Alþýðublaðið - 20.01.1960, Page 14
Bókaútgáfa . ..
Framhald af 4. síðu.
tímarita af þessari gerð.
En ekki er nóg að benda á
þörfina og finna til hennar.
Við búum við fátækt og fá-
menni, og slíkt tímarit vant-
ar fjárhagsgrundvöll. Fjár-
skortur hefur drepið mörg ís-
lenzk tímarit. Þó er furða,
hve almenningur hefur. verið
þrautseigur að kaupa slík rit,
og sýnir það nauðsynina. En
kraftarnir hafa verið of
sundraðir að baki tímaritun-
um og þau of mörg.
Víða erlendis, t. d. á Norð-
urlöndum, standa öflug bóka-
útgáfufyrirtæki að baki vönd-
uðum bókmenntatímaritum
(Bonniers, Gyldendal o.s.frv.).
Vera má, að ekkert fyrirtæki
hérlent sé nógu öflugt til að
halda slíku riti úti. En hafa
ekki góðir útgefendur, sem
vanda vilja útgáfu sína og
vinna með henni þjóðþrifa-
verk, komið auga á þá leið að
standa margir saman að einu,
sterku tímariti, undir stjórn
vel menntaðra manna, sem
hvork; væru um of háðir
stjórnmálaklíkum né bóka-
forlögum? Forlögunum sjálf-
um ætti að vera það styrkur
og sómi að fá í slíku rlti víð-
sýna og holla gagnrýni á störf
sín, auk víðtækrar kynningar
á rithöfundum og menning-
arstraumum, innlendum og
erlendum. Með þessum hætti
gæti bókmenntagagnrýni vor
hafizt upp úr kotungsbragn-
um og þröngsýni smáborgara-
háttar og kunningsskapar.
Líka er óþarfi að vantreysta
skilningi almennings á slíku
fyrirtæki. Ef myndarlega er
af stað far!ð, mundi það fá
góðar viðtökur, og útgáfufé-
lögin vinna íslenzkri menn-
ingu þarft verk og auka um
leið sóma sinn og traust með
þjóðinni. Ef til vill væri hægt
með þessum hætti að hefja
hin gömlu tímarit, Eimreið-
ina og Iðunni, til vegs og virð-
ingar.
Auðvitað er til opinber að-
ili, sem innt gæti af hendi
þarft hlutverk á þessu sviði,
— og sér samboðið, en það er
Menningarsjóður. Það gefur
nokkur fyrirheit og eftirvænt
ingu, að e'nn fyrirferðarmesti
bókagagnrýnandi í blaða-
mannastétt hefur gerzt rit-
stjóri Andvara, hins vegar er
á það að líta, að Menningar-
sjóður er sjálfur bókaútgef-
andi og bakhjallur þess tíma-
rits, sem rætt hefur verið um
í hillingum hér að framan,
þarf að vera víðtækari.
Hér hefur eingöngu verið
rætt um ritað mál, en það
væri ósanngjarnt að skiljast
svo við þetta umræðuefni, að
ekki væri minnzt þáttar út-
varpsins í kynningu bóka, og
þó einkum eins manns, Vil-
hjálms Þ. Gíslasonar, núver-
andi útvarpsstjóra. Hann
hafði árum saman með hönd-
um útvarpsþátt, sem hann
nefndi Bækur og menn, eink-
um um erlendar bækur. Það
var að mestu bókmenntakynn
ing og góðra gjalda verð. Á
síðari árum hefur útvarps-
stjóri staðið fyrir þættinum
Á bókamarkaðnum þar sem
kynntar hafa verið nýútkomn
ar bækur. Gagnrýni er auð-
vitað ekki um að ræða í slík-
um þætti, það er ekki innan
starfsumgerðar ríkisútvarps-
ins, en samt hafa þættir þess-
ir verið hinir þörfustu, og nú
upp á síðkastið hefur þar ver-
ið um fleira að ræða en upp-
lestra eina. Gagnrýnendur og
útgefendur hafa líka látið ljós
sitt skína. Að útvarpsþætti
sem þessum getur verið mikil
stoð í bókamati og bókavali,
og ég hygg, að það gæti verið
eftirtölulaust af öllum góð-
um mönnum, að útvarpið
verði meiri tíma, fé og fyrir-
höfn í bókmenntakynningu
sem þessa, og það oftar en rétt
fyrir jólin, enda þótt þá sé
þörfin mest.
