
þriðjudaginn í síðustu
viku. Finnandi vinsamleg-
ast hringi í síma 551-1608.
Dýrahald
Kanína fæst gefins
TIU mánaða kassavön
kanína óskar eftir góðu
heimili. Fæst gefins ásamt
búri. Upplýsingar í síma
694-2822.
Krossgáta
LÁRÉTT:
I skortir næringu, 8 fað-
ir, 9 mastur, 10 kvendýr,
II böggla, 13 ákveð, 15
flaug, 18 svera, 21 sund,
22 kút, 23 trylltir, 24
getuleysi.
LÓÐRÉTT:
2 aðhlynning, 3 hafna, 4
knáa, 5 ötti, 6 fita, 7
vegg, 12 þreyta, 14 eign-
ist, 15 vers, 16 ráfa, 17
skessum, 18 glæsileg, 19
Iátnu, 20 forar.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 hopar, 4 búkur, 7 renni, 8 rokið, 9 fót, 11 naut,
13 iðna, 14 ódæll, 15 barm, 17 lugt, 20 hal, 22 teppa, 23
ormur, 24 runni, 25 tolla.
Löðrétt: 1 hóran, 2 pontu, 3 reif, 4 burt, 5 kákið, 6 riðla,
10 ófæra, 12 tóm, 13 ill, 15 bátur, 16 ræpan, 18 urmul, 19
torfa, 20 hani, 21 lost.
Víkverji skrifar...
EINN af vinnufélögum Víkverja
velti nýlega fyrir sér undarleg-
um háttum íslenska skattakerfisins.
Hann keypti sér bók hjá netbókasöl-
unni Amazon í Bandaríkjunum, fékk
hana senda hingað með pósti. Fyrir
flutninginn þarf að sjálfsögðu að
greiða nokkurt burðargjald og einn-
ig toll.
„En þar að auki greiddi ég virðis-
auka af bókarverðinu. Hverjar eru
eiginlega forsendurnar? Eina fram-
lagið sem íslenskt atvinnulíf leggur
fram til bókarinnar er að íslands-
póstur tekur við henni, kemur henni
hingað. Er eitthvert vit og sanngirni
í að leggja íslenskan virðisaukaskatt
á bókina? Þetta er eins og hver önn-
ur fjárplógsstarfsemi.“
Víkverji þekkir mann sem þurfti
að fá ljósrit af gögnum í bókasafni
erlendis. Tekið var ákveðið gjald
fyrir hvert blað en hann lét síðan
senda sér ljósritin hingað heim. Og
sjá, lagður var virðisaukaskattur á
gögnin!
Vinnufélaginn áðurnefndi sagði
sögu af kunningja sem hafði búið í
London og eignaðist þar vini. Hann
fékk þá hugmynd að endurbæta
bóksafnið sitt hér heima, keypti
slatta af nýjum bókum úti, fimm kíló
af lesefni og lét vinina senda sér þær
í kassa. Sendingin var í venjulegum
pósti og aðeins sagt að í kassanum
væru gjafir og enginn virðisauki er
greiddur hér af slíkum póstsending-
um. Kunninginn bókelski vissi að
hann var að fara í kringum anda
lagabókstafsins en sumir gera sér
vafalaust enga grein fyrir því hve
stóralvarlegt afbrot þeir fremja ef
þeir gera slíkt hið sama. Og hvar
skyldu mörkin vera? Getum við látið
senda okkur hálft tonn af bókum á
mánuði með þessum hætti og er ein-
hvers staðar maður á launum hjá
Islandspósti eða tollinum við að
kanna hátterni allra sem fá pakka að
utan til að góma þá ef þeir fá of stór-
ar og of margar sendingar?
Gramsað er í pökkum og kössum
manna, þeir rifnir upp til að vega og
meta virðisaukastöðuna. Næsta
skrefið er líklega leynilegur gagna-
brunnur stjórnvalda yfir þá undar-
legu íslendinga sem lesa bækur og
tímarit á útlensku og láta senda sér
þessa torkennilegu hluti hingað
heim. Og bæta gráu ofan á svart
með því að kvarta undan opinberum
álögum.
xxx
YÍKVERJA finnst að þessi skatt-
heimta sé gott dæmi um gamla
hugsun sem eigi að víkja. Einhverjir
benda vafalaust á hættuna af hömlu-
lausu flæði póstsendinga og segja að
þær gætu orðið tilræði við efnahag
þjóðarinnar. En ef seljendur bygg-
ingarkrana og annarra þungavinnu-
véla færu að nota íslandspóst í stór-
um stíl og skilgreindu tækin sem
bækur til að komast hjá því að borga
virðisaukaskatt af vörunum myndi
það varla fara fram hjá þjóðinni.
Ríkisvaldið er að beita miklu
skrifræðisumstangi og fyrirhöfn við
að tryggja að einstaklingar greiði
samanlagt litla fjárhæð í opinbera
sjóði.
Öll er þessi fjárheimta þung í vöf-
um og hlýtur oft að byggjast á geð-
þóttaákvörðunum starfsmanna
póstsins vegna þess að gráa svæðið
spannar nær allt sviðið.
Eitt sinn var ætlunin að láta
hvern þann sem léti senda sér er-
lend tímarit í pósti borga virðis-
aukaskatt en horfið var frá hug-
myndinni, ekki vegna þess að hún
þætti óeðlileg heldur var ástæðan
óhagkvæmni. Vinnan við að inn-
heimta skattinn yrði svo mikil miðað
við tekjurnar að hagstæðara væri
fyrir ríkið að sleppa tímaritunum í
gegn.
En Víkverji þekkir dæmi um að
menn, sem keypt hafa áskrift að
þykkum fagtímaritum, sem eru far-
in að minna á bók í útliti, hafa verið
krafnir um virðisaukaskatt. Einn
kunningi hans stóð í löngu stappi við
afgreiðslumann hjá póstinum og
neitaði að ritið væri bók, benti á
enska orðið „magazine“ á forsíðunni
máli sínu til stuðnings. Afgreiðslu-
maðurinn gafst upp á þessum þrá-
kálfi og flokkaði sendinguna sem
tímarit.