Heilbrigðistíðindi - 01.09.1872, Page 10

Heilbrigðistíðindi - 01.09.1872, Page 10
74 rnilt leyti með engu móli orðið samdóma þeim, eu, eptir því sem jeg hef elzt, allt af leiðzt lengra og lengra frá þeim. Að visu var jeg í fyrstu hneigður til slíkra skoðana, eins og sjá máaf riti mínu um «vatnslækningar», en það kom mikið af því, að jeg hafði svo mikla virðing fyrir mínum ágæta kennara, hinum fyrnefnda prófessor Bang, að jeg trúði honum svo að kalla í blindni. Öðruvísi gekk mjer það gagnvart prófessor Bennet, enda kynntist jeg honum fyrst eptir að jeg hafði verið Iæknir í 20 ár, og þóttist jeg þá hafa á nokkurri reynslu að standa. Jeg ritaði skarplega á móti honum, og allri þessari kenning, og var sú rifgjörð prentuð í Edinborgar-journal 1860, og veit jeg ei til, að neinn hafi enn orðið til að mótmæia henni, en síðan hef jeg opt bæði þar og annarstaðar í útlenzkum læknisritum hreift hinu sama. Prófessor Bennet er, eins og flestir Englend- ingar, sannlega frjálslyndur maður, sem vel þolir ailar mótsagnir, enda erum við, þrátt fyrir þennan skoðanamun, þegar við flnn- umst, jafnan sem góðkunningjar. Iíonferenzráð Bang hefur á seinni tímum látið rita 2 ritgjörðir, er báðar stefna í þá átt, að hefja hinn svo kallaða heilbrigðiskrapt líkamans til skýjanna. Önnur þessara ritgjörða heitir: «Hvem sltal jeg have til Huus- lcege», en hin: «Min indre Collega», og hygg jeg, að báðar þessar ritgjörðir sjeu talsvert út breiddar hjer á landi, en þrátt fyrir þá virðing, er jeg allt af íinn mig skyldan að bera fyrir þessum heiðraða danska Nestor læknisfræðinnar, þá get jeg þó með engu móti gjört að því, að jeg er hræddur um, að hann hafi gjört langtum meiri skaða en gagn með þeim, jafnvel þótt það sje sjálfsagt móti vilja hans og tilgangi. Þegar maður taiar við ýmsa menntaða menn, er þeir verða veíkir, þá er það opt þeirra orðtæki, að þeir ætii að iáta nátt- úruna hjáipa sjer sjálfa, en jeg er margsannfærður um, að þessi ímyndaða sjálfsiijálp náttúrunnar hefur opt orðið til að steypa þeim í gröfina eða að gjöra þeim að örkumlamönnuin, einkum þar sem um einhverja alvariega sjúkdómsbyrjun hefur verið að ræða. Sjúkdómarnir byrja opt hægt og ómerkjanlega, og það reynist opt svo, að þar sem menn halda, að um lítið eitt sje að ræða, þá eru það opt tómar ímyndanir. Slíkir kvillar líkj-

x

Heilbrigðistíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðistíðindi
https://timarit.is/publication/94

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.