Alþýðublaðið - 20.01.1960, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 20.01.1960, Blaðsíða 11
Ritstjóri: Örn Eiðsson Þróttur í Keflavík. Knattspyrnufélagið Þróttur' fór í keppnisför til Keflávíkur uni lielgina. Kepptu Þróttar- ar í fjórum flokkum hand- knattleiks við lið frá ÍBK. Úrslit urðu sem hér segir: Meistaraflokkur: ÍBK-Þróttur 28 : 26. II. fl.: ÍBK-Þróttur 18 : 20. III. fl.: ÍBK-Þróttur 20 : 2. II. fl. B Þróttur-III. fl. A ÍBK 24 : 26. Badmintonfréttir Haustmóti T.B.R. nýlokið — 1 Fyrirjólin lauk haustmóti Tennis og badmintonfélags Reykjavíkur. Það er forgjafa- keppni í tvíliðaleik karla og kvenna, og keppt er um veg- lega farandsbikara. I karlaflokki (meistaraflokki og 1. flokki sameinuðum) kepptu 12 lið og voru margir leik'r tvísýnir og skemmtileg- ir. Svo fór, að Vagn Ottósson og Þórir Jónsson unnu Guð- laug Þorvaldsson og Gunnar Petersen í þriggja lotu úrslita- leik. Þannig eru þeir handhaf- ar Walbomsbikarsins næsta ár. í kvennaflokki kepptu 4 lið og báru þær Jónína Niljóhní- usdóttir og Sigríður Guðmunds dóttir sigur úr býtum. Þær unnu Hjördísi Hjörleifsdóttur og Lovísu S'gurðardóttur í úr- slitaleiknum og eru handhafar Unnarbikarsins næsta ár. í nýliðaflokki karla báru sigur úr býtum þeir Gísli Theó- dórsson og Bergur Jónsson og eru því handhafar Pálsbikars- ins til næsta baustmóts. Rétt til þátttöku í keppni þessa flokks hafa þeir, sem hvorki hafa tekið þátt í íslandsmóti né Reykjavíkurmóti. Þór.'r Jónsson gaf Walboms- bikarinn og Unnarbikarinn til þessarar keppni, sem fór fyrst fram á síðasta keppnisári. Þeir heita í höfuðið á Wagner Walbom ('Vagni Ottóssyni) og Unni Briem, sem um langt skeið voru íslandsmeistarar í tvenndarkeppni. Pálsbikarinn, sem stjórn T.B.R. hefur skýrt svo, er gefinn af Páli Andrés- svni, góðkunnum badminton- leikara um langt skeið. FRÁ AÐALFUNDI T.B.R. Seint í nóvember var hald- inn aðalfundur T.B.R. Skýrsla formanns, Péturs Nikulásson- ar, gaf glöggt til kynna, að badmintoniðkendum fer sí- fjölgandi. Alls eru nú um 280 félagar í T.B.R., og félagið hef- ur ráðstafað 104 vallartímum á viku til félagsmanna. Auk þess hafa nokkrir félagsmenn tryggt sér velli í skólum, svo að alls munu vallartímarnir nema milli 110 og 120 á viku. Þá er þess Og að geta, að þeim fer einnig fjölgandi í öðrum í- þróttafélögum, sem stunda badminton að vetrarlagi. Skýrsla formanns var fróð leg um mörg önnur atriði. M. a. var skýrt frá mótum ^síðasta keppnisárs, ókeypis unglinga- tímum, ráðningar kennara, heimsókn þekktra danskra bad min+onleikara, bættum húsnæð issk'lyrðum félagsins, vel- heppnaðri firmakeppni og mörgu fleiru. Fráfarandi formaður baðst eindregið undan endurkosn- ingu og voru honum þökkuð vel unnin störf í þágu félags- ins undanfarin ár. í hans stað var kosinn formaður Guðlaug- ur Þorvaldsson. en með honum í stjórn þeir Árni Ferdinands- Jörgen Hammergaard os Henning Borch. son, Davíð Sch. Thorsteinsson, Gunnar Petersen og Pétur Ge- orgsson. Keppnisráð félagsins skipa áfram þeir Kristján Benja- mínsson, Karl Maack og Þórir Jónsson, en . formaður hinnar nýju mótanefndar er Óskar Guðmundsson. FREGNIR AF HAMMER- GAARD OG BORCH. Síðan þeir félagar Jörgen Hammergaard-Hansen og Henning Borch gistu ísland í haust, hafa þeir tekið, þátt í fjölda móta og náð nrýð^góð- um árangri. í meistaramóti Kaupmanhahafnar lék