Fréttablaðið - 03.07.2001, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 03.07.2001, Blaðsíða 10
10 FRÉTTABLAÐIÐ 3. julí 2001 ÞRIÐIUDACU« Grikkland: Kúariðu- smit staðfest Morðingi breskrar sjónvarpskonu: Dæmdur í lífstíðarfangelsi aþena. GRiKKLflNPi. flp. Grísk landbún- aðaryfirvöld hafa staðfest fyrsta kúariðusmitið í landinuv Smitið greindist þann 1. janúar á þessu ári í 5 ára gamalli kú í sláturhúsi í bænum Sidirokastro sem staðsettur er í norð- urhluta Grikklands. Giorgios Anomeritis, landbúnaðarráðherra Grikklands hefur samt sem áður lagt á það áherslu að kjöt- og mjólkurvör- ur séu ekki hættulegar grískum neyt- endum. Grikkir hafa undanfarin ár fylgst náið með innflutningi á kjöti til landsins til að koma í veg fyrir kúar- iðusmit, en alls hafa tæplega 200 þús- und tilfelli greinst í Evrópu frá árinu 1986. ■ LONDON. flp. Barry George var í gær dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morðið á bresku sjónvarpskonunni Jill Dando árið 1999. Tók það 30 klukkustundir fyrir 11 manna kvið- dóminn, að komast að niðurstöðu í málinu. George, sem er 41 árs, neitaði öll- um ásökunum og sögðu verjendur hans að málið gegn honum væri byggt á veikum grunni. Leiddu þeir í máli sínu líkur að því að leyniskytta hafi verið á eftir henni vegna þess að hún stjórnaði sjónvarpsþættinum vinsæla „Crimewatch," þar sem hún fjallaði um glæpi með hjálp uppýs- inga frá almenningi. Nefndu þeir m.a. hún gæti hafa verið myrt af serbneskri leyniskyttu vegna stuðn- ings hennar við flóttamenn frá Kosovo. Ljóst þykir hins vegar að George hafi verið með Dando á heilanum því við húsleit á heimili hans fundust 50 blaðagreinar um Dando, flestar prentaðar eftir dauða hennar. Auk þess fannst sundurrifin mynd af Dando og Dr. Alan Farthing, mannin- um sem hún var í þann mund að fara að giftast. ■ DÆMDUR MORÐINCI Barry George segist saklaus af morðinu á Jill Dando. Vinnuslys: Hlaut slæma höf- uðáverka slvs Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út skömmu eftir hádegi í gær- dag til að sækja slasaðan mann með töluverða höfuðáverka. Að sögn lögreglunnar í Vík fékk maðurinn hamar í höfuðið þegar hann vann við að umfelga dekk á bíl sínum. Kallað var á sjúkrabifreið og lögreglu og var ástandið metið þan- nig að kalla þyrfti til þyrlu. Maðurinn var fluttur á slysadeild Landspítala - háskólasjúkrahús. ■ HJÓLSAGARBLÖÐ HJÓLSAGARBLÖÐ HANDFRÆSITENNUR LOOSKINKEL BIM BANDSAGARBLÖÐ HSS -TENNUR BANDSAGARBLÖÐ Skerping sf. Smiðjuvegi 11 200 Kópavogi Sími. 564 2488 Fax. 564 2550 Viðræður í ljósi gerðardóms Helgi Laxdal segir að rætt verði við útgerðarmenn um það sem betra er í gerðardóminum en samningnum sem gerður var við útgerðarmenn. sjómenn Friðrik Arngrímsson fram- kvæmdastjóri LÍÚ segir að vélstjór- ar verði ekki látnir gjalda þess að hafa dregið vagninn í kjaraviðræðum sjómanna og útvegsmanna, nema síð- ur sé. í framhaldi af niðurstöðu gerð- ardóms um helgina ætla fulltrúar út- vegsmanna og Vélstjórafélags ís- lands að hittast og fara yfir samning þeirra með tilliti til dómsins. Helgi Laxdal formaður Vélstjóra- félags Islands segir að m.a. þess sem þeir muni ræða við útvegsmenn séu t.d. mönnunarmálin, slysatryggingar og hækkun kauptryggingu. Sem dæmi bendir hann að á kauptrygging í samningi vélstjóra hækkar um 30% en 40% hjá öðrum sjómönnum í úr- skurði gerðardóms. Helgi telur ein- nig að vélstjórar eigi einnig að fá ein- hverjar greiðslur til samræmis við það sem þeir fengu sem sátu í gerð- ardómnum. Það sé m.a. vegna þess að vélstjórum hefur kennt um gerðar- dóminn af samtökum annarra sjó- manna og því að gerðardómurinn tekur mið af samningum vélstjóra við útvegsmenn. ■ HELGI LAXDAL FORMAÐUR VÉLSTJÓRAFÉLAGS ÍSLANDS Hann segir að ef það halli á menn í mönnunarmálum þá fái þeir það bætt í fiskverði. 