Fréttablaðið - 16.05.2001, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 16. maí 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
19
Heildarútgáfa píanóverka Páls ísólfssonar á geisladisk:
Hugmynd orðin að veruleika
ceisladiskur Annar einleiksdiskur
Nínu Margrétar Grímsdóttur, píanó-
leikara, kemur út í dag á vegum
sænska hljómplötufyrirtækisins BIS
gramophone. Hann inniheldur fyrstu
heildarútgáfu frumsamdra píanó-
verka dr. Páls ísólfssonar. Diskurinn
fór á alþjóðlegan markað í apríl en
BIS gramophone er með dreifingu í
45 löndum þ.á.m. í Evrópu, Asíu,
Bandaríkjunum og í Kanada.
„Ég sendi útgefendunum BIS
DISKUR í DAG
Sænska hljómplötufyrirtækið BIS
gramophone gefur í dag út heildarútgáfu
frumsaminna pianóverka Páls ísólfssonar
sem Nína Margrét Grímsdóttir flytur.
gramophone hugmynd á blaði um að
hljóðrita heildarútgáfu af þessum
verkum en þeir höfðu áður gefið út
verk Jóns Leifssonar með Sinfóníu-
hljómsveit ísland. Útgefendurnir
leggja áherslu á útgáfu á verkum eft-
ir skandinavísk tónskáld og brugðust
þeir vel við og óskuðu eftir hljóðtöku
sem ég gerði í New York fyrir einu og
hálfu ári síðan. Þeir urðu mjög hrifn-
ir af verkum Páls og buðu mér að
hljóðrita í Svíþjóð í apríl á síðasta
ári,“ segir Nína Margrét.
Nína Margrét hefur leikið ein-
leiksverk Páls víða og kom m.a. fram
í Salnum í nóvember sl. í tónleikaröð
Tíbrá og hlaut góðar viðtökur gagn-
rýnenda.
Aðspurð um hvað væri framund-
an sagðist Nína Margrét þegar hafa
lokið við upptöku á nýjum geisladisk
fyrir Naxos hljómplötufyrirtækið
sem væri væntanlegur á markað í
júlí á þessu ári. „Diskurinn var hljóð-
ritaður á íslandi undir stjórn Hall-
dórs Víkingssonar og inniheldur
heildarverk Mendelssohn fyrir fiðlu
og píanó.
Núna er ég að vinna að doktorsrit-
gerð um Pál ísólfsson og svo er
aldrei að vita hvað gerist í haust,
hvort ég haldi svipaða tónleika og í
Salnum," sagði Nína Margrét að lok-
um.
Japis sér um dreifingu diskanna á
íslandi. ■
CAROLE DAVIS SÓPRANSÖNGKONA
Næstu þrjár vikurnar ferðast hún um
landið ásamt píanóleikaranum Harold
Brown og halda þau tónleika á Seyðis-
firði, Akureyri, Sauðárkrók og ísafirði, en
þau byrja í Kópavogi í kvöld kl. 20.
leikaferð um Bresku Kólumbíu,
Tyrkland og Austurríki. Hún kenn-
ir söng og er jafnframt stofnandi
og stjórnandi Delta Cantilena
barnakórsins.
20 og föstudaga til sunnudaga 13-17.
Sýningin stendur til 21. maí.
í Þjóðarbókhlöðu stendur yfir sýningin
sem ber heitið Þróun námsefnis á 20.
öld: Móðurmálið - náttúran - sagan
og er opin á opnunartíma safnsins.
Þetta mun vera í fyrsta sinn sem sett er
upp sýning af þessu tagi hér á landi.
Hún tekur til námsefnis fyrir skyldunám
og hafa verið valin sýnishorn námsbóka
í nokkrum greinum frá því um og eftir
aldamótin 1900, frá miðri öldinni og
loks frá síðustu árum. Sýningin stendur
til 31. maí.
Heimildir um siglingar íslendinga og
Grænlendinga til Vínlands og kristni-
töku á Alþingi víð Öxará fyrir þúsund
árum er að finna í þeim handritum sem
varðveitt eru á Árnastofnun, Árnagarði.
