Alþýðublaðið - 20.01.1960, Side 1
41. árg. — Miðvikudagur 20. janúar 1960 — 14. tbl,
SAUTJÁN kommún-
istaflokkar í vestanverðri
Evrópu héldu með sér ráð
stefnu í Rómaborg dag-
ana 22. til 25. nóvember
til að samræma viðhorf
sín og ræða sameiginleg
' vandamál.- Það hefur vak-
ið nokkra athygli, að ís-
lenzkir kommúnistar
sendu . ekki fulltrúa á
• þessa ráðstefnu, því þeir
eru ekki vanir að láta sig
vanta á slíkum þingum.
-'Gæti það verið fróðlegt, ef
kommúnúistar vildu svara
- því, hvað valdi, hvort það
stafi af ósamkomulagi, sem
vitað er um innan flokks
þeirra.
Ráðstefna þessi, sem talin er
ein hin mikilvægasta, sem kom-
múnistar hafa haldið lengi, fjall
aði meðal annars um afstöðu
iþeirra til annarra flokka og við
horf í utanríkismálum. Var sam
þykkt að leggja hina mestu á-
herzlu á samfylkingarlínuna
gömlu og reyna að fá jafnaðar-
menn til samstarfs. í uíanrík-
ismalum var samþykkt hin harð
asta andstaða gegn markaðs-
bandalögunum í Evrópu, sem
vitanlega eru Rússum mikill
þyrnir í augum.
Það er því merkilegra, að
íslenzkir kommúnistar skyldu
ekki sækja þennan fund, sem
þeir sendu um sama léyti full
trúa á flokksþing ungverska
kommúnistaflokksins. V
Steinþór Guðmundsson á því
FramJiald á 14. síðu.
Blaðið hefur hlerað
Að í greinasafni Jóns Sig-
urðssonar, sem Menning-
arsjóður hyggst gefa út,
verði sumar greinarnar —
á dönsku.
FSutt út skreið fyrir
imiSSjésiir
MYNDIN sýnir 40 aura frí-
merkið frá 1898. Það er yfir-
stimplað, en frímerkin, sem
hafa verið til sölun undanfar-
*ð fyrir 4200 kr. stykkið, eru
án yfirstimplunar og hafa
aldrei verið notuð. Allt bend-
•r til þess að þau hafi horfið
úr safni póstmálastjórnarinn-
ar, því a® einungis örfá cin-
tök áttu að vera til utan þess.
Hitt merkið, sem kom á mark
aðinn, er 50 aura, einnig ó-
yfirstimplað.
ALÞYÐUBLAÐIÐ
skýrði frá því í gær, að
hjá Sakadómaraembætt-
inu væri til rannsóknar
stórfellt frímerkjasvika-
mál og í því sambandi, að
einhverjir starfsmenn
póstmálast j órnarinnar
væru grunaðir um að hafa
tekið ófrjálsri hendi og
selt dýrmæt, gömul merki
úr safni póstmálastjórnar-
innar. Blaðið hefur kynnt
sér málið nánar og haft
tal af sakadómara, og fleir-
um. Hér fara á eftir upp-
lýsingar þær, sem blaðinu
hefur tekizt að afla:
Árið 1898 voru gefin út tvö
íslenzk frímerki. Annað var
brúnbleikt aS lit Og verðgildi
þess 40 aurar, en hitt 50 aura,
blátt og rautt. Þau voru ekki
tekin í notkun fyrr en 1902—
Framihald á 14. síðu.
KARL í krapinu, banda-
ríkjamaðurinn Tomtóy
Manville. Nú er hann gift-
ur — í 11. skipti. Tommy
er milljónamæringur ög
hefur gert sér það lielzt
til dundurs um dagana að
skipta um konur. Hann *r
65 ára. Hér kyssir hann þá
nýjustu nýju, Kristinu
Erdlen, sem er tvítug
stúlka af þýzkum upp-
runa. Hún var þjónustu-
stúlka þegar þau kynnt-
ust. Ilún virðist vita hvað
hún syngur. Hún kærifi
sig ekkert um giftingatr
hring, en fékk í staðinn
18.000 hluta í bandarísku
símafyrirtæki!
WWWWIWWWWMMWWW