Fréttablaðið - 03.08.2001, Page 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
5. ágúst 2001 FÖSTUPAGUR
SVONA ERUM VIÐ
LAUN EINSTAKLINCA
ÞEGAR TEKIN ERU SAMAN I SKATT-
FRAMTÖLUM EINSTAKLINGANNA
LAUNAGREIÐSLUR Á HVERJU ÁRI ER
HÆGT AÐ SJÁ HVERNIG ÞESSAR
GREIÐSLUR HAFA HÆKKAÐ SlÐAST
LIÐIN FIMM ÁR. TÖLURNAR HÉR AÐ
NEÐAN ERU I MILUÓNUM KRÓNA.
350
300
250
200
150
100
50
~ 1996 1997 1998 1999 2000 2001
Umferðarmál:
Tugur
manna
slasast
daglega
UMFEWÐIN Nálega tugur manna
slasast daglega í umferðinni hér-
lendis. Karlar valda næstum
helmingi fleiri slysum en konur
og munurinn er enn meiri ef ald-
urshópurinn 17-20 ára er aðeins
skoðaður. Þetta kemur meðal ann-
ars fram í nýjum tölum frá VÍS.
Þar kemur einnig fram að heildar-
tala slasaðra á síðasta ári var yfir
3.500 manns og að 65% þeirra sem
létust í umferðarslysum á síðasta
ári voru karlar. Samkvæmt nýj-
ustu skýrslu Rannsóknarnefndar
umferðarslysa er of hraður akst-
ur algengasta ástæða banaslysa í
umferðinni ef frá er talin sú
ástæða að bflbelti er ekki notað.
Framundan er verslunarmanna-
helgin og ekki úr vegi að fólk taki
þessar tölur til athugunar, aki
hægar og noti bílbelti. ■
—♦—
Hæstiréttur í Alabama:
Minnisvarði
um boðorð-
in tíu af-
hjúpaður
MONTCOMEWY. ALABAMA. AP. RÚm-
lega 2000 kílóa þungur og tvegg-
ja metra hár minnisvarði tileink-
aður boðorðunum tíu hefur verið
afhjúpaður í sal hæstaréttar Ala-
bama-fylkis í Bandaríkjunum.
Deilur hafa lengi verið uppi í
Bandaríkjunum um hvort hafa
eigi boðorðin til sýnis í skólum
eða á opinberum stöðum og hefur
m.a. verið vísaði í ákvæði í
stjórnarskránni um aðskilnað
ríkis og kirkju. Auk boðorðanna
eru tilvitnanir grafnar í minnis-
varðann frá forfeðrum Banda-
ríkjanna þar sem þeir styðja það
að boðorðin skuli notuð sem
grundvöliur laga. ■
[löcreglufréttir
Blönduóslögreglan á von á
miklum fjölda fólks á Kántrí-
hátíðina á Skagaströnd. „Við
fáum aðstoð frá Reykjavík. Það
er ómögulegt að segja hversu
margir koma - það fer eftir veðri
- en spáin er ágæt,“ sagði lög-
reglukona á Blönduósi.
—«—
Miðstöð lögreglunnar á Vest-
fjörðum verður á ísafirði -
en starf allra lögreglutöðva á
Vestfjörðum og Búðardal verður
stjórnað þaðan.
Fj ármálaeftirlitið:
Virða þarf kínamúra
VEWÐBWÉF „Það er skylda fjár-
málafyrirtækja samkvæmt lög-
um að setja sér ákveðnar reglur
um verðbréfaviðskipti sem
þurfa í framhaldinu staðfest-
ingu frá okkur,“ segir Páll
Gunnar Pálsson, forstjóri Fjár-
málaeftirlitsins, en stofnunin
gaf nú í vikunni út leiðbeinandi
tilmæli um verðbréfaviðskipti
til fjármálafyrirtækja. Þar eru
þau minnt á gildandi reglur um
ýmis atriði, svo sem viðskipti
með óskráð verðbréf, kínamúra
á milli deilda og viðskipta milli
eignarhluta fjármálafyrirtækja.
PÁLLGUNNAR
PÁLSSON
Misbrestur hefur orð-
ið á að reglum um
verðbréfaviðskipti
hafi verið fylgt.
Hann tekur
fram að nokk-
uð hafi borið á
því að reglur
séu brotnar, án
þess að nefna
einstök dæmi.
Páll neitar
því ekki að
miklar hækk-
anir á gengi
hlutabréfa
undir lok upp-
gjörstímabila,
samanber ný-
leg viðskipti
Búnaðarbankans við sjálfan sig
með bréf ÚA, séu ein af birting-
armyndum þessa. Tilefni til-
mælanna sem Fjármálaeftirlitið
gefur nú út sé þó frekar að
bregðast við lengri sögu. Að
auki voru gefin út tilmæli um
meðferð trúnaðarupplýsinga og
viðskipti innherja með
hlutabréf fyrirtækja.
„Við viljum gera aðilum ljóst
fyrirfram við hverskonar við-
skipti við munum gera athuga-
semdir við á grundvelli nýlegra
laga um verðbréfaviðskipti,“
segir Páll Gunnar. ■
Blönduós:
Maður
tekinn með
fíkniefni
LÖCWEGLUMÁL Maður var tekinn
með fíkniefni og áhöld til fíkni-
efnaneyslu um ellefuleytið í
fyrrakvöld. Að sögn lögreglunnar
á Blönduósi komst upp um mann-
inn þegar lögreglan viðhafði
reglubundið eftirlit en grunur lék
á að ekki væri allt með felldu.
