Fréttablaðið - 12.06.2001, Side 6
SPURNING DAGSINS
Hvað finnst þér um Vinnu-
skólann? 1 Mérfinnst
mm. HTBBfcr Pfí\J
1/ tt'iyí hann mjög finn.
en vinnan
mætti vera bet-
ur borguð og svo vil ég líka •eiga möguleika á að vinna meira. Þeir sem eru í 8. bekk fá bara vinnu i þrjá og hálfan tíma á dag og það finnst mér
of litið. En svo finnst mér ókostur að þurfa
að vinna aðra hverja viku eftir hádegi og
hina fyrir hádegi, mér finnst ekkert verða
úr deginum þegar við vinnum bara eftir há-
degi. Það má líka koma fram að okkur var
skítkalt í rigningunni í dag.
Hiídur Sigurðardóttir er 14 ára og þetta er fyrsta
sumarið hennar i Vinnuskóla Reykjavíkur
Kanada:
; Alzheimer-
' sjúklingur
myrðir tvo
- og særir einn
, toronto, ap. 74 ára gamall maður hef-
. ur verið kærður fyrir að berja tvo
, herbergisfélaga sína til dauða á
■ alzheimersdeild hjúkrunarheimilis í
r Kanada og fyrir að reyna að myrða
r þann þriðja. Lögreglan í Toronto var
r kvödd á staðinn eftir að sést hafði til
r hins aldna Piara Singh Sandhu, lemja
r aðra sjúklinga í höfuðið með stálhlut,
r sem líklega var fenginn úr hjólastól.
' Fjölskylda annars fórnarlambsins,
hins 71 árs gamla Ezzeldine Elroubi
var að vonum skelfd yfir atburðin-
um: „ástæðan fyrir því að við fengum
hann hingað á hjúkrunarheimilið var
sú að hann ráfaði burt af heimili sínu
og því höfðum við áhyggjur af öryggi
hans. Enn kaldhæðnislegt, „sagði
stjúpsonarsonur hans, Ahmed Helmi
eftir árásina.
Starfsfólk alzheimerdeildarinnar
kveið því mjög að fara f vinnuna dag-
inn eftir atburðinn þar sem það
þurfti að útskýra fyrir meirihluta
hinna minnissnauðu sjúklinga hvaða
hræðilegi atburður hefði gerst dag-
inn áður. ■
SIGLT Á STRÆTUM
Tugþúsundir íbúa Houston flýðu heimili
sín um helgina vegna flóðanna.
iexas:
Gríðarlegt tjón
vegna flóða
HousTON. ap. Sextán manns hafa látist
í flóðum í Texas og Louisiana undan-
farna daga. Talið er að tjón af völdum
þeirra í Houston eingöngu nemi um
emum milljarði dollara. Lee Brown,
borgarstjóri Houston, hvatti atvinnu-
rekendur til þess að gefa starfsmönn-
um sínum frí í gær, að nógu væri að
huga. íbúar Houston og nágrennis
hafa margir hverjir þurft að yfirgefa
heimili sín en tugir þúsunda heimila
hafa skemmst í flóðunum sem fylgdu
í kjölfar fellibyljarsins Allison í síð-
ustu viku
Forseti Bandaríkjanna, George W.
Bush, lýsti yfir neyðarástandi í 28
sýslum vegna flóðanna.
Flestir þeirra sem fórust í flóðun-
um drukknuðu, þar á meðal ein kona
sem drukknaði í lyftu í Houston. Að
minnsta kostir tveir fengu raflost frá
raflínum. Björgunarmenn notuðu
báta og þyrlur til að bjarga fólki en
t.d. þurfti að bjarga fólki af þökum
húsa. Þá lentu margir ökumenn í
vandræðum þar sem flætt hafði yfir
yfir vegi og sukku sumir bílar eða
flutu með flóðvatninu. ■
6
FRÉTTABLAÐIÐ
12. júní 2001 ÞRIÐJUDAGUR
Nepal:
Draugum
úthýst
Neytendamál:
ESB rannsakar hátt
verð DVD-diska
KflTMANÐU. ap. Hindúaprestur, klædd-
ur eins og hinn nýlátni konungur
Nepal, var rekinn út úr Katmandu af
þúsundum manna í gær. Um var að
ræða forna trúarathöfn en með henni
er ætlunin að úthýsa draugum kon-
ungsfjölskyldunnar og hreinsa sál
nepalska konungsins.
