Fréttablaðið - 03.08.2001, Síða 2
FRÉTTABLAÐIÐ
KJÖRKASSINN
5. ágúst 2001 FÖSTUDAGUR
MARKLAUS
NIÐURSTAÐA
Mikill meirihluti net-
verja telja að úrskurður
Skipulagsstofnunar
mun ekki koma í veg
fyrír virkjun norðan
Vatnajökuls.
Þýðir niðurstaða Skipulags-
stofnunar um Kárahnúkavirkjun
að ekkert verði af virkjuninni?
Niðurstöður gærdagsins
á www.vlsir.is
Spurning dagsins í dag:
Eiga lífeyrissjóðir að taka þátt í
fjármögnun álvers á Reyðarfirði?
Farðu inn á vísi.is og segðu
þína skoðun
Gengið í gær:
Krónan
styrkist
áfram
efnahacsmál Gengi krónunnar
styrktist í gær um 0,2%. Hún hef-
ur því styrkst um 2,2% frá því á
fimmtudag í síðustu viku.
Gengisvísitalan endaði eftir
daginn í 134.7 stigum, en hún
hækkar þegar krónan veikist. Frá
áramótum hefur gengisvísitalan
hækkað um 10,9%.
Ástæðan fyrir styrkingu krón-
unnar undanfarna daga er talin
vera vegna jákvæðra frétta af
vöruskiptahallanum.
í gær voru viðskipti með krón-
una á millibankamarkaði fyrir 1,9
milljarða króna. í fyrradag námu
þessi viðskipti 11,8 milljörðum. ■
.-♦—
Flugslysanefnd:
Fór að
fyrirmælum
RANNSÓKN „Fyrsta yfirferð yfir
þessi gögn staðfesta okkar grun að
í raun var lokaskýrsla Rannsókna-
nefndar flugslysa ekki fyrst og
fremst samin af flugslysanefnd
heldur af Flugmálastjórn. Við feng-
um í hendurnar lokaskýrslu þar
sem flugslysanefnd fór að fyrir-
mælum Flugmálastjómar og niður-
staðan er lokaskýrsla sem er ónýt
og gefur ekki rétta mynd af því sem
gerðist 7. ágúst árið 2000,“ segir
Friðrik Þór Guðmundsson eftir að
Flugmálastjórn íslands afhenti
honum gögn er varða samskipti
stofnunarinnar við Rannsóknar-
nefnd flugslysa.
„Það eru engin rök fyrir þeim
breytingum sem urðu frá drögum
að lokaskýrslu, þegar flugvélin
breyttist frá því að vera ekki loft-
hæf yfir í það að vera Iofthæf. Það
undirstrikar að þessi vél átti aldrei
að fá lofthæfisskírteini og aldrei
fara í loftið eins og hún var á sig
komin,“ segir Friðrik Þór Guð-
mundsson. ■
Átökin í Israel:
Fórnfúsir
sjálfboðaliðar
BEIT JALLA. VESTURBAKKANUM, AP SjÖ-
tíu kristnir sjálfboðaliðar frá
Bandaríkjunum, Evrópu og Japan
hafa dvalist undanfarið á heimil-
um Palestínumanna í smábænum
Beit Jalla á Vesturbakkanum,
skammt frá Jerúsalem. Tilgangur-
inn er sá að vera Palestínumönn-
unum til verndar í þeirri von að
ísraelsmenn hugsi sig tvisvar um
áður en þeir gera árásir á heimili
þar sem vitað er að hinir erlendu
gestir eru til húsa.
Beit Jalla er í litlum dal í næsta
nágrenni við Jerúsalem og hinu
megin í dalnum er ísraelska land-
nemabyggðin Gilo. Sífelld átök
eru þar á milli og frá því síðasta
haust hefur einn ísraelsmaður
fallið í Gilo en tveir Palestínu-
menn og þýskur læknir hafa fallið
í Beit Jalla.
Talsmaður ísraelska varnar-
málaráðuneytisins segist ekki
skilja hvers vegna erlendu sjálf-
boðaliðarnir dveljast eingöngu hjá
Palestínumönnum í Beit Jalla en
ekki hjá ísraelsmönnum í Gilo. ■
BÝR HJÁ PALESTÍNUMÖNNUM
Ronald Forthofer frá Bandaríkjunum, vinstra megin á myndinni, er einn hinna sjötíu fórn-
fúsu sjálfboðaliða.
HITAVEITA SUÐURNESJA, SVARTSENGI
Umhverfisvænn iðnaður á Suðurnesjum sem útheimtir hærra menntunarstig og hærri laun til starfsmanna heldur en áliðnaðurinn.