Henn- ing (,,Pytte“) úrslitaleikinn í einliðaleið við hinn ókrýnda konung badmintoniþrottarinn- ar, Finn Kobberö, sem af mörg- um er talinn mesti undramað- ur, sem fram hefur komið í badminton fyrr og síðar. Varð bað þriggja lotu leikur, sem Kobberö vann naumlega. Nokkru síðar lentu þeir aftur saman. í urslitale k Triton- kepnninnar, og lýsir danska Bádmintonblaðið þeim leik bannia: „at badminton- simpel- then ikke kan spilles bedre“. Nvlokið er landskeppni við I Enffland. þar sem Henning lék einliðaleik í 2. sæti, enda er hann nú talinn annar bezti ein- h'ðaleikari beztu badminton- þjóðar Evrónu. Jörgen Hamm- ergaard og Henning léku tví- liðaleik í 1- sæti. enda hafa þeir velgt Kobberö og leikfé- laea hans pndir uggum að und- anförnu. Urslitaleik Triton- kennninnar í tvíliðaleik milli heirra. sgm Kobberö og Ras- mussen unnu naumlega, er lýst i Badmintonblaðinu sem ..fest- fyrværkeri af slag“ og ahorf- endnv hafi ekki get.að orða bundizt og saet, „at sádan skal hqdminton snilles". enda munu fáir badrointonleikarar, sem céð hafa bakhandarhögg Famm °rg?pfds. plevma þe;m. Urslit landskennninnar hafa ekki ennþá borizt hingað. ÍNJT.hlR MF.D T ST. A NDSFERÐIN A. Aðalgreiu desemberheftis dans^n Badmintonblaðsins er um íslandsför þeirra Jörgens ft^rnmergasrd 0« Hennings ■p.o^rþ. Pá fvrrnefndi lýsir rölinni hér miög .ýtarlega og Framh. á 14. síðu NORSKUR skíðaframleið andi, Kristian Hovde að nafni, hefur hafið fram- leiðslu á skíðum, sem hann fullyrðir, að hægt sé að stökkva á allt að 200 metra! Kristian Hovde er 56 ára, búsettur í Viker- sund í Buskerud og er fyrrverandi Noregsmeist- ari í 30 kin göngu og ann- ar hefur Kann orðið bæði á heimsmeistaramóti og Holmenkollenmóti. Hugniyndin kom í Lat- hi í Finnlandi 1958, þegar heimsmeistaramótið stóð yfir. Finnar báðu hann um ráð til þess að gera hin gömlu skíði þeirra stöðugri og öruggari. Dag inn eftir sagði Hovde: Það þarf að útbúa eitt- hvað, sem líkist hnífum óg gengur nokkra milli- metra niðúr í snjóinn. Neðan á hinum nýju skíðum Hovdens eru ávaj ir kantar, engar raufir, en tvenns konar stýringar úr sérstöku plasti, 45 og 40 cm fremst og aftast. Auk þess þar til gerð plasthúð. Framleiðsla á þessum forláta skíðum hófst í fyrra og þeir fyrstu, sem notuðu þau voru norski stökkvarinn Káre Berg og finnskur stökkvari. A Holmenkollenmótinu í fyrra komust rússnesku stökkvararnir Kamenski Og Tzakadze í kynni við þessi skíði og keyptu sér sitt parið hvor. Rússnesk- ur fararstjóri sagði: A þessum skíðum verður Tzakadze Olympíumeist- ari. Skíðin eru einnig á- gæt í bruni, þau renna hraðar og eru stöðugri. En Hovde er enn ekki ánægður. Hann vill meiri hraða og meiri stökklengd ir, þess vegna verður að fá eins konar stýri á stökkskíðin (sbr. meðfylgj andi mynd). Þetta stýri ætlar hann að haf t 10 sm langt og 7,5 sm hátt. Þá þarf stýrið að vera mjúkl, svo að stökkvarinn slasi sig- ekki, ef hann skyldi detta aftur yfir sig, helzt úr gúmmíi. Að lokum segir Hovde, að skíðasér- fræðingar séu honum nú sammála um, að 200 m skíðastökk sé ekki draum ur. Spurningin er aðeins sú, er þetta ekki fulllangt gengið? Dropi fer þá leið gegnum loftið, sem minnsta mótsöðu er að finna. Hinn full- komni stökkvari verð ur að ííkja efiir lögun hans, segir Hovde. Alþýðublaðið — 20. jan. 1960

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.