Skírnir - 02.01.1856, Page 38
XL
Auglýsinsar frá hinu islenzka bókmentafölagi.
Félagsmenn þeir sem greiða bókmentaCélagimi 3 dala tillag fy r i r 18»=*
fá {jessar bækur hjá félaginu, eða umboðsmöunuin þess, fyrir tillagið:
Skírni, 28. árgáng. (kostar annars 32 sk. og nú 16 sk.)
Odysseifskvæði xm — xxiv. bók. (kostar annars 2 rd.)
íslands Arbækur eptir Jón Espólín. 11 deild. (kostar annars 1 rd.)
Skýringar yfir fornyrði lögbókar. 4ða hepti. (kostar annars 4 ink.)
Jieir sem greiða 3 dala tillag fyrir 1855, fá þcssar:
Skírni 1855, 29. árgáng. (kostar annars 32 sk.)
Safn til sögu Islands. 2 hepti. (kostar annars 1 rd. 48 sk.)
Islands Arbækur. 12. deijd. (kostar annars I rd.)
Skýrslur um landshagi á Islandi. 1. hepti. (kostar annars 32 sk.)
Tíðindi um stjórnarmálefni íslands. 1. hepti. (kostar annars 21 sk.)
Landafræði eptir Halldór Friðriksson (er annars ekki til sölu frá félaginu,
en söluvcrð hennar er 1 rd. 8 sk.)
En þcir sem greiða 3 dala tillag fyrir B856 eiga aðgáng að fá þessar bækur:
Skírni 1856. 30. árgáng. (kostar annars 32 sk.)
Safn til sögu Islands. 3.,hepti. (kostar annars I rd.)
Skýrslur um landshagi á íslandi. 2. hepti. (kostar annars 1 rd.)
Tiðindi um stjórnarmálefni Islands. 2. hepti. (kostar annars 32 sk.)
Biskupa sögur. 1. hcpli. (kostar annars 1 rd. 32 sk.)
jveir sem ekki fá bækurnar sendar beinlínis frá félaginu, en fá ávísan til
umboðsmanna, eru beðnir að skila henni við móttöku bókanna svo hún
verði send til félagsins svosem skýrteini fyrir að bækurnar sé meðteknar
og tillagið goldið. Nýir félagsmenn geta fengið bækur allar frá undanförnum
árum ef þeir gjalda 3 rd. fyrir hvert ár.
tS’ jáeir sem standa í skuld fyrir tillög undanfarinna ára eiga kost á að
greiða 6 dali árlega eða tveggja ára lillag, til þess skuldin er goldin,
og fá þeir þá jafnframt bækur félagsins, sem komið hafa út þau ár sem
tillag er goldið fyrir. jxeir félagsmenn, sem gjalda tillög s n á réttum
tíma, en fá ekki bækur þær sem þeim ber, biðjuin vér vinsamlega að
skýra félaginu frá því, og mun þá verða bætt úr því svo fljótt sem
mögulegt er.
tty jieir sem gjörast vilja félagsmenn eru vinsamlega beðnir að rita greini-
lega nafn sitt, stétt og heiinili, og þar með sveit eða sýslu þá sem
þeir búa í. jieir sem skipta um bústaði biðjum vér sjá svo um, að
félagið fái um það vitneskju, svo það geti sent bækurnar á réttan stað.
Af því mjög ríður á, til þess að framkvæmdir félagsins geti gengið
bæði fljótt og vel, að tillög og andvirði seldra bóka verði greidd til félagsins
sem fyrst, biðjum vér hérmeð hina háttvirtu umboðsmenn félagsins að kosta
kapps um, að skil fyrir þessu fáist með haustskipum hvert ár, og einkum
að ekki dragist lengur en til vetrar-póstskipsins að Senda félaginu reiknínga
þessa og tillög.
A fundi deildarinnar í Kaupmannahöfn ð. Maí 1855 var sú ályktan gjörð
með samhljóða atkvæðum, að héðanaf skyldi vera fast verð á Skírni, en
það af tekið að fella hann í verði til helmínga þegar árið er liðið; kostar
því Skírnir 1855 og 56, hvor um sig, 32 sk. á prp. og 48 sk. á skp. og
verður ekki felldur úr því.