Fréttablaðið - 07.06.2001, Page 8
8
FRÉTTABLAÐIÐ
7. júní 2001 FIMMTUPACUR
FRETTABLAÐIÐ
Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjóri: Einar Karl Haraldsson
Fréttastjóri: Pétur Gunnarsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavik
Aðalsfmi: 515 75 00
Slmbréf á fréttadeildr 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Slmbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf.
Plötugerð: ÍP-prentþjónustan ehf.
Prentun: (safoldarprentsmiðja hf.
Dreifing: Póstflutningar ehf.
Fréttaþjónusta á Netinu: Vlsir.is
Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf-
uðborgarsvæðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn
greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta altt efni
blaðsins I stafrænu formi og 1 gagnabönkum
án endurgjalds.
| BRÉF TIL BLAÐSINS
alvörumAl
Skrifa þarf af þekkingu um býflugurnar og
ósonlagið.
Eyðing óson-
lagsins
Auður Ingólfsdóttir skrifar
umhverfi Bakþankar Þráins Bertels-
sonar, sem birtust í Fréttabréfinu í
morgun undir fyrirsögninni „Ósón-
Iagið og býflugurnar" lýsa svo mikilli
vanþekkingu að ótrúlegt er að blað
með virðingu skuli birta slíkt. Dálka-
höfundur er ekki að fara í felur með
að hann sé ekki alveg með þetta allt á
hreinu: „Efnafræðilega séð er ég nú
ekki með alveg á hreinu hvernig
þetta ósonlag virkar..." segir á einum
stað. Og nokkru síðar „Ég þori ekki
að fullyrða, án þess að ráðfæra mig
við sérfræðinga..." Best hefði verið
ef dálkahöfundur hefði haft vit á því
að annað hvort afla sér ofurlítilla
upplýsinga, eða skrifa einfaldlega
um eitthvað annað. í greininni ruglar
Þráinn saman þynningu ósonlagsins
og breytingu á loftslagi jarðar af
völdum gróðurhúsaáhrifa, sem er
langt frá því að vera sami hluturinn.
í ljósi þess að loftslagsbreytingar af
manna völdum teljast vera með stær-
ri málum sem mannkyn þarf að glíma
við um þessar mundir, og þeirrar
staðreyndar að hegðun einstak-
linga skiptir miklu máli í því hvernig
þau mál þróast - er ákaflega bagalegt
þegar á baksíðu blaðs sem er dreyft í
flest hús landsins skuli slíkt bull vera
birt. Ég ætla ekki að rekja allar vit-
Ieysurnar og misskilninginn sem
birtist í dálkinum, því þá yrðu þessi
skilaboð lengri en svo að nokkur
nenni að lesa, en bendi á að upplýs-
ingar um eyðingu ósonlagsins, gróð-
urhúsaáhrif og ýmis fleiri umhverf-
ismál er hægt að nálgast víða, t.d. á
heimasíðu Hollustuverndar undir
mengunarsviði. ■
Eiga jjölmiðlar aðjjalla um kvennaíþróttir?
Ekki eru allir á eitt sáttir um aukna
umfjöllun fjölmiðla á kvennaí-
þróttum. Þykir sumum sem ekki sé
réttlætanlegt að fjalla um greinar
eins og knattspyrnu kvenna þar sem
leikir þeirra séu sjaldan fjölsóttir. En
er eina réttlætingin fyrir því að fjall-
að sé um viðburð sú að margir séu á
—♦— vettvangi? Eða er
hægt að færa rök
fyrir því að séu við-
burðir á annað borð
áhugaverðir þá sé
ástæða til að fjalla
um þá? Knattspyrna
kvenna er ef til vill
ekki áhugaverð á sömu forsendum og
knattspyrna karla. Til þess er munur
á líkamsburðum of mikill, hraðinn og
styrkurinn kemur fram í leik karl-
„Vilji til þess
að einbeita
sér meira að
boltanum en
manninum"
Fjölmargar
skoðanir uppi um
þorskhrunið
Tilraun til að greina fimm ólík sjónarmið um ástæður
minnkandi þorskstofns og hvernig bregðast eigi við.
