Ársritið Gestur Vestfirðingur - 01.01.1849, Blaðsíða 32
32
ber. Jjrumur heyrðust 4 sinnum, nefnil. 28. og 31.
Desember og 1. og 9. Janúar. Norðurljós eru ekki
uppteiknuð, nema þá þau liafa sézt í heiðbjörtu, eð-
ur því nær heiðbjörtu veðri, en eins og alkunnugt
er, þá eru ftau opt á lopti, þó þykkviðri sé, og er
þess ei getið hér.
2. SKIPSKAÐAR.
í Vestfirðínga Qórðúngi eru þetta árið, svo eg til
viti, ei aðrir skipskaðar, en þessir: bátur, er fórst í
lendínguvið Hellnaí Snæfellsnessýslu 5. dag Júnímán.;
týndustþardmenn. Olafur nokkur Illliugason, merkis-
maður og faðir formarinsins, er Friðrik hét, sá til
ferða bátsins, og vildi bjarga jþeim, er á voru, veður
hann því fram í brimið, og drukknaði, varð hann
hinn 5. rnaður, er þar týndist. Bóndi á Skógarströnd
týndist af báti, er fór frá Stykkishólmi 24. dag Júní-
mán., og voru ei fleiri á bátnum með honum, en
bróðir hans, sem sökum ölæðis síns kvað ei hafa
þókzt geta gefið nokkra áreiðanlega skýrslu um,
hversu slis þetta bar að. Bátur fórst líka í lend-
íngu frá Byrgisvík í Strandasýslu 24. Ágústmán.,
týndust þar tveir menn, er komu úr Reykjarfjarð-
ar kaupstað.
Tveir menn týndust í Barðastrandarsýslu ofan
um is, annar á Tálknafirði, hinn á Kollafirði í Gufu-
dalssveit.
3. LÁT IIELVRA FÓLKS.
Árni jþorsteinsson, sýslumaður í Snæfellsnes-
sýslu síðan 1843, og umboðshaldari Stapa umboðs.
Fyrr varliann sýslumaður í Isafjarðarsýslu, og í ýms-
um málum settur dómari i Dalasýslu, deyði, eptir
lánga og þúnga legu, úr lifrar veiki 24. dag Marzmán.
Guðmundur Jónsson Salómonsen, sóknarprestur i