Einnig eru sýndir gripir af Þjóðminjasafni
sem tengjast upphafi kristni í landinu.
Sýningin stendurtil 15. maí.
i Byggðasafni Hafnarfjarðar standa yfir
sýningarnar Blóðug vígaferli og Götulíf
víkinganna í York . Um er að ræða
tvær sýningar, annars vegar endurgerð á
götu í víkingaþorpi þar sem hægt er að
sjá fólk við vinnu sína og hins vegar sýn-
ingu sem heitir „Skullsplitter" á frum-
málinu, þar má sjá beinagrind og haus-
kúpur víkinga sem féllu í bardögum. Á
sýningunni eru raunverulegar líkamsleif-
ar sem geta valdið óhug. Sýningin er
opin alla daga frá 13-17, kostar 300
krónur, frítt fýrir börn, unglinga og ellilíf-
eyrisþega. IVIiðin gildir einnig í hin hús
safnsins. Sýnigarnar standa til 1. októ-
ber.
Ljósmyndasýning grunnskólanema
stendur yfir í Gerðubergi. í vetur hafa
þeir unnið undir handleiðslu hugsjóna-
mannsins Marteins Sigurgeirssonar og
afraksturinn hangir á veggjum Gerðu-
bergs. Sumar myndanna eru Ijóðskreytt-
ar aðrar segja sjálfar allt sem segja þarf.
Sýningin stendur til 2. júní.
MYNDLIST
Anna Þ Guðjónsdóttir heldur sýningu á
málverkum í Listasal Man, Skólavörðu-
stíg 14. Salurinn er í kjallara verslunar-
innar Man. Sýningin stendur til 27. maí.
Jón Reykdai og Jóhanna Þórðardóttír
hafa opnað sýningu Listasafni ASÍ Ás-
mundarsal og Gryfju við Freyjugötu Jón
sýnir uppstillingar með ýmsum tilbrigð-
um og myndir þar sem konan er í önd-
vegi og Jóhanna sýnir myndir málaðar
með olíulitum á tré þar sem hún notar
einnig pappír semmhún mótar eða límir
niður. Opið alla daga nema mánudaga
frá 14.00-18.00 Aðgangur að sýningunni
er ókeypis. Sýningunni lýkur sunnudag-
inn 20.maí
Ropi er yfirskrift myndlistarsýningar sem
opnuð hefur verið í Nýlistasafninu. I
SÚM sal er Anna Líndal að velta fyrir
sér gjaldföllnu gildismati, í Gryfju safns-
ins sýnirólöf Nordal skúlptúr og gagn-
virk myndverk og í Forsal safnsins sýnir
Valka (Valborg S. Ingólfsdóttir) leirstyttur
og vatnslitamyndir.
Hlif Ásgrímsdóttir hefur opnað sýning-
una Innivera í Galleríi Sævars Karls. A
sýningunni eru vatnslitamyndir, Ijós-
myndir og skúlptúr. Þetta er fimmta
einkasýning Hlífar. Sýningin stendur til
23. maí.
Hrafnkell Sigurðsson hefur opnar sýn-
ingu á verkum sínum í galleríi i8,
Klapparstíg. Sýnd verða nýjustu verk
Hrafnkels af tjöldum í íslensku vetrar-
umhverfi. Sýningin er opin þriðjudaga til
laugardaga kl. 13-17 og stendur til 16.
júní.
1 Listasafninu á Akureyri stendur yfir
sýning á Ijósmyndum eftir hinn þekkta
franska Ijósmyndara Henri Cartier-
Bresson, en líklega hefur enginn átt
meiri þátt í því að gera Ijósmyndun að
viðurkenndri listgrein. Opið 14-18. Sýn-
ingin stendur til 3. júní.
í gallerí@hlemmur.is stendur yfir sýning
Erlu Haraldsdóttur og Bo Melin „Here,
there and everywhere". Á sýningunni
leika þau Erla og Bo sér að því að brey-
ta Reykjavík i fjölþjóðlega borg með
aðstoð stafrænt breyttra Ijósmynda.
