Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.07.2001, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 16.07.2001, Qupperneq 16
BEST í BÍÓ BÖÐVAR BJARKI PÉTURSSON kvikmyndagerðamaður Skylda að sjá þær „Ég veit að það eru tvær myndir í kvikmyndahúsunum sem ég verð að sjá. Sú sænska og sú franska. Maður hefði haldið að það væri skylda að sjá þær." ■ SKÁLDAGYÐJA „Án min hefði lagið aldrei verið samið," segir hin brasilíska Helo Pinheiro, stúlkan frá glæsihverfinu Ipanema í Rio de Janeiro Dánarbú lagahöfunda ekki ánægð: Stúlkan frá Ipanema kærð höfunparréttur Hún var hávaxin, sólbrún, ung og yndisleg. Hin brasilíska Helo Pinheiro var inn- blásturinn að laginu The Girl From Ipanema. Dánarbú lagahöf- undanna Vinicius de Moraes og Antonio Carlos Jobim eru búin að kæra hana fyrir að nota lagið sér til framdráttar. Pinheiro, sem er nú 54 ára, hefur gert vinsæla stuttermaboli með mynd af sér og texta lagsins. Hún opnaði einnig nýlega verslun í verslanamiðstöð i Sao Paulo sem heitir The Girl From Ipanema. Þegar textahöf- undurinn Moraes sagði í viðtali fyrir 36 árum að Pinheiro hefði verið innblásturinn að The Girl From Ipanema, varð hún fræg um alla Brasilíu á svipstundu. „Hún var með græn augu, ljóshærð og dökk. Þessi blanda er ótrúlega fal- leg, guðdómleg," sagði Moraes. Dánarbú höfundanna segja að hún hafi engan rétt til að nota verk þeirra eins og henni sýnist. „Þau vilja bætur út af nafninu á búð- inni,“ segir Pinheiro. „Þau eiga höfundaréttinn, ég veit það. En ég var innblásturinn að laginu, skáldagyðjan. Án mín hefði það aldrei verið samið. Ef Moraes og Jobim væru á lífi hefði þetta aldrei gerst.“ Lagið var samið 1962. Moraes dó 1980 og Jobim 1994. ■ EVOLUTION ROBERT kl. 6 VEGURINN HEIM kl. 6 THE VIRGIN SUICIDES kl. 10.30 ftLFABAKKA 8. SÍWI 587 8900 www.samfilm.is FRÉTTIR AF FÓLKI Leikarinn Don Johnson var kærður sl. miðvikudag fyrir hæstarétti San Francisco af konu sem sagði hann hafa gripið í hana og beitt hana kyn- ferðislegu áreiti. Málinu hafði ver- ið vísað frá í byrj- un maí. Sam- kvæmt kærunni gerðist þetta á sushi barnum Mas Sake í San Francisco i janúar. Konan var að snæða ásamt vinum sínum þegar hún rekur augun í Don. Hún er mikill aðdáandi leik- arans, sem hefur leikið mörg hörkutólin, þ.á.m. Sonny Crocket í Miami Vice. Hún ákvað að kynna sig fyrir Don og lýsa yfir aðdáun sinni á honum. Don brást ókvæða við og greip í konuna, sem fer fram á bætur fyrir kynferðislegt áreiti, líkamsárás og tilfinninga- legt tjón. Lögfræðingar Don segja ásakanirnar ekki standast. Fyrrum körfuknattleikmaður- inn Erwin Magic Johnson seg- ist ætla að fylgjast náið með borgarstjóra Los Angeles, James Hahn, næstu fjög- ur árin. Hahn var kosinn í síðasta mánuði og John- son studdi hann opinberlega. Ef honum finnst hinsvegar Hahn ekki standa sig vel ætlar hann að bjóða sig sjálfur fram. „Ég gæti vel hugsað mér að gera það. Ég elska L.A. og vil sjá borgina vaxa og dafna,“ sagði Johnson. „Nú til dags eru það menn úr viðskipta- lífinu sem stjórna borgunum. Ég hef reynslu frá því að reka mitt eigið fyrirtæki.“ Skrifstofa John- son fékk ótal símtöl þar sem fólk lýsti yfir stuðningi sínum við hann eftir að hann minntist ný- lega á að hann gæti hugsað sér að bjóða sig fram. „Fólk sagði: „Ef þú býður þig fram færðu mitt at- kvæði.“ Ég vissi ekki hvað var að gerast. Þetta vatt upp á sig,“ segir Johnson. Hann hætti að spila með Los Angeles Lakers fyrir tæpum tíu árum síðan eftir að kom í ljós að hann var smitaður af HIV veirunni. Hann sneri þó tvisvar aftur á völlinn auk þess að þjálfa liðið lítillega. NABBI FRÉTTABLAÐIÐ HASKÓLABÍÓ | ALONG CAWIE A SPÍPER ' kl. 8 og lÖ| Ég er loksins búinn að ótta mig hvað ég vil gera í framtíðinni. 16. júlí 2001 MÁNUPAGUR j SA«54l-^ Sýnd kl. 4, 6, 8, 10 Og 12 vrr 1« jdaisO PEARL HARBOR HEAD OVER HEELS kl. 6, 8 og sýnd kl. 3.40, 5.45, 8 og 10.10 vrr iso THEMUMMYRETURNS ki. 3.45 og ojf'TI CROCODILE DUNDEEIN LA kl. 4,6,8 og To||VITj SPOT kL 4og6|Q iNÝISlÚXJNNKBSARANSgsLtal) kl. 4| BRIDGET J0NE3 SDUUKT Sýnd kl. 6, 8 og 10 THE WATCHER Sýnd kl. 6, 8 og 10 Fll MHNPIIP Mekka tískunnar sýnir hátísku komandi hausts og vetrar. GLÆSIKJÓLL Hér er glæsilegur kjóll trá Yves Saint Laurent. Hann er nokkuð gegnsær sem er einmitt einkenni á komandi tísku. ÓMISSANDI HATTUR Hattamir eru ómissandi hluti hverrar tlskusýningar. Hér er glæsilegur hattur með perluneti sem Yves Saint Laurent sýndi. tíska Sýningar á tísku kom- andi hausts og vetrar standa nú sem hæst um heim allan. París hefur lengstum verið vagga tískunnar þótt aðrar borgir séu að sækja í sig veðrið í bransanum. Það telst alltaf til tíðinda í tískuheiminum þegar sýnd eru föt frá Yves Saint Laurent. Svo virðist sem pils séu almennt að styttast en Saint Laurent \ sýndi engu að síður kjóla sem náðu niður fyrir hné og sumir vel það. Þýski hönnuður- inn Karl Lagerfeld hjá Chanel notar í ár eingöngu buxur, allt frá dagklæðnaði í \ kvöldklæðnaðinn. í kvöldklæðnaðinum í er hann óspar á j glitrandi og gagn sæja áferð. Sögu- sagnir herma að Lagerfeld hygg- ist setjast helgan stein og óhætt er að segja að mikill missir verður af honum hjá Chanel Hátískan er auðvitað ekki ætluð venjulegu fólki. Hins vegar má alltaf láta sig dreyma og nýta hana til að fá hugmyndir ■ EINTÓMAR BUXUR Hér er dæmi um glæsilegan kvöldklæðnað frá Lagerfeld en hann lét pils og kjóla lönd og leið á tískuvikunni f París á dögunum. Litir og glæsileiki

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.