Alþýðublaðið - 06.03.1960, Page 14
Leika Krisi...
Framhald af 16. síðu-
verkið, eftir hlutverki Krists.
En ungfrú Dengg er viss um
að þetta tekst vel. „Orðin,
sem ég verð að læra og fara
með veita mér öryggi og frið!“
Hans Schweighofer, 39 ára,
fer með hlutverk Júdasar
eins og fyrir tíu árum. „Allir
í þorpinu þekkja mig, en
bændurnir í sveitunum í kring
horfa á mig og hrista höfuðið
og segja: — Þarna er hann!
Þeir eru Iitlir vinir Júdasar“.
.Tohann Lang segir að allir
leikendurnir undirbúi sig
rækilega fyrir leikana, fyrst
og fremst með bví að lesa
biblíuna og biðjast fyrir.
„Hinn andlegi undirbúningur
er iafnmikils virði og að læra
hlutverkin utanbókar“.
Dokforsrifgerð
Framhald af 16. síðu.
Þeir, sem aðstoða við slík svik
eru einnig saknæmir, World-
Telegram and Sun skýrir svo
frá. að einr. af starfsmönnum
blaðsins. Alex Benson hafi
tekið lokapróf fvrir stúdent
við Columbiaháskólann og
þevið fvr'r 40 dollara.
Alex Benson segist eitt sinn
háfa skrifað doktorsritgerð
f'iTÍr nemanda í sálarfræði við
Yesh'va-háskólann og fengið
fvrir 350 dollara, og hann
kvaðst, vitq um mann, sem
fengið hefði 1250 dollara fyr-
ir að skrifa ritgerð fyrir
doktorsefni.
Marsir háskólakennarar í
Banda’-íkiunum hafa látið í
liós bað álit að varla geti ver-
ið um víðlæk svik í bessu sam
barói sð ræða. Bent er á. að
sfórk'ntar. vinna að rit-
g°'-ðum °+arfi náinni sam-
vinnu T.ið n’óf°asoranp. og
ræði . vi ðfangsefnið oft á tíð-
um v'ð V>á. Auk bess verða
að skila fullkom-
inn; ViAVpskrá oa off vnrða
bni’’ °ð nrpT’cyaVrifo ritcf°rðina
0?'”- o" f-oVir, gild.
7-).- ao»-.,Toi Belkin vektor
Vpshiva-háskólanc segir að
xro'-o mpoi Rononn Vi gf {
qTrrffpft rípWo^ritcfarð fvrir
p r.'-t rowonrlq Pri hqT
yo-.r'í'v có oVVí ópcft ritffpfn
vori^ foVirt piM o<? okki
.qvnvq víst hnn hafi
roVVurv, verið lögð fyrir
rá^f^p^ðifl^ilfÍTna.
Konfekf
Framhald af 16. síðu.
inn, en eftirlitsmaðurinn skoð
aði jafnóðum eins rnikið og
hann komst yfir. í lok vinnu-
dags voru úrslitin tilkynnt: —
Enginn ormur hafði sloppið
við tengurnar að þessu sinni,
og stúlkurnar fengu sitt kon-
fekt. Þetta sýnir, hyað gera
má, ef tekst að vekja áhuga
fólksins, og mætti vel hugsa
sér að nota slíkt kerfi með
nokkrum breytingum, og yrði
þá að setja peninga í stiað kon-
fekts.
Um helgina
Framhald af 4. síðu.
lega byggingaáætlun og láta
hinar nauðsynlegustu opin-
beru byggingar ganga fyrri,
þannig að önnur skrifstofuhús
bíði, ef þess er þörf. Með
slíkri áætlun mætti líka veita
byggingastéttunum fullvissu,
jafnvel tryggingu fyrir því, að
nægileg vinna verði í bygg-
ingaiðnaðinum, innan þess
ramma sem efnahagur þjóðar
innar þolir.
Full atvinna gengur að sjálf
sögðu fyrir öðru, ög vissulega
mun ekki verða þörf á opin-
berum byggmgum til að forða
atvinnuleysi. Hitt er þá eftir:
Svipur os sómi lýðveldisins.
Það er lítil reisn yfir þeim
fyrirætlunum ríkistsjórnar-
innar að byggia ofan á Arnar-
hvol, og allar líkur á að snot-
urt hús verði bar með eyðilagt
að útliti. Meiri mannsbragur
væri að byrja á stórri stjórnar
ráðsbyggingu við Lækjargötu
og binda endi á þá eymd, að
ríkið sé leiguliði einstaklinga
um allan bæ.
Það ástand, sem ríkt hefur
í þessum málum, gefur mjög
til kynna, að hér séu einstakl-
ingarnir ríkir en ríkið fátækt,
einstaklingar og félög lifi á
heildinni eins og mistilteinn
á lauflausu tré. Þjóðinni mun
aldrei farnast vel, nema ríkis-
heildin, lýðveldið sem samein-
ar landsmenn alla, beri sterk-
an framfarasvip — og sé
sterkt og heilbrigt.