Ellefu dagar eru liðnir síðan kon-
ungsfjölskyldan lést í fjöldamorðum.
Nepalskir ráðamenn fylgdust með at-
höfninni en í henni er prestinum
gefnar eigur konungsins og hann síð-
an sendur í útlegð úr Katmandu daln-
um. Rannsókn á morðunum stendur
enn yfir og bíður nepalskur almenn-
f ÚTLEGÐ
Áður en presturinn var rekinn í útlegð
snæddi hann dýrindis máltíð sem innihélt
84 hráefni. Fyrr á öldum hefði líkamsleifar
konungsins verið þar á meðal en að sögn
embættismanna var einungis aska kon-
ungsins í máltíðinni.
ingur niðurstöðunnar óþreyjufullur.
Margir vilja ekki trúa því að krón-
prinsinn hafi myrt fjölskylduna, áður
en hann fyrirfór sér, eins og fyrstu
fregnir hermdu. ■
brussel. belgIu. flp. Evrópusambandið
ætlar að hefja rannsókn á því hvort
bandarískir dreifendur DVD-geisla-
diska séu að okra á diskunum fyrir
evrópubúa. Neytendahópar hafa þrýst
á Evrópusambandið um aðgerðir, en
mikið hefur verið kvartað vegna hárr-
ar verðlagningar diskanna. „Við send-
um á föstudaginn bréf til sjö helstu
dreifingaraðila DVD- diska í Banda-
ríkjunum til að finna út hvort þeir noti
svæðismerkingar vörunnar sem
ástæðu fyrir hærra verði diskanna í
Evrópu heldur en í Bandaríkjunum."
Svæðismerkingar þessar eru settar á
diskana til að takmarka notkunargildi
þeirra í heiminum, þannig að þeir sem
kaupa DVD-diska í Bandaríkjunum
geta í fæstum tilvikum spilað þá í evr-
ópskum DVD-spilurum. Evrópusam-
bandið mun í þessu samhengi rann-
saka hvort að þessar svæðismerking-
ar samræmist lögum sambandsins.
Þau fyrirtæki sem framleiða disk-
ana hafa haldið því fram að svæðis-
merkingar séu nauðsynlegar til að
koma í veg fyrir ólöglegar upptökur á
diskunum og til að auðvelda innkomu
höfundagjalda fyrir diskana. ■
Sóldýrkendurnir
bóka seinna en áður
Ekkert lát á ferðalögum íslendinga til útlanda. Grikkland og Portúgal vinsælustu áfangastaðirnir.
Ferðaskrifstofur hafa aðlaðað sig að breyttum markaði.
FERÐALÖc íslendingar bóka utanlands-
ferðir sínar seinna á þessu ári en í
fyrra, sagði Guðjón Auðunsson,
framkvæmdastjóri Samvinnuferða
Landsýn. Hann segir að flestum aðil-
um í ferðaþjónustu beri saman um
það að markaðurinn sé ögn daufari
nú en hann hefur verið en engu að
síður sé líf í tuskunum.
„Fólk er hreinlega að taka ákvarð-
anir seinna en það hefur gert. Brott-
farir sem að við horfðum á nokkuð
grisjaðar fyrir nokkrum vikum síðan
eru nú fullbókaðar. Það er nú talið á
fingrum annarrar handar þær brott-
farir sem við höfum haft á þessu ári
sem ekki hefur verið uppselt í,“ sagði
Guðjón. Hann sagði að ferðaskrif-
stofan hefði fækkað sætum og þan-
nig hafi nýtingin á sætum batnað um-
talsvert í prósentum, ásamt því sem
ákvörðun Úrval Útsýn um að hætta
með ferðir til Tyrklands hefði bætt
hag annarra ferðaskrifstofa.
„Einnig má benda á það að hér er
ný ferðaskrifstofa á markaðinum -
ferðaskrifstofan Sól - þannig á heild-
ina litið býst ég við því að framboð á
sætum sé svipað á þessu ári og á því
síðasta," sagði Guðjón.
