Fréttablaðið - 07.06.2001, Page 14

Fréttablaðið - 07.06.2001, Page 14
14 FRETTABLAÐIÐ 7. júní 2001 FIIVIIVITUDAGUR HVERNIC FER? Þór A.- Þróttur? VILHJÁLMUR VILHJÁLMSSON LEIKMAÐUR FRAM Þróttur vinnur 2-0. Ég trúi því og treysti að mínir menn komist í 1-0 strax í fyrri hálfleik. Þetta verður harður slagur enda tvö ung og efnileg lið sem hafa þó gamla jaxla inn- anborðs. Það mun mikið mæða á gömlu mönnunum þ.e. Axel Gomez og Páli Ein- arssyni hjá Þrótti og Hlyni Birgissyni, Páli Gíslasyni og Hlyni Eiríkssyni hjá Þór. Þetta verður annars skemmtilegur leikur. RÓBERT MAGNÚSSON FYRIRLIÐI FH Leikurinn fer 3-0 fyrir Þór Akureyri. Þórsarar eru með gríðarlega sterkt lið og sterkan heimavöll. Ég held að Hlynur Eiríksson skori tvö mörk og Orri Hjaltalín eitt. MOLAR Spænska liöið Las Palmas, sem Þórður Guðjónsson er samn- ingsbundinn, á yfir höfði sér sekt- ir fyrir að tefla fram tveimur ólöglegum leik- mönnum. Spænska knattspyrnusam- bandinu barst kvörtun eftir 2-1 sigurleik liðsins gégn Racing de Santander, 7. febr- úar s.l. Leikmennirnir Junior Bai- ano og Alvaro Maior frá Brasilíu höfðu báðir portúgölsk vegabréf og spiluðu því sem leikmenn inn- an Evrópusambandsins. Seinna kom í ljós að vegabréfin voru föl- suð en þeir héldu áfram að spila sem leikmenn utan Evrópusam- bandsins. Racing situr á botni deildarinnar og geta úrslit leiks- ins haft mikið að segja. „Við höf- um beðið um að eitthyað verði gert frá og okkur liggur á að fá niðurstöðu úr málinu. Það eru miklir peningar í húfi,“ sagði Miguel Diaz, forseti Racing. Brasilíski varnarmaðurinn Rodrigo Ramos, leikmaður AEK, féll á lyfjaprófi. Þetta er í annað sinn á tveimur mánuðum' sem leikmaður liðsins er tekinn fyrir slíkt athæfi. „Þetta kemur mér á óvart þar sem ég hef ekki tekið nein lyf nýlega," sagði Ramos. Sýni sem tekið var úr hinum 21 árs gamla Ramos eftir leik við Panathinai- kos, innihélt talsvert magn testerónstera. í apríl var fyrirliði gríska landsliðsins, Theodoros Zagorakis, sýknaður af ákærum um að hafa tekið slíka stera. Ef seinna sýni Ramos er jákvætt á hann yfir höfði sér leikbann. að voru Finnland og Slóvakía sem komu upp úr hattinum þegar dregið var um hvaða land fengi að senda háttvísifulltrúa í Evrópukeppni félagsliða í gær. Ellefu lönd sem öll eru aðildar- lönd Knattspyrnusambands Evr- ópu og hafa lágt spjaldahlutfall í leikjum voru í hattinum þar sem dregið var um aukasæti í keppn- inni. Ef ísland hefði verið dregið hefði ÍBV verið fulltrúinn í keppn- inni. Tiger Woods og David Duval munu spila með Anniku Sor- enstam og Karrie Webb, bestu kven- golfurum heims, í parakeppni. Eina vandamálið sem skipuleggjendur keppninar eiga við að etja er hversu hátt verðlaunaféð eigi að vera og hvor stúlknanna eigi að spila með besta golfspilara í heimi. Það virðist samt ekki skipta stúlkurnar máli hvor spilar með Woods því líkt og Webber sagði „Ætli við köstum bara ekki uppá það.“ Pörin munu líklega spila 30. júlí á Bighborn golfvellinum í Kaliforníu. Opna franska: Lítil hjálp í Clinton tennis Bandaríkjamaðurinn Andre Agassi byrjaði vel í fjórðungsúrslita- leik Opna franska meistaramótsins í tennis á móti heimamanninum Sebastien Grosjean. Agassi vann fyrstu lotuna 6-1, en þegar henni var lokið birtist Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og vinur Agassi, á Roland Garros og eftir það fór allt úrskeiðis hjá Agassi. Hann tap- aði næstu þremur lotum 6-1, 6-1 og 6-3 og er þar með úr leik á mótinu. Clinton, sem eitt sinn var valda- mesti maður heims, gat lítið gert til að hjálpa vini sínum. A meðan frönsku áhorfendurnir risu úr sætum og gerðu mexíkóska öldu um leikvanginn, sat hann dapur í bragði og horfði á Agassi kasta frá sér leiknum. Hann sagði reyndar eftir leikinn að spilamennska Grosjean í síðustu tveimur lotunum hefði verið ein sú besta sem hann hefði séð í langan tíma. í hinum fjórð- ungsúrslitaleiknum, sem leikinn var í gær, sigraði