Framhald af 13. síðu.
þar. Hefði þeim þó verið nær
að standa fast á réttlátum
kröfum skólans um samastað
í Þjóðleikhúskjallaranum,
sem er og verður eign ríkis-
ins. Þjóðleikhúskjallarinn er
jafn góður ef ekki betri en
Lido fyrir starfsemi skólans.
Hljóta menn því að ætla að
annarleg sjónarmið ráði snar-
snúningi skólastjóra og skóla-
nefndar í þessu mál.
Höfundur þessa greinar-
korns telur ekki koma til
mála að eyða tæpum milljóna
tug í kaup á Lido þar sem
ríkið á ágætis húsnæði fyrir
Matsveina- og veitingaþjóna-
skólann í Þjóðleikhúskjallar-
anum. Verði það hins vegar
gert sýnist það einungis gert
til þess að hlaupa undir bagga
með áhrifamiklum fjármála-
manni, sem er í vandræðum
með kapital í gistihússbygg-
ingu. Það yrði ráðdeildarlaus
sóun á almannafé, sem sú rík-
isstjórn getur ekki staðið fyr-
ir er heimtar nú allsherjar
sparnað af almenningi. Það er
von mín og ósk að mennta-
málaráðherra komi í veg fyr-
ir kaupin á Lido en afhendi
Matsveina- og veitingaþjóna-
skólanum veitingasalina í
Þjóðleikhúskjallaranum. V.
14 6. marz 1960 — Alþýðuþlaðið
Veðrið:
NA gola eða kaldi;
léttskýjað.
Slysavarðstofan er opin all
an sólarhringinn. Læknavörð
ur LR fyrri vitjanir er á sama
stað frá kl. 18—8. Sími 15030.
o----------------------o
Gengið:
1 sterlingspund .... 106,84
1 Bandaríkjadollar . 38,10
100 danskar krónur 550,95
o—---------------------o
Þ E S S I unga stúlka er
þegar farin-að hugsa um sól-
gleraugnatízkuna fyrir sum-
arið. Gleraugun eru mjög
viðamikil. Ein eru eins og
fiðrildi í laginu, önnur eru
sett steinum og perlum.
-o-
Dagskrá N.-D. Alþingis á
morgun: 1. Einkasala ríkis-
ins á tóbaki. 2. Fyrningar-
afskriftir.
-o-
I
Átthagafélag Strandamanna
hefur kvöldkaffi í Skáta-
heimilinu sunnudaginn 6.
marz kl. 8 sd. Öllu eldra fólki
í Rvík, Hafnarfirði og ná-
grenni ættuðu úr Stranda-
sýslu er boðið.
Loftleiðir h.f.:
Edda er vænt-
anleg kl. 7,15
frá New York.
Fer til Oslo,
Gautaborgar,
Kmh. og Ham-
borgar kl. 8,45.
Leiguflugvélin
er væntanleg
19 00 frá
Amsterdam og
Glasgow. Fer til New York
kl. 20.30.
Þriðjudaginn 8. marz,
á 50 árá afmæli alþjóða
baráttudags kvenna, efna
Menningar- og friðarsamtök
íslenzkra kvenna til almenns
fundar í Framsóknarhúsinu
við Fríkirkjuveg. Þar flytur
erindi sænska vísindakonan
Ondrea Andreen, med. dr., en
hún er heimskunn fyrir störf
sín í réttinda- og menningar
málum kvenna og varafor-
maður Alþjóðasambands lýð-
ræðissinnaðra kvenna, einnig
á hún sæti í Heimsfriðarráð-
inu. Á fundinum flytur Ása
Ottesen ávarp, en Aðalbjörg
Sigurðardóttir flytur ræðu.
Einnig syngur Þuríður Páls-
dóttir einsöng með undirleik
Jórunnar Viðar. Allir eru vel
komnir á fundinn, sem hefst
kl. 8V2 síðd.
-o-
ÆSKULÝÐSRÁÐ RVÍKUR:
Tómstunda- og félagsiðja —
sunnudaginn 6. marz 1960:
Lindargata 50:
Kl. 10.30 f.h. Sunnudaga-
skóli Hallgrímskirkju.
Austurbæ jarskóli:
Kl. 4,00 e. h. Kvikmynda-
klúbbur.
Skátaheimilið:
KI. 8,00 e. h. Dansklúbbur
æskufólks (13-16 ára).
Tómstunda- og félagsiðja —
mánuðaginn 7. marz 1960:
Lindargata 50:
Kl. 7,30 e. h. Ljósmynda-
iðja. kl. 7,30 e. h. Bast- og
íágvinna.
ÍR-húsið:
Kl. 7,30 e.h. Bast- og tága-
vinna.
