Fréttablaðið - 16.07.2001, Side 22

Fréttablaðið - 16.07.2001, Side 22
22 FRÉTTABLAÐIÐ 16. 'úlí 2001 MÁNUDAGUR HRAÐSOÐIÐ GÍSLI S. EINARSSON alþingismaður Málið snýst um virðingu Alþingis HVERS VEGNA óskar þú eftir stjórnsýsluúttekt á byggingarnefnd Þjóðleik- hússins? Ég hafði ekki gert mér grein fyrir því að Árni Johnsen væri formaður í byggingamefnd um leið og hann tek- ur ákvarðanir um fjárveitingar til Þjóðleikhússins sem samnefndar- maður minn í fjárveitingarnefnd. Þetta finnst mér óeðlilegt og sömu- leiðis er ljóst af fjölmiðlafréttum að starfshættir nefndarinnar hafa ekki verið í samræmi við góða stjóm- sýsluhætti. Það er í hæsta máta sér- kennilegt að pólitískt kjörinn for- maður byggingarnefndar geri allt í senn, semji við verktaka, samþykki reikninga og sjái um að sækja efni til verka við viðhald og byggingar. HVAÐ veldur því að þú snýrð þér til forseta Alþingis en ekki til ríkisendurskoðun- ar? Þetta mál snýst fyrst og fremst um virðingu Alþingis og forseti þings á að gæta hennar. Ríkisendurskoðun heyrir undir þingið og forsetann og best fer á því að það sé á hendi for- seta að sjá svo um að þetta mál verði hreinsað og klárað skjótt og vel. HVERNIG getur sá misskilningur komið upp að vörur pantaðar vegna leik- munageymslu Þjóðleikhússins eigi að senda til Árna Johnsen í Vestmannaeyjum? Ég leiði engum getum að því hvemig þetta mál er vaxið. Ég hef aðeins far- ið fram á að gerð verði bókhalds- og stjórnsýsluúttekt á fjárveitingu til Þjóðleikhússins til nýframkvæmda og viðhalds vegna yfirstandandi fjár- lagaárs og liðinna ára frá skipun starfandi bygginganefndar. Ég hef óskað eftir því að gerð verði grein fyrir útboðum, eftirliti, verkisamn- ingum, fundargerðum bygginga- nefndar Þjóðleikhússins og áritun . reikninga vegna ráðstöfunar þeirra fjármuna eftir verknúmerum og heitum á hverju verki fyrir sig. Það er best að bíða með allar ályktanir þangað til niðurstaða úttektar liggur fyrir. Císli S. Einarssin er alþingismaður Samfylking- arinnar á Ve landi, og situr m.a. 1 fjárlaga- nefnd ásamt < > Johnsen. Bandaríkin: Þyrst kameldýr ROSEVIILE, MICHIOAN. AP. Clyde, er 10 ára gamalt kameldýr sem þykir gott að svala þorsta sínum með ísköldum gosdrykk á heitum sum- ardegi. Eigandi Clyde er Robert Wilson, eigandi kameldýraleigunn- ar Wilson Camel, en auk þess á hann smáhestaleigu og dýragarð i Vincennes í Indiana. Kameldýra- leigan er vinsæl á meðal forvitinna ferðamanna, sem finnst spennandi að prófa að setjast á bak slíkra dýra. Að sögn Wilson drekkur Clyde 6 til 12 gosdósir á degi hverj- um til að kæla sig niður í hitanum. ■ FRÉTTIR AF FÓLKI I Margir hafa velt því fyrir hvernig Árni Johnsen al- þingismaður hyggist nota grill- skálann sem hann er nú að byggja við setur sitt á Höfðabóli í Vest- manneyjum. Leg- ið hefur á að viða skálann meðal annars vegna þess að hann hef- ur boðið með- nefndarmönnum sínum í fjár- laganefnd að heimsækja sig í vikunni. Fjárlaganefndarmenn kunna að gera sér glaðan dag þegar svo ber undir og ekki er að efa að