Fréttablaðið - 09.05.2001, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 09.05.2001, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 9. maí 2001 FRÉTTABLAÐIÐ Blair boðar loks til kosninga: Varar sitt fólk við of mikilli sigurvissu london. flp. Tony Blair, forsætisráð- herra Bretlands, boðaði í gær til kosninga 7. júní næstkomandi. Blair sagði „mikið starf framundan" í kosningabaráttunni og varaði sam- flokksmenn sína við of mikilli sigur- vissu. Verkamannaflokkurinn, flokk- ur Blair, hefur haft örugga forystu í skoðanakönnunum undanfarið og raunar allt kjörtímabilið. „Þrátt fyrir að við getum verið stolt af mörgu ... eru enn margar hindranir sem við þurfum að yfirstíga,“ sagði Blair við tækifærið. Fréttaskýrendur telja að mjög hörð kosningabarátta sé framund- an. Ihaldsflokkurinn mun þurfa að beita öllum brögðum og Blair hefur lagt áherslu á að kosningabaráttuna verði að heyja eins og mjótt sé á munum. Leiðtogi íhaldsflokksins, William Hague, á þó verulega á brattann að sækja í kosningabarátt- unni. íhaldsflokkurinn vonast til að höfða til dæmigerðra kjósenda sinna sem margir hverjir sátu heima í kosningunum fyrir fjórum árum. Þeir hafa þó ekki mikla trú á flokknum ef marka má kannanir en helmingur telur íhaldsflokkinn ekki hæfan í ríkisstjórn enn sem komið er. ■ BARÁTTAN HAFIN Með því að boða til kosninganna fyrír utan skóla í London minnti Blair á hættuna á þeim niðurskurði til skólamála sem Verkamannaflokkurinn segir blasa við ef (haldsflokkurinn nær völdum. EÐA HVAÐ? REVELATION Fimm landflótta barnafjölskyldur knýja nú á dyr Reykjanesbæjar. Ovissa um flóttamenn Reykjanesbær hefur ekki samþykkt móttöku júgóslavneskra flóttamanna þó Flóttamannaráð segi að svo sé. flóttafólk Óvissa í’íkir enn um hvar fimm landflótta barnafjölskyldur frá Júgóslavíu, sem veita á hæli hér á landi og væntanlegar eru eftir rúman mánuð, munu fá búsetu. Árni Gunnarsson, formaður flóttamannaráðs, segir Reykjanesbæ þegar hafa samþykkt að veita flótta- fólkinu viðtöku en Hjörtur Zakarías- son, bæjarritari í Reykjanesbæ, seg- ir bæjarráðið aðeins hafa samþykkt formlegar viðræður um móttöku fólksins en ekki hafa gefið endanlegt svar. „Bæjarráðið hefur samþykkt formlega að fara í þessa móttöku. Þótt við höfum ekki gefið það form- lega út að þetta sé niðurstaðan liggur hún samt fyrir. Við höfum sjálfir aug- lýst eftir húsnæði fyrir fólkið og erum að gera húsleigusamninga," segir Árni Gunnarsson. En Hjörtur Zakaríasson segir málið ófrágengið þótt Reyknesingar séu jákvæðir fyrir verkefninu. „Bæjarráð hefur samþykkt að verða við erindi félagsmálaráðuneyt- is og feia bæjarstjóra og félagsmál- stjóra að eiga viðræður við Flótta- mannaráð en þetta er enn ekki fastá- kveðið. En það er ljóst að það er vilji bæjarstjórnar að leysa þessi mál svo Sjómenn við Eyjafjörð Engar 11 millj - ónir í árslaun 51ÓMENN Sjómannafélag Eyjafjarðar hefur sent frá sér ályktun þar sem það segir yfirlýsingar Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Samherja, um að sjómenn hafi ellefu milljón króna árslaun ekki eiga við rök að styðjast. Félagið segir að meðallaun allra félaga í Sjómannafélagi Eyjafjarðar, sem greiddu til félagsins á síðasta ári, hafi verið 2.578.000 krónur. í tilkynningu frá félaginu segir að „hins vegar sé sem betur fer nokkur hópur félagsmanna með betri launakjör en þessi meðal- talstala segir til um. Fullyrðingar um ellefu milljóna króna árslaun sjómanna eru þó út í bláinn og víðs fjarri veruleikanum. Því aðeins gat sjómaður á Baldvini Þorsteinssyni EA, aflahæsta skipi landsins, náð slíkum launum á síðasta ári að hann væri á sjó allt árið. Það vita þó allir sem vilja vita að sjómenn á frysti- skipi eins og Baldvini Þorsteinssyni eru alls ekki á sjó allt árið. Nær lagi er að þeir fari að jafnaði í annan hvern túr. Fullyrðingar forstjóra Samherja hf. um ellefu milljóna króna árslaun sjómanna á frysti- skipum félagsins eru því úr lausu lofti gripnar og til þess eins fallnar að ala á tortryggni almennings í garð sjómanna í verkfalli þeirra." ■ framarlega sem þeir útvega íbúðir og mig minnir að það komi fram í bréfi félagsmálaráðuneytis að Rauði krossinn sé búinn að leysa úr þeim málum,“ segir Hjörtur. Að sögn Hjartar eru Suðurnesja- rnenn vanir að taka á móti útlending- um. „Það eru ekki bara íslendingar sem sogast að þessum kjálka því hér er fjöldi útlendinga í vinnu. Til dæm- is eru tíu prósent íbúa í Garðinum Pólverjar," segir hann. Reiknað er með að flóttafólkið komi um miðjan júní. Um er ræða fimm barnafjölskyldur með börn á aldrinum fimm til fimmtán ára, en samtals eru flóttamennirnir 23. Hóp- urinn er sá fimmti frá löndum fyrr- um Júgóslavíu sem kemur til íslands frá 1996. Hinir hóparnir hafa farið til ísafjarðar, Hafnar í Hornafirði, Blönduóss og Siglufjarðar. Allir flóttamennirnir sern fóru til Blöndu- óss munu hafa yfirgefið bæinn og að- eins ein fjölskylda er eftir á ísafirði en hún mun vera að huga að flutningi á höfuðborgarsvæðið. Fram kemur í frétt annars staðar í blaðinu að með- limir fyrsta hópsins hafa nú fengið íslensk vegabréf og fá ríkisborgara- rétt í júlí. gar@frettabladid.is Meiraprófsnámskeið • leigubifreið • vörubifreíð • hópbifreið Í81 kT; I BtlL'Í E V'i l'l AUKIN ÓkURrTTINDM LEICUBiFREID - VÖRUBIFREID - HÖPBIFREID BÓKABÚOIH MJÓDD »5771130 SÓKABÚ0IN HAMRABORG » 554 0877 $ kTTFö i i é »511 1160 Mikiö úrval af ferðatöskum landakortum og ferðabókum í sumarfríið.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.