Skírnir - 01.01.1911, Page 80
Ritfregnir.
80
Höf. kveðst muni gefa út sönghefti með 2 og 3 röddum. Á
•þeirn er öllu meiri þörf en söngfræði. Bara að frágangurinn á
þeim verði þá betri! Vilja þessa höf. til að verða söngmentum
vorum að liði, er ljúft að virða og þakka, en það verður ekki hjá
þvi komist að benda honum á hitt, að getan virðist ekki vera að
sama skapi mikil, sem viljinn er góður.
S. E.
Ennfremur hafa Skírni verið send þessi rit:
1. Y og Z eftir Adam Þorgrímsson. Akureyri 1910.—
Skrá yfir þau orð íslenzk, er rita skal með y eða z.
2. íslenzk málfræði handa byrjendum eftir Jónas Jónas-
s o n. 2. prentun endursamin. — Töluverð bragarbót að
þessari útgáfu, enda er bókin nú vel fallin til kenslu í barna
skólum.
3. Dóttir veitingamannsins, eftir Guðm. R. Ólafsson.
Rvik 1910. — Bindindisræða í söguformi, þar sem minna
ber á list en ást á málefninu.
4. Heimir. Tímarit hins ísl. únítariska kirkjufélags í Vescur-
heimi. Ársverð (12 blöð) 1 dollar. — Allfjölskrúðugt rit.
8. Tímarit kaupfélaga og samvinnufólaga. Ritstjóri S i g u r ð -
urJónsson á Ystafelli.
■6. Soga um Jomsvikingarne (Stokkhólmsbókartextinn ásamt ný-
norskri þýðingu) ved Albert Joleik. — Det Norske
Samlaget. Oslo 1910.