Spánverjinn Alex Corretja svissneska táninginn Roger Federer í þremur lotum. Corretja og Grosjean eru þar með komnir í undan- úrslit á mótinu ásamt Juan Carlos Fer- rero og Gustavo Kuerten. ■ HRUN Lekur Andre Agassi hrundi þegar vinur hans Bill Clinton kom að horfa á hann leika á Roland Garros. NHL deildin: Ráðast úrslitin í kvöld? (sknattleikur New Jersey Devils leiða 3-2 í úrslitarimmu NHL deildarinnar, bandarísku íshokkýdeildinni, gegn Colarado Avalanche. Það lið sem fyrr sigrar í fjórum leikjum stend- ur uppi sem sig- urvegari og fær hinn eftirsótta Stanley bikar. Það er því að duga eða drepast fyrir Colarado í kvöld þegar liðin mætast í sjötta sinn. Colorado hefur átt í vandræðum með lið sitt þar sem einn besti leik- maður þeirra, Peter Fossberg, hefur ekki getað leikið með. ■ Alltof mörg færi í súginn íslenska knattspyrnulandsliðið gerði 1-1 jafntefli við Búlgara á Laugardalsvellinum í gær. íslenska liðið var mun betri aðilinn í leiknum en náði aðeins að nýta eitt af fjölmörgum marktækifærum. ÓHEPPNI Það var engin sérstök lukka með íslenska landsliðinu í leiknum gegn Búlgörum í gær. Liðið hefði átt að vera búið að gera út um leikinn áður en Búlgarar jöfnuðu. knattspyrna Stemmningin inni í bún- ingsklefa íslenska knattspyrnulands- liðsins eftir leikinn gegn Búlgörum var þrungin, menn voru ósáttir með úrslitin - mjög ósáttir. Sjaldan hefur íslenska liðið átt jafnmörg marktæki- færi á móti jafn háttskrifaðri knatt- spyrnuþjóð og í Laugardalnum í gær. Þau fóru hins vegar öll í súginn nema eitt og það var ekki nóg, því Búlgarar, sem áttu undir högg að sækja mest allan leikinn, nýttu sitt fyrsta tæki- færi í leiknum og jöfnuðu leikinn á 80. mínútu. Um 4.500 áhorfendur gengu hnípnir af velli. Islendingar léku undan strekk- ingsvindi í fyrri hálfleik. Þeir léku á köflum skínandi vel og héldu Búlgör- um að mestu inni á þeirra eigin vall- arhelmingi. Miðjan, með þá Brynjar Björn Gunnarsson, Rúnar Kristins- son og Arnar Grétarsson var öflug, HM 2002 - RIÐILL 3 LEIKIR u J T MÖRK STIC Danmörk 7 4 3 0 13:5 15 Tékkland 7 4 2 1 10:3 14 Búlgaría 7 4 2 1 12:7 14 ísland 7 3 1 3 11:10 10 N-írland 7 1 1 5 6:11 4 Malta 7 0 1 6 2:18 1 Næstu leikir: 1. sept. ísland - Tékkland 1. sept. Malta - Búlgaría 1. sept. Danmörk - N-írland 5. sept. Tékkland - Malta 5. sept. Búlgaría - Danmörk 5. sept. N-írland - ísland 6. okt. Tékkland - Búlgaría 6. okt. Danmörk - ísland 6. okt. Malta - N-lrland vörnin traust og Eiður Smári Guðjohnsen skapaði oft mikinn usla í vörn Búlgaranna með tækni sinni og útsjónasemi. Það var einmitt eftir eina rispu hans upp hægri kantinn sem íslendingar fengu aukaspyrnu. Eiður Smári tók hana sjálfur og sendi knöttinn beint á höfuðið á Ríkharði Daðasyni sem skallaði boltann í markið af markteig. Gott mark, sem kom á góðum tíma rétt fyrir leikhlé. íslendingar voru miklu hættulegri í fyrri hálfleik og átti Brynjar Björn gott skot af um 25 metra færi sem smaug rétt framhjá markvinklinum. Eyjólfur Sverrison átti skot rétt framhjá stönginni innan úr markteig, sem og Rúnar. í síðari hálfleik virtust íslendingar hafa leikinn í höndum sér. Þegar lítið var liðið af hálfleiknum átti Eiður Smári góða sendingu inn fyrir vörn Búlgara á Helga Sigurðsson, sem var einn á móti markmanni, en lét verja frá sér. Þegar líða tók á síðari hálfleik- inn urðu leikmenn Búlgara mjög pirraðir, enda gekk þeim lítið að skapa sér marktækifagri. Allar tilraunir strönduðu á Eyjólfi og Hermanni Hreiðarssyni í vörninni og þurfti Árni Gautur Arason í raun lítið að spreyta sig. Þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum fengu Búlgarar aukaspyrnu rétt utan við íslenska vítateigshornið. Þeir létu vaða á markið, Árni Gautur varði en náði ekki að halda boltanum, sem féll fyrir fætur Dimitar Ber- batov, sem afgreiddi boltann í netið af stuttu færi. Eftir markið var sem all- ur vindur væri úr íslenska liðinu en Búlgarar eygðu