Alþýðublaðið - 07.01.1960, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 07.01.1960, Blaðsíða 7
eigendum 10. des. sl. ÞaS er 60 metra langt og 9,5 m á breidd. Lestarrými er 55 þús. kúbikfet. Gang- hraði er 11,5 mílur. Á skipinu er 11 manna á- höfn. Skipstjóri er Stein- ar Kristjánsson, 1. vélstj. Þórir Konráðsson og 1. stýrimaður Páll Ragnars- son. Framkvæmdastjóri Hafskips er Sigurður Njálsson. Heimahöfn Lax- ár er Vestmannaeyjar. KOMIÐ er til Iandsins nýtt 724 lesta vöruflutn- ingaskip. Er það m.s. Laxá, eign hlutafélagsins Háfskip h.f. Er þetta fyrsta skip félagsins. Skip ið er smíðað í Vestur- Þýzkalandi og var afhent Álþýðublaðið — 7. janúar 1960 16 Ný bók eftír Jón Dan kemur í feb. SKÝRT er frá því í 15 hefti Félagsbréfa AB, að Febrúarbók Almenna bókafélagsins verði Tvær bandingjasögur eftir Jón Dan. Mar-bókin verður Fölna síjörnur eftir danska höfund- inn Karl Bjarnhof í þýðingu Kristmanns Guðmundssonar skálds. Sr. Sigurður Einarsson í Holti ritar um vin sinn og skóla bróður, Magnús Ásgeirsson skáld, langa og gagnmerka grein. Þórður Einarsson ritar grein, er hann nefnir Upprisuna og lífið — hugleiðingar um bók Pasternaks, Sívagó lækni. Þá rit ar Erik Sönderholm sendikenn- ari um danska rithöfundinn H. snn 49 er hann stjórnaði skæurhern aði gegn Franco á Spáni. Talið var að hann hafi í þetta sinn farið til Spánar til þess að hefna tveggja bræðra sinna, sem nýlega voru drepnir af spænsku lögreglunni. Franska lögreglan vildi einn- ig hafa hendur í hári hans, en aldrei tókst að finna hann. Síð- ast var vitað til að Sabater færi til Spánar 1957 er hann sprengdi í loft upp herminnis- merki í Barcelona. 2000 lög- reglumenn leituðu hans þá, en án árangurs. C. Branner, sem var hér í Rvík fyrir skömmu, og loks er þýdd grein, Umsköpun sögunnar, cg fjallar um nýja útgáfu af sögu' kommúnistaflokks Sovétrikj- anna. í ritinu eru tvær smásögur, önnur eftir Jón Dan, — Skjcí- stæðingar dauðans fala mai?n, — hin eftir H. C. Branner, —■ Peningavald — og hefur Guð- mundur Daníelsson þýtt þá sögu. Ljóð eru í ritinu eftir Ein- ar H. Kvaran, Birgi Sigurðsson og Sigurð Jónsson frá Brún. Úm bækur skiáfa þeir Þórður Ein- Ráðherrar reknir COLOMBOZ, 6. jan. (RELT- ER). Dahanayke, forsætisráð- herra bráðabirgðastjórnar Ceyl on, rak í dag fimm ráðherra í viðbót úr stjórn sinni og skip- aði í þeirra stað stuðningsmenni hins nýja flokks síns. Hinir reknu ráðherrar eru allir úr Sri Lanka (frelsis) flokknúm, sem Dahanayke var rekinn úr í st. mánuði. Hann myndaði þá sinn eigin fioltk og rak strax fimmc ráðherra úr sínum gamla flokkj. Þeir fimm, sem reknir vorú í dag, höfðu allir neitað að ganga. í hinn nýja flokk. slóðum, enda var álandsvind- ur mórguninn, sem báturinn fórst. TalsVerð leit var enn gerð í gær. Tóku þátt í henni varð- skip, flugvélin Rán og leitar- flokkar í landi. Var leitað með fjörum fram í myrkur. Ekki er búizt við frekari Ieit af sjó, en leitað verður áfram í fjörum næstu daga. Eins og frá var skýrt í blað- inu í gær, var áhöfn m. b. Rafn kels skipuð sex mönnum. Voru fjórir þeirra kvæntir og létu samtals eftir sig 16 börn. Garðar Guðmundsson lætur eftir sig konu og níu börn á aldrinum 4—17 ára. Björn Antóníusson lætur eftir sig konu og tvö börn. 