Alþýðublaðið - 09.12.1959, Síða 10
Örfá kveðjuorð:
• •
Gísli Sæmundsson frá Ogri
í DAG verður lagður til
hinztu hvíldar Gísli Sæmunds
son frá Ögri. Hann lézt af
stysförum þann 1. desember
s. 1. við vinnu sína á Reykja-
víkurf lugvelli.
Gísli var fæddur þann 16.
marz 1889 í Hörgshlíð við
Mjóafjörð og varð því siötug-
ur á þessu ári. Við þau tíma-
mót á ævi hans ritaði ég nokk-
ur orð í Alþýðublaðið og skulu
þau ekki endurtekin hér, en
í þess stað vil ég aðeins biðja
blaðið fyrir örfá kveðjuorð til
þessa gamla vinar og sveit-
unga að vestan.
Gísli í Ögri, en svo var hann
jafnan nefndur vestra, var hið
mesta ljúfmenni og drengur
góður í hvívetna, var hann
vinsæll af nágrönnum sínum
og öllum, er honum kynntust.
Á efri árum flutti hann til
Reykjavíkur og hefur starfað
hér síðan lengst af hjá ís-
lenzku flugmálastjórninni og
í því starfi sínu beið hann
bana, eins og að framan grein-
ir.
Þegar félag Diúpamanna
var stofnað fyrir nokkrum ár-
um var Gísli einn stofnenda
og sat í stjórn félagsins frá
■upphafi og þangað ti! á síðasta
aðalfundi, er haldinn var
þrem dögum áður en hann
dó, en þá skoraðist hann ein-
dregið undan endurkjöri.
Gísli var lífið og sálin í starf
semi félagsins, ávallt reiðubú-
inn til starfa og með vakandi
áhuga á' velfcrðarmálum þess.
Að leiðarlokum vil ég því
fyrir hönd félagsins þakka
honum og óska honum góðrar
ferðar yfir móðuna miklu.
Eiginkonu hans og fóstur-
dóttur flyt ég innilegustu
Fullur fíll
Framhald af 12. síðu.
Framhald á 10.' siðu.
Frumbyggjarnir gerðu að-
súg mikinn að skepnunni og
flúði hún þá út í skóg en
slagaði óskaplega og mátti
rekja slóð hans víða, af brotn-
um greinum og röskuðuní
trjám, er þessi skrokkmikli
fylliraftur tróð sér í gegnum
undirgróðurinn.
Frumþyggjarnir urðu æfa-
reiðir við fílinn fyrir tilvikið.
Þeir segjast hafa bruggað
eina tunnu af víni í runna
nokkrum. En fíllinn kláraði
úr tunnunni.
Úr háloffunum
F*ramhald af 12. síðu.
úr mikilli hæð. Þeir sáu
stjörnugeiminn eins og
hann lílur út úr háloftun-
um, og það var einkum
plánetan Venus, sem varð
þeim athugunarefni.
■■■■■■■■■■■■
Gólfteppahreinsun
Hreinsum gólfteppi,
dregla og mottur fljótt
og vel. Gerum einnig við.
Sækjum — sendum
Gólfteppagerðin h.f.
Skúlagötu 51
Sími 17360.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■i
samúðarkveðjur, þær eiga um
sárt að binda, en enginn má
sköpum renna.
Minning um góðan dreng
lifir að enduðu æviskeiðf.
Friðfinnur Ólafsson.
Spilakvöld
ALÞÝÐUFLOKKSFÉLÖGIN í
Ilafnarfirði efna til spilakvölds
annað kvöld kl. 8,30 í Alþýðu-
húsinu við Strandgötu. Allir
velkomnir.
Reykjavík
NÆSTA spilakvöld Alþýðu-
flokksfélaganna f Reykjavík
verður n. k. föstudagskvöld kl.
8,30 stundvíslega í Iðnó.
Þá lýkur 5-kvölda keppninni
og er þetta jafnframt síðasta
spilakvöld þessa árs.
Verðlaun verða veitt fyrir
kvöldið. Fjölmennið.
wwwwvwmuwwwMw
FRÁ og með morgundeg-
inum verður kosið á skrif-
stofu Sjómannafélagsins
daglega kl. 10—12 og 3—
6 e. h. Sjómenn eru hvatt
ir til þes að kjósa sem
fyrst. Listi stjómar og
trúnaðarmannaráðs er
A-LISTI.
* NYJAR BÆKUR ☆
Nýja fesfamenfgð
endurpreiífad
NÝJA TESTAMENTIÐ,
útgáfan frá 1956, sem gefin
var út á kostnað Hins ís-
lenzka biblíufélags og prent-
uð í Prentsmiðjunni Leiftri,
er komin út endurprentað í
Offsetmyndum s/f. Útgáfan
er fögur. Margar teiknaðar
myndir eru í því teknar úr
Biblíu Hins brezka og er-
lenda biblíufélags 1955 með
leyfi félagsins. Það er 520
síður þéttprentaðar en skýrt
og auðlæsilegt.
Lúdoið hans
Andrésar
ANDRESAR LÚDÓ heitir
lúdó, sem út er komið hjá
Litbrá, og Þar er um að ræða
spil, sem kennt er við snill-
inginn hann Andrés önd. í
því er líka Mikki mús og
önnur göfugmenni frá
Disney, enda spilið allt
skreytt myndum frá honum.
rrDularfuili Hús-
bruninn effir
Enid Bíyfon
aðrai' bækur eftir sama
höfund, Fimm á Smyglara-
hæð, fjórða bókin • í bóka-
flokknum um félagana fimm
og Baldintáta, fyrsta bók af
þremur handa telpum. —
Báðar þessar bækur eru
prýddar fjölda mynda.
