Fréttablaðið - 09.05.2001, Page 14
FRETTABLAÐIÐ
9. maí 2001 MiÐVIKUDACUR
HVERNIC FER?
Seinni leikur Real Madrid
og Bayern Múnchen?
ÁSGEIR
SIGURVINSSON:
„Leikurinn getur farið á
báða bóga en Bayern
vinnur. Það er vel skipu-
lagt lið sem vex í þeim
leikjum sem þarf. Leikur-
inn fer annaðhvort 2-0
eða 2-1. Elber og Scholl
verða á skotskónum."
AUÐUF. SKÚLADÓTTIR,
KNATTSPYRN UKONA:
„Markið sem Bayern skor-
aði á útivelli er það dýrt
að liðid fer ekki að tapa
því. Það er vel skipulagt í
varnarieik. Leikurinn á
annaðhvort eftir að enda
I markalausu jafntefli eða
með sigri Bayern, 1-0."
|knattspyrna|
Guðni Bergsson var útnefndur
leikmaður ársins hjá enska 1.
deildarfélaginu Bolton Wanderers,
annað árið í röð.
Guðni fékk stóran
bikar að launum og
tók við honum fyrir
leik Bolton og
Sheffield United í
lokaumferð 1.
deildarinnar á
sunnudaginn.
Guðni hefur leikið
vel með Bolton í vetur sem fyrirliði
liðsins. Það hafnaði í þriðja sæti 1.
deildar og mætir WBA í undanúr-
slitunum um sæti í úrvalsdeild. Þá
var Guðni útnefndur leikmaður árs-
ins af helstu styrktaraðilum, leik-
mönnum og stuðningsmönnum liðs-
ins. Mbl.is greindi frá.
Tveir leikmanna rúmenska liðsins
Universitatea Craiova hafa verið
reknir frá félaginu í kjölfar hörmu-
legrar frammistöðu í leik liðsins
gegn Otelul um helgina. Þeir stóðu
sig svo illa að einn stjórnarmanna
hafði það á orði að frammistaða
þeirra hefði verið hrein og klár til-
raun til að hjálpa hinu liðinu. Mikil
ólga er í rúmenskri knattspyrnu um
þessar mundir. Leikmenn eru
sektaðir til hægri og vinstri fyrir
slaka frammistöðu og áhorfendur
eru hættir að mæta á leiki. DV
greindi frá.
Hermann Hreiðarsson og félagar
hans í Ipswich sigruðu
Manchester City á heimavelli á
þriðjudagskvöld
með tveimur mörk-
um gegn einu.
Þetta voru ekki
góðar fréttir fyrir
Manchester City,
sem féll í kjölfarið
niður í fyrstu deild.
Þó mikið gerðist í
leiknum var fyrsta
markið ekki skorað fyrr en á 74.
mínútu. Það var Shaun Goater sem
skoraði fyrir City. Ipswich tók þessu
ekki þegjandi, Matt Holland skoraði
á 78. mínútu og Martin Reuser á 84.
mínútu. Hermanni var skipt út af á
63. mínútu. Ekki eru allir sáttir við
fall City: „Það er synd ef Manchest-
er City fellur niður um deild. Það á
það ekki skilið/' sagði Bjarni Felixs-
son íþróttafréttamaður í samtali við
Fréttablaðið um daginn.
I^A er ekki eina liðið sem neyðist
til að selja hluta æfingavalla
sinna til að halda sér á floti. Real
Madrid seldi yfirvöldum í Madrid á
mánudag æfingasvæði sitt til að slá
á tæplega 25 milljarða króna skuld-
ir félagsins. Talið er að verðmæti
svæðisins sé allt að 40 milljarða
króna virði. Minnihlutinn í borgar-
stjórn mótmælti ráðahagnum mjög.
Félagið á að taka sitt hafurtask
saman og flytja starfsemi sína árið
2004. Þá er áætlað að nýtt og enn
fullkomnara svæði verði tilbúið.
Á gamla svæðinu eiga fjórar 45
hæða skrifstofubyggingar að rísa,
tvær þeirra verða á snærum Real
Madrid. Borgin ætlar einnig að
byggja glænýjan, 20 þúsund áhorf-
enda, völl og nota hann sem beitu
fyrir Ólympfunefndina en Madrid
sækir um að halda Ólympíuleika
árið 2012.
