Fréttablaðið - 16.05.2001, Side 18
18
FRÉTTABLAÐIÐ
16. maí 2001 MIÐVIKUDACUR
Félag íslenskra fræða:
Klassík
Norðursins
bókmenntir í kvöld flytur Gauti
Kristmannsson þýðingarfræðingur
erindi á rannsóknarkvöldi Félags ís-
lenskra fræða í Sögufélagshúsinu í
Fischersundi. Gauti ætlar að fjalla
um það hvernig enskur biskup og
ballöðusafnari, Thomas Percy, tók
norrænar bókmenntir með skipuleg-
um hætti inn í enskar bókmenntir.
Þetta er aðeins eitt dæmi af mörgum
um það hvernig klassískar bók-
menntir norðursins hafa verið notað-
ar til þess að byggja upp bókmennta-
arf í Englandi, Þvskalandi og Dan-
mörku, eins og Arni Björnsson og
Óskar Bjarnason hafa skrifað um ný-
iega. Gauti Kristmannsson hefur ný-
lega lokið doktorsritgerð um þátt
þýðinga í tilurð þjóðarbókmennta í
Bretlandi og Þýskalandi á árunum
1750-1830. ■
JIM BLACK
Þekktur djasstrommuleikari sem hefur
starfað mikið með Skúla Sverrissyni.
Djasstónleikar:
Jim Black í
Tjarnarbíói
tónleikar Djasstrommuleikarinn Jim
Black kom hingað til lands fyrir
þremur árum og hélt þá tónleika í
Loftkastalanum. Nú er hann kominn
aftur og verður heldur betur í stuði í
Tjarnarbíói í kvöld ásamt þeim Hilm-
ari Jenssyni, Skúla Sverrissyni og
Chris Speed. Jim Black hefur spilað
djass í meira en tvo áratugi og leikið
inn á fjöldann allan af hljómplötum
sem unnendur nútímadjass ættu að
kannast vel við. Þeir Jim Black, Chris
Speed og Skúli Sverrisson bassaleik-
ari hafa lengi starfað saman ásamt
Brad Shepik í hljómsveitinni
Pachora, sem sækir innblástur sinn í
tónlist frá Balkanskaga. ■
Varnarsamstarf í 50 ár:
Ljósmynda-
sýning
uósmynpiw í gær var opnuð í Lands-
bókasafni íslands - Háskólabókasafni
sýning í tilefni þess að 50 ár eru liðin
frá gerð varnarsamnings íslands og
Bandaríkjanna. Sýningin stendur til
6. júní, og hana er hægt að skoða á
opnunartíma Þjóðarbókhlöðu mánu-
daga til fimmtudaga kl. 8.15-22,
föstudaga kl. 8.15-19, laugardaga kl.
9-17 og sunnudaga kl. 11-17. Henni
fylgir ítarleg sýningarskrá, sem má
einnig skoða á vefsetri utanríkis-
ráðuneytisins, www.utanrikisradu-
neytid.is undir „Nýtt“. ■
Opinn fyrirlestur:
Þegar
foreldri deyr
félacsráðcjöf í dag mun dr. Phyllis R.
Silverman halda fyrirlestur á vegum
félagsráðgjafar við Háskóla íslands í
stofu 101 Odda kl. 17 - 18:30. Dr. Sil-
verman fjallar um hlutverk og stöðu
þess foreldris sem missir maka sinn
frá ófullveðja börnum. Foreldrið
þarf að hjálpa börnum sínum að syrg-
ja hið látna foreidri jafnframt því að
takast á við eigin sorg. Dr. Silverman
mun kynna niðurstöður rannsókna
um þessi mál og hvernig best sé að
aðstoða foreldra við að aðlagast
breyttum aðstæðum. ■
LYFTISTÖNG FYRIR ÞJÓÐFÉLAGIÐ
Halldór Gíslason arkitekt og nýráðinn
deildarforseti hönnunardeildar Listahá-
skóla íslands telur brýnt að huga að
umhverfismálum á íslandi, allt frá hinu
smæsta til hins stærsta.