von um sigur. Þegar fimm mínútur voru eftir gerðu þeir nánast út um leikinn en Eyjólfur Sverrison varði gott skot þeirra mark- línu. Jafntefli var því niðurstaðan. Búlgarar gengu jafnánægðir af velli og Islendingar niðurlútir. ■ Tékkar og Danir tæpir: Sigrar á lokamínútum knattspyrna Fyrir utan leik íslands og Búlgaríu fóru tveir leikir fóru fram í riðli 3 í undankeppni HM 2002. Landslið N-írlands sótti Tékkland heim til Prag. Það munaði ekki miklu að írarnir næðu sér í kærkomið stig en tvö mörk á síðustu mínútum leiks- ins komu í veg fyrir það. Tékkar byrjuðu leikinn vel og settu pressu á íra. Þeir voru búnir að eiga tvö færi þegar markaskorarinn Pavel Kuka þrumar boltanum í netið á 39. mín- útu. írarnir sögðu Kuka hafa verið rangstæðann en markið var tekið gilt. Græðin út í dómarann gæti hafa hjálpað þeim er írarnir svöruðu fyrir sig fimm mínútum síðar. Það var leik- maður Norwich City, Philip Mulryne, sem skallaði boltann í netið eftir sendingu frá David Healy. írar voru heppnir í seinni hálfleik þegar Kuka skaut framhjá og Baros skaut í stöng. Tveimur mínútum fyrir leikslok var Kuka skilinn einn eftir við fjarstöng í hornspyrnu og skoraði annað mark Tékklands. Einni mínútu seinna spil- aði Baros sig í gegnum vörnina og tryggði Tékklandi 3-1 sigur. Möltubúar mættu á þjóðarleik- vang Dana, Parken. Möltubúar höfðu harma að hefna þar sem Danir unnu þá með fimm mörkum gegn engu í BARÁTTA f PARKEN Daninn Jon Dahl Tomasson reynir að ná boltanum af Möltubúanum Daniel Theuma í Parken í gær. mars sl. Malta komst yfir strax á átt- undu mínútu. Það var Mallia sem nýtti sér það að Thomas Sörensen kýldi boltann frá markinu og skoraði í kjölfarið. Þetta dugði þó skammt því Ebbe Sand, sem var nýlega kos- inn leikmaður ársins 1 þýsku úrvals- deildinni, jafnaði fyrir Danmörk á 43. mínútu. Möltubúar lögðu áhersu á vörnina í seinni hálfleik en náðu þó að ógna Dönum tvisvar. Sand var aft- ur á ferðinni á 83. mínútu. Tæplega 40 þúsund Danir vörpuðu öndinni léttar þegar þeir sáu Sand skalla boltann í markið og koma Dönum yfir í 2-1. ■ knattspyrna Rúnar Kristins- son, leikmaður íslenska liðs- ins, sagði eftir leikinn gegn Búlgörum að honum liði beinlínis illa. „Þetta var hræðilegur endir á ágætis degi,“ sagði Rúnar. „Viö vorum með þetta allt í okkar höndum en fengum á okkur klaufalegt mark sem að við hefðum mjög auðveldlega getað komið í veg fyrir. Við áttum fyrri hálfleik- inn og Búlgararnir ógnuðu okkur lítið sem ekkert og áttu ekki eitt einasta færi. í síðari hálfleik komu þeir framar á völlinn en sköpuðu sér í raun lítið og þetta eru því gífurleg vonbrigði. Við vorum algjörir klauf- ar að vera ekki búnir að af- greiða þennan leik áður en markið þeirra kom. Þetta er alltaf erfitt þegar maður hefur bara eins marks for- skot. Þá er alltaf sú hætta að það gerist eitthvað slys.“ Rúnar sagði að miðað við getu Búlgara í leiknum hefðu þeir ekki átt skilið að vera efstir í riðlinum. „Ætli þetta sé ekki bara þeirra keppni. Þeir voru heppnir á móti okkur úti, skoruðu sigurmarkið þegar fimm mínútur voru eftir og það sama ger- ist hér.“ ■ Dimitar Berbatov: „íslenska liðið er mjög sterkt“ knattspyrna Dimitar Berbatov, leik- maður Leverkusen í Þýskalandi, sem skoraði jöfnunarmark Búlgara gegn íslandi, sagði að leikurinn hefði verið mjög erfiður. „Þetta var góður leikur og mjög mikilvægt fyrir okkur að ná í stig hér,“ sagði Berbatov. „íslenska liðið er mjög sterkt og erfitt heim að sækja og því erum við mjög ánægðir með úr- slitin. Við eigum enn góðan möguleika á að komast áfram í riðlinum og það er það sem við ætlum okkur.“ Aðspurður sagði hann að Eyjólfur Sverrisson hefði verið einn besti leik- maður íslands í leiknum, en Berbatov átti einmitt oft í höggi við hann í leikn- um. ■ Rúnar Kristinsson: „Gífurleg vonbrigði“ SVEKKTUR „Þetta var hræðile- gur endir á ágætis degi."

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.