stórkostlegar móttökur voru í vændum á Höfðabóli. Spurningin er hins vegar hvort fjárlaganefndarmenn hafa mik- inn áhuga á að láta mynda sig í „leikmundadeild Þjóðleikhússins í Vestmanneyjum", eins og grill- skálinn er kallaður um þessar mundir, eftir það sem á hefur gengið í fjölmiðlum. Hvorki formaður né varafor- maður fjárlaganefndar munu hafa vitað að Árni Johnsen væri formaður bygg- ingarnefndar Þjóðleikhússins. Bæði Ólafur Örn Haraldsson for- maður nefndar- innar og Einar Oddur Kristjáns- son varaformaður virðast hafa litið svo á að búið væri að leggja nefndina niður eftir að breyting- um á sal Þjóðleikhússins lauk. Komið hefur fram að ekki var bætt við manni í nefndina eftir að fækkaði um einn í henni, en engu að síður munu nefndar- mönnum hafa verið ákveðin laun fyrir skömmu. Eins og fram héfur komið af hálfu þingmannsins sjálfs hefur Árni Johnsen mörg járn í eldinum. Hann er m.a. formaður Grænlandssjóðs sem styrkir ýmis samstarfsverkefni milli Grænlendinga og íslendinga. Fram hafa komið ábendingar um að þörf kunni að vera á því að kanna einnig bókhald- og fjár- þtixiif jMvitdMitd snyrt ný tilboðsverslun verður opnuð þann 18. júlí ts 2001 i iUMf tilboð ph kl. 7 að morgni mmh p. ■ *íii si ? jkfniððr " Wh&Q icerti iiiat iitg veitiiiEastaðir ffatn STURTAR f SIG GOSI Clyde fær sér sopa í drykkjarpásu, hvíldinni feginn eftir lýjandi leiðangur með ferða- menn. Fjölskylda táningsdrengs kærir Goca-Gola fyrirtækið: Fékk kók-sjálfsala yfir sig og lést réttarmál. Kanadísk fjölskylda kílóa þungur sjálfsalinn féll niður sem missti son sinn þegar hann *- á hann og kramdi hann til bana. fékk kók-sjálfsala yfir sig, hefur j Atvikið átti sér stað sér stað í kært Coca Cola fyrirtækið auk j desember árið 1998. í skýrslu frá fleiri fyrirtækja, fyrir vítavert MtiÁ líkskoðaranum í Quebec kemur kæruleysi og fer fram á um ím>a fram að um slys hafi verið að 700 milljónir króna í skaða- m/fjm ræða. Mælt er með því að settir bætur. Atburðurinn átti sér GW&pj séu viðvörunarmiðar á sjálfsala stað þegar drengurinn, hinn 19 SB auk þess sem setja þurfi upp ára gamli Kevin Mackle, sem búnað sem tryggir að ekki sé var nemi við Bishop háskólann hægt að hrista gosdósir lausar. í Quebec, reyndi að hrista M_:. 35 manns hafa kramist í BNA sjálfsalann í skólanum til þess frá árinu 1978 eftir að hafa að losa um kókdós, þegar 450 fengið gossjálfsala ofan á sig. ■ Ekki hafa áhyggjur George Harrison virðist taka þeim áföllum sem á honum dynja í líf- inu með stóískri ró, enda sagður hafa góð tök á sálarlífi sínu GEORGE HARRISSON Hann hefur tengst fleiru en tónlist um ævina og má þar nefna aðild hans að mynd Monthy Python-hópsins, „Life of Brian". harrison „Kæru vinir og aðdá- endur, George Harrison vill að fólki verði gert ljóst að honum líður vel, er ekki á spítala og þykir miður ef fjölmiðlaumfjöll- unin hefur valdið fólki óþægind- um. Ekki hafa áhyggjur," segir á heimasíðu Bítilsins George Harrison. Hann lauk nýlega geislameðferð vegna heilaæxlis og segja talsmenn sjúkrahúss- ins, Oncology Institute í Sviss, þar sem meðferðin fór fram „ár- angursríkri meðferð hans lauk fyrir mánuði og við sjáum ekki ástæðu til að halda henni áfram eða endurtaka hana.