Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1887, Síða 12

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1887, Síða 12
12 Á Islandi hafa menn ætlað, að hvíta efnið kynni að vera leif- ar af mjólkurmat þeim, sem skyrheitir, og þarf, að þvi erjeg bezt veit, bæði sýrugerð og hleypi til að búa það til. það lá því beint fyrir að rannsaka sambandið milli fosforsýru og kalks í þessari ís- lenzku matartegund. Jeg sneri mjer því til hæstarjettardómara Finsens, og bað hann að hlutast til um, að mjer yrði sent sýnis- horn af skyri frá íslandi. í ágústmán. f. á. var mjer sent sýnis- horn þetta frá íslandi í loptþjettri blikkdós. Skyr þetta hafði ver- ið búið til um miðjan júnímánuð sama ár, og var eflaust orðið súr- ara, er það barst til min, en það á að sjer að vera, er íslendingar neyta þess. jpetta gat samt sem áður auðvitað ekki breytt efna- samsetningu skyröskunnar. J>ar eð vert er að þekkja hina efna- legu samsetning þessarar matartegundar, set jeg hjer rannsókn þá, er aðstoðarmaður minn, cand. polyt. C. Petersen, gjörði á því. Rannsókn á íslenzku skyri: Vatn . . . 81,07 % Fituefni . . 3,28 — Kasein (ostefni) 11,09 — Mjólkursýra . . 2,69 — Mínerölsk efni 1,74 — samlagt 99,87 jpetta sýnishorn af skyri var, eins og sjá má af þessu, mjög vatnsborið efni, og áþekkast þykku sírópi í meðferðinni. Sýru- efnið var, sem sjá má af rannsókninni, talsvert í skyrinu, og var skyrið því eðlilega mjög súrt á bragðið. En það sem hjer reið á að vita, var samansetning ösku þessa skyrs Jeg rannsakaði sjálf- ur öskuna, og reyndist samansetning hennar að vera þessi: Rannsókn á skyrösku: Fosforsýra 30,33 °/o Kalk . . . 13-12 — Magnesía . . 2,19 — Kalí . . . 15.43 — Natron . . 16,73 — Járnsýringur 0,12 Brennisteinssýra 6,83 — Klór . . . 19,00 — Kísilsýra . . 0,55 — samlagt 104,30 Súrefni sem samgildir klórefninu 4,28. í þessari skyrösku er mikið klór og natron, sem eflaust stafar af því, að matarsalt hefir verið látið í skyrið. Aska af matarsalts- lausu skyri, inniheldur að öllum líkindum mjög lítið klór; gangi maður þá út frá þvi, að allt klórið sje úr matarsalti, verður saman- setning hinnar eiginlegu skyrösku sú, er nú skal greina:

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.