Fréttablaðið - 16.05.2001, Side 7

Fréttablaðið - 16.05.2001, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 16. maí 2001 FRETTABLAÐIÐ 7 Fiðluleikari segir Saccani á nýrri vinnuáætlun: Allt mjög dularfullt sinfónían „Við höfum ekki fengið nein- ar upplýsingar," segir Hildigunnur Halldórsdóttir, önnur fiðla og formað- ur starfsmannafélags Sinfóníuhljóm- sveitar íslands, um málefni aðalstjórn- anda hljómsveitarinnar, Rico Saccanis. Hvorki hefur sést tangur né tetur af Saccani síðan hann yfirgaf landið í fússi í byrjun mars. Hildigunnur segir hljóðfæraleikar- ana hafa fengið nýja vinnuáætlun í hendurnar og að þar sé nafn Saccanis tilgreint eins og ekkert hafi í skorist. Það virðist ekki enn hafa verið fund- inn staðgengill fyrir Saccani. Stjórn Sinfóníunnar hefur ítrekað sagt aðal- stjórnandann óvinnufæran vegna veikinda en í Morgunblaðinu í gær er hann hins vegar sagður við störf í Búdapest. „Við viljum sem starfsmenn fyrir- tækisins verða fyrst til að fá að vita hvað er að gerast og höfum beðið stjórn hljómsveitarinnar um það,“ seg- ir Hildigunnur, sem telur brotthvarf Saccani óheppilegt: „Starfssamningur hans rennur ekki út fyrr en eftir ár og því hefði verið eðiilegt að ljúka því tímabili í vinsemd. Það er óþægilegt að það líði svona lang- ur tími án þess að nokkur viti neitt því þá fara alls konar getgátur af stað og málið verður allt mjög dularfullt." Saccani hefur ekki svarað skilaboð- um Fréttablaðsins. gar@frettabladid.ís í ÓVISSU Hvorki hefur sést tangur né tetur af Rico saccani, aðalstjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Islands síðan hann fór í fússi i byrjun mars. Utanríkisráðuneyti: Egill aðstoðar Halldór stjórnmál. Egill Heiðar Gíslason hef- ur verið ráðinn aðstoðarmaður Hall- dórs Ásgrímssonar, utanríkisráð- herra, og hefur hann tekið til starfa. Undanfarin 11 ár hefur Egill Heið- ar gegnt starfi framkvæmdastjóra Framsóknarflokks- ins. Hann er 42 ára og lauk prófi frá egill heiðar Samvinnuskóianum gíslason á Bifröst árið 1978 og stundaði nám við Lýðháskólann í Gautaborg. Skuggahverfið ekki skipulagt sem ein heild Borgarstjóri segir hugmyndir um niðurrif 40 húsa ganga of langt. íbúi í hverfinu segir að borgaryfirvöld þurfi að koma hreint fram í málinu. HUGMYNDIR UM NIÐURRIF HÚSA við skipulag Skuggahverfisins. Hann sagði að sú óvissa sem nú ríkti um framtíð svæðisins milli Lindargötu og Hverfisgötu væri mjög bagaleg fyrir íbúana, t.d. væri nánast ómögulegt fyrir þá sem vildu eða þyrftu að selja sínar íbúðir að gera það. Fasteigna- markaðurinn á reitnum væri dauður. Orri sagði að vegna þessa væri brýnt að borgin kæmi hreint fram við SKIPULAGI SKUGGAHVERFISINS SKIPT í TVENNT Borgarstjóri segir mikilvægt að ráðast 1 framkvæmdir á svæðinu milli Lindargötu og Skúlagötu fljótlega, en að endurskoða þurfi hug- myndir um skipulag reitsins mili Lindargötu og Hverfisgötu. íbúana. Þeir vissu í raun lítið annað en að byggja ætti á auðu lóðunum milli Lindargötu og Skúlagötu. Hann sagði að frá byggingarsögulegu sjónarmiði þætti svæðið nú ekki ýkja merkilegt, þar sem megináherslan undanfarin ár hefði verið lögð á að vernda heildstæð hverfi í borginni, en að í Skuggahverf- inu væri að finna blandaða byggð með húsum frá ýmsum tímabilum bygg- ingarsögunnar. Orri sagði að bygging- arsögulegt gildi svæðisins gæti samt hæglega breyst eftir 10 til 20 ár, menn þyrftu því að horfa til framtíðar við skipulagningu svæðisins. Nikulás Úlfar Másson, deildar- stjóri húsadeildar Árbæjarsafns, sagði að þegar gert hefði verið varð- veislumat fyrir núverandi byggð á svæðinu hefði komið í ljós að mögu- leiki væri á frekari uppbyggingu þar. Hann sagði að farið hefði verið vand- lega yfir málið og að menn