Tveir leikir í undanúrslitunum í kvöld:
„NBA, ekki fjölbragðaglíma."
nba Philadelphia 76ers eru eflaust
ekki sáttir með hvernig fyrsti leikur
liðsins og Toronto Raptors í undan-
úrslitum austurstrandarinnar fór á
sunnudaginn. Toronto vann leikinn
mjög naumt, með 96 stigum gegn 93
stigum Philadelphia. Þetta er ekki
ákjósanlegt upphaf í einvígi og
Philadelphia verður að mæta sterkt
til leiks í kvöld til að lendá ekki
tveimur sigrum undir.
Dallas Mavericks mæta San Ant-
onio Spurs einnig í kvöld í þriðja
leik liðanna í undanúrslitum vestur-
strandarinnar. Dallas þarf að bíta í
það súra epli að vera tveimur sigr-
um undir eftir tap á móti Spurs á
mánudagskvöld. Þeir voru einnig í
þessarri stöðu á móti Utah Jazz á
dögunum og sneru henni sér í vil. Þá
þurftu þeir hinsvegar ekki að mæta
einbeittum Tim Duncan og liðs-
mönnum hans í hefndarhug. Duncan
mætti til leiks á mánudagskvöld
með svitaband með upphafsstöfum
Derek Anderson á, skoraði 25 stig
og tók 22 fráköst. San Antonio vann
leikinn með 100 stigum á móti 86.
Derek Anderson fór úr axlarlið í
leik liðanna á laugardaginn þegar
Juwan Howard braut harkalega á
honum. Hann spilar að öllum líkind-
um ekki meira 1 úrslitakeppninni.
„Við ætlum að vinna leikinn, ekki að
hefna okkar,“ sagði Tim Duncan
fyrir leikinn. Stuðningsmenn Spurs
voru hinsvegar á öðru máli, bauluðu
stíft á Howard í hvert skipti sem
hann kom nálægt boltanum og öskr-
uðu: „Þetta er NBA-deildin, ekki
fjölbragðaglíma.“ ■
DANGLAÐ I DÓMARANN
Þjálfari San Antonio Spurs, Gregg
Popovich, var ekki sáttur þegar dæmd var
villa á Danny Ferry í leiknum á móti Dallas
Mavericks á mánudaginn. Popovich var
útilokaður frá leiknum fyrir uppátækið .
SÖNN SIGURGLEÐI
Giovane Elber fagnar hér ásamt Roque Santa sigurmarki þess síðarnefnda gegn Leverkusen um síðustu helgi.
„Sterkastir undir pressu“
Bayern tekur á móti Real í kvöld. Þjálfarinn Omar Hitzfeld segir “lífshættulegt” að stefna á jafntefli.
knattspyrna Bayern Munchen vann
Real 1:0 á Santiago Bernabeu fyrir
viku og dugir liðinu því jafntefli í
heimaleiknum til að komast á San
Siro. Þjálfarinn Ottmar Hitzfeld er
þó á þeirri skoðun að „lífshættu-
legt“ sé fyrir Bayern að stefna á
jafntefli, þeir verði að fara í leikinn
með sigurhugarfari. „Við verðum að
skora eitt eða tvö mörk,“ sagði Hitz-
feld, en liðið hefur ekki tapað í síð-
ustu 21 Meistaradeildarleikjum á
Heimsmeistarakeppnin í
snóker:
36 milljóna
snókerspil
snóker Bretinn Ronnie O'Sullivan er
nýkrýndur heimsmeistari í snóker.
O'Sullivan, sem er 25 ára, hefur ver-
ið talinn hæfileikaríkasti snókerspil-
arinn um nokkurt skeið og það sann-
aði hann þegar hann vann titilinn í
fyrsta skipti á mánudaginn. Bretar
hafa ekki unnið mótið í 10 ár. Fyrir
vikið fékk hann tæpar 36 milljónir
króna.
í úrslitaleiknum vann O'Sullivan
fyrrum heimsmeistarann John Higg-
ins 18-14 Crucible Theater í London.
Sá sem fyrri var til að vinna „18
ramma taldist sigurvegari. Seinni
dagur einvígisins var æsispennandi.
O'Sullivan var yfir 10-6 að morgni
dags en Higgins veitti honum harða
keppni og sleppti titlinum ekki auð-
veldlega. Stephen Hendry, sem hefur
unnið sjö sinnum og var talinn mjög
sigurstranglegur, var sleginn út í 8
manna úrslitum af Matthew Stevens.
Stevens, sem lenti í öðru sæti í fyrra,
var síðan slegin út af Higgins.
Heimsmeistarakeppnin stóð yfir í 17
daga.