Opið 14-18. Sýningin stendurtil 6. júni.
Á Kjarvalsstöðum stendur yfir sýning
norska listmálarans Odds Nerdrums,
sem baðst nýverið afsökunar á því að
hafa siglt undir fölsku flaggi með því að
kalla sig listamann. Sýningin er opin 10-
17 en til kl. 19 miðvikudaga. Sýningin
stendur til 27. maí.
Sjö olíumálverk er á sýningu Kristínar
Geirsdótturí Hallgrímskirkju. í
verkunum er lögð áhersla á krossinn,
þríhyrninginn og litinn en verkin voru
gerð sérstaklega fyrir þessa sýningu.
Sýningin er opin alla daga frá kl. 9-17.
Sýningin stendur til 20. maí.
„Heimskautalöndin unaðslegu" er heiti
sýningar sem lýsir með myndrænum
hætti lífi, starfi og hugsjónum Vestur-
íslendingsins Vilhjálms Stefánssonar.
Sýningin er um leið kynning á umhverfi,
menningarheimum og málefnum
norðurslóða, en hún er í Listasafni
Reykjavíkur - Hafnarhúsinu og er opin
10-17. Sýningin stendur til 4. júní.
„Á meðan eitthvað er að gerast hér, er
eitthvað annað að gerast þar" nefnist
sýning á vekum Bandaríkjamannsins
John Baldessari sem stendur yfir í
Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi.
Hann er eitt af stóru nöfnunum í samtí-
malistasögunni og hefur verið nefndur
Ijóðskáld hinnar öfugsnúnu fagurfræði
og húmoristi hversdagsleikans. Sýningin
er opin 11-18 og fimmtudaga til kl. 19.
Sýningin stendur til 17. júní.
Norðmaðurinn Gisle Nataas hefur
opnað sýningu á Mokka-kaffi við
Skólavörðustíg.
Sýninguna nefnir listamaðurinn Eitt
andartak og þrjár samræður og fjallar
hún um hreyfingu og rými. Ljós og
skugga. Sambandið á milli mynda og
samræðna og þau áhrif sem
hlutirnir hafa á rýmið.
i Listasafni Sigurjón Ólafssonar er sýn-
ing á verkum Sigurjóns sem spanna 30
ára tímabil í listsköpun hans. Sýndar eru
Ijósmyndir og verk í eigu safnsins, raun-
sæisverk, andlitsmyndir og abstrakt verk.
Fram til 1 júní er safnið opið laugardaga
og sunnudaga milli kl. 14 og 17.
Kaffístofa safnsins er opin á sama tíma.
Sýningin stendur til 1. júní.
Ásdís Kalmanheldur sýningu í
Listasalnum Man, Skólavörðustíg, á
abstrakt-málverkum sem hún hefur gert
á sl. tveimur árum. Þetta er hennar 4.
einkasýning.
EIN MYNDANNA Á SÝNINGUNNI
Tolli sækir myndefni sitt sem fyrr í íslenska náttúru.
Islensk menningarkynning í Berlín:
Sögurnar verða til
í ljósaskiptunum
mynplist Sýning á verkum Tolla verð-
ur opnuð í dag í stofnun Konrad
Adenauer í Berlín. Aðstandendur
sýningarinnar eru auk stofnunarin-
nar íslenska sendiráðið í Berlín.
Tolli, sem búsettur er í Berlín,
sýnir 40 olíumálverk sem unnin eru í
Þýskalandi. „Ég kalla sýninguna
Ljósið handan sjóndeildarhringsins
og dreg nafnið af tilraunum mínum
til að staðsetja mig í birtubrigðum
kvölds og morgna. Þar leik ég mér að
stemningunni sem einungis má finna
í ljósaskiptunum og ég leyfi mér að
kalla uppsprettu íslenskrar sagna-
gáfu því þar verða sögurnar til,“
sagði listamaðurinn.
