Fréttablaðið - 03.08.2001, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 03.08.2001, Blaðsíða 14
14 FRETTABLAÐIÐ 3. ágúst 2001 FÖSTUDAGUR Símadeild kada: ICR tapar aftur Campbell í byrjunarliðinu: Roma sigraði Arsenal knattspyrna Roma sigraði Arsenal 1-0 í æfingaleik í fyrradag og skoraði Vincenzo Montelía markið rétt fyrir leikhlé. Sol Campbell, sem hefur átt við meiðsli að stríða, var í fyrsta skiptið í byrjunarliði Arsenal, en var skipt útaf í hálfleik. Roma var mun betra í fyrr hálf- leik og hefði liðið getað skorað fleiri mörk. Arsenal tók við sér í síðari hálf- leik og fékk nokkur góð tækifæri til að jafna leikinn. ■ KNATTSPYRNA FH sigraði KR 2-1 á útivelli í gærkvöld og komst þar með upp fyrir ÍBV í þriðja sæti deildarinnar. KR-ingar töpuðu þar með sínum öðrum leik í röð og stefnir í fallbaráttuslag á milli þeirra og Fram. FH komst í 2-0 með mörkum frá Jónasi Grana Garðarssyni og Herði Magnús- syni, en Tryggvi Pétursson minnkaði muninn fyrir KR þegar S mínútur voru eftir af leiknum. Tveir aðrir leikir voru í Síma- deildinni í gær. ÍA sigraði Kefla- vík 1-0 á útivelli með marki frá Hirti Hjartarsyni og Grindavík sigraði Breiðablik 4-2 í Kópavogi. Sinisa Kekic skoraði tvö mörk fyrir Grindavík en Paul McShane og Grétar Hjartarson sitt markið hvor. Ásgeir Baldursson og sko- raði eitt mark fyrir Breiðablik og Albert Sævarsson, markvörður Grindavíkur, gerði sjálfsmark. Símadeild karla KR - FH 1:2 Breiðablik Grindavík 2:4 Keflavík-ÍA 0:1 1. deild karla KA - Stjarnan 1:1 KS - Þór 1:8 Víkingur - Tindastóll 3:0 ÍR - Þróttur 4:4 SÍMADEILDIN Lið Leikir U J T Mörk Stig Fylkir 12 7 4 1 23 :8 25 ÍA 12 7 2 3 18 : 9 23 FH 12 6 3 3 13 : 10 21 IBV 12 6 2 4 9 : 11 20 Grindavík 11 6 0 5 18 : 17 18 Valur 12 5 2 5 15 : 17 17 Keflavik 12 4 3 5 16 : 18 15 KR 11 3 2 6 9 : 14 11 10 Fram 12 3 1 8 15 : 20 Breiðablik 12 2 1 9 11 : 23 7 1. DEILD KARLA Lið Leikir U J T Mörk Stig KA 12 8 3 1 28 : 10 27 Þór Ak 12 8 2 2 36 : 13 26 Stjarnan 12 6 5 1 23 : 12 23 Þróttur 12 5 4 3 18 : 15 19 Víkingur 12 4 4 4 21 : 15 16 |R 12 2 8 2 23 :27 14 Dalvík 12 4 1 7 17 : 29 13 Tindastóll 12 3 3 6 18 : 29 12 Leiftur 12 3 2 7 14 : 21 11 KS 12 O 2 10 7 : 34 2 Leikmannakaup: Zenden til Chelsea knattspyrna Chelsea hefur keypt hol- lenska landsliðsmanninn Boudewijn Zenden frá Barcelona á rúman millj- arð króna. Zenden, sem er 24 ára gamall og lék með Eiði Smára Guðjohnsen hjá PSV Eindhoven á sín- um tíma, skrifaði undir 4 ára samning við Lundúnarliðið í gær. Zenden, sem leikur á vinstri kantinum, missti sæti sitt í liði Barcelona til Marc Overmars á síðasta leiktímabili. Nokkur lið höfðu sýnt honum áhuga m.a. Newcastle en Zenden hafði ekki áhuga á að fara til Norður-Englands. Zendan er fjórði leikmaðurinn sem Chelsea kaupir fyrir veturinn. ■ MOLAR Laugavegshlaupið var haldið á dögunum og hlupu keppendur 55 km milli Landmannalauga og Þórs- markar. Alls tóku 101 hlaupari þátt en það var Bandaríkjamaðurinn Charles Hubbard sem sigraði. Hann hljóp vegalengdina á 4:39:21 klukku- stundum. Guðmann Elísson var í öðru sæti, hljóp á 4:54:08. f þriðja sæti var Bretinn John Smallwood en hann hljóp á 4:56:08. í sveitakeppni voru það IR karlar skokk, þeir Haukur Friðriksson, Stefán Örn Einarsson og Gauti Höskuldsson, sem stóðu sig best samanlagt. Gamlir NFR, Guðmann Elísson, frausti Valdimarsson og Lárus H. Blöndal, voru í öðru sæti. Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum hefst í dag í Edmonton í Albertafylki í Kanada. Allir bestu frjálsíþróttamenn heimsins eru þarna samankomn- ir og munu etja kappi næstu daga. Áður en mótið hófst voru íþrótta- menn þegar farnir að deila. Heims- meistarinn Gabriela Szabo hót- aði því að draga sig úr keppni í 5000 metra hlaupinu ef keppinautur hennar, Rússinn Olga Yegorova, fær að taka þátt. Yegorova féll á lyfjaprófi í júní en forráðamenn Heimsmeistaramóts- ins voru í gær að bíða eftir niður- stöðum úr öðru prófi. Um var að ræða EPO hormóninn, sem eykur þol. Szabo, sem er einnig Ólympíu- meistari í 5000 metra hlaupi, segir að framfarirnar sem Yegorova náði á síðasta ári séu grunsamlegar. Yegorova náði að sigra hana í 3000 metra hlaupi á Heimsmeistaramót- inu innanhúss í mars sl. „Ef hún verður þarna í startinu hleyp ég ein- faldlega ekki. Það er ekki rétt að hún hlaupi," sagði Szabo, sem á möguleika á að vinna sinn þriðja heimsmeistaratitil í röð. „Það væri skynsamlegra að hafa sér keppni fyrir þá sem taka EPO og þá sem gera það ekki.“ ■ M 100 IÆ'1’0 í Hagkaupum Skeifunni og Nesti Ártúnshöfða 3. ágúst milli klukkan 16-18. E HM ■MM Greene hleypur meiddur Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum hefst í Edmonton í Kanada í dag. Einn af hápunktum keppninnar verður 100 metra hlaup karla, en allir bestu spretthlauparar heims munu þar etja kappi saman. Heimsmetið er 9,79 sekúndur. frjálsar ÍÞRÓTTIR Heimsmeistara- mótið í frjálsum íþróttum hefst í Edmonton í Albertafylki í Kanada í dag, en því lýkur 12. ágúst. Einn af hápunktum mótsins verður án efa 100 metra hlaup karla, en þar verða allir bestu spretthlauparar heims í eldlínuninni. Hlaupið verð- ur í riðlum á laugardaginn, en úr- slitahlaupið verður á sunnudaginn. Heimsmetahafinn Maurice Greene frá Bandaríkjunum og Ado Boldon frá Trinidad og Tobago eru taldir sigurstranglegastir, en Tim Montgomery sem sigraði á Grand Prix mótinu í Osló á dögunum og Bretinn Dwain Chambers munu án efa veita þeim harða keppni. Kanadamaðurinn Donovan Bailey mun einnig taka þátt í 100 metra hlaupinu, en hann hefur átt í erfið- um hnémeiðslum og því er varla gert ráð fyrir honum í toppbarátt- una. Bailey er einn af aðeins þrem- UNDIRBÚNINGUR Undirbúningi fyrir Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum er nú lokið enda hefst mótið i dag. ur mönnum sem hefur átt heims- metið í 100 metra hlaupi og sigrað bæði á Ólympíuleikum og Heims- meistaramóti. Maurice Greene, sem á heims- metið í 100 metra hlaupi sem er 9,79 sekúndur og var sett á Heims- meistaramótinu í Aþenu fyrir tveimur árum, hefur einnig átt við hnémeiðsli að stríða. Boldon, sem er æfingafélagi Greene, sagði í viðtali við Kanadíska dagblaðið Edmonton Journal að Greene væri augljóslega ekki orðinn góður af meiðslunum. Meiðslin háðu honum á æfingum, sérstaklega í byrjun og lok hlaups. Bailey sagði að sú staðreynd