„Háhariar og horn-
sílí” efiir Wolff-
gangQff
ÚT ER komin hjá Iðunni
hókin Dularfulli húsbrun-
inn eftir Enid Blyton, höf-
und hinna vinsælu Ævin-
týrabóka. Þetta er fyrsta bók
í flokki leynilögreglusagna,
sem sniðnar eru við hæfi
unglinga, jafnt drengja sem
telpna. í þessum bókum er
að sjálfsögðu ekki sagt frá
neinum hrollvekjandi at-
burðum, þótt þær séu spenn-
andi í bezta lagi. Söguhetj-
urnar eru fimm, tvær telp-
ur og þrír drengir og hund-
urinn Snati sú sjötta. Þessir
félagar taka sér fyrir hend-
ur að upplýsa dularfulla at-
burði, og segir frá þeim
fyrsta f þessari bók, dular-
fullum húsbruna. Lögreglu-
þjónninn í þorpinu er ekkert
sérlega þakklátur börnunum
fyrir þessa framtakssemi, en
þau leysa gátuna og hljóta
fyrir maklegt löf. — Bókin
er prýdd allmörgum mynd-
um.
Nýkomnar eru út tvær
BÓK Wolfgang Otts, „Há-
karlar og hornsíli“ er kom-
in út í þýðingu Andrésar
Kristjánssonar, prentuð í
Prentverki Akraness. Hún
er 256*l)laðsíður að stærð.
Þetta er stríðsskáldsaga,
sem vakið hefur mikla at-
hygli og hlotið góða dóma.
Times Magazlne segir: „Vold
ugasta ádeilan gegn styrjöld,
sem fram hefur komið í
nokkurri skáldsögu seinni
ára“. New York Times segir:
Ekki hægt að ímynda sér
miskunnarlausari lýsingu á
ógnum styrjalda og hinum
grimmilega járnaga í þýzka
flotanum.
Ný rauð feípubék
NÝ RAUÐ telpubók er
komin út hjá Bókfellsútgáf-
unni, og eru þá bækurnar í
þeim bókaflokki orðnar 15.
Þessi nýja bók heitir Klara
og stelpan, sem strauk. Út-
gáfan er í svipuðu sniði og
á hinum fyrri bókum í
flokknum.
Ný skákhék
IÐUNN hefur sent á mark
aðinn nýja skákbók, Teflið
betur, í þýðingu Magnúsar
G. Jónssonar menntaskóla-
kennara- Höfundar bókar-
innar eru þrír, og er einn
þeirra dr. Max Euwe, fyrr-
veranli heimsmeistari í skák,
sem hefur um langt skeið
verið einn ágætatsi ,-buú2ó
verið einn ágætasti og mik-
ilvirkastj skákkennari í ver-
öldinni.
Skákmeistarinn Baldur
Möller ritar formála fyrir
þessari bók. Honum farast
meðal annars svo orð:
„Bókin er um ýmsa hluti
talsvert óvenjuleg. Hún er
ekki eiginleg byrjendabók,
en setur fram á óvenjuskýr-
an hátt undirstöðureglur
hinnar rökvísu skák-
mennsku. ... Um þýðandann
þarf ekki vitnanna við. Magn
ús G. Jónsson menntaskóla-
kennari hefur meiri reynslu
en nokkur annar hérlendur
maður í þýðingu skáktaóka
Oa er vandvirkur, svo að af
ber. ...“
„GULU skáldsögurnar"
nefnist bókaflokkur, sem átt
hefur miklum vinsældum að
fagna, ekki sízt hjá ungum
stúlkum. í þeim flokki komu
meðal annars út sögurnar,
„Ráðskonan á Grund“ og
„Kaupakonan í Hlíð“. Marg-
ar „Gulu skáldsögurnar“
eru nú algerlega uppseldar
og ófáanlegar.
Nú er hafin útgáfa á nýj-
um flokki „Gulu skáldsagn-
anna“, og er hin fyrsta ný-
komin út. Nefnist hún
Heimasætan snýr aftur og er
eftir sama höfund og
„Kaupakonan í Hlíð“ og
„Skógardísin“. Þetta er
spennandi ástarsaga, sem
ungu stúlkurnar a. m. k.
munu vafalaust taka tveim
höndum. Útgefandi er Iðunn
en Andrés Kristjánsson hef-
ur þýtt bókina.
bók fyrir yngslu
lesendma
BÓKAÚTGÁFAN Litbrá
hefur gefið út myndabók
fyrir yngstu lesendurna, sem
heitir „Alli Nalli og tungl-
ið“. Textinn er eftir 'Vil-
borgu Dagbjartsdóttur, en
Sigríður Björnsdóttir gerði
myndirnar.
Bókin er mjög nýíízkuleg.
Myndirnar allar og uppsetn-
ing með svip hinnar nýju
listar.
Kim m horfni
„KIM og horfni fjársjóð-
urinn“, heitir ný bók um
Kim, út gefin af prentsmiðj-
unni Leiftri. Áður er út kom
in sagan „Kim og félagar“.
Þessi bók er 100 blaðsíður
að stærð, höfundur Kim-bók
anna er Jens Holm.
S
S
S
S
S
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
*
s
s
s
s
s
i
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
Látió Perlu létta störfin!
... eláíert glepp-ur
ókebfc í gegn I
10 9. des. 1959 — Alþýðublaðið