Alþýðublaðið - 15.01.1960, Qupperneq 16
ÞESSI járnbraut, er myndin sýnir, er í Mið-Asíu og
;! l’ggur um gífturlegt fjalllendi. Lagning hennar var
i < ýnrsum erfiðileik'um háð, en að henni unnu m. a. 3000
ungir menn og konur sem sjálfboðaliðar.
LONDON, janúar (UPI). —
Elzta dagblað í London held-
ur um þessar mundir upp á
tvö hundruð ára afmæli sitt.
Það er verzlunarblaðið The
Public Ledger. Ekkert blað á
enska tungu hefur jafnlengi
komið út samfleytt. Enda
þótt blaðið hafi byrjað að
koma út á stríðstímum og hafi
að sjálfsögðu lifað mörg
stríð, hefur það alltaf komið
út á settum tíma, meira að
■ segja þegar þyggingar þess
brunnu tT kaldra kola í heims
styrjöldinni síðari.
The Public Ledger er við-
skipta- og verzlunarblað og
þekkt um heim allan. Fyrsta
tölublaðið kom út laugardag-
inn 12. janúar 1760 og í til-
efni þess fylgdi tölublaðinu
12. janúar 1960 ljósprentað
eintak af fyrsta tölublaðinu.
Mestu rúmi þar er varið í
að segja frá styrjöld, sem þá
geysaði og varð síðar þekkt í
sögubókum, sem sjö ára stríð-
;ð (1758—1763). í einni grein-
inni segir: — Af öllum styrj-
öldum, sem háðar hafa verið
er þessi kostnaðarsömust og
hefur jafnframt borið mestan
árangur fyrir land vort. Ald-
rei hafa Bretar unnið sér því-
líka frægð í styrjöldum á sjó
eða landi.
Þai’na eru líka fréttaskeyti
frá orustum í Evrópu. Orustu
Frakka og Prússa er lýst
þannig: — Franski herinn
kom í ljós 25. og 26. desem-
ber. Stórskotahríð hófst við
Heehelheim, en gerðu engan.
skaða. Aðeins tveir menn
særðust af Lði Prússa og ör-
fáir Frakkar féllu.
í fyrsta eintakinu var for-
ustugrein upp á tvo dálka,
þar sem blaðið var kynnt, —■
margir dálkar af verzlunar-
tíðindum og þrír dálkar af
auglýsingum. Þar eru m. a.
14 skip auglýst til sölu „við
kertaljós.“
Fremstur meðal þeirra
frægu manna, sem starfað
hafa við The Public Ledger
er Oliver Goldscmidt, rithöf-
undurinn óv'ðjafnanlegi. Um
tíma var Thackeray Parísar-
fréttaritari blaðsins.
Feit eðo grönn frú-
Enn eitt
BELGRAD (NTB-Reuter): —
16 manns voru í dag kallaðir
É.v-rir réll í Belgrad ásakaðir um
aðgerðir fjandsamlegar ríkinu.
Eiestir hinna ákærðu eru róm-
versk-kaþólskir. Þeir eru allir
Bagðir hafa verið meðlimir í kró
atískri þjóðernishreyfingu.
Lífvörður páfa.
LÍFVÖRÐUR páfans er
skipaður mestu myndarmönn-
um. Samkvæmt ævafornum
erfðavenjum eru þeir sviss-
neskir og er val þeirra vand-
að eftir því, sem kostur er.
Þeim veitir heldur ekki af
því að vera stórir og sterkir,
því brynjur þeirra og vopn
eru þung.
Myndin sýnir liðsforingja
athuga búningana áður en
lagt er í skrúðgöngu.
KÖFUNARSKIPIÐ Trieste
komst niður á rúmlega 7 kíló-
metra dýpi um helgina á
Kyrrahafi og bætti fyrra met
um 2.5 kílómetra.
Ætlunin er að Triesté reyni
að komast á rnesta dýpi jarð-
ar innan skamms í Kyrrahaf-
inu út af Guam.
Á skipinu voru í þetta
skipti Donald Walsh og Jac-
ques Piccard, sem teiknáð
hefur skipið ’ásamt föður sín-
um.
LAGOS, Nígería, jan. (UPI).
— Váxtarlág hefur mikið að
-segja fyrir ungar stúlkur á
giftingaraldri í Nígeríu, en
þær þurfa frekar að vera feit-
lagnar en grannar til þess að
ganga í augun á karlmönnun-
um.
Afríkumenn segja, að mað-
ur í ábyrgðarstöðu eigi að
kvænast stórri og breiðri
konu. Hjóabönd eru þar talin
þvi , hamingjusamari. þeim
mun meir, se'm konan fitnar.
Vel þykir fara á því að ný-
gift kona sé allt að 85 kíló,
en er hún nær 35 ára aldri
má hún ekki vera rmklu létt-
ari en 100 kíló. Margir vel-
stæðir höfðingjar eiga konúr,
sem eru 130 kíló.
í mörgum héruðum Nígeríu
tíðkast það, að stúlkur eru
fitaðar { þrjá mánuði áður en
hjónavígslan fer fram og
mæta þær brúðguma sínum á
giftingardaginn feitar og
bústnar. Ástin á lítinn þátt í
hjónaböndum í Nígeríu, flest-
um er nóg að konan sé akfeit,
lagin að elda mat, góð móðir
Þjóð, sem talar
esperanfo í
kvlkmynd.
EINN af þekktustu kvik-
myndastjórum Japana, Dai-
suke Itov sendi riýlega nýja
mynd á markaðinn. Hún heit-
ir Stormur yfir Johan Arima.
í myndinni kemur fyrir ó-
þekkt þjóð, og velti leikstjór-
inn lengi fyrir sér hvaða mál
það ætti að tala. Loks datt
honum í hug að nota Esper-
anto. Þetta er ekki í fyrsta
skipti að Esperanto er notað
í kvikmyndum. Chapl n not-
aði það á öll götuskilti í Gyð-
ingahverfinu í Einræðisherr-
anum.
og vera sér. meðvitandi um
og verandi sér meðvitandi um
öllum ■ sviðum, og byggjast
Framhald á 14. síöu.
41. árg. — Föstudagur 15. janúar 1960 — 10. tbl,
ara gama
dágblað