'Vilhjálmur Ásmundsson var kvæntur og átti þrjú börn. Jón Björgvin Sveinsson lætur eftir sig konu og tvö börn. Magnús Berents- son og Ólafur Guðmundsson voru ókvæntir. AÐFARANÓTT þriðjudaga leitaði þýzki togarinn Frana Schau frá Bremerhaven hafnar í Neskaupstað með slasaðan há- seta. Hafði hann verið að hand- fjatla neyðarrakettu, en hún sprakk í höndum hans. Hásetinn, sem heitir Erwin Schwiderowsky, 22 ára gamall, var lagður inn á sjúkrahúsið í Neskauþstað. Var hönd hans öll sundurtætt, næstum farin af, og varð að taka hana af þegar í stað. Líðan hans er nú góð eftir atvikum. Mikill umferð- arslys LONDON, 6. jan. (REUTER). 66 manns fórust í umferðarslys- um í Englandi og Wales á áð- fangadag — mesti fjöldi, sem hingað til hefur látizt í umferð- arslysum á einum degi, og helm ingi hærri tala'en á aðfangadag í fyrra. Alls fórust 147 í umferð arslysum um jólin. í FYRRAKVÖLD og fyrrí- nótt rak enn ýmislegt brak úr M.b. Rafnkeli suður á Staf- nesi. Var þar m. a. að finna hurðir úr stýrishúsi, lestarop og fleka. Áður hafði rekið lóða belg og þilfarsplanka á sömu SEOUL, 6. jan. (REUTER). Tvær skækjur voru krúnurak- aðar af amerískum hermönn- um í herbúðum skammt fyrir sunnan landamæri Suður- og Norður Kóreu s. I. Iaugardag og í dag var tilkynnt í aðalstöðv- um Bandaríkjahers, að þeir, sem :það gerðu, hefðtt gert það samkVæmt skipun og yrði ekki hegnt. Hafði höfuðsmaður nokkur gefið þessa fyrirskipun til að hræða skækjur frá því að klippa göt á girðinguna um- hverfis herbúðirnar, læðast inn og dreifa þar kynsjúkdómum. Skækjulifnaður hefur verið bannaður í Suður-Kóreu síðan 1948, en ekkert hefur verið gert í málum skækja, sem eru með erlendum hermönnum. Telur lögreglan, að um 3000 slíkar stundi iiðju sína með bandarískum hermönnum ein- um. Munu sumir vera í reikn- Símbl sjómabur fer sigurför SIMBI sjómaður eftir Hauk. Luxemburgar, Morthens virðist ætla að hljó.ta~Bandaríkjanna, cmiklar vinsældir erlendis ekki síður en hér. Er lagið að koma út á plötum í Þýzkalandi, sung- ið af Otto Brandenburg og mun fara til allra þýzkumælandi þjóða. Þá er einnig í býgerð að lag- ið komi út á hljómplötum í Hollywood. Þegar er vitað, að platan Simbi sjómaður fer til þessara landa: Þýzkalands, Aust urríkis, Hollands, Belgíu og RÓM, 6. jan. (Reuther). — Gronchi, forseti, sem leggja átti af stað í opinbera heim- sókn til Sovétríkjanna á morgun, hefur frestað ferð sinni samkvæmt ráði lækna, segir í tilkynningu frá utan- ríkisráðuneytinu. S-Afríku og en áður hafði platan komið út í Danmörku. ingi og gera upp á útborgunar- degi. LOKUNARTÍMI sölubúða í Reykjavík og nágrenni breytist frá og með laugar- deginum næsta. Þá verða verzlanir opnar til klukkan 1 e. h. Á föstudögum verða verzlanir opnar til klukkan síðdegis. Skæruliði GERONA, Spáni, 5. jan. — (Reuter.) Hinn sögufrægi skæru liðsforingi og stjórnleysingi Francisco Sabater, sem lýst hef ur verið eftir í 14 ár, var skot- inn til bana af spænskum lög- reglumönnum í dag, Sabeter varð 47 ára gamall og dauði hans markar tímamót í andstöðuhreyfingunni gegn stjórn Francos. Hann var síð- asti skæruliðaforinginn, sem hætti baráttunni gegn herjum Francos 1939, Sabeter var fædd ur í Barcelona og 16 ára gerðist hánn stjórnleysingi (anarkisti). í gær særðist hann í baráttu við lögreglumenn, sem komizt höfðu á spor hans, og felldu fjóra félaga hans. Honum tókst að sleppa í það sinn, eftir að hafa fellt ein lögreglumann og sært tvo. Tókst Sabeter að fiýja og komast á þak járnbrautarlest ar, en er skipta þurfti um lest til Barcelona beið lögreglan hans og skaut hann til bana. . Sabeter hefur lengst af dval- izt í Frakklandi síðan 1939, að undanskildum árunum 1942—

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.