Ég hef nær eingöngu rabb-
að hér um þá hlið þessa máls,
sem að hinum almenna les-
anda snýr, vandamálum hans
í sambandi við bókaval í öll-
um hávaðanum og gauragang-
inum fyrir jólin, þegar mest
er gefið út af bókum og mest
keypt af þeim. Hitt et svo
önnur saga, hvert gildi bóka-
umsagnir og bókmenntatíma-
rit geta haft fyrir rithöfunda
og listamenn. Stundum má
skilja það á sumum þessara
manna, einkum þeim yngri
og óreyndari, að þeir telji
gagnrýnendur allóþarfa
menn. En ekki munu vand-
virkir og ærukærir listamenn
telja vanþörf á víðsýnum og
velviljuðum umræðum um
verk þeirra. Og því víðtæk-
ari þekkingu sem þjóðin hef-
ur á bókmenntum og fögrum
listum því greiðari aðgang
eiga góðir rithöfundar að þjóð
sinni. Allir slíkir menn hljóta
að kiósa fremur að skrifa fyr-
ir vel menntaða lesendur en
vanþroskaða og þekkingar-
snauða. Þess vegna er öllum
full þörf á betri og víðari upp
lýs ngu en nú er völ á.
12.1. 1960.
Ragnar Jóhannesson.
Pilturinn
lærbrotnaði
UMFERiÐARSLYS varð á
gatnamótum Njarðargötu og
Hringbrautar klukkan 3.10 á að
faranótt sunnudags. 17 ára pilt-
ur, Sævar Magnússon, Barma-
hlíð 14, varð fyrir bifreið og
lærbrotnaði.
Slysið varð með þeim hætti,
að bifreiðin var á leið austur
Hringbriaut, þegar pilturinn
kom hlaupandi norður yfir
gatnamótin. Slysinu varð ekki
forðað. Sævar var þegar fluttur
á Slysavarðstofuna og þaðan á
Landakotsspítala.
|_4 20. jan. 1960 — Alþýðublaðið
Innbrot
INNBROT var framið á að-
faranótt sunnudags í Stálum-
búðir h.f. við Kleppsveg. Farið
var inn um glugga. Þaðan var
stolið litlum peningakassa með
skiptimynt og rúmlega 100 stór
um skotum, sem ætluð eru til
hreindýradráps.
Komma vant-
aði í Róm
Framhald af 1. síðu.
þingi um mánaðamótin nóv-
ember-desember.
Enda þótt kommúnistar hafi
ekki sótt Rómarfundinn, hafa
þeir í stefnu sinni og s-krifum
Þpóðviljan sfylgt höfuðatriðum
í samþykktum fundarins dyggi-
lega, enda eru Moskvukommún
istar ráðandi við blaðið og í
flokknum, þrátt fyrir þær deil-
ur, sem meðal annars hafa snú-
izt um afstöðu til hins alþjóð-
lega kommúnisma, og geisað
hafa í flokknum hér síðustu
mánuðina. Væri fróðlegt að
heyra skýringar Þjóðviljans á
því.
Örkin kostar
Framhald af 1. síðu.
1903 og voru þá yfirstimpluð „í
gildi ’02—’03“. Nokkur merki
eru samt til óyfirstimpluð og
nokkur eintök voru send póst-
málastjórnum erlendra ríkja,
en hin geymd í safni íslonzku
póstmálastj órnarinnar.
Aðstandendur tímaritsins
„Frímerki“ urðu þess varir, að
þessi óyfirstimpluðu frímerki
voru komin hér á innlenda
markaðinn og að þau voru jafn-
vel til sölu í allt að hálfum örk-
um. Þeir fóru því fram á við
Póst- og símamálastjórnina, að
hún athugaði birgðir sínar af
Þessummerkjum. Póst- og síma
málastjórnin mun hafa gert
þetta, því hún kærði málið til
sakadómara og hefur rannsókn
arlögreglan haft það til með-
ferðar að undanförnu.
Frímerki. þessi, óyfirstimpl-
uð, eru rrtjög verðmæt. 40 aura
merkið kostar 4200 krónur, ó-
notað. Ein örk af því, 100
merki, kostar því hvorki meira
né minna en 420 þúsund krón
ur. Þetta er verðskráning sam-
kvæmt íslenzka frímerkjaverð
listanum 1960. Þetta gefur
nokkra hugmynd unt, hve stór
kostlegar fjárupphæðir hér er
um að ræða.
Valdimar Stefánsson saka-
dómari hefur staðfest, að mál
þetta sé í rannsókn hjá embætti
hans. Hann skýrði enn fremur
frá því, að starfsmerin póstmála
stjórnarinnar, frímerkjasalar o^
safnarar hefðu verið teknir til
yfirheyslu. Sakadómari sagði,
að rannsókn þessa máls sé ekki
komin Það langt, að hægt sé að
gefa nánari upplýsingar að svo
stöddu.