þorskveiðin Svört skýrsla Hafrann-
sóknastofnunar hefur verið kynnt og
kemur þar fram að veiðistofn þorsks
er kominn niður í 600 þúsund tonn og
hafi verið ofmetinn um 300 þúsund
tonn í fiskveiðiráðgjöf fyrir ári. Sam-
kvæmt 25% aflareglu ætti veiðin úr
þorskstofninum að vera um 150 þús-
und tonn á næsta
fiskveiðiári, sem
hefst 1. september,
en verður 190 þús-
und tonn samkvæmt
þeirri reglu sem
sjávarútvegsráð-
herra setti í fyrra að
sveiflur milli ára
mættu ekki nema meir en 30 þúsund
tonnum. Eins og vænta mátti eru
sterk viðbrögð við skýrslu Hafrann-
sóknastofnunar. Svokallaðir hags-
munaaðilar hafa tjáð sig svo og for-
svarsmenn opinberra stofnana. En
fróðlegt er að skoða þau viðhorf sem
uppi eru þegar þau hafa verið aftengd
hagsmunaaðilum og persónum sem
halda þeim fram.
„Sóknin síð-
astliðna hálfa
öld hefur
verið allt of
mikil."
—
1
OFNYTING ÞORSKSTOFNSINS
Allt frá 1960 hafa veiðarnar að öllu
jöfnu ekki verið sjálfbærar. Á þess-
um tíma hefur veiðihlutfallið verið
25% meira en skynsamlegt má telja.
Allt of oft hefur heilarkvóti verið um-
fram ráðgjöf fiskifræðinga. Þorskafli
umfram ráðgjöf hefur verið misjafn-
lega mikill frá 1984. Hann var t.d. 120
þúsund tonn umfram ráðgjöf 1985.
Þessi umframafli er undirrót vandans
þegar til lengri tíma er litið. Sóknin
síðastliðna hálfa öld hefur verið allt
of mikil. Ekki sé ástæða til þess að
láta sér bregða þótt skekkjur verði
eftir á varðandi niðurstöður rann-
sókna. Við erum að skoða dýrastofna
sem eru háðir sveiflum og duttlung-
um náttúrunnar. Það er líka snúið
verkefni að kortleggja athafnir veiði-
skipa. Grisjun og meiri veiði úr
þorskstofninum sé út í hött. Þar sem
menn hafa verið að grisja þorks-
stofna sé ástandið ekki gott t.d. í
Norðursjó og Eystrasalti.
2
ENGIN TENGSL VIÐ
KVÓTAKERFIÐ
Við verðum að byggja áfram á vís-
indalegri ráðgjöf. Fiskifræðin er
óviss vísindi eins og reyndar á við um
öll vísindi, og þá sérstaklega náttúru-
vísindi. Fiskifræðingar Hafrann-
sóknastofnunar vita mest allra hér-
lendis um fiskistofna og afkastagetu
þeirra. Leggja þarf enn meira fé í
hafrannsóknir til þess að fá betri vit-
neskju um lífríkið í sjónum og við-
gang fiskistofna.
Ekkert samband er milli ráðgjafar
um heildarafla á þorski og fiskveiði-
stjórnunarkerfisins. Það er vitleysa
að halda því fram að aflamarkskerfið
sé ástæða fyrir hruni þorskstofnsins.
Eitt er að ákveða heildarafla og hitt
hvaða aðferðum við beitum til þess að
ná honum. Brottkast og löndun fram
hjá vigt geta verið atriði sem þarf að
stemma stigu við, en brottkast getur
einnig verið vandamál í frjálsum
veiðum. Ekkert bendir til þess að um-
fang brottkasts og löndunar fram hjá
vigt sé svo mikið að það skýri hrun
þorskstofnins.
KVÓTÁKERFIÐ
SKEKKJUVALDURINN
Vísindalegar aðferðir fiskifræðinga
og fiskveiðistjórnunarkerfið verður
að skoða í samhengi. ítrekað hefur
það komið upp að spár fiskifræðinga
hafa ekki gengið eftir. í fyrra var
talið að veiðistofn þorsks væri 1 millj-
MáLmaDm.
