Fréttablaðið - 03.08.2001, Side 6
6
FRÉTTABLAÐIÐ
3. ágúst 2001 FÖSTUPACUR
SPURNING DAGSINS
Hvaða ráðleggingar gefur þú
ökumönnum fyrir helgina?
Hafa hraðann hæfilegan, fara varlega í
framúrakstur, ekki fara framúr þar sem er
heil óbrotin lína, því þar er ekki tæknilegur
möguleíkí á að sjá nægilega það sem
framundan er. Síðan á að spenna beltin og
áfengi og akstur fara ekki saman, fólk verð-
ur lika að gæta vel að því morguninn eftir
áfengisneyslu. Svo er mjög óráðlegt að
halda þreyttur í langan akstur.
Sigurður Helgason er upplýsingafulltrúi umferðarráðs
SIGURBJÖRN SVEINSSON
Greiðsla fyrir rekstrarkostnað skýrir mis-
munandi háar greiðslur.
Greiðslur fyrir læknis-
þjónustu:
Háls-, nef og
eyrnalæknar
hæstir
HEILBRIGÐISÞJÓNUSTA HálS-, nef Og
eyrnalæknar fengu hæstu meðal-
talsgreiðsluna um 14,4 milljónir
króna frá hinu opinbera í fyrra.
Næstir koma svæfingar- og gjör-
gæslulæknar með um 11,8 millj-
ónir króna og síðan augnlæknar
með um 11,6 milljónir.
„Töluvert af vinnu háls-, nef og
eyrnalækna fer fram utan sjúkra-
húsa fyrir þeirra eigin reikning.
Og þeir framkvæma aðgerðir, eru
í raun og veru skurðlæknar, og
þurfa að reka skurðstofur með
heilbrigðisstarfsfólki. Þessar
greiðslur felast í því, að greiða
fyrir þennan rekstrarkostnað,“
segir Sigurbjörn Sveinsson, for-
maður Læknafélags íslands.
Heildargreiðslur til lækna á
síðasta ári námu um 8,1 milljarði
króna. í nýrri úttekt ríkisendur-
skoðunar segir, að þegar greiðslur
til lækna í einstökum greinum eru
skoðaðar, kemur í ljós allmikill
munur milli sérgreina. í þessum
tölum er enginn kostnaður dreg-
inn frá sem getur skýrt muninn
milli lækna innan sérgreinanna.
Sérfræðingar sem reka eigin
læknastofu bera allan rekstrar-
kostnað af þeim og fá því hærri
greiðslur heldur en ef þeir væru
launþegar.
Ef borið er saman við árið 1992
sést að háls-, nef- og eyrnalæknar
fengu einnig hæstu meðaltals-
greiðsluna frá opinberum aðilum.
Sú greiðsla nam 7,6 milljónum
króna.
Sérgrein lækna Fjöldi Meðal greiðslur í þús. kr.
1. Háls-, nef- og
eyrnalæknar 16 14.365
2. Svæfinga- og
gjörgæslulæknar 47 11.786
3. Augnlæknar 27 11.591
4. Þvagfæralæknar 12 11.362
5. Húð- og
kynsjúkdómalæknar n 10.964
6. Bæklunarlæknar 32 10.815
7. Rannsóknalæknar 9 10.736
8. Lýtalæknar 9 10.345
9. Fæðingar- og
kvensjúkdómalæknar 36 10.282
10. Skurðlæknar 45 10.228
Árni Johnsen:
Sagði af sér
þingmennsku
alþingi Árni Johnsen hefur sagt af
sér þingmennsku. Hann segir í til-
kynningu að hann hafi leitað skýr-
inga á hrapallegu hliðarspori.
Hann segir brot sín blasa við öll-
um og engum en sér sé um að
kenna. Árni segir ýmsa hafa seilst
eins langt og þeir geti til að koma
á sig höggi. Orðrétt segir þing-
maðurinn fyrrverandi: „Þið, sem
þekkið þig best, vitið sjálfsagt að
sú ákvörðun er mér næstum
óbærileg. Þingmennskan hefur
verið mér miklu meira en starf.
Hún hefur verið mér hálft lífið,
áskorun um að leggja mig allan
fram, þjóna sem best hagsmunum
og heill umbjóðenda minna og
greiða götu þeirra á alla lund.“
í lok yfirlýsingar sinnar segir
Árni: „Ég veit að það verður ekki
létt eða auðvelt að vinna traust
ÁRNI JOHNSEN
Ýmsir hafa orðið til að seilast svo langt
sem verða má til að koma á mig höggi,
þar sem ég stend höllum fæti.
ykkar og fullan trúnað á ný. En
ekkert þrái ég heitar á þessari
stundu. Ég þakka þá hlýju og vin-
áttu sem þið hafið sýnt mér í
þessu harða hreti á hásumri." ■
Tækninýjung í lækna-
heiminum:
Gleypanleg
myndavél
washington. AP. Bandarísk stjórn-
völd hafa ákveðið að leyfa notkun
lítillar myndavélar sem sjúklingar
geta gleypt til þess að læknar geti
séð innyfli þeirra vegna þarma-
vandamála sem þeir hafa. Mynda-
vélin, sem veldur engum sársauka,
ferðast í gegnum meltingarveginn
með því að nota þráðlausa tækni
sem sendir litmyndir tilbaka af inn-
yflunum sem læknarnir rannsaka
síðan. Það var fyrirtækið Giyen
Imaging Ltd., sem staðsett er í ísr-
ael, sem hannaði vélina og hefur
hún þegar vakið mikla athygli í
læknaheiminum. ■
Hflaut
dóm fyrir
þjóðar-
morð
Bosníu-Serbinn Krstic hlaut 46 ára fangelsis-
dóm. Líklegt að Karadzic og Mladic yrðu líka
dæmdir sekir um þjóðarmorð.