Hörður Gunnarsson, forstjóri Úr-
val Útsýn, segir að fyrirtækið sé búið
að aðlaga sig að markaðinum. Hann
segir að töluvert minni eftirspurn
hefði verið eftir sætum og því hefði
m.a. verið ákveðið að hætta með
lýrklandsferðirnar og draga saman
seglin á öðrum sviðum.
„Þrátt fyrir að eftirspurn eftir
sætum erlendis hafi aðeins minnkað
hefur eftirspurn eftir ferðum innan-
lands aukist um 10 prósent,“ sagði
Hörður og bætti því við að erlendir
ferðamenn væru einnig að eyða
meiri pening þegar til landsins er
komið heldur en áður.
„Ég held að það sé engin verð-
bólguhrollur í fólki - ég get ekki séð
það á rekstrinum hjá okkur. Árið í
fyrra var óeðlilegt og árió í ár er
svona eins og það á að vera,“ sagði
Hörður.
Vinsælustu áfangastaðir íslend-
inga um þessar mundir virðast vera
Grikkland og Portúgal ásamt því sem
fjölmargir leggja enn leið sína í hót-
elfrumskóginn á sólarströndum
Spánar.
omarr@frettabladid.is
FLATMACAÐ
íslendingar eru hrifnir að því að sleikja sól-
ina í utlöudum þær fáu vikur á ári sem
hún lætur sjá sig hér á landi. Búist er við
því að Úrval Útsýn og Samvinnuferðir
Landsýn muni samtals flytja yfir 30 þús-
und manns til hlýrra landa í sumar.
Kjaradeilur stéttarfélaga og ríkisins:
,,Ekki er allt sem sýnist“
Bilað viðvörunarkerfi
fór í gang:
Mikill
viðbúnaður
KjflRflMÁL „Þetta er stormur í vatns-
glasi,“ segir Gunnar Björnsson for-
maður samninganefndar ríkisins, um
umfjöllun fjölmiðla um kjaramál að
undanförnu. Hann segir ríkisgeirann
vera um 10 prósent af vinnumark-
aðnum og þar af hafi þeir þegar
samið við um um 80 prósent stéttar-
félaga eða um 73 prósent ríkisstarfs-
manna. Það eru því um tvö prósent af
vinnumarkaðnum sem enn eigi eftir
að gera kjarasamninga við.
„Hinsvegar eru þetta mjög mikil-
væg störf, þetta eru hópar sem
halda uppi grundvallarþáttum í okk-
ar samfélagsþjónustu. Mjólkurfræð-
ingar hér á árum áður voru til dæm-
is ekkert mjög fjölmennir en þeir
höfðu heljartak á íslensku þjóðlífi,"
segir Gunnar Björnsson.
Til stuðnings því hversu ranga
mynd fólk hefur oft af kjaradeiluin
stéttarfélaga bendir Gunnar á að rík-
ið semji við öll stéttarfélög landsins
nema flugfreyjur og verslunarfólk,
þó hér sé ekki um nema tíu prósent
af vinnumarkaðnum aó ræða. Það
liggur í því að í sama stéttarfélaginu
sé fólk sem hefur nnsmunandi
vinnuveitendur, sumir þroskaþjálfar
falli undir ríkið, aðrir undir Reykja-
víkurborg, launanefnd sveitarfélaga
eða sjálfseignarstofnanir. ■
GUNNAR BJÖRNSSON FORMAÐUR
SAMNINGANEFNDAR RfKISINS
Mjólkurfræðingar eru fámennir en hafa
heljartak á þjóðinni.
brunabjalla Eldvarnarkerfi utanrík-
isráðuneytisins fór í gang í gær
klukkan 17:15 og var slökkvi- og
á vettvang. Þegar
slökkviliðsmenn
komu á vettvang
kom í ljós að urn bíl-
un var að ræða í
kerfinu og því öllum
óhætt. Tveir
slökkviliðsbílar og
einn sjúkrabíll var
kallaður á vettvang
ásamt nokkrum lögreglubílum. Að
sögn slökkviliðsins eru ekki meiri
varúðarráðstafanir viðhafðar þegar
um er að ræða opinberar byggingar
en heimili einstaklinga. Verió er að
athuga hvað olli bilun kerfisins. ■