Kristileg smárit handa Íslendingum - 02.01.1867, Page 14

Kristileg smárit handa Íslendingum - 02.01.1867, Page 14
14 bakuranum gullpeningana, og sagði honum frá, hvernig hann liefði fundið þá. »Eigið þér þá»? sagði hann við bakarann, »efsvoer, þá takið við þeim». »Bakari góð- ur», sagði piiturinn», liann faðir minn er mjög fátækur, og —» »Þegi þú, barn, gjörðu mig ekki til skammar með kvörtunum þínum. Eg er glaður, að eg heíi getað forðað þessum manni við að missa peninga sína». Bak- arinn var öldungis forviða, og liorfði ýmist á föðurinn, sem var svo ráðvandur, á piltinn, sem var svo ákafur, eða á gullið, sem gljáði þarna í grasinu. »Það er þó sannast að segja, að þú ert ráðvandur maður», mælti bakarinn, »og hann Davíð hörkembari, nágranni minn, sagði það satt, að ekki væri til ráðvandari maðnr en þú í þessum bæ. Eg skal nú segja þer, hvernig á gullinu stendur. Fyrir þrem dögum kom til mín ókunnugur maður, og fékk mér brauðið; hann bað mig að selja það með vægu verði, eða gefa það ráðvandasta mann- inum, sem eg þekkti hér í bænum. Eg beiddi Davíð að vísa þér til mín í morgun, og af því þú vildir ekki þiggja brauðið ókeypis, þá seldi eg þér það, eins og þú veizt, fyrir seinasta skildinginn, sem þú áttir; þú átt brauðið með öllum fjársjóðnum, og hann er ekki lítill, og guð gefi að hann megi blessast þér». Fátækl- ingurinn laut niður, og hrundu táriu af augum honum. Sonur hans hljóp að, lagði hendur um háls lionum og sagði: »eg skal allt af treysta guði og gjöra það, sem rétt er, eins og þú, faðir minn, því eg er viss um, að þá verð eg aldrei til skammar». Þegar heimspekingurinn Ilenrik Steffens einhverju sinni hafði íagurlega útlistað drottinlega bæn, eða

x

Kristileg smárit handa Íslendingum

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kristileg smárit handa Íslendingum
https://timarit.is/publication/89

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.