MIÐVIKUDAGURINN
16. MAÍ
FUNDUR______________________________
17.00 Dr. Phyllís R. Silverman heldur
fyrirlestur á vegum félagsráðgjafar
við Háskóla íslands í dag í stofu
101 Odda með yfirskriftinni:
„When a Child's Parent Died: The
Role of the Surviving Parent" Dr.
Silverman fjallar um stöðu þess
foreldris sem missir maka sinn frá
ófullveðja börnum. Foreldrið þarf
að hjálpa börnum sínum að syrg-
ja hið látna foreldri jafnframt þvi
að takast á við eigin sorg. Dr. Sil-
verman mun kynna niðurstöður
rannsókna um þessi mál og
hvernig best sé að aðstoða for-
eldra við að aðlagast breyttum
aðstæðum.
20.00 Foreldrafélag misþroska barna
stendur fyrir fræðslufyrirlestri í
kvöld. Sólveig Sigurðardóttir
barnalæknir fjallar um greiningu á
athyglisbresti með ofvirkni / mis-
þroska og fyrstu skrefin eftir hana.
Fyrirlesturinn verður haldinn í
safnaðarheimili Háteigskirkju,
gengið inn frá bílastæðinu. Að fyr-
irlestri loknum svarar Sólveig
spurningum og almennar um-
ræður verða. Aðgangur er ókeypis
og öllum heimill.
20.30 Rannsóknarkvöld Félags ís-
lenskra fræða er í kvöld í Sögu-
félagshúsinu í Fischersundi.
Gauti Kristmannsson, þýðingar-
fræðingur, flytur erindi sem nefn-
ist Klassík norðursins: Nýting nor-
rænna bókmennta til byggingar
þjóðararfs.
TÓNLEIKAR___________________________
20.00 Tíbrá söngtónleikar eru f kvöld.
Fram kemur kanadfska sópran-
söngkonan Carole Davis og
Harold Brown píanóleikari. Flutt
verða sönglög eftir Mozart, Fauré,
Wlahler og Barber auk Islenskra
sönglaga. Að auki mun Harold
Brown leika verk eftir Mozart og
Brahms.
21.00 Jasstónleikar verða í Tjarnarbíói í
kvöld með jassaranum Jim Black
en hann kom hingað til lands fyrir
þremur árum síðan og hélt þá
tónleika í Loftkastalanum. Með
honum leika þeir Hilmar Jens-
son, Skúli Sverrisson og Chris
Speed. Aðgangseyrir er 1.500 kr.
og er forsala miða í 12 tónum.
22.00 Hljómsveitin Jagúar spilar gamalt
og nýtt efnir á Gauki á Stöng í
kvöld.
LEIKHÚS_____________________________
20.00 Feðgarnir Árni Tryggvason og
Örn Árnason verða með sýningu
á Feðgar á ferð en þeir eru höf-
Hönnunardeild Listaháskóla Islands:
Öðruvísi vinna í hönnun en myndlist
ustaháskóli isLANPS Halldór Gíslason
arkitekt verður deildarforseti hönn-
unardeildar Listaháskóla íslands en
rektor Listaháskóla íslands hefur ný-
verið ráðið í stöðuna.
Halidór lauk M.A. prófi í arki-
tektúr frá háskólanum í Portsmouth í
Englandi árið 1979. Eftir það lagði
hann stund á listasögu, heimspeki og
táknfræði við háskólann í Bologna á
Ítalíu veturinn 1979-80 og nam heim-
speki við Háskóla íslands 1980-82.
Halldór starfaði hjá ýmsum arkitekt-
um samhliða námi og árið 1980 stofn-
aði hann arkitektastofu sem hann rak
fyrst einn og síðar með öðrum. Árið
1993 var Halldór ráðinn kennari við
arkitektadeild háskólans í Ports-
mouth þar sem hann hefur starfað
síðan, samhliða sjálfstæðri starf-
semi.