1 .jf' .wpfti. ~ iaf___ , ! i tf>m?t?mj5 FÍN Hrað 25kg icrrx... ■mmmm íslenskar, há- gæða blöndur -fyrir fslenskar I aðstæður. -—Aj Einfalt að velja og nota Sandur ímúr býður íslenska framleiðslu, þróaða fyrir íslenskar aðstæður: sprautumúr, múrblöndur, viðgerðarblönaur, gólfflot, límblöndur, þunnhúðir og ýmsar blöndur. Allar umbúðir frá Sandi ímúr eru með skýrum notkunarleiðbeiningum og öllum nauðsynlegum upplýsingum. sanDur ímÚR Tæknilegar upplýsingar eru á www.sandurimur.is Viðarhöfði 1,110 Reykjavík. Sími: 567 35 55 • Myndsendir: 567 35 42 • www.sandurimur.is Vðrurnar frá Sandi ímúr fást í öllum helstu byggingavöruverslunum Héraðsdómur átelur lög- reglu og öryggisverði: Trúðu ekki sögu um týnt barn dómur. Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í gær fertugan mann af ákæru um búðarhnupl og átelur dómurinn að öryggisverðir og lög- regla hafi ekki tekið alvarlega skýringar mannsins um að hann væri að leita að týndu barni sínu þegar hann gekk út úr verslun í Kringlunni með tvo tölvuleiki und- ir hendinni. Maðurinn sagði að hann hefði verið að skoða tölvuleiki þegar hann áttaði sig á að fimm ára son- ur hans var horfinn. Hann hefði rokið af stað að leita drengsins með tölvudiskana í hendinni. Ör- yggisvörður stöðvaði manninn og kallaði á lögreglu. Hvorki öryggis- vörður né lögregla gerðu tilraunir til að finna barnið og sannreyna skýringar mannsins. Þá var hann aldrei kvaddur til skýrslutöku á lögreglustöð heldur ákærður á grundvelli skýrslu lögreglumanns á vettvangi. í niðurstöðum héraðsdómara segir aö engin launung hafi verið yfir háttsemi mannsins en það sé ábyrgðarhluti af háfu þeirra sem hafa vald til að stöðva fólk að taka ekki skýringar af þessu tagi af ýtr- ustu alvöru. Var ríkissjóður dæmd- ur til að greiða málsvarnarlaun Gísla Gíslasonar, verjanda manns- ins. ■ —*— Gleðiefni fyrir norska neytendur: Matarverð lækkar í Noregi neytendamAl. Norsk stjórnvöld lækk- uðu í gær virðisaukaskatt í landinu um helming, úr 24% í 12%. Tilgang- urinn með lækkuninni er að lækka matarverð í landinu og er búist við að matur verði 10% ódýrari fyrir hinn almenna neytanda í kjölfarið, en búð- areigendur geta sjálfir ákveðið til hvaða ráða þeir taka í tilefni lækkun- arinnar. Að því er kemur fram í norska blaðinu Aftenposten, eru norskir neytendur ekki allir sannfærðir um ágæti lækkunarinnar og telja að stærstu stórmarkaðirnir hafði brugð- ið til þess ráðs að hækka matarverð- ið áður en lækkun virðisaukaskatts- ins tók gildi. Samkvæmt lækkun skattsins átti meirihluti matar og drykkja að lækka í verði, auk þess sem gert var ráð fyrir að skyndibitamatur myndi lækka töluvert. Hins vegar gætu nýju lögin komið illa við þær búðir sem boðið hafa upp á vörur án virðis- aukaskatts og gæti verð hækkað þar umtalsvert. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.