Fréttablaðið - 07.06.2001, Side 12
12
FRÉTTABLAÐIÐ
7. júní 2001 FIMMTUDACUR
Ákvarðanir í umhverfismálum:
Ohlutdrægt mat?
nýsköpun Óli Halldórsson meistara-
nemi í umhverfisfræði við Háskóla
íslands var einn þeirra sem fékk út-
hlutað styrk til rannsóknarverkefnis
hjá Nýsköpunarsjóði í fyrradag.
Rannsóknarverkefnið f jallar um mat
á umhverfisáhrifum sem tæki til
ákvarðanatöku í umhverfismálum.
Styrkurinn er til tveggja mánaða og
að sögn Óla er markmið rannsóknar-
innar að kanna stöðu, hæfi og rétt
þeirra aðila sem fella dóma um um-
hverfisáhrifin og taka ákvarðanir
þar að lútandi. Að því mati koma
Skipulagsstofnun, umhverfisráðu-
neytið og sveitastjórnir sem eru
framkvæmdaleyfisveitendur. Óli
ætlar að komast að því hvort ákveðn-
ar tilhneigingar séu ríkjandi í niður-
stöðum þessara aðila. Er það eðli til-
tekinna aðila að komast iðulega að
sömu niðurstöðu um ágreiningsmál í
þessum efnum eða eru niðurstöður
misjafnar eftir eðli tilfella hverju
sinni? Hann hefur ákveðnar hug-
myndir við upphaf rannsóknar sinn-
ar en það mun væntanlega koma í
ljós að tveimur mánuðum liðnum
hvort þær eiga við rök að styðjast. ■
NÁMSMENN STYRKTIR
Páii Skúlason rektor Háskóla íslands, Björn
Bjarnason menntamálaráðherra og Haf-
steinn Helgason verkfræðingur við úthlut-
un 150 styrkja úr Nýsköpunarsjóði
Tékkland:
Kúariða greind
prag. flp. Grunur leikur á að riða hafi
greinst í Tékklandi í ákveðinni kú sem
slátrað var þar í landi nýlega. Frekari
rannsóknir munu leiða sannleikann í
ljós á föstudaginn, segja yfirvöld.
Þetta yrði í fyrsta sinn sem kúariða
greindist í Tékklandi, en kjöt- og
beinamjöl handa búfénaði er bannað í
landinu. Talsmaður yfirdýralæknis
landsins greindi frá því að strangar
varrúðarráðstafanir hafi verið gerðar
á bóndabýlinu þar sem sjúkdómurinn
greindist. Sagði hann að sjúkdómur-
inn gæti hafa borist í viðkomandi kú
með unninni mjólk þegar hún var
kálfur.
Stutt er síðan Tékkar hófu rann-
sóknir sínar á nautakjöti vegna kúar-
iðu og hafa alls yfir 10 þúsund naut-
FJÓS í TÉKKLANDI
Dýralæknar telja sig hafa fundið kúariðu I
kú sem slátrað var úr hjörðinni á myndinni.
gripir verið skoðaðir síðan í janúar.
Talið er að kúariða valdi Creutzfeld-
Jacob-sjúkdóminum sem dregið hefur
yfir 80 manns til dauða í Bretlandi. ■
Bandaríkin:
Napster rær lífróður
san FRflNcisco. ap. Hinn umdeildi tón-
listarmiðill á Netinu, Napster, hefur
gert samning við þrjú stór útgáfufyr-
irtæki um að koma á fót áskriftar-
þjónustu fyrir netverja í sumar.
Samningurinn gæti reynst eina von
fyrirtæksins til að lifa áfram í ein-
hverri mynd eftir lögbannið sem sett
var á það í mars sl. Sumir markaðs-
sérfræðingar telja samninginn benda
til þess að stóru útgáfufyrirtækin séu
að læsa klónum um tónlistarmarkað-
inn á Netinu og því sé Napster-hug-
sjónin úr sögunni. Samningurinn,
sem er við MusicNet færir fyrirtæk-
ið í átt að hefðbundinni og lögmætri
útgáfustarfsemi, en meðal eigenda
MusicNet eru risarnir AOL Time
Warner, Bertelsmann, EMI og Real-
Networks. Fyrirhuguð áskriftarþjón-
usta mun gera notendum kleift að
taka tónlist af netinu gegn ákveðnu
gjaldi. Napster hefur einnig ákveðið
að koma á fót kerfi nú í sumar sem
tryggja mun lagahöfundum og út-
gáfufyrirtækjum höfundagreiðslur
fyrir notkun á lögum þeirra.
Forstjóri samkeppnisaðilans
MP3.com, Michael Robertson, gaf
lítið fyrir samninginn milli Napster
og MusicNet, en hann telur hvorugt
fyrirtæki hafa yfir þeirri tækni að
búa sem þarf til að komast af. „Þeir
hafa byggt spilaborg ofan á aðra
spilaborg," segir Robertson. Reiknað
er með að Napster breyti þjónustu
EFTIR DÓMINN í MARS
Shawn Fanning (t.v.) stofnandi Napster
ásamt Hank Barry, framkvæmdastjóra Nap-
ster á blaðamannafundi fyrir utan dóms-
húsið í San Francisco.
sinn í júlí til samræmis við samning-
inn.B
Flensborgarskólinn
auglýsir
Við tökum á móti umsóknum frá nýnemum
og nemendum sem vilja flytjast milli skóla
kl. 8.30-18.00 í dag.