í umsögn dómnefndar um hæfi
umsækjenda segir um Halldór: „Verk
umsækjanda á sviði arkitektúrs og
hönnunar bera með sér að höfundur-
inn hefur alla tíð verið frjór í vinnu
sinni og fús til að taka listræna
áhættu fremur en að feta örugga slóð
fastmótaðra höfundareinkenna. Um-
sækjandi er í hópi merkari arkitekta
sinnar kynslóðar hér á landi og hefur
á aldafjórðungs starfsferli náð að
móta framvindu íslenskrar bygging-
arlistar með verkum sínum.“
Hönnunardeildin er nýstofnuð en
hönnunargreinar hafa verið kenndar
á hönnunarsviði myndlistardeildar
Listaháskólans. „Það er lyftistöng
fyrir skólann að hafa sérstaka hönn-
unardeild," segir Halldór Gíslason.
„Við vinnum öði’uvísi en „fine art“
liðið þótt margt sé að sjálfsögðu líkt í
vinnuaðferðum."
Viðræður um samvinnu Listahá-
skólans og Háskóla íslands um nám
í arkitektúr hafa staðið að undan-
förnu og Halldór telur að þess sé
ekki langt að bíða að hægt verði að
stunda þetta nám hér. „Það er stutt
bil milli vöruhönnunar og bygginga-
hönnunar,“ segir hann og bendir á að
hugafarið sé hið sama, unnið sé eftir
ákveðnum ramma eða fyrir ákveð-
inn markhóp.
Kanadísk söngkona
af íslenskum ættum í
Salnum:
Islensk
kímnigáfa
virkar ekki
í Kanada
tónleikar í kvöld verður kanadíska
söngkonan Carole Davis með tón-
leika í Salnum í Kópavogi ásamt
Harold Brown píanóleikara. Hún er
af íslensku bergi brotin, á rætur að
rekja til Sauðárkróks og Akraness.
Undirleikari hennar hefur auk þess
haft löng kynni af íslensk-kanadísku
samfélagi en fyrstu kennararnir
hans voru einmitt íslendingar.
Carole Brown ætlar að syngja lög
eftir Mozart, Fauré, Mahler ásamt
tveimur kanadískum lögum við ljóð
eftir haida-indjána. Einnig syngur
hún átta íslensk lög eftir Sigfús Hall-
dórsson, Jórunni Viðar, Jón Ásgeirs-
son og Jón Nordal.
„Mér finnst ég sýna mikið hug-
rekki með því,“ segir hún og hlær
við. Hún er vön að syngja á fi'önsku
og þýsku auk enskunnar, en íslensku
kann hún ekki þrátt fyrir upp-
runann. „Ég þekkti sum þessara laga
fyrir, en hef lært nokkur ný,“ segir
hún.
„Ég held að foreldrar mínir hafi
verið mjög íslensk í háttum, því hér
kemur fólk mér mjög kunnuglega
fyrir sjónir. Kímnigáfan er kunnug-
leg, en það er kímnigáfa sem virkar
ekki vel i Kanada. Faðir minn var
fyndinn á mjög íslenskan hátt og
þegar ég er hér þá líður mér mjög
vel. íslensku lögin finnst mér auk
þess áhugaverð vegna þess að ég á
auðvelt með að skilja tilfinningarnar
í þeim. Þau fjalla ekki svo mjög um
rómantíska ást heldur frekar um
sumarkomu, náttúruna og börnin. Ég
ólst upp við það með vissum hætti.“
Carole stundaði söngnám við
Frankfurter Musikhochshule og síð-
an í Vancouver, Victoria og Banff
School of Fine Arts. Hún hefur hald-
ið fjölda tónleika og hefur fengið af-
bragðs góða dóma enda er hún með
glæsilega sópranrödd.
Á síðasta ári hélt Carole í tón-
undar að verkinu. Sýningin fer
fram í kvöld í Iðnó.
20.00 Píkusögur eftir bandaríska leik-
skáldið Eve Ensier er sýnt í
kvöld. Verkið er byggt á viðtölum
leikskáldsins við konur, gamlar
konur og ungar, um þeirra leynd-
ustu parta, píkuna. Með aðalhlut-
verk fara Halldóra Geirharðs-
dóttir, Jóhanna Vigdís Arnar-
dóttir og Sóley Eliasdóttir.