að Greene hefði ákveðið að vera með í 100 metra hlaupinu gæfi öðrum hlaupurum byr undir báða vængi. Ef Greene hefði ákveðið að vera ekki með hefði það sett ákveðinn skugga á hlaupið og sigurvegar- ann. Margir myndu draga þá álykt- un að hann hefði aðeins sigrað vegna þess að Greene hefði ekki verið með. Þó Greene og Boldon séu taldir sigurstranglegastir verða þeir að vara sig á Montgomery, en hann hljóp á 9,84 sekúndum í Osló og virðist því vera i mjög góðu formi. Ólíklegt er talið að Greene verði með í 200 metra hlaupinu vegna meiðslanna. Boldon ætlar hins vegar að vera með þó hann hafi aðeins tekið þátt í tveimur 200 metra hlaupum á árinu. „Ég bý yfir mikilli reynslu og held því að ég hafi smá forskot á aðra hlaupara," sagði Boldon. „Á góðum degi get ég hlaupið 200 metrana á 19 sekúndum en flestir hinna eiga 20 sekúndur best.“ trausti@frettabladid.is HEIMSMETAHAFINN Maurice Greene, Ólympíumeistarinn í 100 metra hlaupi, ætlar að vera með I Edmonton þrátt fyrir að vera meiddur á hné. Nýliðamir styrkja leikmannahópinn: Van der Sar til Fulham knattspyrna Fulham, nýliðarnir í ensku úrvalsdeildinni, hafa keypt hollenska landsliðsmarkvörðinn og fyrrum leikmann Juventus, Edwin Van der Sar fyrir 7 milljón- ir punda, sem samsvarar tæpum milljarði íslenskra króna. Mark- vörðurinn gerði fjögurra ára samning við liðið sem tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni með því að vinna 1. deildina í fyrra með yfir- burðum. „Ég er ánægður með að hafa skrifað undir samning við Ful- ham,“ sagði van der Sar. „Þetta minnir mig á tímabilið sem ég spilaði með Ajax fyrir átta eða níu árum. Þá var fótboltinn mikivæg- ur en það var vingjarnlegt and- rúmsloft. Þetta er eins og ein stór fjölskylda. Mér líður eins og heima og það er vel tekið á móti mér.“ Van der Sar er ánægður með framtíðaráætlanir liðsins og hann segist kunna að meta markmiðin sem það hefur sett sér. Jean Tig- ana, stjóri Fulham, og van der Sar ræddu lengi saman um markmið- in sem stjórinn hefur sett sér. „Hann vill fara alla leið á toppinn með liðið og hann sýndi það og sannaði með Monaco að hann get- ur farið alla leið.“ Tigana er mjög ánægður með að hafa krækt í leikmaninn enda hefur hann lengi verið talinn einn besti markvörður heims. Hann vann þrjá deildatitla með Ajax í hollensku deildinni á árunum 1994-1996, hann hefur spilað 44 landsleiki með Hollandi og gekk til liðs við Juventus fyrir tveimur árum síðan. Staða hans var hins- vegar í hættu þegar liðið keypti ítalska landsliðsmarkvörðinn Gi- anluigi Buffon. ■ TIL englands Edwin van der Sar er á leið til Englands þar sem hann mun spila með nýliðum Ful- ham (ensku úrvalsdeildinni. Leikmannakaup: Manninger til Fiorentina knattspyrna Alex Manninger, markvörður Arsenal, er á leið til ítalska efstu deildar liðsins Fior- entina. Búist er við að hann skrifi undir samninginn í dag en hann þarf fyrst að gangast undir lækn- isskoðun. Austuríkismaðurinn sætti sig ekki við að vera þriðji markvörður Arsenal, á eftir Dav- id Seaman, landsliðsmarkverði og Richard Wrigth sem keyptur var til liðsins í sumar. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.