“ Þetta er í þriðja sinn síðan 1998 að krabba- mein greinist hjá Harrison, sem er fyrrum reykingamaður. Hann fékk geilsameðferð vegna æxlis í hálsi 1998 og var litið svo á að með því hefði verið komist fyrir meinið. Fyrr á þessu ári varð Harrison síðan að gangast undir skurðaðgerð í Minnesota, til að fjarlægja æxli úr lungum. Þó sú aðgerð hafi gengið vel og fréttir verið gefnar út um „frábæran bata“ eftir hana, er samt sem áður ekki undarlegt að aðdáend- ur Harrisons séu órólegir nú þegar vágesturinn knýr dyra í þriðja sinn. Hinsvegar virðist hann sjálfur vera í jafnvægi, en það er haft eftir þeim sem til hans þekkja að „háttvísi hans og það hvernig hann hefur náð að glíma við sálarlíf sitt, sé nokkuð sem meta skuli að verðleikum. Hinn hljóðláti Bítill virðist hafa mjög góð tök á þessum þætti lífs síns.“ Ekki vanþörf á því, til dæmis mörgum er í fersku minni þegar brotist var inn á heimili hans í Englandi 1999 og hann stunginn fjórum sinnum í brjóstkassann. Hinn 58 ára gamli Harrison býr nú með eig- inkonu sinni í Toscana á Ítalíu, og lifir ekki eingöngu í efnis- heiminum (samanber heiti plötu hans frá 1973 „Living in the ma- terial world“) heldur hefur til að mynda látið sig varða hugsjónir á borð við umhverfismál og fleira. Bryndis@frettabladid.is reiður þess sjóðs sem þingmað- urinn virðist, að því er heimild- armenn staðhæfa, hafa farið með sem einkamál sitt. Kristinn Þ. Geirsson fram- kvæmdastjóri Goða er ekki vinsælasti maðurinn í bændastétt um þessar mundir. Hann hefur þegar selt kjötvinnslu Goða til KEA, og neitar að reka sláturhús fyrirtækisins á mörgum stöðum á landinu. í viðtali við Morgun- KEPPA Embættismenn fylgjast með því að allt fari vel fram. Malasía: Andasund KUALA LUMPUR 80.000 gular og rauðar gúmmíendur sigldu niður Gombak ánna í Kúala Lumpur í Malasíu í gær. Um var að ræða hið árlegt 1,5 km. kappsund gúmmí- anda í góðgerðaskyni. Þátttakend- ur kaupa önd fyrir tæplega 500 ísl. kr. Eigandi sigurandarinnar fékk 27 þúsund í verðlaun ■ blaðið sl. laugardag segir hann að mikil hagræðingartækifæri séu í greininni en svo hart sé spyrnt á móti öllum hugmyndum um slíkt að allt sé sett í fullkom- in þrot heldur en að gera það sem augljóslega er þörf á, t.d. að stækka sauðfjárbú og fækka slát- urshúsum. Menn hefðu hins vegar átt að vera búnir að sjá þetta fyrir löngu, menn hafa bara neitað að horfast í augu við vandann. Það er að vísu búið að afnema laga- skylduna að greiða bændum fyr- ir dilka að hausti en menn hafa haldið áfram að keyra eftir gamla kerfinu og ég á erfitt með að skilja það. Ég sé að vísu ákveðin rök í því: menn gera það sem þeir eru minnst skammaðir fyrir. Og ég met það þannig að í þessum geira hafi menn verið minna skammaðir fyrir að tapa peningum en að skaffa ekki nógu vel fyrir bændur.“

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.