20.00 I kvöld er sýning á leikritinu Með
fulla vasa af grjóti eftir Marie Jo-
nes ÍÞjóðleikhúsinu. Leikrltið
fjallar á gamansaman hátt um
samskipti írskra statista við fram-
leiðendur og leikarara stórrar
Hollywoodmyndar. Með aðalhlut-
verk fara þeir Stefán Karl Stef-
ánsson og Hílmir Snær Guðna-
son.
ÚTiVIST__________________________
20.00 Hafnagönguhópurinn stendur
fyrir gönguferð um Hafnarfjarð-
arhöfn í kvöld. Að venju verður
farið frá Hafnarhúsinu í Reykjavík,
Miðbakkamegin og síðan með Al-
menningsvögnum suður í Hafnar-
fjörð. Sjálf gönguferðin hefst á
mótum Flókagötu og Vesturgötu
kl. 20.40. Þar verður einnig hægt
að koma inn í gönguna. Gengið
verður um Hafnarsvæðið út að
Hvaleyrarlóni í fylgd Kristjáns
Bersa Ólafssonar. Allir eru vel-
komnir í ferð með Hafnagöngu-
hópnum.
SÝNINGAR___________________________
I Borgarskjalasafni Reykjavik, stendur
yfir sýning á skjölum og Ijósmyndum
tengdum verkalýðsbaráttunni í Reykjavík
á fyrri hluta 20. aldar. Á sýningunni eru
skemmtilegar og sjaldséðar Ijósmyndir
af fyrstu kröfugöngunni í Reykjavlk,
þann 1. maí 1923. Margir nafngreindir
þekktir íslendingar sjást á myndunum,
en Pétur Pétursson, þulur hefur unnið
að rannsóknum á Ijósmyndunum. Sýn-
ingin er á 6. hæð Grófarhúss, Tryggva-
götu 15 og er aðgangur ókeypis. Hún er
opin mánudaga til fimmtudaga kl. 10-
VERÐLAUNAHAFAR
Hér eru verðlaunahafar i báðum flokkum. Lengst til hægri er Ólafur Randver Stefánsson
höfundur Ijóðsins Dagur.
Ljóðabókin Vetur, sumar, vor og haust:
Ur hugarheimi barna
barnamenning Vetur, sumar vor og
haust heitir kver með ljóðum eftir
börn og unglinga á aldrinum 9 til 16
ára. Ljóðakverið er afrakstur ljóða-
samkeppni ungs fólks sem ber yfir-
skriftina Ljóð unga fólksins og geym-
ir 67 ljóð, þar af sex verðlaunaljóð,
þrjú í yngri flokki og þrjú í eidri.
Keppninni Ljóð unga fólksins var
hrundið af stað árið 1998 og er
keppnin nú í höndum Þallar sem er
samstarfshópur um barna- og ung-
lingamenningu á bókasöfnum og
Máls og menningar. í ár bárust vel á
annað þúsund ljóða til keppninnar.
Verðlaunahafar í yngri flokki
voru þau Snærós Sindradóttir 9 ára
sem hlaut fyrstu verðlaun fyrir ljóð
sótt Árstíðirnar, Ragnheiður Sjöfn
Reynisdóttir 10 ára var í öðru sæti
með ljóð sitt Ég vildi að ég færi og í
þriðja sæti var Ólafur Randver Stef-
ánsson 10 ára með ljóðið Dagur.
í eldri hópnum voru einnig veitt
þrenn verðlaun, Sigrún ísleifsdóttir
15 ára hlaut verðlaun fyrir ljóðið í
spegli, Gró Einarsdóttir var í öðru
sæti með ljóðið Trén og Hugrún
Geirsdóttir í þriðja sæti með ljóðið
Ég er.
Dagur
Mér leið vel í morgun
gott veður - rökkur.
Eg lagði af stað út í lífið
með löskuna mína.