FYLGST MEÐ UPPKVAÐNINGU DÓMSINS
Þessar konur, sem allar lifðu af hildarleikinn í Srebrenica, fylgdust spenntar með upp-
kvaðningu dómsins í beinni útsendingu í gær.
haag. ap Stríðsglæpadómstóll
Sameinuðu þjóðanna í Haag
dæmdi í gær Radislav Krstic,
hershöfðinga í her Bosníu-Sera,
sekan um þjóðarmorð og hlaut
hann 46 ára fang-
elsisdóm fyrir
hlutdeild sína í
fjöldamorðum og
nauðungarflutn-
ingum í Srebren-
ica árið 1995.
Þetta er í fyrsta
sinn sem maður er
dæmdur sekur um
þjóðarmorð í Evr-
ópu frá lokum
seinni heimsstyrj-
aldarinnar, en átta
manns hafa hlotið
dóm fyrir þjóðar-
morð vegna
fjöldamorðanna í
Rúanda.
Nenad Petrusic,
verjandi Krstics,
segir að dómnum verði áfrýjað,
bæði sektarúrskurðinum sem og
lengd fangelsisvistarinnar.
Hvað er þjóð-
armorð?
Samkvæmt al-
þjóðalögum
er þjóðarmorð
skilgreint sem
„athöfn sem
framin er í því
augnamiði að
eyða, að öllu
leyti eða að
hluta til hópi
fólks af til-
teknu þjóð-
erni, þjóð-
flokki, kyn-
þætti eða
trúflokki"
RADISLAV KRSTIC
Fyrsti maðurinn sem hlýtur dóm fyrir þjóðarmorð vegna stríðsins í Bosníu.
Krstic er æðsti yfirmaður í
her Bosníu-Serba sem til þessa
hefur komið fyrir dómstólinn, en
hann hefur jafnan neitað allri
ábyrgð á því sem gerðist og segir
að yfirmaður sinn, Ratko Mladic
hershöfðingi, hafi gefið skipan-
irnar. Dómstóllinn taldi engu að
síður að Krstic hafi á sínum tíma
verið fullljóst að fjöldamorð áttu
sér stað og sem yfirmaður í hern-
um beri hann ábyrgð á atburðun-
um.
í dómsorðunum segir að vís-
vituð ákvörðun hafi verið tekin
um að drepa alla karlmenn í
Srebrenica eftir að hersveitir
Serba höfðu tekið borgina, sem
Sameinuðu þjóðirnar höfðu út-
nefnt sérstakt verndarsvæði í
Bosníustríðinu. Þúsundir kvenna,
barna og gamalmenna voru flutt
nauðungarflutningum frá Srebr-
enica.
„Niðurstaðan var óumflýjan-
leg útrýming allra Bosníu-mús-
lima í Srebrenica," segir dóm-
stóllinn. „Það sem var þjóðernis-
hreinsun varð að þjóðarmorði."
Úr því að Krstic var dæmdur
sekur um þjóðarmorð má telja
allar líkur á því að bæði Radovan
Karadzic, hinn pólitíski leiðtogi
Bosníu-Serba, og Ratko Mladic
hershöfðingi, verði einnig dæmd-
ir sekir um þjóðarmorð komi mál
þeirra til kasta dómstólsins. ■
Fyrri helmingur ársins:
V öruskiptahalli minni
efnahagslíf Vöruskiptahallinn á
fyrri helmingi þessa árs er 9,8
milljarðar króna samanborið við
17,3 milljarða á sama tíma í
fyrra.
í fréttum fjármálaráðuneytisins
segir að þetta gefi til kynna að
efnahagslífið sé að leita jafnvæg-
is á ný og vöruskiptahalli fari ört
minnkandi með hverjum mánuði
sem líður.
Hagstæðari vöruskiptajöfnuð
má rekja til aukins útflutnings,
en heildarútflutningsverðmæti
var um 19 milljörðum hærra en í
fyrra. Tæplega helming aukning-
arinnar má rekja til sjávarútvegs
og um þriðjung til aukins álút-
flutnings.
Verðmæti innflutnings dróst
saman um 3% að raungildi.
Mestu munar um að innflutning-
ur neysluvara minnkaði um tæp-
lega 17% og er samdráttur í bíla-
innflutningi mestur.
í fréttum ráðuneytisins segir
að af þessum tölum megi ráða að
spá Þjóðhagsstofnunar, um tæp-
an 39 milljarða vöruskiptahalla á
árinu öllu, stæðist tæplega.
Sennilegra sé að hallinn verði
umtalsvert minni. ■
MEIRA ÚT, MINNA INN
Innflutningur á neysluvörum hefur
dregist saman og munar þar mestu
um samdrátt í bílainnflutningi.