Maðurinn sem var á leið norður
viðurkenndi að vera eigandi efnis-
ins en tveir voru í bflnum. Hann
var færður til yfirheyrslu en var
sleppt að því loknu. Málið telst að
fullu upplýst. ■
Umferðarþungi mikill
um eftirmiðdaginn
Mesta umferðarhelgi ársins framundan. Löggæsla tvöfaldast á mörgum stöðum. Lagt til að þeir
sem ætla að leggjast í ferðalög verði snemma á ferðinni.
VEBSLUNAWMANNAHELCIN Verslunar-
mannahelgin er framundan og má
segja að hún hefjist formlega í
dag. Búast má við því að flestir
landsmenn bregði sér af bæ og
leggist í ferðalög þessa helgi.
Fréttablaðið kannaði á nokkrum
stöðum á landinu hvenær búast
mætti við að mesti umferðar-
þunginn yrði og talaði m.a. við
Richarð J. Björgvinsson, aðal-
varðstjóra umferðardeildar lög-
reglunnar í Reykjavík. „Það má
búast við því að strax upp úr fjög-
ur fari umferð töluvert að aukast.
Við ætlum að vera með aukalið
staðsett á Vesturlands- og Suður-
landsvegi bæði á bifreiðum og
bifhjólum og einnig verðum við í
góðu samstarfi við löggæsluna á
Vesturlandi og á Suðurlandi.“
Richarð sagði hraðamælingar
verða öflugar og einnig að gripið
yrði inn í ef eitthvað athugavert
væri við búnað bifreiða. „Það sjá
allir sem ferðast um landið að
fellihýsi eru orðin ansi fyrirferð-
armikil og að þau séu jafnvel
breiðari en fólksbílarnir. Við
leggjum mikla áherslu á að bílar
séu búnir framlengdum hliðar-
speglum þannig að þeir geti fyl-
gst með hvað sé að gerast í um-
ferðinni fyrir aftan.“ Richarð
sagði lögregluembættum víða um
land hafa verið send fyrirmæli
um að fylgjast vel gangi mála.
Hann vildi einnig koma því á
framfæri að í gær hafi verið sett-
ar upp hraðamyndavélar í Hval-
fjarðargöngunum og að þar yrði
fylgst vel með hraðanum. Þess
má geta að hámarkshraði í göng-
unum er 70 kílómetra á klukku-
stund.
Lögreglan í Borgarnesi sagð-
ist búast við því að umferðar-
þunginn yrði orðinn ansi mikill
um þrjúleytið á föstudeginum og
vildi viðmælandi Fréttablaðsins
ráðleggja fólki að vera snemma í
því. Það sama var að heyra á lög-
reglunni á Blönduósi sem taldi
að umferðarþunginn yrði kom-
inn í hámark um þrjúleytið og að
hann myndi standa tíl ellefu um
kvöldið. Sagði talsmaður lög-
reglu löggæsluna tvöfaldast yfir
verslunarmannahelgina.
Fréttablaðið hafði samband
við lögregluna á Selfossi sem
sagði umferð aukast um leið og
vinnu lyki eða upp úr fjögur og
stæði fram á kvöld. Þar um slóð-
ir verður reglubundið eftirlit
meira en á öðrum tímum.
kolbrun@frettabladid.is
MIKIL UMFERÐ
Það fólk sem ætlar sér að ferðast um helgina er bent á að leggja snemma af stað til að losna við mesta umferðarþungann sem talinn er
að hefjist um þrjúleytið í dag.
Tölvuormurinn Gode Red:
Hefur Vcildið skemmdum
á 135 þúsund tölvum
WASHINCTON. AP. Tölvuormurinn
Code Red hefur valdið skemmd-
um á um 135 þúsund tölvum um
allan heim og er það minni skaði
en búist hafði verið við. Ormurinn
ræðst á tölvur sem tengdar eru
Netinu og eru með Microsoft NT
eða Windows 2000 stýrikerfi.
Bandaríska varnarmálaráðuneyt-
ið varð að loka fyrir aðgang al-
mennings að netsíðum sínum, að-
eins viku eftir að það lokaði í ör-
yggisskyni fyrir flestar síður sín-
ar sem tengdust hernum. Ólíkt
öðrum tölvuvírusum, sem þurfa á
fólki að halda til að breiða út
vírusinn í aðrar tölvur, þá breiða
tölvuormar sig út sjálfir. í flestum
tilfellum valda þeir hins vegar
ekki skemmdum á heimilistölv-
um. Þegar útbreiðsla tölvuorms-
ins hófst fyrir alvöru óttuðust
ráðamenn að hann myndi hafa
svipuð áhrif og þegar hann fyrst
kom fram þann 19. júlí sl. þegar
hann biftist í yfir 250 þúsund
tölvukerfum um heim allan, en
svo hefur þó ekki orðið. Tölvusér-
fræðingar hafa þó varað við því
að Code Red hafi ekki enn sungið
sitt síðasta og geti enn valdið
miklum skaða. ■
GREINIR FRÁ ORMINUM
Öryggisfulltrúi frá Microsoft svarar
spurningum fréttamanna á blaða-
mannafundi sem haldinn var I
Washington nýlega.