Alþýðublaðið - 06.01.1960, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 06.01.1960, Blaðsíða 13
 Vöruhappdræ tti 19 6 0 m FATÆKT íjölgar síórlega Heiidarfjárhæð vinniiiga nær tvöföldutt Áður 5000 vinningar. Nú 12000 vinningar. Áður kr. 7.800.000,00 í vinninga Nú kr. 14.040.000,00. Tala útgefinna miða sú sama og áður. Síðustu forvöð að kaupa miða. Umboð í Reykjavík og Hafnarfirði: Austurstræti 9, sími 22150. Grettisgata 26, Halldóra Ólafsd., sími 13665. Verzl. Roði, Laugavegi 74, sími 15455. Benzínsalan. Hlemmtorgi, sími 19632. Vallargerði 34, Kópavogi, Ól. Jóhannsson. Strandg. 3, Hafnarfirði, Böðvgr Sigurðsson, sími 50515. Endurnýjunarverð miðans kr. 30,00. Ársmiði kr. 360.00. Gísli Sigurbjörnsson: BINDINDISHÓTEL REYKJAVÍK Ofsóknir Frambald af 5. síðu ir sig við Ludendorf, sagði a, hann vildi ekk ræða þá spurn- ingu hvort guðshús Gyðinga væru raunverueg guðshús. Slíkt imundi aðeins vekja hlátur, Þá réðst hann harkalega á Churc- hill, sem væri stríðsglæpamað- ur númer eitt, og hefði varið -aillri ævi sinni til þess gð hvetja til stríðs gegn Þjóðverjum, auk Þess hefði hann reynt að út- rýma hinu hvíta mannkyni. HAPPDRÆTTI HÁSKÓLANS MARGT er rætt og ritað um þörf á meira húsrými fyrir ferðamenn og er þá venju- lega átt við útlendinga, enda þótt landsmenn sjálfir séu oft og tíðum í mestu erfiðleikum engu síður en hinir. Víst er um það, að hótel- skortur er mikill í Reykjavík, og verða af því oft og tíðum óþægindi og alls konar erf- iðleikar. Verður þetta og til þess að færri koma til borg- arinnar en ella, bæði erlendir og innlendir. — Er þarflaust að skýra nánar þessa hlið málsins — hana þekkja flestir og sumir af eigin raun. Úrbætur eru þær m. a., að koma upp fleiri gistihúsum, sem og skipuleggja betur notk un húsrýmis í heimahúsum, með það fyrir augum, að leigja það ferðamönnum yfir sumarmánuðina — en þá eru gistihúsavandræðin mest. Fjárfestingarleyfi fyrir hótelbyggingu hafa ekki ver- ið fáanleg árum saman, en þrátt fyrir það, er nýtt hótel tekið til starfa og er það nátt- úrlega ágætt út af fyrir sig. — Nýverið er þó búið að veita fjárfestingarleyfi fyrir hótel- byggingu — og er ekki að efa, að það komizt upp, enda er þar harðduglegur athafnamað ur að verki. Enda þótt væntanlegt hótel taki til starfa eftir 1—2 ár, þá er samt þörf frekari aðgerða og þess vegna tel ég tilvalið að bindindishótel verði reist. Á Akureyri hafa félagasam tök Templara forystu um. mörg menningarmál og starf- rækja m. a. fyrirmyndar gisti- hús — bindindishótel. Fram- tak þeirra á Akureyri er lofs- vert og merkilegt — það sýn- ir hvað samhentir hugsjóna- menn geta gert þegar foryst- an er örugg. Hér í Reykjavík eru höfuð- stöðvar bindindishreyfingar- innar á íslandi — og er því ekki úr vegi, að hafizt verði handa líkt og gert hefur ver- ið á Akureyri. Bindindishótel myndi ekki aðeins bæta úr brýnni þörf á húsnæði fyrir ferðafólk — innlent og erlent — heldur og myndi bindindishótel verða til þess, að félagsstarfsemi bindindismanna yrði sterkari og öflugri, þegar stundír líða. —■ Bindindishótel, sem rekið er af myndarskap, yrði áður en langt um líður, fyrirmynd- arstofnun, minnisvarði um hugsjón, sem komið er í fram- kvæmd-. Bindindishótel þarf ekki í fyrstu að vera mikil eða stór bygging — aðalatriðið að starfið sé hafið, og unnið markvisst að því að auka og færa út kvíarnar — eftir því sem ástæður og aðstæður leyfa. Hver á að hafa forystu um þetta hótelmál? munu menn spyrja. Svarið er: Þeir, sem hafa áhuga á bindindisstarf- semi, skilji hvers virði slík starfsemi er þjóðfélaginu og vilja leggja á sig nokkurt erf- iði og störf í þágu annarra. — Það er algjört aukaatriði hver kemur slíku bindindis- hóteli upp — ef það er gjört af heilum hug og með fyrir- hyggju og myndarskap. Æski legt væri að Góðtemplararegl an hefði forystuna — en aðrir og fleiri geta stutt framgang góðs málefnis og er ég fyrir mitt leyti reiðubúinn til þess að hjálpa til, ef þess verður óskað. Hugmyndin um Bindindis- hótel í Reykjavík er ekkert einkamál mitt, enda þótt ég riti um það blaðagrein. Þetta er hugsjónamál, sem komast þarf í framkvæmd og í von- inni um, að einhver eða ein- hverjir, sem þetta lesa, taki höndum saman um framgang málsins, er grein þessi rituð. Gísli Sigurbjörnsson. Alþýðublaðið — 6. janúar 1960 |_3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.