Bryndís Valsdóttir
spyr spurninga um
kvennafótboltann
anna er ekki sá sami og hjá kven-
mönnum. Hinsvegar geta leikir kven-
na einkennst af meiri mýkt og lipurð
en hjá körlum. Auk þess virðist sem
vilji til þess að einbeita sér „meira að
boltanum en manninum11 sé einkenn-
andi hjá konunum, að minnsta kosti
er minna um aukaspyrnur og þau lit-
ríku spjöld sem mönnum eru sýnd
brjóti þeir illa af sér á velli. Það er að
koma í ljós nú þegar fleiri konur æfa
fótbolta en áður, auk þess sem þær
byrja fyrr, að þær hafa jafn mikla
möguleika og karlar á að ná góðum
ón tonna en nú segir Hafrannsókna-
stofnun að hann sé innan við 600 þús-
und tonn. Ef fiskveiðistjórnunin leiðir
til þess að fiskifræðingar fá rangar
upplýsingar, eins og t.d. hvað varðar
brottkast á fiski og löndun fram hjá
vigt og fleira, þá hljóti það að vera
skekkjuvaldur í þeim vísindaaðferð-
um. Var t.d. smáfiskurinn sem talað
var um að hent hefði verið í miklum
mæli á árunum 1998 og 1999, þegar
veiðar voru með skásta móti, ára-
gangurinn frá 1993, sem nú er horf-
inn og kemur ekki inn í veiðarnar öll-
um að óvörum? Allt verður því að
skoða saman, fiskveiðistjórnunina,
vísindaaðferðirnar og náttúrulegar
aðstæður.
A
RANGAR ALYKTANIR AF
RÉTTUM GÖGNUM
Ekkert er við þau gögn að athuga sem
Hafrannsóknastofnun styðst við og
þar eru engar þær skekkjur sem ekki
er hægt að leiðrétta fyrir. Vandinn er
hins vegar sá að stöðugt eru dregnar
rangar ályktanir af fyrirliggjandi
gögnum og ekki tekið mið af reynslu
fyrri ára varðandi veiðiálag. Hátt
tökum á eiginleikum eins og tækni og
leikskilningi. Þegar þessar stað-
reyndir verða fleirum ljósar en þeim
sem næstir knattspyrnukonunum
standa er aldrei að vita nema umfjöll-
un um knattspyrnu kvenna verði ekki
eingöngu réttlætanleg á þeim for-
sendum að hún sé áhugaverð heldur
líka að hún sé vinsæl. Sú er raunin
hjá dönskum og norskum handknatt-
leiksáhugamönnum, en þeir hafa nú
um nokkurt skeið kosið handknatt-
leik kvenna fram yfir handknattleik
karla, meðal annars á þeim forsend-
um að konurnar þykja bjóða upp á
skemmtilegri handknattleik en karl-
arnir. Fjölbreytt umfjöllun fjölmiðla,
þar sem fleiri gildi en vinsældir eru
notuð til viðmiðunar, er ein leið til að
auka víðsýni almennings. ■
veiðiálag virðist leiða til stóraukinnar
„framleiðslu" náttúrunnar á þorski.
Lágt veiðiálag, eins og síðustu ár.
virðist leiða til þess að þorskstofninn
dregur úr framleiðslu. Stofninn lagar
sig sjálfur að veiðiálagi og umhverf-
isaðstæðum. Meðalveiðiálag á þorsk-
stofninum var 45% á árunum 1972 til
1975 Óhætt sé að miða við 40% veiðiá-
lag í stað 25 % eins og gert hafi verið.
Það myndi þýða að veidd yrðu 240
þúsund tonn á næsta fiskveiðiári í
stað 190 þúsund tonna.