Snókerspilarar hér heima hafa
nóg á sinni könnu þessa dagana. Bæði
að fylgjast með heimsmeistara-
keppninni og einnig íslandsmótinu í
Ólympíuleikvanginum í Munchen.
Bayern liðið var í vörn mestallan
leikinn í síðustu viku og lék agaðan
leik eins og þeim einum er lagið.
Ekki er verra fyrir Real að svo
gæti farið að tveir helstu miðvallar-
leikmenn Bayern leiki ekki með.
Ljóst er að Stefan Effenberg verður
í banni í kvöld og tvísýnt er um
hvort Mehmet Scholl nái sér af
meiðslum fyrir Ieikinn. „Hver
klukkustund, hver mínúta skiptir
snóker, sem var haldið að hluta til um
síðustu helgi. Kristján Helgason, sem
er í 69. sæti á heimslistanum, vann
Jóhannes B. Jóhannesson 7-3 í undan-
úrslitunum og Jóhannes R. Jóhannes-
máli fyrir Mehmet," sagði Hitzfeld.
Scholl tók þátt í hlaupaæfingu í gær,
en líklega kemur ekki endanlega í
ljós hvort hann verður með fyrr en
rétt fyrir leik. „Við erum alltaf
sterkastir þegar pressan er mest á
reynir," sagði harðjaxlinn Oliver
Kahn, og hafði ekki miklar áhyggj-
ur af stöðu mála.
Hjá Real Madrid er það að frétta
að Fernando Morientes kemur lík-
lega aftur inn eftir meiðsli og leikur
son vann Ingva Halldórsson í spenn-
andi leik, 7-6. Kristján og Jóhannes
mætast í sjálfum úrslitaleiknum í
Snókerstofunni Lágmúla 5 næstkom-
andi laugardag. ■
þá við hlið Raul Gonzales sem ein-
nig var smávægilega meiddur.
Steve McManaman verður með og
sagðist vona að Bayern léki ekki
„jafn aftarlega og það gerði í Ma-
drid ... þá verður ekki auðvelt fyrir
okkur að skora.“ McManaman taldi
ekki að 3:0 ósigur Real gegn Celta
Vigo um síðustu helgi myndi ræna
liðið sjálfstraustinu. „Leikirnir
tengjast ekkert,“ sagði miðvallar-
leikmaðurinn. ■
MOLAR
Astralska knattspyrnusambandið
hefur áhyggjur stuðningsmön-
num liða þar í landi. Þeir eru oft upp-
teknir af uppruna sínum. Róttækum
hópum fótboltabulla hefur fjölgað.
Einn þeirra eru stuðningsmenn Mel-
bourne Knights, sem eru af króatísku
bergi brotnir. Á sunnudaginn réðust
þeir á Bobby Despotevski, leikmann
Perth Glory sem var að leika á móti
Melbourne. Hann er Serbi og heilsaði
stuðningsmönnunum að serbneskum
sið í leiknum. Þeir réðust harkalega
að honum og þjálfara Perth eftir
leikinn. „Það gengur ekki að ævaforn
stríð úr púðurtunnunni á Balkanskaga
séu háð á knattspyrnuleikjum í Ástr-
alíu,“ sagði David Hill, formaður
knattspyrnusambandsins.
Einn lést og 39 slösuðust á sunnu-
daginn þegar slagsmál brutust út
á milli stuðningsmanna tveggja af
sterkustu knattspyrnuliðum Fíla-
beinsstrandarinnar í höfuðborginni
Abidjan. Rétt fyrir lok fyrri hálfleiks
skoruðu ASEC Mimosas sitt annað
mark. Stuðningsmenn Africa Sports
voru ekki par hrifnir af því og hentu
flöskum og steinum inn á völlinn. Þá
byrjuðu slagsmálin og urðu þau mjög
hörð. Það tók lögreglu og sjúkraliða
40 mínútur að róa mannskapinn niður
og gera að hinum slösuðu. Þá hélt
leikurinn áfram. Þetta er í þriðja
skipti sem áhorfendur knattspyrnu-
leikja í Afríku láta lífið á rúmum
mánuði. 11. apríl dóu 43 í Suður Afr-
íku og 29. apríl dóu átta í Kongó.
DÚBL(HORN
Ronnie O'Sullivan er ung snókerstjarna. Snókerspilarar hérlendis hafa þó meiri áhuga á
(slandsmótinu, en úrslitaleikurinn fer fram næstkomandi laugardag.