hefðu komist að þeirri niðurstöðu að breytt skipulag á svæðinu gæti orðið varð- veislu gamalla húsa í austurbænum til framdráttar. Skapað sérstöðu fyr- ir önnur gömul hús í nágrenninu, sem gæti leitt til þess að þau yrðu gerð upp, en hann sagði að mörg þeirra væru í frekar slæmu ásigkomulagi. Að sögn Nikulásar Úlfars voru 11 hús á Lindargötu flutt þaðan fyrir um 10 árum og sagði hann að það hefði eyði- lagt heildarmynd svæðisins. traustijfrettabladid.is skipulagsmál. Horfið hefur verið frá þeirri hugmynd að skipuleggja Skuggahverfið sem eina heild vegna áberldinga frá íbúum. Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir borgarstjóri sagði að ákveðið hefði verið að skipta svæð- inu í tvennt. Deiliskipulag fyrir reit- inn sem afmarkast af Lindargötu, Klapparstíg, Skúlagötu og Frakkar- stíg, yrði væntanlega tilbúið í sumar, en endurskoða þyrfti þær hugmyndir sem verið hefðu uppi um skipulag á reitnum sem afmarkast af Hverfis- götu, Klapparstíg, Lindargötu og Frakkarstíg, en ráðgert hafði verið að rífa 40 hús á því svæði. Ingibjörg Sólrún sagði að ákvörð- un þessa efnis hefði verið tekin í síð- ustu viku, þar sem hugmyndin um niðurrif 40 húsa hefði þótt of róttæk. Hún sagði hins veg- —♦— ar mjög mikilvægt að ráðast í fram- kvæmdir á svæð- inu milli Lindar- götu og Skúlagötu eins fljótt og unnt væri, enda ríkti til- tölulega góð sátt um framtíðarskipu- lag þess svæðis, þar sem það væri að stórum hluta óbyggt. Orri Vésteins- son, fornleifafræð- ingur og íbúi á Veg- húsastíg, sagði enn ýmislegt vera óljóst í tengslum Hann sagði að sú óvissa sem nú ríkti um framtíð svæðis- ins milli Lindar- götu og Hverfis- götu væri mjög bagaleg fyrir íbúana, t.d. væri nánast ómögu- legt fyrir þá sem vildu eða þyrftu að selja sínar íbúðir að gera það. ■ Klapparstígur 9, 13, 17 ■ Lindargata 22a, 24a, 29, 28, 30, 34, 36, 40, 42, 44, 46 (Gamla Rikið), 48, 49 ■ Vatnsstígur lOa, 11, 12, | LÖGREGLUFRÉTTIR ] Tveir lögreglumenn voru á vakt á Patreksfirði þegar ólæti brutust út á milli tveggja hópa um helgina. Þegar lögreglan kom á vettvang var búið að vinna skemmdarverk á húsi þar sem annar hópurinn hafðist við. Hún náði að skakka leikinn og stilla til friðar. Enginn var handtekinn enda ekki á valdi tveggja manna að ráða við æstan hóp unglinga. —♦— Mikil stemning var yfir Húsavík aðfaranótt sunnudags vegna Eurovision keppninnar að sögn lög- reglu. Síðasta sætið virtist ekki fara í skapið á Húsvíkingum, sem skemmtu sér án afskipti lögreglu þá nóttina. Einn stútur var þó tekinn undir stýri. STUTT Borgarráð hefur samþykkt að taka tilboði þriggja lægstbjóð- enda í malbiksyfirlagnir samkvæmt útboði. Samkvæmt því var tekið til- boði Hlaðbæjar Colas fyrir tæpar 85 milljónir króna, tilboði Malbikunar- stöðvarinnar Höfða fyrir rétt rúmar 84 milljónir króna og Loftorku Reykjavík fyrir 87,5 milljónir króna. —#— Borgarráð hefur samþykkt að taka tilboði lægstbjóðenda Jarð- krafts í lagningu gangstíga sam- kvæmt útboði. Tilboðið nemur um 40,5 milljónum króna. Alls tóku fjögur fyrirtæki þátt í þessu útboði. Herbalife Haföu samband við mig ef þig vantar vörur Eyrún Anna Einarsdóttir sjálfstæður Herbalife dreifingar aðili sími 8616837 visa - euro ■ Hverfisgata 39,43, 55 ,57, 59 (Ríkey), 61 (Lúllabúð) ■ Veghúsastigur 3, 5 (Leikskólinn Lindarborg - áður bókaútgáfan Helgafell), 7 (Bakhús söngskólans). ■ Auk þessara húsa var ráðgert að rífa nokkur bakhús á svæðinu. www.firmaskra.is Fjölbreyttur matseðill alla daga! f^fsKUR. Hollt og huggulegt í hádeginu! kr. 980.- Súpa og salat krl290- Hádegishlaðborð + súpa og salatbar alla virka daga ----- S I N C E 1 9 6 6 - SUÐURLANDSBRAUT Simi: 553 9700

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.