Nýtt sóknarfæri
í orkugeiranum
Bandarískir fjárfestar áhugasamir um orkufrek netþjónabú hérlendis. Viðrædur á undir-
búningsstigi við Hitaveitu Suðurnesja. Forsenda starfseminnar er nýr sæstrengur Símans
sem mun margfalda flutningsgetu til og frá landinu. Strengurinn er í burðarliðnum,
segir upplýsingafulltrúi Símans.
upplýsincaiðnaður „Við erum í
startholunum með markaðssetn-
ingu á hugmyndinni um netþjóna-
bú,“ segir Olafur Kjartansson,
markaðsfulltrúi hjá Reykjanes-
bæ, en bærinn er einn helstu eig-
enda Hitaveitu Suðurnesja sem
reiknað er með að muni sjá um
orkuna. Bandarískir aðilar hafi
sýnt áhuga á því að fjárfesta á
þessu sviði hérlendis, en gríðar-
legur vöxtur hefur verið í starf-
semi miðstöðva sem hýsa gögn og
netstarfsemi stórfyrirtækja.
„Upphaflega höfðu fjárfestarnir
samband við viðskiptaskrifstofu
utanríkisráðuneytisins og í fram-
haldinu höfðu þeir samband við
Reykjanesbæ og Hitaveitu Suður-
nesja," segir Ólafur og tekur fram
að hann búist við því að farið
verði í markvisst markaðsstarf á
hugmyndinni nú í haust.
„Það sem hefur vakið sérstaka
athygli hjá okkur er hversu orku-
frekur iðnaður af þessu tagi er.
Um er að ræða mjög stórar tölv-
ur; viðmiðunarreglan er sú að
1000 fm netþjónabú útheimtir
u.þ.b. eitt megawatt," segir Ólaf-
ur, en sambærilegt orkumagn
þarf til að sjá rúmlega 1000
manna byggð fyrir rafmagni.
Hann segir vöxtinn í geiranum
ekki síst skýrast af orkukreppu í
Bandaríkjunum og þá sérstaklega
Kaliforníu þar sem mikill fjöldi
tölvufyrirtækja eru með höfuð-
stöðvar. Aðrar ástæður séu að um
mjög plássfreka starfsemi er að
ræða sem henti illa á svæðum þar
sem fasteignaverð er hátt. Þá líta
mörg fyrirtæki á það sem örygg-
isatriði að hafa staðsetningu mik-
ilvægra upplýsinga dreifða. Ólaf-
ur segir starfsemi af þessu tagi
ekki sérstaklega bundna internet-
inu, heldur gætu fyrirtæki á sviði
trygginga, heilsu o.s.frv. leigt
pláss fyrir viðkvæmar upplýsing-
ar.
Helsta forsenda þess að við-
ræður komist í fullan gang sé þó
að gagnaflutningur frá landinu
verði bættur umtalsvert. Heiðrún
Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi
Símans, staðfestir að lagning nýs
sæstrengs sé í burðarliðnum og
verði hann væntanlega tekinn í
gagnið sumarið 2003, en hann
mun liggja frá Austurlandi til
Skotlands, með viðkomu í Færeyj-
um. Reiknað er með að flutnings-
geta hans, eftir að svokallaður
endabúnaður verður tekinn í
gagnið, verði 128 x 10 gb, en til
samanburðar bera núverandi
strengir 2 x 2,5 gb/sek. Margt
bendir því til þess að ekki sé langt
í að orkuauðlind íslendinga dragi
til sín mengunarlausan iðnað.
matti@frettabladid.is
Lyf&heilsa
Opið í Austurveri
frá 8:00 á morgnana
til 2=00 eftir miðnætti
Veðrið um helgina:
Besta veðrið sunnanlands
veðurspá „Laugardag og sunnu-
dag verður einhver smá væta
norðaustanlands en annars hið
ágætasta veður," segir Þorsteinn
Jónsson, veðurfræðingur á Veður-
stofu íslands.
„Hlýjast verður hér sunnan-
lands, í uppsveitum, og allt útlit
fyrir gott veður á þjóðhátíð í Eyj-
um,“ segir Þorsteinn. „Það verður
hæg norðlæg átt á Snæfellsnesi
og sennilega nokkuð bjart .
Kannski ekki alveg eins hlýtt og
sunnanlands en getur farið upp í
15 gráður yfir daginn."
Það eru því helst líkur á vætu á
norðausturlandi en gott veður
sunnan- og vestanlands. Von er á
stöku skúrum og þá helst inn til
BJART VEÐUR UM HELGINA
Líklegt er að landsmenn fái að njóta veð-
urblíðunnar sunnan og vestanlands um
verslunarmannahelgina. Helst hætta á
vætu á norðausturlandi. Hlýjast í uppsveit
um sunnanlands.
landsins. Það ætti því að blása
byrlega á stærstu útihátíðunum, á
þjóðhátíð í Eyjum og Eldborg á
Snæfellsnesi, um helgina. Sam-
kvæmt lögreglunni á Neskaups-
stað í gær var nokkur straumur
bíla í og úr bænum en þykkt yfir
og engin sól. Líkur eru á að það
haldist fram yfir helgi samkvæmt
þessari spá.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
líka gott veður fyrir þá borgarbúa
sem ætla ekki að njóta veðurblíð-
unnar úti á landi. Hætt er við síð-
degisskúrum en lítill vindur og
bjart yfir daginn.
Sjálfur ætlar Þorsteinn að
halda sig í bænum og standa næt-
urvalctina á Veðurstofunni.B