Fréttablaðið - 03.07.2001, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 03.07.2001, Blaðsíða 13
PRIÐJUPAGUR 3. júlí 2001 FRETTABLAÐIÐ 13 ÁNÆGÐUR MEÐ BÖRNIN Hér gefur að líta Tsui Pei Cheng frá Taipei. Hann var ákaflega hrifinn af ungum hnokka sem kippti sér ekkert upp við það þó honum væri klapp- að i bak og fyrir - enda mamma innan seilingar. Á innfelldu myndinni er allur hópurinn fyrir framan styttuna af Jóni Sigurðssyni á Austurvelli. Tævanar í heimsókn: Bing Dao skoðað mannlífið Fjöldi tævanskra ferða- manna lagði undir sig miðbæinn og sleikti sólina og velti fyrir sér þjóð- málum og sögu íslendinga. Hópurinn telur 40 manns og flestir þeirra koma frá höfuðborg Tævan, Taipei. Ferða- mennirnr voru geysihrifnir af landi og þjóð og sögðu blaðamanni Frétta- blaðsins að á Mandarín - þjóðtungu Tævana - nefndist ísland Bing Dao og mikilvægt væri að teygja sér- hljóðana tvo í seinna orðinu. Hópurinn dvelur á Grand hótel og ætlar að stoppa við í þrjá daga og halda síðan áfram reisu sinni um Norðurlöndin. Að lokinni íslands- dvölinni er förinni heitið til Svíþjóð- ar, þaðan verður farið til Finnlands og svo loks Noregs áður en haldið er aftur heim til Formósu. Leiðsögukona ferðalanganna sagði þeim frá afrekum Jóns Sigurðssonar og sjálfstæð- isbaráttu ís- lendinga og síðan var skundað niður að Tjörn og öndunum gef- ið brauð og litlu börnin skoðuð í bak og fyrir og klappað. ■ |lögreglufréttir| • • Okumaður var stöðvaður á Njarð- argötu eftir að hafa ekið á bif- reið og síðan keyrt af vettvangi. Grunur leikur á að maðurinn hafi verið ölvaður. —*— Umferð var mikil um Borgarfjörð á sunnudagskvöld þegar fólk varð að koma sér í bæinn eftir ferðalag helgarinnar. Að sögn lög- reglunnar á Akranesi og Borgarnesi gekk umferðin mjög fyrir sig. Eng- inn hraðakstur átti sér stað og lítið um framúrakstur Bíll valt á Fróðarheiði í gær. Einn maður var í bílnum og hlaut hann minni háttar áverka. Að sögn lögreglunnar í Ólafsvík var mikil þoka og rigning og skyggni lélegt. LÆTUR EKKI GANGA YFIR SIG Poul Mohr sagðist ekki ætla að standa eins og einhver apaköttur fyrir aftan danska embættismenn til að geta tekið á móti forsetanum og hélt sig því fjarri. Mokveiði á kolmuna: Mikið haft fyrir veiðum á loðnu sjávarútvegur „Kolmunaveiðar ganga afskaplega vel en það þarf að hafa heldur meira fyrir loönunni," sagði Freysteinn Bjarna- son, útgerðarstjóri Síldarvinnslunnar á Neskaupstað, þegar Fréttablaðið innti hann eftir afla- brögðum. Freysteinn sagði menn vera að fiska eftir loðnunni langt norður af Grímsey u.þ.b. 100 mílur frá landi Hann sagði styttra í kolmunnann og væru menn að fanga hann í landgrunnskantinum úti á Suðausturlandi. „Þeir eru að mokfiska kolmunnann og eru ekki lengur úti en þrjá til fjóra sólar- hringa. Þeir eru i lengri túrum á loðnuveiðum því það verður að leita mikið.“ Freysteinn sagði loðnuna sem skilaði sér ágæt- lega feita því hún væri alltaf full af átu á þessum árs- tíma. Aðspurður hvort menn væru svart- sýnir á framhald loðnuveiðanna sagði Freysteinn menn alltaf halda í vonina. „Menn eru mishressir með ástandið. Það er aldrei hægt að sjá fyrir með eitt eða neitt hvað hana varðar, hún kemur og fer.“ ■ GOTT GENGI Á KOLMUNANUM En menn þurfa að hafa mikið fyrir loðnunni segir Freysteinn Bjarnason MS-sjúklingurinn sem Lánasjóður íslenskra námsmanna braut á: Finnst ráðherra réttlátt að gjaldfella námslán öryrkja? námslán Jóhannes Davíðsson, gull- smiður og MS-sjúklingur, hefur ritað Birni Bjarnasyni menntamálaráð- herra opið bréf og krafið hann svara um málefni Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN). MS-SJUKLING- URINN Jóhannes Davíðs- son vill að lögin um LÍN verði tek- in endurskoðunar. Umboðsmaður Alþingis úrskurðaði nýlega að stjórn LIN hefði brotið lög á Jóhannesi með því að taka ekki tillit til aðstæðna hans sem MS-sjúklings þegar hún synjaði honum um niðurfellingu á endurgreiðslu af námsláni. Eins ög Fréttablaðið hefur greint frá var höf- uðstóll námslánsins gjaldfelldur eftir að Jóhannes greid- di ekki af því afborganir. LÍN hefur krafist þess af fjölskyldu Jóhannes- ar, sem gekkst í ábyrgð fyrir náms- lánum hans, að hún greiði sjóðnum lánið, hátt í eina milljón króna. Jóhannes bendir í bréfi sínu á að í Danmörku sé ekki krafist ábyrgðar- manna að námslánum. „Finnst ráðherranum réttlátt að LÍN krefjist ábyrgðarmanna á náms- lán, þar sem menntafólkið er framtíð þjóðarinnar og fjárfesting þjóðarinn- ar í framtíðinni? Finnst ráðherranum réttlátt að senda afgang námslána til innheimtu og krefjast þess að ábyrgðarmenn reiði fram það fé, þegar lánþegi er orðinn öryrki?" spyr Jóhannes. Jóhannes segist vera búinn að marg lesa lög lánasjóðsins en ekki rekist á lög er varði skyndilega ör- orku lántaka. „Það er eins og íslend- ingar séu ofurmenni, sem ekkert geti komið fyrir. Væri ekki réttast að gera eins og Danir og gefa sjóðnum heimild til þess að fella niður stand- andi lán lánþega ef hann verður fyrir MENNTMÁLARÁÐHERRA Björn Bjarnason hefur verið krafinn svara um innheimtustefnu LIN varðandi lánþega sem missa heilsuna örorku, því allir vita, að ekki er hægt að rífa í hárið á sköllóttum manni. Fyrir mér er það alveg nóg að missa heilsu mína, að ríkið ekki fari að ganga að fjölskyldu minni þannig að ég missi hana líka,“ segir hann og spyr ráðherrann hversu margir ör- yrkjar greiði nú af námslánum og hversu margir þeirra sæki árlega um undanþágu frá endurgreiðslunum. Jóhannes segist telja að setja þurfi á laggirnar nefnd til að endur- skoða lög um lánasjóðinn, sérstak- lega með tilliti til örorku, og býðst til að taka í henni sæti. Hann mælir með því við ráðherra, að á meðan nefndin starfi verði endurgreiðslur öryrkja til lánasjóðsins frystar. ■ Nú eru daear í o Moorhuhn mót á Vísi.is! vísir.is góður punktur! um+m* iBÓNUSVHBEO; t®®*

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.