Flugfélag
íslands.
Millilandaflug:
Hrímfaxi fer til
Glasgow og K,-
hafnar kl. 8.30 í
dag. Væntanleg
ur aftur til R.-
víkur kl. 16.10
á morgun. Inn-
anlandsflug: í
dag er áætlað að
fljúga til Akureyrar, Húsa-
víkur, ísafjarðar og Vest-
mannaeyja. Á morgun er á-
ætlað að fljúga til Akureyr-
ar (2 ferðir), Bíldudals, Eg-
ilsstaða, ísafjarðar, Kópa-
skers, Patreksfjarðar, Vest-
mannaeyja og Þórshafnar.
Loftleiðir.
.Hekla er væntanleg kl.
7.15 frá New York, Fer til
Stavanger, Kaupmannahafn-
ar og Hamborgar kl. 8.45.
Saga er væntanleg kl. 19 frá
London og Glasgow. Fer til
New York kl. 20.30.
-o-
VKF Framsókn
minnist á skemmtifundinn
í Iðnó föstud. 22. þ. m. kl. 9.
Góð skemmtiatriði.
-o-
12.50—14 „Við
vinnuna“. 18.30
Útvarpssaga
barnanna. 18.55
Framburðar-
kennsla í ensku.
19.00 Tónleikar:
Þjóðlög, sungin
og leikin. 20.30
Daglegt mál.
20.35 Með ungu
fólki. 21 Píanó-’
tónleikar. 21.20
Framhaldsleik-
ritið: „Umhverf
is jörðina á 80
dögum“. 22.10 Úr heimi
myndlistarinnar. 22.30 Djass-
þáttur á vegum Jazzklúbbs
Rvíkur. 23.10 Dagskrárlok.
VeSrið:
Allhvass austan;
lygnandi.
miðvikudagurl
Slysavarðstofan
hefur beðið blaðið að geta
þess, að frétt þess í gær um
konuna, sem gleypt hafði eit-
ur, hafi ekki verið byggð á
upplýsingum frá henni.
-o-
NÆTURVARZLA. Vikuna
16.—22. þ. m. hefur Lyfja-
búðin Iðunn næturvörzlu.
Sími 17911.
-o-
Skipadeild SÍS.
Hvassafell fór í
gær frá Hafnar-
firði áleiðis til Ro
stock. Arnarfell
fer í dag frá Ak-
ureyri til ísafjarð
ar og Reykjavíkur. Jökulfell
fór í gr frá London til Ro-
stock, Kaupmannahafnar og
Reykjavíkur. Dísarfell fór í
gær frá Hamborg til Malmö
og Stettin. Litlafell kemur til
Reykjavikur í dag. Helgafell
fór í gær frá Ibziza áleiðis tU
Reykjavíkur.
Hafskip. ' )
Laxá er í Helsingborg.
Jöklar. '<T)
Drangajökull er í Rvík.
Langjökull er í Hamborg.
Vatnajökull fór frá Vest-
mannaeyjum í gær á leið til
Grimsby, London, Hull, Bou-
logne og Rotterdam.
-o-
LAUSN HEILABRJÓTS:
Maður skilur áttunda epl-
ið handa áttunda mannin-
um eftir í körfunni.
Iþrótflr
Frámhald af 11. síðu.
lætur óspart í ljós ánægju
þeirra félaganna með móttök-
ur allar, svo að fullyrða má, að
koma þeirra hafi skapað bætt-
an grundvöll til samstarfs T.
B.R. og Dansk Badminton For-
bund. í þessari grein sýnir
Hammergaard það ennþá einu
sinni, að hann er gæddur ó-
venjugóðum frásagnarhæfileik
um, og hefur mikla athyglis-
gáfUj því að greinin er mjög
skemmtileg aflestrar fyrir alla.
SKARÐ FYRIR SKILDI.
Það þykir nú fréttnæmt
meðal badmintonleikara, að
Vagn Ottósson er farinn brott
af landinu —- en til allrar ham-
ingju ekki nema um hálfs árs
ske'ð! Það verður því skarð
fyrir skildi í íslenzku badmin-
ton á þessum vetri, og mun það
standa opið og ófullt, unz hann
kemur aftur til sinna heim-
kynna, þá e rsól verður hæst
á lofti á sumri komanda.
Aðstoða
við framtöl til tekju-
og eignaskatts.
Þorleifur Þorgrímsson,
Vatnsstíg 10 B.