Námsráðgjafi, aðstoðarskólameistari og
umsjónarkennarar verða til viðtals.
Innritað er samkvæmt nýrri námskrá og þurfa
foreldrar að staðfesta umsóknir umsækjenda sem
eru undirsjálfræðisaldri.
Nemendur geta sótt um að skrá sig í eftirfarandi
brautir:
Almenn námsbraut
Félagsfræðibraut
íþróttabraut
Listnámsbraut
Málabraut
Náttúrufræðibraut
Uppeldisbraut
Upplýsinga- og fjölmiðlabraut
Viðskiptabraut.
Inntaka á þessar brautir ræðst af þátttöku. Hægt er
að flytja nám af almennri braut, styttri braut eða
starfsnámsbraut yfir á stúdentsbraut.
Nemendur sem eru með góðar einkunnir úr
grunnskóla geta sótt um sérþjónustu innan skólans.
Nemendur sem gert hafa hlé á námi sínu í
Flensborgarskólanum en óska að taka upp þráðinn
að nýju þurfa að staðfesta slíkt í síðasta lagi
7. júní.
Nemendur sem koma með nám úr öðrum skólum
þurfa að staðfesta slíkt með viðurkenndum
prófgögnum.
Vakin er athygli á því að Flensborgarskólinn býður
afbragðs þjónustu á sviði upplýsinga- og tölvutækni
og að nemendum stendur til boða að nota fartölvur
með þráðlausu sambandi við skólanetið.
Nánari upplýsingar er að finna á vef skólans
þar með talið umsóknareyðublað.
http://www.flensborg.is
netfang: flensborg@flensborg.is
Sími: 5650400
Myndsími: 5650491
Skólameistari.
FLENSBORGARSKOUNN
í HAFNAREIRÐI
Kjör þrosk
dregist óeðl
Þroskaþjálfar greiða atkvæði um samning við launanefnd
Reykjavíkurborgar hafa verið tilbúna að
kjarabarátta Birgir Bjöm Sigurjónsson
formaður samninganefndar Reykjavík-
urborgar segir kjör þroskaþjálfa hafa
dregist óeðlilega mikið aftur úr kjörum
annarra fagstétta og telur mál til kom-
ið að bæta þar verulega úr. Byrjunar-
laun þroskaþjálfa eftir þriggja ára há-
skólanám eru nú 101
þúsund krónur og
fara í 109 þúsund
eftir 18 ár í starfi.
Sólveig Steinsson
formaður þroska-
þjálfafélagsins, sem
telur eðlilegt að
launakjör séu miðuð
við önnur félög inn-
an Bandalags há-
skólamanna, segir
„þegar þróun heild-
arlauna hjá þessum
félögum og þróun
meðal dagvinnu-
launa er skoðuð út
frá því hvernig
þetta lítur út hjá
þroskaþjálfum,
kemur í ljós mikill
og stór munur.“ Nú
hefur verið undirrit-
aður samningur við
launanefnd sveitar-
félaganna sem fer
til atkvæðagreiðslu
þroskaþjálfa á laug-
ardag. Þá á enn eftir
að semja við hina
tvo aðilana sem að
málinu koma, Reykjavíkurborg og rík-
ið. Birgir segir nefnd sína hafa verið
tilbúna að bjóða þroskaþjálfum í
Reykjavík ríflega 30% hækkun við
undirritun samnings og 50% launa-
hækkun á samningstímanum auk frel
ari leiðréttinga vegna starfsmatsker
is. Þetta segir hann verulega hærri pr
sentutölu en nokkrum öðrum hópi ha
verið boðin. Núna segir hann stöðuna
málinu vera þá að Reykjavíkurboi
vilji gera samning sem er eins í öllui
atriðum og sá sem undirritaður hefi
verið við samninganefnd sveitarfélag
Það þýðir á milli 35 og 40% upphaf
hækkun. Sólveig Steinsson formaði
þroskaþjálfafélagsins, sem segir að þ<
Efling verk og tæknimenntunar:
Þrír hlutu viðurkenningu
menntun Þrír hlutu viðurkenningu fyr-
ir eflingu stærðfræðimenntunar sem
Hagsmunafélag um verk- og tækni-
menntun veita. Þeir sem það hljóta
eru Anna Kristjánsdóttir, prófessor
við Kennaraháskóla íslands, Ari
Ólafsson, dósent við Háskóla íslands
og Meyvant Þórólfsson, kennsluráð-
gjafi hjá Fræðslumiðstöð Reykjavík-
ur. Anna Kristjánsdóttir hlýtur viður-
kenninguna fyrir ötult starf að fram-
gangi stærðfræðinnar í skólum og á
opinberum vettvangi. Ari Ólafsson og
Meyvant Þórólfsson hafa unnið saman
og hvor í sínu lagi að verkefnum til að
styrkja stöðu stærðfræði og raunvís-
inda í skólakerfinu. Verk þeirra hafa
bæði beinst að því að efla kennslu í
greinunum og að auka áhuga ungs
fólks á raunvísindanámi. ■