Við opnunina munu Gyrðir Elías-
son rithöfundur og þýski leikarinn
Otto Sandler lesa úr verkum Gyrðis
og Sandler les einnig úr verkum Ein-
ars Más Guðmundssonar og nýtur
liðsinnis Sólveigar Arnardóttur. Arn-
dís Halla Ásgeirsdóttir sópran syn-
gur lög eftir ís-
lensk tónskáld.
í tilefni sýning-
arinnar hefur ver-
ið gefin út bók
með myndum af
verkum Tolla. Inn-
gangsorð í hana
rita Björn Bjarna-
son, menntamála-
ráðherra og dr.
Gúnter Rinsche, forstöðumaður Kon-
rad Adenauer-stofnunarinnar, auk
listamannsins sjálfs. í bókinni er ein-
nig grein eftir Aðalsteinn Ingólfsson
listfræðing um list og feril Tolla.
Texti bókarinnar er á ensku og
þýsku.
íslendingar sem eru á ferð í
Berlín ættu að líta við á í Konrad
Adenauer stofnuninni í Tiergar-
tenstabe 35, beint á móti íslenska
sendiráðinu. Sýningin stendur til 20.
júní. ■
LJÓÐ í LAGINU EINS OG TRÉ
Svanhildur Eiríksdóttir sýnir hér Ijóðið Trén eftir Gró Einarsdóttur.
Elsta íðorðanefnd landsins sextug:
Hafa smíðað rafmagnsorð í áratugi
iÐORÐASMÍÐ Orðin skjái', segulsvið,
rafiögn, spennistöð og tengill eru
eðlilegur hluti af máli okkar íslend-
inga og dags daglega leiðir líklega
enginn hugann að því hvaðan þau
koma. Ljóst er að þau hafa ekki alltaf
vei'ið til og enn ljósara að ef þessi orð
og ýmis önnur hefðu ekki verið búin
til þá þyrftum við að notast við er-
lend orð um þessa hluti.
Orðin góðu eru runnin undan rifj-
um elstu íðorðanefndar landsins,
Orðanefndar rafmagnsverkfræð-
inga, en í dag er fagnað sextugsaf-
mæli hennar. Nefndin hefur starfað
óslitið þessi 60 ár. Nefndin fundar að
jafnaði vikulega og standa fundirnir
yfirleitt upp undir þrjá tíma.
Nefndin hefur þó aðeins haft þrjá
formenn og þeir sem lengst hafa
starfað með henni hafa verið þar í 32
ár.
Orðanefnd i'afmagnsverkfræð-
inga eða Orðanefnd Rafmagnsverk-
fræðingadeildar Verkfræðingafélags
Islands, eins og hún heitir fullu nafni,
hefur gefið út 12 orðabækur og í
tölvuski'áðu safni orðanefndarinnar
er að finna um 12.000 íðorð á íslensku
og samsvarandi íðorð á þremur öðr-
um tungumálum. Stærsta hluta þessa
orðasafns er að finna á Orðabanka ís-
lenskrar málstöðvar á slóðinni
http/Avww.ismal.hi.is/ob.
Þótt oi'ðanefndin sé nú sextug á
hún rætur sem ná allt aftur til ársins
1919 en þá var orðanefnd Verkfræð-
ingafélagsins stofnuð. Fyrsta orða-
skrá yfir rafyrði birtist í Tímariti
Verkfræðingafélagsins árið 1920 og
sú næsta árið 1923. Þar voru birt í
fyrsta sinn mörg orð sem nú lifa góðu
lífi, svo sem jarðstrengur, rafstreng-
ur og rofi.
Oi'ðanefnd rafmagnsverkfræð-
inga hefur lagt drjúgan skerf til
íslenskrar tungu og fyrir það ber að
þakka. Ef hennar hefði ekki notið við
væri tungumálið án efa fátækara.
Verkefni hennar eru næg enn þann
dag í dag og ástæða til að ætla að hún
muni lifa góðu lífi lengi enn eða með-
an talin er þörf á að nota íslensk orð
yfir flest það sem nefnt er. ■