GRISJA ÞARF I UPPSVEIFLU
Þegar þorskstofninn stækkar hömlu-
laust, eins og í uppsveiflunni frá 1994
- 1998, fer að sverfa að ungviðinu og
annaðhvort drepast fiskar eða fara
að éta hver annan og stofninn fer þá
að fara niður. Samkvæmt fyrri
reynslu varir þessi niðursveifla í 4-5
ár og það fær ekkert stöðvað hana
þegar hún er komin í gang. Þess
vegna verður að grisja stofninn í
uppsveiflunni því annars eyðist hann
og horast niður. Flotanum er svo
stýrt á ákveðin svæði og svæðum lok-
að eftir þörfum. ■
ÞORSKURINN VANDREIKNAÐUR
Hafrannsóknastofnun segir að góð aflabrögð 1997/1998 eftir sóknarminnkun upp úr
1994 hafi skekkt matið á ástandi stofnsins. Nú liggi fyrir að ekki sé góð aðferðarfræði að
miða við línulegt samband milli þess hve vel fiskast og hve stór stofninn sé. Þetta þurfi að
leiðrétta og það sé mögulegt. Endurskoðað stofnmat 2001 byggist á tímaraðgreiningu
sem hafi ekki eins mikla tilhneigingu til ofmats. Myndin er úr fiskvinnslunni Búa.
[ORÐRÉTTl
Islendingar slógu í gegn í San Marínó
Ipróttir Eftir ráðstefnuna í Dan-
mörku fórum við Rut til San Marínó,
sem er smáríki skammt frá Rimini á
Ítalíu, aðeins um 60 ferkílómetrar að
stærð á og við fjallstind með 26 þús-
und íbúa. Þar voru smáþjóðaleikar
Evrópuríkja (Andorra, íslands, Kýp-
ur, Liechtenstein, Lúxemborg,
Monakó, Möltu og San Marínó), sem
hófust með hátíðlegri setningarat-
höfn að kvöldi mánudagsins 28. maí
og lauk í dag, laugardaginn 2. júní.
San Marínó fagnar nú 1700 ára sjálf-
stæðisafmæli sínu, en þar er lýðveldi
eins og hér, þjóðhöfðingjar eru hins
vegar tveir, captains regent heita
þeir á ensku, eru þeir kjörnir til sex
mánaða í senn. Þingmenn eru 60, en
10 sitja í ríkisstjórn, sem ekki hefur
forsætisráðherra, og ríkið er með
sendiráð í New York vegna Samein-
uðu þjóðanna, Genf vegna alþjóða-
stofnana þar og í Strassbourg vegna
Evrópuráðsins auk þess að hafa
sendiherra í Róm. Margir íslending-
ar hafa komið San Marínó vegna ná-
lægðarinnar við Rimini en það tekur
innan við 30 mínútur að aka þaðan í
gömlu borgina í San Marínó, heim-
sækja um 3 milljónir ferðamanna
landið á ári hverju en sárafáir eru
þar lengur en hluta úr degi. Raunar
var forvitnilegt að kynnast því,
hvernig San Marínó leggur áherslu á
ytri tákn sjálfstæðs ríkis, til dæmis
með litlum her fyrir utan lögreglu og
skrautlega varðmenn við þinghúsið
og aðsetur ríkisstjóranna tveggja.“
„.. Smáþjóðaleikarnir hófust í San
Marínó 1985 þannig að nú var að
hefjast önnur umferð þeirra, en Evr-
ópuþjóðir með innan við eina milljón
íbúa eiga rétt til þátttöku. Hér voru
leikarnir 1997 og við setningarat-
höfnina þá var norðanblástur og hita-
stigið rétt yfir frostmarki, hefði ekki
þýtt að bjóða gestum að sitja tvo tíma
og horfa á listamenn og skólabörn
eins og við gerðum í um 30 stiga
kvöldhitanum í San Marínó auk þess
sem við getum ekki á þessum árstíma
leikið okkur með ljóskastara eins og
þarna var gert eða efnt til flugelda-
sýningar. íslenska íþróttafólkið hef-
ur unnið langflest gull í sögu leik-
anna og sýndi enn frábæra fram-
göngu í San Marínó. Var sama hvar
við komum, alls staðar voru íslend-
ingar að ná góðum árangri. Enn einu
sinni er ástæða til að fyllast stolti
yfir því, hve við eigum marga góða
íþróttamenn, sem leggja hart að sér
við æfingar og þátttöku í mótum, alls
Við höfum unnið langflest gull I sögu
smáþjóðaleikanna
fengu þeir 31 gull að þessu sinni, 18
silfur og 16 brons.
Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra á heimasíðu sinni, www.bjorn.is