Háagerðisskóli:
Kl. 8,00 e.h. Bast og tága-
vinna.
Laugardalur: (íþróttahúsn.)
Kl. 5,15, 7,00 og 8,00 e.h.
Sjóvinna.
V í kingsheimilið:
Kl. 7,30 e. h. Taflklúbbur.
★ FYRIR NOKKRU kom út 1. hefti 9. árgangs af
tímaritinu Úrval. Ritstjóraskipti hafa orðið við blaðið. Af
starfinu hefur látið Gísli’ Ólafsson eftir 18 ára ritstjórn, en
við tekur Bárður Jakobsson.
Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á ritinu, m. a.
litprentuð kápusíða. Úrval er g.efið út í Reykjavík, prentað
í Steindórsprent h.f.
Efnisyfirlit ritsins að þessu sinni er eftirfarandi:
Hver fann Ameríku? Fituneyzla og kransæðastífla. Ein-
vígi við anakondu. Ég get ekki lifað í hjónaþandi. Bréf frá
Benjamín Franklin. Er procain vörn gegn ellihrörnun. —
Snjómaðurinn andstyggilegi. Sólskin í Kænugarði. Fjórar
dyggðir — smásaga. Hófsemi. Amgur. Börn, sem enginn
vill eiga. Um galdra og heilabrot. ísland á erlendum vett-
vangi. Fingrafarafíflið. Meiðyrðamál prinsessunnar. Nú
er það svart. Aðvenfistar og krabbamein. Sagan: í fjör-
brotum. Krossgáta.
Verkakvennafél. Framsókn.
Konur, fjölmennið á aðal-
fundinn í-Iðnó nk. sunnudag
kl. 2 sd.
-o-
Hafnarfjörður:
Verkakvennafélagið Fram-
tíðin heldur aðalfund í Al-
þýðuhúsinu mánudaginn 7.
marz kl. 8.30 sd. Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
-o- j
Kvenfélag Bústaðasóknar:
Námskeið í bastvinnu hefst
miðvikud. 9. þ. m. kl 8 sd. í
Háagerðisskóla. Þátttakendur
gefi sig fram í síma 34270.
-o-
Minnist málleysingjanna.
’ í kuldatíð ber sérstaklega
að hafa hugfastar þarfir fugl
anna og heimilislausa kattar-
ins. — Dýraverndunarfélagið.
-o-
Góðir Reykvíkingar!
Munið endurnar á Tjörn-
inni. Fleygið aldrei gömlu
brauði — nema til þeirra.
Dýraverndunarfélagið.
-o-
Sunúudagur
6. marz:
8.03 Fjörug mús-
ík fyrsta hálftíma
vikunnar: Lúðra-
sveit Hafnarfjarð
ar leiikur; Albert
Klahn stjórnar. -
9,20 Vikan fram-
undan. 9,35 Morg
untónleikar. 11.00
Æskulýðsmessa í
kapellu háskólans
(Prestur: Séra Ól-
afur Skúlason. —•
13.15 Erindi: Um heimspekr
Alfred North Whiteheads; I.
(Gunnar Ragnarsson magist-
er í heimspeki). 14.00 Miðdeg
istónleikar. 15.30 Kaffitíminn
— 16.25 Endurtekið efni: —
Spurt og spjallað" um dóm
framtíðarinnar yfir nútíman-
um. 17.30 Barnatími. 18.30
Þetta vil ég heyra. 20.20 Ein-
söngur: Emmy Loose syngur
lög eftir Schumann, Brahms,
Hugo Wolf og Richard
Strauss. 20.35 Raddir skálda:
Ljóð og sögukaflar eftir Hann
es Sigfússon.^ Höfundurinn,
Elías Mar og Ólafur Jóh. Sig-
urðsson flytja. 21.20 Nefndu
lagið. 22.05 aDnslög. — 23.30
Dagsikrárlok.
Mánudagur 7. marz:
13.15 Búnaðarþáttur: Gísli
Kristjánsson ritstj. ræðir við
Pétur Pétursson bónda á
Höllustöðum í Blöndudal. —
18.30 Framburðarkennsla í
dönsku. 20.30 Hljómsveit Rík
isútvarpsins leikur. Stjórn-
andi: Hans Antolitsch. 21.00
Vettvangur raunvísindanna:
Frá tilraunabúinu í Laugar-
dælum (Örnólfur Thorlacius
fl. kand.). 21.25 Einsöngur:
Bernhard Sönnerstedt syngur
lög eftir Emil Sjögren; Stig
Westerberg leikur undir. —
21.40 Um daginn og veginn
(Jón Leifs tónskáld). 22.00
Fréttir. 22.20 íslenzkt mál. —
22.35 Kammertónleikar. —
23.10 Dagskrárlok.
-o-
LAUSN HEILABRJÓTS:
Með því að fara í rúmið,
áður en dimmt er orðið . . .
t. d. síðdegis.